Morgunblaðið - 06.08.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
9
Innanhússarkitekt
ráðleggur
viðskiptavinum
Metró
Guðrún Benediktsdóttir
innanhússarkitekt, FHÍ,
ráðleggur um val á KAM-
INNRÉTTINGAR innréttin9t,m' versluninni
Metró fimmtudag og
föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14.
í hinni glæsilegu KAM-línu eru eldhúsinnréttingar,
baðherbergisinnréttingar og fataskápar.
Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf.
itfkMETRÓ
___________í MJÓDD___________
ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050
Ávöxtun verðbréfasjóða
1. júlí.
6 mán.
Kjarabréf 7,5%
Tekjubréf 8,2%
Markbréf 8,2%
Skyndibréf 6,0%
Skandia
Tll hagsbóta
fyrlr íslondinga
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF.
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 619700 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
145.000 KRONA
VERÐLÆKKUN Á
HONDA ACCORD
Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Eftir
að verðið á Accord hefur verið lækkað ber hann
höfuð og herðar yfir keppinautana. Verð eftir lækkun:
Accord. EX með sjálfskiptingu: 1.518.000,-
s
1 Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,-
&
ÁRÉTTRI LÍNU
„Hátíð orgs
og ælu“
DV sker fordæming-
una ekki við nögl þegar
það lýsir þeirri „þjóðhá-
tíð“ sem verzlunar-
maimahelgin er orðin:
„Útihátiðir eru partur
af þeirri íslenzku hefð
að nota svo mikið magn
eiturefna á svo stuttum
tima, að menn umhverf-
ist fyrst, missi síðan ráð
og rænu og endi í sárs-
aukafullum eftirköstum.
Þetta sjá löggæzlumenn
og sjúkraliðar um hverja
einustu helgi ársins ...
Eitthvað er það i is-
lenzkri þjóðarsál, sem
kallar á þátttöku í þján-
ingum verzlunarmanna-
helgarinnar. Ef til vill
eru ungir íslendingar svo
miklu lokaðri en ungt
fólk i öðrum löndum, að
þeir þurfí á útrásum af
þessu tagi að halda til
að halda sönsum afgang-
inn af árinu ...
ísland er brennimerkt
fylliríi. Víman er svo
mikil að hún hefur áhrif
á sljórn landsins, stjórn
fyrirtækja og stjóm
heimila. Hvarvetna má
sjá að fólk hefur misst
þessa stjómartauma úr
höndum sér vegna ótæpi-
legrar notkunar vímu-
efna, einkum áfengis ...
Hér á landi skortir al-
menningsálit, sem lítur
niður á draf og slangur,
org og ælu, skemmdar-
verk og barsmiðar, svo
og aðra fylgifíska mikill-
ar og hraðrar notkunar
eiturefna. Sumar útihá-
tíðir verzlunarmanna-
helgarinnar sýna í hnot-
skum þessa vöntun í
þjóðarsálina."
Gætni, tillits-
semi og hóf-
semd
Það er tiltölulega bjart
ffiEP
Verzlunarmannahelgin
frá breytilegum sjónar-
hornum
Fólk og fjölmiðlar líta nýliðna verzlunar-
mannahelgi, eins og önnur fyrirbæri lífs-
ins, frá breytilegum sjónarhornum. Stak-
steinar glugga í DV, Alþýðublaðið og Tím-
ann, sem sjá skemmtanahald þjóðarinn-
ar, ungviðis og fullorðinna, af mismun-
andi sjónarhólum og máski með ólíku
hugarfari.
í huga leiðarahöfundar
Alþýðublaðsins þegar
hann lýsir helginni:
„Mestu umferðarhelgi
ársins er nú lokið. Verzl-
unarmannahelgin laðaði
þúsundir út á þjóðvegina
og sem betur fer gekk
öll umferð stórslysalaust.
Nú sem á undanförnum
árum hefur hinn þungi
áróður gegn heimsku-
legu ökulagi, svo og gegn
ölvunarakstri, borið
árangur. Allur almenn-
ingur sýndi gætni og til-
litssemi í umferðinni og
virðist leggja sig sérstak-
lega fram um að öku-
menning megi verða sem
bezt miðað við aðstæður,
því vissulega eru þjóð-
vegir okkar að mörgu
leyti illa undir það búnir
að mæta miklum umferð-
arþunga eins og um
verzlunarmannahelgina.
