Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 6

Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 TÆKNI/Geta bílarflogib innan skamms? Loftbíllinn, sport- bíll með skrúfu- hreyfla í stað vél- knúinna hjóla. HVAÐ SEGIRÐU um að geta eftir nokkur ár brugðið þér norð- ur til Akureyrar á um það bil sama hraða og Fokkervél (570 km/klst.), en verið fljótari í för- um þar sem þú ert laus við allt flugvallaumstang — eigin fjög- urra manna einkabíl, og þarft ekki að velta fyrir þér hvað sé búið að malbika og hvort þú þurf- ir grjótgrind vegna grjótkasts- ins? Loftbíllinn eyðir heldur meiru en jarðbundni gamli bíll- inn, fer með meira í „flugtak" og „lendingu", en eyðir ekki öllu meiru á leiðinni vegna lítils loft- núnings Þessi „bíll“ er ekki aðeins til á teikniborðinu vestur í Banda- ríkjunum. Hann á í hæsta lagi eftir að bæta við sig lendingarútbúnaði og hljóðdeyfingu. Um er að ræða átta skrúfu- hreyfla, og gerir það bílinn miklu öruggari en t.d. þyrlu, því að hann á að geta lent með sex bilaða hreyfla, en tvo í gangi. Varla er hægt að hugsa sér þennan eftir Egil Egilsson bfl koma í stað smábfls í innanbæj- arsnatti. Til flugtaks og lendingar þarf svæði að þvermáli um tíu m. Til allra ferðalaga má hugsa sér svona bíl í einkaeign, og verðið ætti ekki að vera óyfirstíganlegt er hann kemur á markaðinn eftir nokkur ár. Hinn venjulegi umhverf- issyndari og lífsgæðaþræll Vestur- landa á sínu ævilanga lífsgæðafyll- iríi kýs sér einn venjulegan bíl til bæjarsnattsins en loftbílinn til sum- arbústaðaferðanna og til að heim- sækja ömmu á Akureyri. Gerðin Loftbfllinn er einskonar bastarð- ur marghreyfla þyrlu og sportbfls. Flugtæknin er í raun mjög einföld. Aftan á útblæstri hreyflanna eru blöðkur sem beina loftinu beint nið- ur í flugtaki, en á ská niður á við á ferð, til að yfirvinna þyngdaraflið og loftnúninginn. Stýritæknin verð- ur að vera tölva. Óhugsandi er að stjórna þéttri loftumferð öðruvísi. Stjóm ferðar af hendi nær gersam- lega óvirks bílstjóra fælist í því einu að mata tölvu bílsins á upplýsingum um ákvörðunarstað. Tölvan ynni í samvinnu við staðsetningarkerfí gervitungls, sem staðsetti bílinn með örfárra metra nákvæmni, og hefði vitaskuld upplýsingar um aðra flugumferð á svæðinu. Séríslenskar aðstæður Hjá okkur vakna margskonar spumingar, vegna þess að aðstæður ættu að verða erfiðari að sumu leyti til „loftaksturs" en t.d. í Evrópu. Hvernig virka íslenskir vindar á farartækið? Ekki aðeins em vindar hvassari hér en gengur og gerist, heldur veldur fjöllótt landslag sviptivindum og niðurstreymi. Hvemig nær slíkur bíll jafnvægi eftir að hafa misst það í íslensku óveðri? Hvaða hæð glatar hann við það? Hvemig virkar staðsetningar- kerfi gervitungla við íslenskar að- stæður? Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni, Álfheimum 74. Guðmundur Geirsson, læknir. Sérgrein: Þvagfæraskurðlækningar. Tímapantanir í síma 686311. DMS fitþtPáíÍLteisDsSQÖtiiD DjsnjgjtnTwaDiiiB Stórkostlegt tækifæri fyrir 9-14 ára stelpur og stróka fyrir aóeins 2.000 krónur ó dag íþróttir, ratleikir, fjallgöngur, bátsferðir og kvöldvökur. Tímabil: 20. júní - 26. júní, 27. júní - 3. júlí, 4. júlí- 10. júlí, 11. júlí-17. júlí. // Iþróttai íþróttami&stö&in Laugarvatni Innritmi hafín i simum 98-61151 og 98-61147 SIÐFRÆÐI/Hvad ervinátta? I vinarhúsi Þó rnaðurinn sé alltaf einn getur hann átt vini. Það gerir lífið bæri- legt. Einangraður maður er takmarkaður maður. Hann þekkir ekki sjálfan sig. Hann verður að geta sér til um tilfinningar sínar og við- brögð. Vinalaus maður í félagsskap hefur óljósar hugmyndir um sjálfan sig. Vinur, á hinn bóginn, fyllir lífið