Morgunblaðið - 07.06.1992, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992
C Í3
Morgunblaðið/Sverrir
Tryggvi Tryggvason, arkitekt.
hönnuðum innréttingum, þaðget-
ur verið eitthvað eitt atriði eða tvö
sem fá að njóta sín og láta heildar-
myndina ganga upp.
En það vantar oft upp á að
fólk sé að velta fyrir sér rýminu
sem það ætlar að þúa í, þegar
verið er að velta fyrir sér framtíð-
arhúsnæðinu. íslendingar eru dá-
lítið gjarnir á að skoða hús að
utanverðu á sunnudagseftirmið-
dögum og þeir leggja oft mikla
áherslu á útlit hússins að utan.
Það er kannski lagður gífurlegur
kostnaður í glæsilegt þak, það er
glæsileg aðkoma að húsinu, það
er lagt í súlur, bogagöng og ann-
Morgunblaðið/Þorkell
Innanhússarkitektarnir Guðrún Margrét og Oddgeir á vinnustofu sinni.
fenginn innanhússarkitekt til að
hanna innréttingar, í stað þess að
láta teikna innréttingar í upphafi
og hanna heimilið á þann hátt sem
fólk vill hafa það endanlegt.
„Þetta þýðir ekki að fólk þurfi
að leggja út í kostnaðinn við að
koma öllu í endanlegt form um
leið og það er komið með teikning-
aríhendurnar. Fjárhagurinn ræður
auðvitað ferðinni, en peningarnir
nýtast betur ef fólk er tilbúið til
að bíða eftir þeim hlutum sem
geta beðið og er ekki að kaupa
hluti sem á að henda út eftir nokk-
ur ár. Það er líka annað mikilvægt
atriði í þessu og það er að eftir
því sem fólk kemur fyrr eftir innan-
hússhönnuninni, því meira er hægt
að gera og minni líkur eru á tví-
verknaði í ýmsum atriðum."
— En þegar fólk kemur, veit það
nákvæmlega eftir hverju það er
að leita?
„Á því er allur gangur, en yfir-
leitt kemur fólk ekki með fullmót-
aðar hugmyndir. Það er algengast
að við séum beðin um að hanna
eldhús og baðherbergi," segir
Oddgeir. „En það ergott að hanna
fyrir Islendinga að því leyti að þeir
eru almennt mjög móttækilegir
fyrir hugmyndum og tilbúnir að
skoða aílar leiðir eins og að t.d.
blanda saman ólíkum efnum."
í framhaldi af þessum orðum
benda þau á annað atriði sem sé
dálítið sammerkt með landanum.
„íslendingar eru stundum helst til
nýjungagjarnir, þótt það komi
kannski fremur fram í húsgögnum,
skrautmunum og til dæmis glugga-
tjöldum en þeinlínis í innréttingum.
Stundum verður það til að rýra
gildi hlutanna, þegar þeir eru
komnir í annað hvert hús," segir
Guðrún.
„Mikil sveifla hefur verið í notk-
un lita á undanförnum árum, um
tíma var allt hvítt og varla nokkrum
manni datt í huga að setja liti á
veggina hjá sér. En núna má helst
ekki vera hvítt. Hvítt er afskaplega
fallegur litur ef hann fær að njóta
sín innan um aðra liti, í húsgögn-
um, innréttingum eða á t.d. stök-
um vegg.
Gluggatjöld eru annað dæmi um
sveiflur. Það er ekki langt síðan
fólk vildi helst ekki hafa neitt fyrir
gluggunum hjá sér, en þessa dag-
ana er maður jafnvel að reyna að
tempra aðeins gluggatjaldagleð-
ina. En að vísu hefur þróunin í text-
íl, gluggatjöldum, áklæðum og
gólfteppum verið gífurleg og mög-
uleikarnir á þeim sviðum aídrei
eins miklir."
„Annars sveiflast fólk oft í takt
við húsnæðið sem það býr í. Það
kemur til dæmis Ijóslega fram í
áhuga yngra fólks sem þá oft býr
í gömlum húsum, á að hafa muni
og húsgögn frá gamalli tíð," segir
Oddgeir og Guðrún Margrét bætir
við að talsvert sé af því að þau
hanni í gömul hús og þar sé oft
um mjög skemmtileg verkefni að
ræða.
„Þá er mjög mikilvægt að vera
í takt við húsið, sérstaklega ef um
er að ræða fallegt virðulegt hús-
næði. Oft hafa verið settar upp
millitíma innréttingar sem eru úr
samhengi við sjálft húsið og við
nútímann og þarf að endurhanna.
Á hinn bóginn er gaman að fást
við hönnun þar sem ákveðnir hlut-
ir eiga að fá að halda sér og finna
leiðir til að láta þá falla inn í heild-
ina.
Annars má segja að fólk geti
farið nánast hvaða leiðir sem er
við að láta innrétta húsin sín og
fá rými sem því líður vel í, en það
er oft gott að hafa innanhússarki-
tekt eða arkitekt hússins með í
ráðum og fá annað sjónarhorn á
heimilið. Og fólk þarf oft að fá ut-
anaðkomandi inn í myndina, jafn-
vel þótt það hafi sjálft nokkuð
ákveðnar hugmyndir um útlit heim-
ilisins. Þannig eru minni líkur á
ósamræmi sem getur myndað
ákveðinn tómleica í húsnæðinu,
þótt mikið sé í það !í>gt."
