Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 11

Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 finna mörg hundruð minni framleið- enda, sk. petit cha.tea.ux, sem fram- leiddu góð vín á sambærilegu verði og oft lægra verði en t.d. vín frá Chile. „Frönsku sveitavínin, vin de pays, hafa líka verið í gífurlegri sókn undanfarið. í suðurhluta Frakklands hafa gæði vínanna, jafnvel hvítvína, aukist gífurlega, með bættum fram- leiðsluaðferðum, betri þrúgutegund- um og vel menntuðum víngerðar- mönnum. Allt í einu er því nú að fínna mikinn flölda frábærra vin de pays í búðum á mjög góðu verði. Þetta er ný kynslóð víngerðarmanna sem kominn er upp og líklega er hún besta vopnið gagnvart nýjaheimsvín- unum. Við verðum að hafa í huga að í öllum löndum er að finna mikla breidd vína og bestu vínin frá Ástral- íu og Kalifomíu eru langt frá því að vera ódýr.“ Sutcliffe sagðist sjálf vilja óska þess að hægt væri að selja meira af góðum þýskum vínum á uppboðum en af þeim væri hún mjög hrifin. Eftirspum eftir þeim væri hins vegar ekki mjög mikil, með einstaka undan- tekningum, og oft væri hægt að fá dýrleg Riesling-vín á hlægilegu verði. „Þetta eru frábær sumarvín sökum þess hve létt þau eru, áfengismagnið oft ekki meira en níu prósent. Þýsk vín em hins vegar ekki í tísku sem stendur. Fólk virðist flest ekki skilja þessa undursamlegu blöndu af sým og sætleika. Ég held að stór hluti af skýringunni sé að margir hafí ein- hvem tímann smakkað liebfraum- ilch-vm, orðið fyrir miklum vonbrigð- um og sagt sem svo: Allt í lagi, þetta eru þá þýsk vín.“ Bresk blöð sagði hún skekkja mjög myndina af því hvemig vínneysla væri í raun. Líklega snerist um helm- ingur allra vínskrifa um nýjaheim- svín og fólk fengi því á tilfínninguna að þau hefðu helming markaðarins. Líklega mætti rekja þetta að ein- hveiju leyti til þess að menn væm mjög spenntir fyrir boðsferðum til Ástralíu eða Nýja-Sjálands en allir gætu hins vegar skroppið yfír sundið til Frakklands. „Þessi vín fá því umfjöllun sem alls ekki er í samræmi við markaðinn. Ef litið er á tölur þá er Frakkland með um helming mark- aðarins og næst koma Þýskaland og Ítalía. Umflöllunin er því mjög óábyrg. Menn verða að halda hlut- föllunum réttum." Hin almenna þróun vínneyslu í Evrópu sagði Sutcliffe vera að fólk drykki örlítið minna en aftur á móti betri vín en áður. í Frakklandi hefði almenningur löngum drukkið mjög einföld rauðvín í miklu magni en nú væri neyslan að færast yfír í appell- ation controlée vín. „Fólk er farið að velta því meira fyrir sér hvað það drekkur. Þetta er mjög jákvætt því að það sýnir að fólk er farið að neyta víns í auknum mæli sér til yndisauka og af áhuga en ekki bara vegna áhrif- anna eins og áður. Það eru líka ávallt að bætast við nýjar þjóðir sem neyta víns og em Kínveijar gott dæmi þar um. Hér áður fyrr drukku þeir ávallt koníak með mat, sem er raunar alveg ótrúlegur siður. Maður settist til borðs með Kínveija á veitingastað og upp var tekin flaska af koníaki. Vissulega mjög dýru koníaki en samt eftir sem áður drykk sem maður er vanur að neyta í litlu magni með kaffí. Yngri kynslóðir Kínveija sýna hinsvegar víni mikinn áhuga enda á vín mjög vel við kínverska matargerð, ekki síst Kantonmatargerð." Kannanir sem Sotheby’s hefði gert sagði Sutcliffe hafa sýnt mjög at- hyglisverðar niðurstöður varðandi hvaða hópar það væru sem hefðu áhuga á víni. Þannig hefði verið mest samsvörun milli unnenda mynd- listar og vínunnenda. Þegar þetta hefði verið þrengt enn frekar kæmi í ljós að samsvörunin væri allra mest hjá unnendum samtímalistar. Einnig væri það athyglisvert að svipaða samsvörun hefði verið að finna hjá áhugamönnum um úr og klukkur og áhugamönnum um fombíla. Þessir tveir hópar sýndu yfirleitt víni mikinn áhuga. „Hjá mismunandi starfshóp- um er samsvörunin mest meðal lækna en þeir eru oft ástríðufullir vínáhugamenn. Það athyglisverða er að maður fínnur þennan mikla víná- huga meðal lækna um allan heim. Þeir hreinlega elska vín. Það hlýtur að vera góðs viti.“ c 11 HEFJUM GAMLA ÍSLENSKA BYGGINGALIST TIL VEGS A NÝ... BOSCH V E R S L U N Lágmúla 9 sími 3 88 20 RAFSTÖÐVAR ALLT AÐ 30% LÆ K K U N 0,67 kw 49.114 stgr. 1,90 kw 62.627 2,15 kw 55.456 stgr. 3,00 kw 80.741 stgr. 3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 fasa 115.446 stgr. Volvo 615 S Turbo 80, ekinn 132.000 km. Nýleg- ur sorppressukassi 14 m3 Verð 980 þús. Sorppressukassi Norba KI5, árg. '85. Ný yfirfarinn, 15 m3, fyrir víra og krók. Verð 850 þús. V-þýskt gígant krókheysi, árg.1’87,16tonn,lítið notað. Verð 680 þús. Tækjamiðlun Islands hf., Díldshöföa 8, sími 91-674727. LANGTÍMALAUSN SEM ÞÚ LEiTAR AÐ SPARAÐU VIÐHALD NOTAÐU ÁL Mega h/f, Hngjatcigi S, 103 Reylcjavík Pósthólf 1026, 121 Reykjavík. Sfmi 91-680606. Fax 91-680208. miTSUSHiBn ©GQLF Handtöskur: Lítil kr. 1.480,- Stór kr. 3.560,- ÚTILÍFt Glæsibæ - Sími 82922 H!3 3S GOLFPOKAR 9“ herrapoki, 6 hólfa skipting alveg niður í botn- verð aðeins 8.900,- I 8“ dömupoki, 6 hólfa skipting alveg niður í botn- verð adeins 6.900,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.