Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 26
26 C MÓRduNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 14 . JÚNÍ 1992 KSKUMYNDIN... 5R AFHERÐIMAGNÚSSYNI, SÖLUSTJÓRA OGKNATTSPYRNUMANNl ÚRMYNDASAFNINV... ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Metnaðar- fiillur og tapsár MÓÐIR hans segir hann hafa verið komin með fótbolta á tærnar þriggja ára. Faðirinn, sem þá var markmaður í handboltaliði FH- inga, var duglegur við að taka son sinn með á æfingar og fljótlega var piltur farinn að aefa. Sex ára gamall fluttist hann i Slétta: hraunið. Þar myndaðist góður hópur sem hafði íþróttir sem eitt af sínum aðaláhuga- málum. Hann segist vera FH-ingur í húð og hár. Gífurlegur rígur hafi verið milli Hafnar- fjarðarliðanna tveggja á sínum æskuárum og hafi bekkirnir í skólanum gjarnan skipst upp í FH-inga og Haukara. „Það var því ekki farandi í skólann eftir tap gegn Haukum sem þótti hin mesta hneisa fyrir FH-inga. Nú ber ekki eins mikið á þessari hörðu sam- keppni. Við erum að komast á siðmenntaðra plan hvað þetta varðar,“ segir Hörður Magn- ússon, markakóngur fyrstu deildar í knatt- spyrnu undanfarin þrjú ár. Hörður er frumburður foreldra sinna, Elísabetar Sonju Harð- ardóttur og Magnúsar Ólafssonar, útlitsteiknara og skemmtikrafts. Sveinninn ungi leit dagsins Ijós á Fæðingarheimili Reykjavíkur 19. febrúar 1966 og er því 26 ára gam- all. Næstelstur er Rósmundur, sem kom í heiminn fimm árum síðar. Auk hans á Hörður systurina Sonju Maggýju, 8 ára, og bróðirinn Hjalta Frey, 2 ára. Hörður segir að bræð- umir hafi ekki leikið sér neitt að ráði saman vegna aldursmunarins. „Ætli megi ekki segja að ég hafi verið dekurbamið og því kannski ekki neitt sérstaklega góður eldri bróðir," segir Hörður. Út á hinn fijálsa vinnumarkað fór Hörður að afloknu stúdentsprófi frá Flensborg 1987 með smáviðkomu í lögfræðideild HÍ. „Annars ætlaði ég mér ailtaf að verða íþróttakennari, en lífið þróast víst oft öðruvísi en maður ætlar. Síðustu tvö árin hefur Hörður starf- að sem sölustjóri fyrir myndbanda- deild Háskólabíós. Hörður er sagður hafa verið þæg- ur krakki og mikill mömmustrákur, metnaðarfullur og kannski einum of tapsár. Á hinn bóginn væri hann „í skýjunum" þegar vel gekk. „Það má segja að það sé ekkert millistig. Annaðhvort er maður miður sín eða ekki. Hins vegar er afskaplega mis- jafnt hvemig menn taka ósigri.“ Hörður hafði einskonar fyrirliðahlut- verki að gegna í sínu hverfi. Það var hann sem safnaði strákunum saman í lið svo hægt væri að skora önnur strákalið á hólm. Auk íþrótta- áhugans þótti Hörður frambærilegur skákmaður í æsku og náði hann þeim árangri að verða skóla- meistari í skák í Lækjarskóla þegar hann var í áttunda bekk. „Pabbi tók mig með sér á skák- einvígi Fishers og Spasskíjs sem hér var haldið árið 1972 og upp úr því kviknaði áhuginn, eins og hjá svo mörgum öðrum.“ Þegar Hörður er að því spurður hvort hann hafí ekki gert af sér einhver strákapör, segir hann: „Ég held, satt best að segja, að ég hafi ekki verið neitt sérlega hugaður ungur maður. Ætli ég hafi ekki frekar verið í því að æsa félaga mína upp í einhverja vitleysu, bjöllu- at og slíkt, en labbað svo sjálfur í burtu þegar til átti að taka.“ Þess má til gamans geta að Hörð- ur mun ganga í það heilaga í Víði- staðakirkju 4. júlí nk. og er tilvon- andi eiginkona hans Delia Kristín Howser. Fyrsta sigurliðið Knattspyrnuvertíðin er hafin af fullum krafti og má segja að íslenska karlalandsliðið hafi gefið tóninn með glæsilegum sigri á Ung- veijum í Búdapest á dög- unum. Af því tilefni birt- um við mynd af fyrsta sigurliði íslands i knatt- spyrnu. Það sigraði Finna á Melavellinum 2. júlí 1948. í frásögn Morgun- blaðsins af leiknum segir m.a. að strekkingskaldi af vestan hafi verið á vell- inum þegar leikurinn hófst og hafi leikmönnum veist erfítt að hemja knöttinn og var fyrri hálfleikur til- þrifalítill ef marka má eftirfarandi klausu: „Fyrri hálfleikur endaði 0:0 og voru það sanngjörn úrslit, enda var varla hægt að segja, að mörkin kæmust nokkum tíma í hættu og varla hafði sést móta fyrir góðri knattspyrnu þegar hér var komið.