Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMARiuvMaui: 14. JÚNÍ 1992
Dauðinn klæðir
hana vel
Leikkonurnar Meryl
Streep og Goldie
Hawn beijast um sama
manninn, Bruce Willis, í
nýrri gamanmynd leik-
stjórans Robert Zemeckis,
sem frægastur er fyrir Aft-
ur til framtíðar-myndimar.
Gamanmyndin heitir því
undarlega nafni Dauðinn
klæðir hana vel eða „Death
Becomes Her“ og hún er
ein af sumarmyndunum
vestra í ár.
Zemeckis er þekktur
fyrir gott vald á rándýrum
tæknibrellum sem kemur í
góðar þarfir hér því í
myndinni tekur Streep inn
eitur sem gerir hana unga
að eilífu en hliðarverkanir
fylgja sem kalla á erfiðar
lýtalækningar. Sem betur
fer fyrir hana er Willis einn
af færustu lýtalæknum
landsins.
U niversal-kvikmynda-
verið hefur sett um tvo og
hálfan milljarð króna í
myndina og treystir á að
Zemeckis hafi varið pen-
ingunum í enn eina metsöl-
umyndina. Hann segir
myndina vera svarta
kómedíu um „hégóma-
girnd, græðgi, kynlíf, pen-
inga, dauðann og ótrúlegar
andlitslyftingar".
KVIKMYNDIR
Hver er lykillinn ad velgengni Propaganda?
Úrfólksvagni
í kadílakk
Sigurjón og Golin; á
réttum stað á réttum
t.íma.
Ótrúlegar lýtalækn-
ingar; Streep, Hawn og
Willis í hinni svörtu
kómedíu Zemeckis.
Kevin Kline var boðið
hlutverk lýtalæknisins en
honum nægðu ekki launin
sem voru í boði, 180
milljónir króna. Þannig
náði Bruce hlutverkinu.
Zemeckis segir myndina
marka nokkur tímamót í
tæknibrellugerð því í henni
séu hlutir sem menn hafi
aldrei gert áður, m.a. tölv-
ugrafík sem ekki hafi verið
reynd fyrr.
17.500 hafa séð Ógnareðli
M„Ég lærði bara setning-
arnar mínar en Marty og Bob
sögðu mér ekkert frá þumal-
fingrinum. Þeir eru sjúkir,"
segir leikkonan unga Juli-
ette Lewis um besta atriðið
í spennumyndinni Víghöfða
þegar De Niro og Lewis eiga
stefnumót í litlu skólaleik-
húsi.
USérstök leikstjóraútgáfa
James Camerons á fram-
haldsmyndinni „Aliens“ hef-
ur verið gefin út. Hún er
tuttugu mínútum lengri en
frumútgáfan en
stærsta viðbótin
snýr að einkalífi
geimfarans Ripleys,
sem Sigourney We-
aver leikur. Þegar
hún snýr til baka til
jarðar eftir 57 ára svefn
í geimnum kemst hún
að því að dóttir hennar
hafi lifað góðu lífi og lát-
ist lítil, vinaleg kona f elli.
■Ciint Eastwood er kom-
inn aftur í hnakkinn og far-
inn að þeysa um sléttumar
í nýjustu mynd sinni, vestr-
anum „Unforgiven“. East-
wood leikur mannaveiðara í
myndinni sem eltist við gleði-
konumorðingja en með hon-
um er Morgan Freeman.
MÞað má vera að jólamyod
Stjörnubíós í ár verði „A
Few Good Men“, sem er
réttardrama með stórstjöm-
um í hveiju hlutverki, m.a.
Tom Cruise og Jack Nic-
holson. Leikstjóri er Rob
Reiner, sem síðast gerði
Eymd en þar á undan Þegar
Harry hitti Sally...
Alls höfðu um 17.500
manns séð spennumyndina
umtöluðu Ognareðii eða
„Basic Instict11 um síðustu
helgi að sögn Andra Þórs
Guðmundssonar rekstrar-
stjóra Regnbogans en þá
hafði hún verið sýnd í 17
daga og sagði Andri um
90 prósent nýtingu hafa
verið á sætaframboði.
