Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
4 C_________________________
LÖKARSÖGUR
Af Geira
eineygða og
öðrum góðum
Geir eineygði var mikill drykkjumaður
og enn meiri einstæðingur: Hann gerði
ýmist mikið eða lítið úr öllu og sérstak-
lega notaði hann oft orðtakið: Ég hef
ekki gert það mörg ár. Ef Geiri var
spurður að nafni, svaraði hann: Ég heiti
nú Ásgeir, það sama og forsetinn.
Geiri átti ekki mikið af fötum og varla
það sem hann var í dags daglega. Eftir
löndun á síldinni skiptu menn stundum
um föt og brugðu sér í meyjarfans. Einu
sinni tók Geiri báðar skyrturnar sínar,
skokkaði upp á bryggju þar sem stelp-
urnar voru, henti annarri skyrtunni í
sjóinn og sagði: Ég á nóg af þessu.
Einu sinni var Geiri grunaður sterk-
lega um að hafa étið úr 20 sardinudósum
í lúkarnum, öllum sem til voru, og kokk-
urinn bar það upp á hann. Vinur, svar-
aði Geiri, ég hef ekki borðað sardínur í
mörg ár.
Á Hávarði þetta síldarsumar var hör-
kulið, Magnús maður skipstjóri, Stjáni
Boga, Kjartan Ásmunds, Geir Eineygði,
Helgi Kristins og Grímur á Felli svo ein-
hverjir séu nefndir. Á þessum bátum
voru engin klósett, en fata aftur á og
reglan var sú að sá sem notaði fötuna,
hreinsaði hana og skildi eftir klárt fyrir
næsta. Einu sinni kemur Kjartan í Fram-
nesi kolvitlaus fram í lúkar og ber það
upp á Geira eíneygða að hann hafi ekki
hreinsað fötuna sem síðasti maður: Bless-
aðir strákar, þetta er ekki rétt, svaraði
Geiri eingeyði, ég hef ekki kúkað í mörg
ár.
Lúkarspjall um borð í Kristni frá Ólafsvik
Farðu svo og gefðu kjölsvíninu
ÞAÐ var á Nebbanum, togaranum Nept-
únusi, að tveir strákaskarfar fóru einn túr
og var annar þeirra ákaflega Iiðlegur og
lipur og vildi allt vita. Ekki leið á löngu
þar til skipsfélagamir voru famir að spila
með hann. Kokkurinn var enginn eftirbát-
ur og þegar fróðleiksfýsni stráksa bitnaði
einu sinni á kokksa þá svaraði hann út í
hött og sagði: Farðu nú með ruslið og
gefðu kjölsvíninu. Stráksi setti Upp
undrunarsvip og spurði hvort það væri
hér um borð. Já, svaraði kokksi, það er
alltaf geymt í keðjukassanum frammi á
hvalbak og síðan er það borðað á heimleið-
inni. Stráksi rembdist fram á og henti
ruslinu niður í keðjukassann þótt hann
sæi ekki svínið í öllu keðjukrullinu. Tveir
skipsfélaganna komu að máli við stráksa,
því þeim leist ekki á að keðjukassinn yrði
fylltur, svö þeir sögðu honum að henda
mslinu í sjóinn, þegar kokksi sendi hann
í keðjukassann, en skipuðu honum að
þegja um það. Við hveija ferðina hjá
stráksa skemmti kokksi sér æ betur.
í Grimsby fóm Ómar Blaupunkt og
Litli blautur, Valdi, í dýrabúð og keyptu
grís. Var dýrinu síðan komið um borð og
það falið í netalestinni. Eftir sólarhrings-
siglingu á heimleið sögðu þeir stráksa að
spyrja kokkinn hvenær ætti að slátra svín-
inu og éta það. Þegar tími er til, svaraði
kokkurinn. Hver slátrar því, spurði
strákur. Auðvitað kokkurinn, svaraði
fagmaðurinn. Ertu ekki til í að slátra
því núna, spurði strákur. Jú, svaraði
kokksi, ef þú nærð í það. Skömmu síðar
stóð stráksi í borðsalnum fyrir framan
alla skipveijana og kokkinn, slengir svín-
inu í fang kokksins, Sigga bónda, honum
að óvörum og sagði: Slátraðu nú, helvít-
ið þitt. Angistarsvipurinn á kokkinum
og hlátrasköllin í borðsalnum vora hvort
tveggja í hámarki lengi vel.
Verð
6.990
XS-XXL
Verð
6.490,-
XS-XXL
Verð
2.580,
36-42 .
Barnagalli, kr. 3.990,-
St. 8-14
Fótboltaskór, kr. 2.980,
St. 28-38
Fótbolti kr. 1.450,-
Opið laugardag
frá kl. 10-14.
Verð
5.290,-
36-47
SPORTBÚÐIN ÁRMÚLA40, SÍMI 813555.
á leið
um landið
Fulltrúarfrá ísarn og
Scania verksmiðjunum
munu á næstu dögum
kynna nýjasta og
fullkomnasta vöru-
flutningabíl flotans.
Vonumst til að sjá sem
flesta koma og skoða
Scania 143M Stream-
line með loftfjöðrun á
öllum hjólum.
FERÐAAÆTLUN - SEINNI HLUTI
Sunnudagur 14. júní
Akureyri kl. 10-15
(Umferðamiðst.)
Húsavík kl. 17-20
Mánudagur 15. júní
Egilsstaðir kl. 12-15
Seyðisfjörður kl. 16-18
Norðíjörður kl. 20-22
Þriðjudagur 16. júni
Eskifjörður kl. 10-12
Reyðarfjörður kl. 13-15
Fáskrúðsfjörður kl. 17-18
Breiðdalsvík kl. 20-21
Miðvikudagur 17. júní
Djúpivogur kl. 9-11
Höfn kl. 14-16
Kirkjubæjarkl. kl. 20-22
Fimmtudagur 18. júní
Vík kl. 10-12
Hvolsvöllur kl. 14-15
Hella
Selfoss
kl. 16-17
kl. 18-21
Föstudagur 19. júní
Grindavík kl. 10-12
Sandgerði kl. 14-16
Keflavík kl. 17-19
Laugard. og sunnud.
20. og 21. júní
Reykjavík kl. 10-18
íi'tt RN HF.
Skógarhlíð 10, simi 91-20720.