VE
að yfirborðskennt prjál. En þegar
inn er komið er rýmið eins og í
stórri blokkaríbúð. Þrátt fyrir allt
þakið er lofthæðin ekki nýtt og
þar fram eftir götunum. Það vant-
ar að fólk tali um lofthæð, áferð,
Ijós og fleiri atriði sem skipta
miklu máli, alveg frá upphafi. Til
dæmis er lýsingin eitt af aðalatrið-
unum á heimilum, en það eru fáir
að velta henni fyrir sér á meðan
húsið er á teikniborðinu."
- Úr einu í annað. Hvaða rými
er fólk að leggja áherslu á nú,
öðru fremur?
Alrýmið eða opna rýmið er í
fyrirrúmi í húsum sem verið er að
hanna nú. í beinu framhaldi af því
er borðstofan á góðri leið út úr
íslenskum húsum, eða þá runnin
saman við eldhúsið og eldhúsið
er ekki lengur vinnustaður einnar
manneskju, það er eiginlega orð-
inn vinnustaður allrar fjölskyld-
unnar. Stofan er oft hluti af alrým-
inu og geturtengstt.d. sjónvarps-
herbergi, eldhúsi, borðstofu inni
í því. Þá fer ekkert á milli mála
að kynslóðin sem ólst upp í „skáp-
um“ með rými fyrir rúm, borð,
stól og eitt barn, vill stærri barna-
herbergi í sín hús.
En varðandi áherslur í dag, þá
fer ekkert á milli mála að umhverf-
isvakningin teygir arma sína inn
á heimilin og það er sýnilegt í
efnum og litum sem verið er að
nota. Til dæmis er kirsjuberjavið-
urinn mjög vinsæll, en hann er
ræktaður eins og hver önnur akur-
yrkja. Þetta helst í hendur við
eyðingu regnskógarins, því það
er gengið mjög nærri ýmsum
harðviðartegundum t.d. er pale-
sander ekki lengur til og ma-
hogany-viðurinn stefnir í sama
farveg. Þess vegna reynir um-
hverfisvæn hönnun að taka tillit
til þessara þátta og nota rækt-
aðan við. Jarðarlitir, hreinir og
djúpir eru mikið að aukast og
þetta helst nokkuð í hendur."
- Áttu þá við innanhúss eða utan?
„Bæði og. En vissulega hefur ver-
ið dálftið önnur þróun hjá okkur
að undanförnu í málningu utan-
húss og það er að talsvert hefur
verið gert af því að mála hús í
pastellitum. En pastellitir eru bara
ekki gerðir fyrir íslenska birtu og
mér finnst þessi tíska sem verið
hefur ekki ganga upp á íslandi.
Pastellitir þurfa sterkt sólarljós til
að njóta sín. Svo verða litirnir líka
að haldast í hendur við húsið. Það
er allt í lagi að mála bárujárnshús
upp á gamla mátann með skipal-
akki í hárrauðu, bárujárnið þolir
það. En þessi bárujárnshefð hefur
verið að færast yfir á steinhúsin
og þau þola hana mjög svo mis-
vel.
Næst á eftir Ijósi skipta litir
miklu máli og það er dálítið al-
gengt að fólk ákveði klukkan 4 á
föstudegi að mála hjá sér, t.d.
stofuna, hendist út í búð og velji
einhvern lit sem fer vel á lita-
spjaldinu og sitji svo kannski uppi
óánægt með stofuna næstu árin."
- Veit fólk yfirleitt hvað það vill?
„Það er allur gangur á því og
hluti af okkar vinnu er að reyna
að komast til botns í hvað það
vill eða hvað það vill alls ekki. Og
ég get alveg viðurkennt að leiðin-
legustu verkin sem ég fæ er þeg-
ar fólk segir, „nú átt þú að inn-
rétta fyrir okkur og bara sjá um
málið". Það er ekkert gaman að
hanna innréttingar ef fólkið sem
ætlar að búa í þeim skiptir sér
ekkert af. Arkitektúr snýst ekki
endilega um að velja húsgögn og
blóm. Málið snýst um hönnun og
samhengi. Það að geta vísað fólki
á bestu iðnaðarmennina til að
fullkomna verkið. Hvort sem það
eru smiðir, málarar, múrarar, gólf-
efamenn, pípulagningamenn,
þakpappamenn eða smiðir í blikki
og járni. Óskastaðan er að fá að
móta húsið frá upphafi í samræmi
við fólkið sem ætlar að búa í því
og fylgja verkinu í gegnum verk-
lega hlutann og láta þá fólkið sjálft ♦
taka við á endasprettinum."
VE
Borð verð frá kr. 5.700. Stóll Sonja kr. 9.000 stgr.
Sonja sófi + 2 stólar kr. 33.500 stgr.
Visa - Euro raógreióslur
□aBHan
HÚSGAGNAVERSL UN
REYKJAVÍKURVEQt 66 HAFMARFIRÐI SÍMI54IOO
KÖRFUHÚSGÖGN
Mikió úrval - mjög hagstætt verð
Stakir stólar - sófar - borð - hillur