Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 19
C 19 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 ROKK Iron Maiden í Grjótinu Breska þungarokk- hljómsveitin Iron Maiden hélt tónleika í Laugardalshöll 5. júní sl. við mikinn fögnuð þeirra ríflega 2.000 áheyrenda sem sveitina sáu. Eftir tónleikana fóru sveit- armenn síðan í Grjót- ið í Tryggvagötu til að kasta mæðinni og blanda geði við aðdá- endur. Dave Murray, gítarleikari sveit- arinnar, með starfsfólki Gijóts- ins. Ljósmynd/Hallfríður Jóhannsdóttir Iron Maiden í Gijótinu. Fjölmargir tónleikagesta lögðu leið sína í Gijótið, sem reyndar er sérstaklega ætlað rokkáhuga- fólki, til að komast í snertingu við rokkgoðin, enda er Iron Maiden með fremstu þungarokksveitum heims. Þeir fengu líka ósk sína uppfyllta, því hljómsveitarmenn voru hinir alúðlegustu og alþýðleg- ustu, stilltu sér upp til myndatöku fyrir hvern sem var og árituðu allt sem að þeim var rétt. Hafði margur viðstaddra á orði að við annarri eins hegðan hefðu menn vart búist af jafn miklum stjörnum. —--— Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Gert að aflanum Það þykir ótvírætt merki um að sumarið sé komið er guttarnir þyrpast niður á bryggju með veiðistangir sínar. Síðustu daga hafa ungir Ólafsfírðingar stundað veiðiskap af kappi og er þessi piltur þar á meðal. Það beit á, en vanir menn vilja meina að þetta sé dæmigerður norðlenskur þorskur; lítill og horaður. Hann lét það þó ekki á sig fá og var niðursokkinn í að gera að aflanum þegar Ijósmyndari átti leið hjá. V BOSCH VERKSTÆÐI Lágmúla 9 sími 3 88 20 • Vélastillingar • Smurþjónusta • Rafviðgerðir • Ljósastillingar (j|j)OKMSSONHF • Díselverkstæði Heildsöiudreifing Vaggan — Akureyri Ósk — Akranesl Alvöru föt á börnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.