Morgunblaðið - 06.08.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
11
Bókmenntahátíð í Molde:
Menningarsaga í ljóðum
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
EITT af þekktari skáldum Norð-
manna nú er Arnold Eidslott (f.
1926). Eftir hann hafa komið út
sextán ljóðabækur, hin fyrsta
Vinden talar til den dode, .1953.
Eidslott var meðal þeirra skálda
frá ýmsum löndum sem fluttu
ljóð sín á alþjóðlegri bókmennta-
hátíð, Bjornsonhátíðinni í Molde
i Noregi í júlí.
Arnold Eidslott las ljóð sín lágri
röddu, að mestu í sömu tóntegund,
en ákveðið. Hann er líkari óðals-
bónda en skáldi og sýnist eldri en
hann er.
Verk Eidslotts eru lítt kunn hér
á landi. Trúarlegt efni þeirra hefur
eflaust höfðað til Sigurjóns Guð-
jónssonar, fýrrverandi prófasts, því
að hann hefur þýtt nokkur ljóð
Eidslotts og birt í Lesbók Morgun-
blaðsins. Sigurjón hefur lagt sitt
af mörkum við kynningu norrænnar
ljóðlistar, má nefna þýðingar eftir
hann á Ijóðum Rolfs Jacobsens og
fyrir nokkru komu í Lesbók athygl-
isverðar þýðingar eftir hann á ljóð-
um úr nýjustu bók Knut Odegárds:
Kinomaskinist.
Meðal þeirra ljóða sem Arnold
Eidslott fltti var ljóð um Titanic,
hið sokkna skip sem átti að vera
ósökkvandi. Ein rómaðasta skáld-
saga síðari ára í Noregi fjallar ein-
mitt um sama, þ.e.a.s. örlög farþega
Titanic. Sú bók nefnist Salme ved
reisens slutt og er eftir ungan höf-
und, Erik Fosnes Hansen.
Ljóð Amolds Eidslotts um Tit-
anic var ekki neitt bjartsýnisljóð.
Það sama má segja um fleiri ljóð
hans. Það sem einkennir þessi ljóð
er m. a. ströng bygging og hrynj-
andi. Þau eru djúp og yrkisefnin
eru sótt í evrópska sögu, ekki síst
miðaldir, oft er kveðið um tónskáld.
Það hefur verið mjög rík tilhneig-
ing norskra skálda og skáldsagna-
höfunda að spegla sína eigin sam-
tíð með hjálp miðaldaefnis, og dett-
ur manni í hug að bækur eins og
Nafn rósarinnar eftir Umberto Eco
hafí einhverju ráðið um. í fyrstu
skáldsögu sinni var til dæmis Erik
Fosnes Hansen gagntekinn af
grimmúðlegu sögusviði miðalda.
í ljóðinu Diktet yrkir Arnold
Eidslott um það undur sem ljóðið
er og líkir því við súlukóng, stoltan
fugl hafsins sem óvænt flýgur inn
í stofu skáldsins. Það kom mér ekki
á óvart að Eidslott las Lengsel ett-
er havet sem án efa er eitt af helstu
ljóðum hans. Ljóðið speglar þrá eft-
ir bernskuströnd skáldsins í vestri
og fólkinu sem þar bjó: „Gefðu mér
aftur/ jörðina þar sem fyrstu tár
mín féllu/ Ég þræði slóð hins liðna/
Bráðum hitti ég ættfeður mína“.
í De navnloses kor (1989) stígur
trúarskáldið Arnold Eidslottt fram
og einnig er bókin dæmigerð fyrir
yrkisefni úr fortíð. Einkunnarorð
eru sótt til Nýja testamentisins og
í nýlegt lútherskt trúfræðirit. Ljóst
er að skáldið hefur áhyggjur af trú-
leysi okkar tíma. Það gerist mál-
svari andans í heimi efnishyggju.
Arnold Eidslott er eitt þeirra
norsku skálda sem með ljóðum sín-
um ná langt út fyrir strendur Nor-
egs. Þótt hugur hans sé bundinn
við borgir eins og Flórens, fræg
skáld, tónlistarmenn og málara
gleymir hann samt ekki upprunan-
um og endar De navnloses kor á
ljóðum um það fólk sem stendur
honum næst, norsku sjómennina
sem hann er kominn af:
Hafíð fæddi mig hafið
Allir forfeður mínir komu frá hafinu
sjóndeildarhringum og saltstorknum þilförum
í heimsmenningunni finnur Arn-
old Eidslott flest yrkisefni sín og
af henni er hann heillaður. Hann
gerir sér engu að síður grein fyrir
smæð mannsins -og leitar Guðs.