Þá hafa um 4.000 manns
séð svörtu kómedíuna Lost-
æti frá Frakklandi, rétt
rúmlega 10.000 manns
„Freejack“ og um 8.500
Léttlyndu Rósu.
Næstu myndir bíósins
koma varla fyrr en í júli
en þá verður sýndur nýr
trylhr John Frankenhei-
mers, „Year of the Gun“
með Sharon Stone úr Ógn-
areðli og Andew McCarthy.
Síðan spennumyndin „De-
fenceless" með Barbara
Hershey og Sam Shepard
en einn framleiðandanna
er Taylor Hackford og
spennumyndin „White
Sands“ með Mickey Ro-
urke og Mary Elizabeth
Mastrantonio.
Mlkll aðsókn; Sharon
Stone í Ógnareðli.
Nýlega birtist löng og mjögjákvæð grein í bandaríska mánaðarritinu
„Details" um Propaganda Films Siguijóns Sighvatssonar og Steve
Golins. Þar kemur fram að fyrirtækið velti um sex milljörðum króna
á ári og hefur 85 manns í vinnu aðeins sex árum eftir að félagarnir
stofnuðu það með sex milljónir króna á milli handanna. Propaganda
er orðið eitt stærsta og virtasta fyrirtækið vestanhafs á sviði sjónvarps-
auglýsinga og tónlistarmyndbanda en leggur nú æ meiri áherslu á
bíómyndagerð.
Siguijón og Golin vona að
ein af fjórum bíómynd-
um sem þeir framleiða í ár
verði fyrsta stórgróðamynd
fyrirtækisins. í tímaritinu
lýsir Sigur-
jón því
svona: „Þú
vilt ekki
keyra
endalaust
um á fólks-
vagni. Þig
langar í
kadílakk."
Eftir Arnald
Indriðoson
í greininni er fjallað stutt-
lega um lykilinn að velgengni
Propaganda. Það er einfalt
mál: Siguijón og Golin voru
réttu mennimir á réttum stað
á réttum tíma. Árið 1986
duttu þeir niður á þá hug-
mynd að stofna fyrirtæki
sem sérhæfði sig í gerð tón-
listarmyndbanda. Þeir réðu
til sín fjóra unga menn sem
stóðu framarlega í gerð
slíkra myndbanda, David
Fincher, Nigel Dick, Greg
Gold og Dominic Sena. Sá
síðastnefndi kom með nafn á
fyrirtækið, Propaganda
Films („Mér fannst það fár-
ánlegt, það heimskasta sem
ég hafði heyrt en ég hafði
enga betri hugmynd," er
haft eftir Golin).
Tónlistarmyndbönd höfðu
að sjálfsögðu verið gerð fram
að þeim tíma en Propaganda
setti meiri pening i fram-
leiðslu þeirra og útlit, sem
varð vandaðra, fágaðra og
kynþokkafyllra eins og segir
í greininni. „Við vissum hvað
við vorum að gera,“ er haft
eftir Golin. „Flestir þeirra
sem gerðu tónlistarmynd-
bönd gátu ekki hellt uppá
kaffi hvað þá meir.“
Fljótlega voru þeir farnir
að vinna fyrir Madonnu og
fleiri stór nöfn í tónlistariðn-
aðinum og með aukinni vel-
gengi kom auglýsingagerðin.
I dag gerir Propaganda 125
tónlistarmyndbönd á ári og
35 auglýsingar.
Tónlistarmyndböndin og
auglýsingamar voru æfing-
arvöílur fyrir bíóleikstjóra
framtíðarinnar en sá sem náð
hefur lengst af upprunalega
leikstjórahópnum er David
Fincher. Hann leikstýrir
geimhrollvekjunni „Alien 3
og þykir hafa gert góða hluti
þar en hún er fyrsta bíó-
myndin sem hann gerir og
finnst mörgum hann hafa
fengið ótrúleg völd svo
ungur og óreyndur í bíó- =?