ánægju og leiðir til sjálfsþekkingar. * Igegnum vináttu öðlumst við djúpa reynslu af vinum og okkur sjálf- um. Vinur er spegill, sem sýnir ekki útlit heldur innri mann. Hann spegl- ar sjálfsmyndinni. Hann sýnir okkur hver við emm í raun. Enginn getur þekkt tilfinningar sínar og viðbrögð nema í gegnum náin kynni við aðra manneskju. Við deilum tilfinning- um okkar og hugs- un með vinum og treystum þeim fyr- ir okkar innstu hugðarefnum. Vinur er ekki aðeins félagi, heldur kær félagi. Orðið vinur er tengt latínu orðinu venus sem merkir kærleikur. Ást og traust eru því sterkustu þræðirnir í vinasambandinu. Vinátta er lengi að hlaðast upp. Hún er ekki hrifning, því fólk getur hrifist hvert af öðru án þess að mynda persónulegt samband. Vin- átta er að gera eitthvað saman, vinna, skemmta sér, leysa vanda- mál. Það vekur vonir um framtíðina að gera eitthvað ánægjulegt saman og skapa góðar minningar. Vinátta er því lifandi samband sem þróast og styrkist með árunum. Góðir vinir bæta hver annan. Við getum átt nokkrar gerðir af vinum. Hér eru dæmi: 1) Ánægju- vini. Ánægjan er þá sterkasti þráð- urinn í sambandinu. Við skemmtum okkur með þeim og hlæjum mikið. Unglingar eiga marga ánægjuvini og beinist athygli þeirra iðulega meira að hlutunum sem veita ánægju heldur en að sambandinu sjálfu. 2) Nytjavini. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta með þeim. Þeir hjálpa okkur og við þeim. 3) Andleg- ir vinir. Manngerðin, skapgerðin og persónan sjálf vega þá þyngst. Vinir í þessum flokki yfirgefa okkur síð- astir þegar á móti blæs í lífinu. eftir Gunnar Hersvein Speki: Að rækta garðinn sinn er að rækta vini sína og elska aðra. LÖGFRÆÐI/ Hverjar eru helstu breytingamar? Lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl. Ný dómstólaskipan og aðgreining dómsvalds og umboðsvalds í héraði kallar á ýmsar breytingar á fyrirmælum laga um kyrrsetn- ingu, lögbann og skyldar aðgerðir. Áf því tilefni hafa verið sett ný lög um kyrrsetningu, lögbann og fl. nr. 31/1990, sem taka gildi 1. júlí nk., og koma þau að mestu í stað laga nr. 18/1949. Nýju lögin eru sniðin að þeirri skipan sem lög nr. 92/1989 um aðskilnað dóms- valds og umboðsvalds í héraði (aðskilnaðarlögin) mæla fyrir um. Með kyrrsetningu og lögbanni er átt við aðgerðir til bráða- birgða sem ætlað er að vernda rétt- indi sem ekki verður þegar fullnægt með aðför, með því að tryggja, að óbreytt ástand vari meðan leitað er úrlausnar dóm- stóla um þau. Nánar felst kyrrsetning í því, að sýslumaður kyrrsetur, eftir kröfu skuldareig- anda og að nánar tilgreindum skilyrðum uppfylltum, eignir skuldara, í þeim tilgangi, að eignin verði til staðar til að gera fjárnám í henni þegar fjámáms- heimildar hefur verið aflað. Skilyrði þess að peningakrafa verði tryggð með þessum hætti er að tryggingar verði ekki þegar aflað með aðför og sennilegt megi telja, ef kyrrsetn- ing fer ekki fram, að það dragi mjög úr líkum á því að fullnusta kröfunnar takist eða fullnusta hennar verði verulega örðugri. Það er ekki skilyrði kyrrsetningar að gerðarbeiðandi leiði fullar sannanir fyrir réttmæti kröfunnar. Til þess m.a., að stuðla að því að menn beið- ist ekki kyrrsetningar nema nokkur vissa sé fyrir réttmæti þeirrar kröfu sem henni er ætlað að tryggja, gera lögin ráð fýrir að gerðarbeið- andi setji að jafnaði tryggingu fyrir greiðslu bóta sem þolandi kyrrsetn- ingar kynni að eiga rétt til vegna gerðarinnar. Skorður eru settar við ráðstöfunum kyrrsettrar eignar. Skyld kyrrsetningu er svökölluð löggeymsla, sem einnig er fjallað um í lögunum. Sú aðgerð miðar að eftir Dovíð Þór Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.