Mörg ljóðanna eru túlkun hans á
ýmsu því veigamesta sem mannleg-
ur andi hefur skapað. Miðaldir og
kristin arfleifð setja svip á De
navnloses kor.
í Flórens heilla kirkjur borgar-
innar og minningarnar um menn
endurreisnarinnar, málara og skáld.
Hann yrkir um Dante og Leonardo
da Vinci og marga aðra. Það er
einkennandi fyrir De navnloses kor
að skáldið vill benda lesendum sín-
um á hvar mannsandinn rís hæst
og jafnframt minna á hve fólk á í
raun bágt. Hann vitnar til dæmis
oftar en einu sinni í hinn einmana
Svía August Strindberg sem kvað:.
„Det ár synd om mánniskoma."
Stundum er Eidslott kannski ein-
um um of heillaður af kirkjum og
háum turnum, en það er aldrei langt
í jarðsamband hjá honum. Til-
beiðsla og trúarleg viðhorf eru sem
kunnugt er ekki alltaf ljóðlistinni
sjálfri til ávinnings fremur en til
að mynda einhliða félagsleg boðun.
Hvort sem menn líta á De
navnloses kor sem menningar- eða
trúarsögu í ljóðum hlýtur niðurstað-
an að verða sú að þegar best lætur
ÞIXGIIOLl
Suðurlandsbraut 4A,
sími 680666
STÆRRI EIGNIR
FANNAFOLD. Vorum að fá gott
ca 150 fm parhús á einni hæð með innb.
bílsk. Vandaðar innr. Áhv. 5,3 millj. Verð
13 millj.
LOGAFOLD. Ca 243 fm einbhús vel
staðsett innst í lokuðum botnlanga. Húsið
sk. í forst., gott eldh. m. vönduðum innr.,
stofu og borðst., þvhús, 3 stór herb. og
bað. Mjög stór innb. bílsk. Verð 16,8 millj.
BREKKUSEL. Gott endaraðh. ca
250 fm. Sóríb. á jarðh. Bílskúr. V. 13,9 m.
MERKJATEIGUR - MOS.
Nýkomið fallegt einbhús, sem er á tveimur
hæðum m. innb. bílsk. Góðar innr. Falleg
rækt. lóð. Áhv. langtímal. 1,1 millj. Verð
15,2 millj.
MELBÆR. Mjög gott ca 254 fm rað-
hús m/bílsk. Húsið er tvær hæðir og kj. Á
1. hæð eru saml. stofur, gott eldhús, gesta-
snyrting og þvhús. Á 2. hæð er gott sjónv-
hol, 4 herb. og gott bað. í kj. er stór salur
og 2 gluggalaus herb. Gott hús, góður garð-
ur. Verð 13,8 millj.
HAFNARFJ. - LAUST. ca 150
fm raðhús v/Smyrlahraun ásamt ca 30 fm
bílsk. m/rafm. og hita. íb. er á tveimur
hæðum. Niðri er eldh., stofur, snyrting og
þvhús. Uppi 4 herb. og bað. Geymsluris
yfir. Parket. Verð 12,5 millj. Áhv. ca 1,9
millj. langtlán.
HÆÐIR
HATEIGSVEGUR. Vorum að fá í
sölu efri hæð í glæsil. húsi. íb. er ca 115
fm. Góöar stofur, 3 svefnherb. Glæsil. út-
sýni. Suö-vestursv. V. 9,7 m.
RAUÐALÆKUR 28. Vorum að
fá í sölu íb. á 2. hæð auk bílsk. íb. er ca
120 fm í fjórb. íb. skiptist í rúmg. stofur, 3
svefnherb., mögul. á fjórum, og gott eld-
hús. Suður- og vestursv. Eignask. mögul.
Verö 9,2 millj.
REYNIMELUR. Til sölu neðri sór-
hæð ca 85 fm. íb. skiptist í 2 stórar saml.
stofur, gott svefnherb., eldhús með endurn.
innr. og baðherb. Nýtt gler. Mögul. á tveim-
ur svefnherb. Sérinng. Verð 6,8 millj.
