Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 24

Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 24
 rnunrnn Mér sýnist sem ekki allir taki þetta próf alvarlega? Ast er... 1-16 ekki minni í skammdeg- inu. TM R®g. U.S Pat OH — all nghts reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate fHir|iimUðþÍþ BRÉF HL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 BÖm náttúrunnar Frá Richardt Ryel: SÍÐASTA hefti hins virta franska vikurits L’Express, er að miklu leyti helgað leifum frumstæðra þjóðflokka víða um veröld. Menningin, eins og við köllum hana, þjarmar æ meira að frumbyggjum Austur-Indíu, Afr- íku, S-Ameríku og frumbyggjum (aborgin) Ástralíu. Að slíta upp blóm og ætla að gróð- ursetja það á mölina gefst ekki vel. Þetta er hamingjusamt fólk, sem lif- ir í náinni snertingu við náttúruna. Það er heiðarlegt, hreinskilið, frjálst og áhyggjulaust og það vill fá að lifa óáreitt og í friði. Spyrji maður þetta fólk um Péturs- kirkjuna í Rómaborg eða nýja orgel- ið í Hallgrímskirkju verður því vafa- laust svarafátt. Það þarf heldur ekki að vita þetta. Okkur Vesturlandabú- um hættir við að vanmeta fólk, þekk- ingu þess og lifnaðarhætti. Við höf- uni mikið rétt tileinkað okkur mikinn lærdóm um allt milli himins og jarð- ar. Við erum að þessu leyti eins og tölvur sem eru mataðar daginn lang- an með alls konar upplýsingar um ólíklegustu efni. Að oft við fáum þembu og gengur oft illa að melta allan þennan lærdóm er svo annað mái. Já, við vitum meira, en lærdómur og þekking er ekki sama og vit og gáfur, það sést best á því hve þekkingin er oft mis- notuð. Óhamingja okkar stafar e.t.v. einmitt af þessu. Hvað athygli, eftir- tekt og almenna skynsemi snertir standa hinir frumstæðu þjóðflokkar okkur jafnfætis. Við höfum ekki þroskast að sama skapi og við höfum tileinkað okkur hina vélrænu þekk- ingu. I dag vilja menn vita, eiga menn að vita, þurfa menn að vita. Immanu- el Kant (1724-1804) einn mesti hugsuður og heimspekingur verald- arsögunnar sagði. „Eg er ekki annað en gömul gæs, gömul gæs sem ekk- ert veit.“ Hver þorir að segja það í dag að hann viti ekki neitt?. Lao Tse (500 f.Kr.) höfundur Taiosmanns sagði. „Sá sem talar veit ekki, og sá sem veit talar ekki. (Sá sem skrif- ar, skrifar af því hann veit ekki bet- ur. R.R.) Nú þegar borgarmúrar Jeríkó- borgar eru hrundir og borgin ijúk- andi rústir einar riðar allt til falls. Nasismi, fasismi, kommúnismi, „soc- ialismi", „idealismi", „humanismi", „nationalismi“ já, siðgæðið, trúin og sjálfur Guð. Ekkert er lengur sjálf- sagft, né mönnum heilagt. Því renna menn aftur hýru auga til hinna frumstæðu þjóðflokka. En eins og þeir myndu þrífast illa á mölinni eins myndum við vafalaust heldur ekki una því til lengdar að striplast berrössuð um í frumskógum S-Ameríku. En á rústum „idealis- mans“ og óskhyggjunnar erum við þegar farin að byggja upp raunhæf- ari heim. Heim sem rúmar bæði fijálsræði, skoðana- og fundafrelsi, tjáningarfrelsi, og sem sér jafnframt fyrir efnahagslegu öryggi okkar. Hættan í dag er ekki sú að vita ekki, að hafa ekki fastmótaða skoðun. Hið lifandi orð Guðs Frá Einari Ingva Magnússyni: ALLTOF lítill gaumur er gefinn að hinum æðri mætti og orði hans í heilagri ritningu. En þó við mennim- ir gleymum Guði á annríkum stund- um dagsins, þá minnist Guð okkar og hversu ófullkomnir við erum, eða eins og segir í sálmi 103: „Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess, að við erum mold.“ En jafnvel þó við séum smáir og forgengilegir, þá gætir Guð okkar, sem sjáaldurs auga síns, og enginn fær slitið okkur úr hendi hans, eins og segir í hans heil- aga orðL „Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans,“ segir einnig í sálmi 116:15 Þetta vissi sá frægi Ameríkumað- ur, sem var á leið í orrustu, en bað til Guðs síns með þessum orðum: Þó ég gleymi þér, vilt þú þá ekki gleyma mér. Annríki hversdagsins, skemmtanir fríhelganna og léttlyndi tómstund- anna; allt virðist þetta beina hugum vorum frá sjálfum lífgjafanum mikla. Hollt væri okkur að minnast trúfesti undangenginna kynslóða trúsystkina okkar, sem sungu með Davíð sálrha- skáldi: „Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.“ Sálm. 107:1. Á öðrum stað segir Davíð: „Ég vil ljóða um Drottin meðan ég lifí, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.