myndum. ^
Propaganda stefnir ~
enn frekar á bíómynda-
markaðinn en tökur
standa nú yfir á spenn- J'
umyndinni „Red Rock
West“ með Nicolas
Cage og Dennis Hop- £
per, önnur mynd Æ
heitir „The Candy- «
man“ og sú þriðja c
Kalífornía. „Það
besta við þennan a!
iðnað,“ segir A
Siguijón í grein- -e
inni, „er að mað- §
ur þarf enga §
reynslu.„Það 5
eina sem þú i
þarft að gera ýj
er að prenta ^
nafnspjald." /"
íslenskt
sjónarhorn
á kvikmyndir
að eru að verða róttæk
kynslóðaskipti í ís-
lenskri kvikmyndagerð og
mikil geijun á sér stað og
því er tímasetningin á
blaðinu núna mjög góð,‘
segir Böðvar Bjarki Pét-
ursson, ritstjóri nýja
tímaritsins Kvikmyndir,
sem kom út fyrir helg-
ina.
Kvikmyndir fjallar
um bíómyndir og
gerð mynda og í það
skrifa um tuttugu
manns en megin-
hluti efnisins er
um íslenskar bíó-
myndir og segir Böðvar
Bjarki það vera stefnu
blaðsins að leggja áherslu á
það sem er að gerast í kvik-
myndagerð á Islandi. Á
meðal efnis í blaðinu má
nefna umljallanir um mynd-
irnar Veggfóður, Karlakór-
inn Heklu, Svo á jörðu sem
á himni og Sódómu Reykja-
vík en að auki er að fmna
gagnrýni á íslenskar mynd-
ir, myndbandagagnrýni,
franska kvikmyndagerð og
þýska, birt «r viðtal við
Eggert Þorleifsson leikara
og fjallað um Kaurismaki í
Finnlandi, Almodóvar á
Spáni og svarta kvikmynda-
gerð.
Böðvar Bjarki segir Kvik-
myndir eiga að vera alhliða
tímarit um allt sem snýr að
kvikmyndagerð; bíómyndir,
sjónvarpsmyndir, tónlistar-
myndbönd og heimildar-
myndir. Nokkrar tilraunir
hafa verið gerðar til að
halda úti kvikmyndatímariti
en ekki gengið. Af hveiju
skyldi það ganga núna?
„Ég hef rannsakað önnur
blöð og sýnist að það fyrsta,
sem Friðrik Þór Friðriksson
var með, hafi verið það
besta,“ segir ritstjórinn, „og
ef eitthvað er líkist Kvik-
myndir helst því. Það er
mikið lagt í blaðið, vandaðir
pennar fengnir til að skrifa
og allt efni er séð frá ís-
lenskum sjónarhóli og þessi
íslenski sjónarhóll held ég
að geti skipt mjög miklu
máli.“
IBIO
Tilvitnanir í ísland og
íslendinga í erlend-
um bíómyndum eru ekki
nýjar af nálinni; í „All the
President’s Men“ er vitn-
að í heimsmeistaraeinvíg-
ið í skák á íslandi, í Fisk-
inum Wöndu er ísland
nefnt sem brandari í
tengslum við hugsanlegt
ferðalag, í annarri lakari
gamanmynd er talað um
mörgæsirnar á íslandi, í
„World War 111“ leikur
Rock Hudson Bandaríkj-
aforseta sem mætir á
stórveldafund á íslandi
og svona mætti lengi
telja.
Sjaldnar eru íslending-
ar í stórum hlutverkum
en þó hefur það gerst
tvisvar nýlega með stuttu
millibili. í Tvídröngum
voru Islendingar drukkn-
ir hótelgestir sem héldu
vöku fyrir FBI-löggunni
Dale Cooper og í „The
Player“, nýjustu mynd
Roberts Altmans, leikur
Greta Scacehi íslenskan
málara eins og frægt er
orðið og þar má víst finna
marga Islendingabrand-
ara.
íslendingar særast
varla af því, a.m.k. ekki
eins mikið og þegar dans-
og söngvamyndin „Ice-
land“ var gerð á stríðsár-
unum og olli heilmiklu
fjaðrafoki enda gaf hún
einkar heimskulega og
annarlega lýsingu á lifn-
aðarháttum landans.