“ - Mörkin komu svo í lok leiksins og um það segir m.a.: „Þegar um 6 mín. eru eftir af leik 'fá íslendingar aukaspyrnu sem Sæmundur Gíslason spyrnir fyrir mark Finna, en Ríkharð- ur kemst inn úr vöminni með knött- inn og skorar með óveij- andi skoti.../ Þegar um 2 mín. eru eftir af leiknum gera íslendingar upp- hlaup sem endar með því að Ríkharður spyrnir að marki en vinstri bakvörð- ur Finna stýrir knettinum í markið. Leikurinn end- aði því 2-0 fyrir íslend- inga og verðskulduðu þeir úrslitin." - Hér er engu við að bæta en við birtum einnig myndir af tveimur fræknum knattspyrnuliðum þar sem nokkrir af landsliðsmönnunum koma við sögu, liði Vals og KR frá því um miðja öldina. Myndin af Valsliðinu var tekin 1956, af eins konar „old boys“ liði félagsins, sem lék gegn gullaldarliði Skagamanna en beið ósigur með fimm mörkum gegn tveimur. Fyrsta sigurlið íslands í knattspyrnu, sem lagði Finna að velli 2. júlí 1948. Aftari röð frá vinstri: Olafur Hannesson, Einar Halldórs- son, Sigurður Ólafsson, Ríkharður Jónsson, Sveinn Helgason og Ellert Sölvason (Lolli í Val). Fremri röð frá vinstri: Sæmundur Gísla- son, Karl Guðmundsson, Hermann Hermannsson, Hafsteinn Guð- mundsson og Gunnlaugur Lárusson. SVEITIN MÍN ER____ LANGIDALUR ÍAUSTUR HÚNA VATNSSÝSLU Úr Langadal. „Heima eru veturnir bjartari og kaldari og sumrin kyrrari og hlýrri en hér fyrir sunnan,“ segir Jón Pétur Líndal sveitar- stjóri Kjalameshrepps, en hann er frá Holtastöðum í Langadal. Fjölskylda Jóns Péturs hefur búið að Holtastöðum í fjóra ættliði. „Sá hluti Langadalsins sem ég þekki best er austan Blöndu og undir LangadalsQall- inu. Áin er vatnsmikil og skiptir sveitinni, enda hvergi brúuð í dalnum. Blanda er ekki alvond því á bökkum hennar er nóg af góðri möl og sandi til mannvirkja- gerðar," segir Jón Pétur. Langadalsfjallið freistaði til uppgöngu. „Ég fór oft á fjallið, bæði í girðingarvinnu, beijamó og göngur á haustin. Þá notaði ég gjaman tækifærið til að fara alla leið upp á brún. Þaðan er Jón Pétur Líndal. víðsýnt vestur alla sýsluna og langt út á Húnaflóa." Frá bemskuárum finnst Jóni Pétri miklu muna um bættar sam- göngur. „Þegar ég var krakki man ég ekki eftir vetrarferð öðmvísi en að það væri bamingur. Vegur- inn bæði niðurgrafinn og einstak- lega hlykkjóttur, varla beinn kafli svo næmi heilli bíllengd." Holtastaðir em kenndir við Holta ísröðarson landnámsmann. Þar er bændakirkja og hafa ábú- endur verið bændur, sýslumenn og prestar. Þá er ótalinn frægur glæpamaður, Holtastaða-Jóhann. Við síðustu aftöku í Vatnsdalshól- um er sagt að sýslumaður hafi hvatt hann til að standa nálægt höggstokknum og sagt: „Illum skálkum til viðvömnar, blessaður Jóhann, komdu nær.“ ÞANNIG ... RÆKTAR KOLBRÚN FINNSDÓTTIR KRYDD Morgunblaðið/Sverrir Kolbrún er með yfirbyggðar svalir, þar sem hún ræktar mikinn hluta af kryddinu. Nytjarækt semgleð- uraugað „Þetta er áhugamál sem hefur svo sannarlega undið upp á sig,“ segir Kolbrún Finnsdóttir. Hún hefur mikinn áhuga á ræktun nytjaplatna, sérstaklega krydds, og nú er svo komið að Kolbrún, sem starfaði að ferðamálum i 25 - ár, hefur sótt um inngöngu í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera- gerði. Mest er umfang kryddræktunar- innar hjá Kolbrúnu en auk þess ræktar hún t.d. tómata í stofu- glugganum og salat á svölunum og hefur sett niður alls konar ávaxta- steina í von um að þeir vaxi upp og beri ávöxt. En kryddið ræktar hún bæði innandyra og utan. „Ég kaupi kryddfræ í blómabúð- um og set í bakka snemma á vorin, I mars/apríl, þegar fer að birta sæmilega. Þegar hitinn er kominn vel yfir frostmark, í um 8-10 stig, umpotta ég, eða dreifplanta eins og það kallast. Þá set ég 2-4 plönt- ur í venjulega blómapotta og kem þeim fyrir í sólríkum gluggum, á yfirbyggðum svolum hjá mér og harðgerðustu plönturnar, t.d. stein- selju og graslauk, set ég út í garð, á skjólsælan stað. Eftir einn til tvo mánuði er hægt að nota kryddið." Kolbrún segist hafa mjög gaman af kryddræktinni og hún eyðir tals- verðum tíma í hana enda þarf að vökva plönturnar vel. „Ef sólskin er, verður að vökva daglega. Maður er því bundinn yfir kryddinu, rétt eins og börnum." Meðal þess sem Kolbrún ræktar, er basilíka, salvía, rósmarín, lavend- el, oreganó og estragon. Hún segir kryddjurtirnar ná um 25-30 sm hæð er líður á sumarið. Sumar þeirra t.d rósmarín verði fallegur smá- runni á meðan óreganó sé ris- minna. Þá sé lavendel mjög fallegt, ekki síst ef það blómstri, en þá nýtist jurtin ekki eins vel sem krydd. Plönturnar geta verið í pottunum fram á haust og þegar nota á krydd- ið er einfaldlega klippt af plönt- unni. Þegar líður að hausti er gott að þurrka kryddið. „En best er kryddið auðvitað ferskt, það er óskaplega gott t.d. í salöt og ýmsan ítalskan mat. Kryddrækt og áhugi á matseld eru áhugamál sem fara ákaflega vel saman.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.