“ Sálm. 104:33. Þetta mættum vér svo sannarlega taka okkur til fyrirmyndar, sú kyn- slóð, sem er of upptekin við að afla sér eigna, sem mölur og ryð eyðir, Hættan í dag stafar eins og endra- nær frá þeim sem „vita betur“, þeim sem „ætla að frelsa heiminn", þess- um eih'fðar „mannvinum“ sem bera hag þinn og minn svo mjög fyrir bijósti. Hverfum aftur til náttúrunnar. Rótleysi okkar sem búum á mölinni stafar af því að við erum slitin úr tengslum við náttúruna. Maðurinn er afsprengi náttúrunn- ar. Náttúran er eins og opin bók sem allir skilja. Við erum öll börn náttúr- unnar. Þekktu þinn eigin uppruna og þú munt betur skilja þitt eigið eðli. RICHARDT RYEL, Sollerod park 12, 1-17, 2840 Holte, Danmörku. í staðinn fyrir varanlega fjársjóði á himnum. En með hveiju getur maður haldið vegi sínum hreinum, spurði sálmaskáldið, og gaf svarið strax frá Guði komið: „Með því að gefa gaum að orði þínu.“ Sálm. 119:9. Það ætt- um við kristnir menn að gjöra jafn oft og við neytum veraldlegrar fæðu, minnugir orða Krists, er hann sagði: Minn matur er að gjöra vilja Guðs, og fullkomna verk þess er sendi mig. Að gefa orði Guðs gaum og leyfa þeim sem fræjum að festa rætur í hjörtum vorum, þar til þau ná að vaxa og bera ávexti til blessunar náunga okkar. Með því förum við að uppfylla hið nýja boðorð Krists: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra. í ritningunni segir: Orðið varð hold og bjó með oss. Það er, Kristur Jesús, hann sem sagði: Ég er vegur- inn, sannleikurinn og lífíð. Þess vegna hefur orð Guðs svo oft verið nefnt lifandi orð, eins og raunar Nýja testamentið er kallað, sem er endursagt á daglegu máli í útgáfu Arnar og Örlygs frá árinu 1979. Þetta ættu þeir að hafa hugfast, sem ekki enn hafa játast Kristi, og vér raunar allir, því alla skortir Guðs dýrð og allir þarfnast hjálpræðis hans. í orði Guðs er að finna leið- sögn til lífshamingju bæði í þessum heimi og í hinum komandi. Jafnvel vill Davíð meina, að sjálft orð Guðs sé okkur mönnunum svo nauðsyn- legt, að hann kveður í sálmi 119, nokkuð sem vér dauðlegir menn ætt- um að gefa alvarlega gætur að, og er á þessa leið: „Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífí halda.“ EINAR INGVI MAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar Skýrt var frá því í fréttum að maður sá, er bera átti íslenska fánann við setningu Ólympíuskák- mótsins í Manila, hafí haft á orði að hann myndi nota fánastöngina til þess að reka Corazon Aquino, forseta Filippseyja, á hol. Öryggis- verðir tóku þau ummæli alvarlega og meinuðu manninum inngöngu í salinn. Kom fyrir ekki sú skýring hans að hann hafi aðeins verið að gantast. Trúlegt er þó að svo hafi verið en hér var engin áhætta tekin. xxx rásögn þessi rifjaði upp atvik, er Víkveiji varð vitni að á Heathrow-flugvejli í London fyrir tveimur árum. Á leið út í flugvél spurði vörður mann, sem var næst- ur á undan Víkveija, hvað hann væri með í handtöskunni. „Það eru nú bara nokkrar skammbyssur," svaraði maðurinn og glotti. Við- brögðin voru snögg, manninum var umsvifalaust kippt út úr röðinni, og nú var annar kominn þeim fyrri til aðstoðar. „Hvað, ætlið þið ekki að líta í töskuna?" spurði maðurinn og var enn hinn brattasti. „Ekki hér, góði minn,“ var svarið, „þú kemur með okkur inn á skrifstofu, þar sem málið verður rannsakað.“ — „Já en vélin er að fara og ég má ekki missa af fluginu.“ — „Það er þitt mál en ekki okkar. Kannski hefð- irðu átt að hugsa um það fyrr.“ Síðan var maðurinn leiddur burt og var nú ekki eins borubrattur og I fyrstu. Þetta sannfærði Víkveija um að þótt einhveijum finnist gamanmál að gera smáat í öryggisvörðum snýr málið öðruvísi við frá þeirra bæjardyrum, þeim er ljós alvara málsins og þola illa gálgahúmor. Þess má geta að umræddur „byssumaður" missti ekki af fluginu sínu. Hann smaug inn í vélina rétt fyrir brottför, en það hefði hann ekki gert ef ekki hefði orðið þriggja stundarfjórðunga seinkun. xxx Fyrst eftir að ráðhúsið var tekið í notkun virtist gangstéttin við húsið almennt notuð sem bílastæði. Samkvæmt merkjum mega þó lang- ferðabílar einir staldra við þar á stéttinni, en þá væntanlega aðeins á meðan farþegar eru að fara í þá eða úr. Eitthvað hefur þó dregið úr þessu, en Víkveiji hefur aldrei átt svo leið um Vonarstræti að einn eða fleiri mannlaus bíll hafi ekki verið þar á stéttinni. Skortur á bílastæðum veldur ekki þessu háttalagi, að minnsta kosti hefur Víkveiji aldrei orðið þess var að stæðið handan götunnar væri fullsett. Auk þess eru bílastæði í kjallara ráðhússins, en þau eru ef til vill aðeins fyrir starfsfólk borgar- innar. Víkveiji kann illa við þessar bíla- stöður á gangstéttinni við ráðhúsið — og hann er ekki einn um það.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.