Hinar hefðbundnu
skenuntihátíðir helgar-
innar fóru vel fram að
mati allra sem fjölmiðlar
ræddu við. Efalaust gáfu
þó myndir sjónvarps-
stöðvanna blendnar til-
finningar gagnvart hug-
takinu um að skemmtun
fari vel fram. Umgangur-
inn á sumum hátiðum bar
þess greinilega merki að
fram höfðu farið hrein-
ustu sukkhátíðir.
Áfengisneyzla er löngu
orðin fastur liður verzl-
unarmaimalielgarinnar,
ekki sízt á hátíðum viða
um landið. Þessvegna ber
að fagna þeirri viðleitni
mótshaldara sem sett
hafa á laggimar áfengis-
lausar hátíðir sem val-
kost fyrir fólk sem vill
rýóta samveru og útivist-
ar án þess að drekka frá
sér ráð og rænu. I Ijós
hefur komið að slík hátíð
í Galtalækjarskógi hefur
nú árum saman verið ein
langstærsta útihátíðin
um verzlunarmannahelg-
ina og sýnir og sannar
að stór hluti almennings
kýs vímulausar hátíðir."
Síldarævin-
týrið á Sigló
í „vítt og breitt“
Tímans segir m.a.:
„Siglfirðingum er að
takast að koma sér upp
ágætri hátíð sem dregur
að sér meiri mannQölda
en nokkur dægurlaga-
hljómsveit með allt á
útopnu á einhverjum
melum. Síldanevintýri
þeirra er einstakt og
hugmyndin sem að baki
býr eins einföld og hún
er snjöll. Dregin er fram
isérstaða bæjarins og
byggt á sögulegri hefð,
þegar sett er upp síldar-
plan með tilheyrandi sölt-
un og svo er slegið upp
balli að loknum erfiðum
og skemmtilegum degi.
Fólk kann sannarlega
að meta framtak Sigl-
fírðinganna því ferða-
menn eru á við marg-
falda íbúatöluna á meðan
á ævintýrinu Stendur,
þar sem allir skemmti-
kraftar ljósvakans eru
viðs fjarri. Það má svo
sannarlega halda hátíðir
úti sem inni með glæsi-
brag ef hugvit og smekk-
vísj fá að ráða ferð.“
í fréttaskeyti hér í
blaðinu um umgengni
gesta á Siglufirði segir:
„Sem dæmi um frá-
bæra umgengni gestanna
get ég nefnt að Þormóð-
ur rammi hf. lánaði lóð
fyrir húsbíla og tjöld (en
tjaldað var á hveijum
bletti í firðinum) og áður
en gestir yfirgáfu svæðið
sópuðu þeir bilastæðin
og vökvuðu blómin á lóð-
inni. Það er stórkostlegt
hversu vel fólk skildi við
tjaldstæðin."
Af framangreindu má
sjá að það voru skin sem
skúrir á „þjóðhátíð"
verzlunarmannahelgar-
innar. Og þegar það sem
miður fer er hafið til
• fréttaskýja er skylt að
jákvæðu hliðaraar fái að
íljóta með.
terlcurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
NIKON F4
Til sölu vel með farin Nikon F4 myndavél með
mótordrifi. Einnig þrjár mjög góðar linsur:
Nikkor 135 mm f 2.0
Nikkor 50 mm f 1.4
Nikkor 24 mm f 2.8
Upplýsingar veittar í síma 612502.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ýj ýT/
, |T ' VILLTAR TÆR IVILLTUM M0SA
Nýjung gæðir BAMA skóna sérstökum kostum.
Þeir hafa innbyggðan skógarmosa sem nemur
til sína raka, er þægilegur, ferskur og hefur góð
áhrif á húðina.
BAMA skórnir eru framúrskarandi. Þar má nefna
sérstaklega hina vel hönnuðu fótahvílu. Fæturnir
hvíla á þeim stuðningi, sem hið góða innlegg veitir.
BAMA hefur einkaleyfi á þessum
mosasóla, sem hefur náð miklum
vinsældum í Þýskalandi og víðar.
Auk þess eru allar afurðir
BAMA í sérflokki hvað
gæði varðar.
V
Domus Medíca,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni, i
Kringlunni 8-12,
sími 689212
_____________________J