Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
FOLK SPYR HANN OFT: „Þú ert alltaf í músíkinni, Grétar?“ Hann jánkar og er þá oftar en ekki spurður
að því hvað hann geri. „Þeir eru margir sem líta ekki á tónlist sem atvinnu, skilja ekki hvað starfíð snýst um.
En þetta er heilmikil vinna, dagurinn er yfirleitt þaulskipulagður frá morgni til kvölds."
Rætt við Grétar Örvarsson forsprakka Stjómarinnar en hljóm-
sveitin hefur mörg jám í eldinum. Þriðja platan er nýútkom-
in, hljómsveitin lagði nýverið upp í hljómleikaferð um land-
ið, stefnt er að útgáfu í Bretlandi og hljómleikaferð til Kína.
eftir Urði Gunnarsdóttur/ Myndir: Bjarni Eiríksson
FORSÆTIS- og félagsmálaráðherra Stjórnarinnar fengu tii liðs við sig nýja ráðherra
fyrir síðustu áramót og kveður nú við nýjan tón í því stjórnarsamstarfi. Heilbrigðisráð-
herrann, sem að ósekju mætti reykja minna, leikur á bassa, utanríkisráðherrann er eftir-
sóttur gítarleikari erlendis og landbunaðarráðherrann er trommuleikari utan af landi.
Það er margt á döfinni hjá Stjórninni, ný plata, hljómleikaferð og mögnleikar á útgáfu
erlendis en að baki er hin eina sanna Evróvision. Við höfum mörg járn í eldinum, þann-
ig eiga hlutirnir að vera,“ segir Grétar Orvarsson, forsprakki Sljómarinnar.
Isíðustu viku kom út
þriðja plata Stjórnar-
innar, sem ber einfald-
lega heitið Stjórnin. Á
henni kveður við nýjan
tón enda hafa orðið
mannaskipti í hljóm-
sveitínni og meira af
efni hennar er frums-
amið en áður. Grétar
Örvarsson og Sigríður
Beinteinsdóttir eru eftir
sem áður í framlínunni
en Friðrik Karlsson gít-
arleikari, Jóhann As-
mundsson bassaleikari
og Halldór Gunnlaugur
Hauksson (Halli Gulli)
trommuleikari hafa bæst í hópinn.
„Við vildum stokka upp spilin hjá
hljómsveitinni. í gömlu Stjórninni
vorum við ekki alveg sammála um
hvaða stefnu við ættum að halda
okkur við í tónlistinni og svo var
hreinlega komin þreyta í samstarf-
ið,“ segir Grétar. „Þessar manna-
breytingar skýra línurnar betur.
Friðrik hafði lagt okkur til lög áður
en hann gekk til liðs við hljómsveit-
ina, lög sem okkur féll mjög vel.
Og það hefur komið í ljós að við
höfum mjög líkan tónlistarsmekk."
Grétar segir það vissulega gefa
hljómsveitinni aukið vægi að fá inn
þungavigtarmenn úr Mezzoforte og
Halla Gulla, sem lék með Loðinni
Rottu. „Friðrik valdi á milli Stjórn-
arinnar og því að vinna áfram með
bresku hljómsveitinni Shakatak,
hann er eftirsóttur gítarleikari, t.d.
í Bretlandi. Hvort þessar manna-
breytingar breyta stöðu hljómsveit-
arinnar kemur ekki í ljós fyrr en
síðar. Það þarf oft svo lítið til, í
kjölfar þáttöku okkar í Evróvision
hafa umboðsaðilar okkar unnið að
því að gefa „Nei eða já“ út í Bret-
landi. Gangi það eftir, getur í raun
hvað sem er gerst.“
Mestallt efni plötunnar er eftir
Grétar og Friðrik, að frátöldum
tveimur erlendum lögum, einu lagi
Valgeirs Guðjónssonar og lagi eftir
Grétar og Eyjólf Kristjánsson. „Við
höfum náð að skapa okkur skýrari
stefnu, okkar eigin hljóm. Lögin
eru rokkaðri en áður, engu að síður
er efni plötunnar mjög fjölbreytt,"
segir Grétar. Hann hefur lagt mik-
ið upp úr því að hljóðblanda plötur
Stjórnarinnar eins vel og kostur er
og segir hljómsveitina freka á
hljóðverstíma af þeim sökum. „Það
kvað við nýjan tón þegar Stjórnin
hóf göngu sína, ég hef t.d. ekki
heyrt þá íslensku plötu sem er bet-
ur hljóðblönduð en önnur plata
okkar, Tvö líf. En góður hljómur
er ekki fenginn áreynslulaust, að
baki eru gegndarlausar æfingar.
Við spilum mikið, þurfum ekki svo
langan tíma í að æfa lögin, heldur
getum einbeitt okkur að því að
hlusta og fínpússa tóninn.
Ég notast mikið við tæknina og
hef verið gagnrýndur töluvert fyrir
það. Ég keyri upptökur að hluta
undirleiksins inn í tölvu og næ
þannig fram fyllri tón, t.d. náum
við með því móti fram auka slag-
verki, tveimur hljómborðum o.s.frv.
Ég hef lagt áherslu á þessa vinnu