VESTURBÆR - KÓP. ca 115
fm efri sórhæð í tvíb. v/Holtageröi. Góöur
ca 35 fm bílsk. m. kj. undir fylgir. Nýjar eld-
hinnr., Góður garður. Verð 9,8 milj. Áhv.
ca 3,5 millj. langtián.
NORÐURBRUN. Mjög góð ca 170
fm sérh. m. innb. bílsk. Hæðin skiptist i
góðar stofur, húsbherb., 3 svefnherb., gott
eldhús. Fallegur garður. Laust innan mán.
Verð 12,4 millj.
LAUGARÁSVEGUR. Caisofm
neðri sérh. í þríb. ásamt ca 35 fm bílsk.
Verð 11,5 millj. Laus fljótl.
4RA-5HERB.
RAUÐAS. Góð ca 155 fm endaíb. á
tveimur hæðum. Vandaðar innr. Stórar suð-
vestursv. Bílskróttur. Eignask. mögul. Áhv.
ca 2 millj. Verð 10,9 millj.
SKAFTAHLÍÐ 18. Vorum að fá
í einkasölu ca 115 fm íb. á 1. hæð. íb. skipt-
ist í stóra stofu og broðst., ágætt eldhús,
á sórgangi eru 3 herb. og bað. íb. fylgir
rúmg. herb. með sérsnyrtingu á jarðhæð.
Falleg lóð. Suðursv. Verð 8,6 millj.
FLUÐASEL. Góð ca 92 fm íb. á 2.
hæð. Parket. Snyrtil. sameign. Mögul. að
taka 2ja herb. íb. uppí kaupverð. Áhv. hús-
bróf ca 4 millj. Verð 7,2 millj.
TRÖNUHJALLI. Ný glæsil. ca 120
fm íb. á 2. hæð ásamt bílsk. Vandaðar innr.
Góðar suðursv. Þvhús í íb. Áhv. húsbr. ca
6,4 millj. Verð 11,5 millj.
IRABAKKI. Til sölu góð ca 80 fm íb.
á 3. hæð. Sórþvhús. Tvennar svalir. Snyrtil.
sameign. Áhv. ca 2,9 millj. Verð 6 millj.
KJARRHÓLMI. Ca 90 fm íb. á efstu
hæð. Þvhús í íb. Suðursv. Verð 6,8 millj.
ÁLFATÚN - KÓP. Stórgl. íb.
m/bílsk. ca 116 fm. íb. er á 2. hæð í fjórb-
húsi. Verð 10,7 millj. Áhv. ca 3,6 millj.
FRAKKASTÍGUR. Falleg ca 100
fm íb. á 1. hæð með sérinng. í nýl. húsi.
Eigninni fylgir stæði í bílskýli ca 28 fm. Góð
íb. Verð 8,5 milij.
3JAHERB.
LAUGARNESVEGUR -
M. BÍLSKÚR. Vorum að fá í sölu
ca 75 fm íb. á 1. hæð í þríbhúsi auk bílsk.
Verð 5,8 millj.
HÁTEIGSVEGUR. goS ca 93 fm
íb., lítið niöurgr. jarðhæð með sérinng. Stór
stofa, 2-3 herb., eldhús og bað. V. 6,3 m.
GLAÐHEIMAR. Góð ca 65 fm íb.
á götuhæð með sérinng. Stofa, 2 herb.,
eldhús og bað. Húsið er vel staðsett á róleg-
um stað. Áhv. veðdeild 4 millj. V. 6,6 m.
HLIÐAR. Vorum að fá í einkasölu ca
90 fm íb. í nýl. húsi við Hörgshlíð. Vandað-
ar innr. Góðar stofur, 2 rúmg. svefnherb.
Suðurverönd. Sé rinng. Bílskýli. Stórgl. eign.
Áhv. veðdeild 3,5 millj. Verð 10,6 millj.
FRAMNESVEGUR. Falleg risíb.
sem sk. í stofur, opið eldh., 2 svefnherb.
Svalir út af stofu. íb. er öll nýstands. Verð
7,2-7,3 millj.
HRAUNBÆR. Góð ca 80 fm íb. á
3. hæð. Nýbúið að laga hús og sameign.
Verð 6,5 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR. góö neðn
hæð ásamt bílsk. ofarlega v. Álfhólsveg.
Glæsil. útsýni. Vestursv. Verð 8,5 millj.
Áhv. ca 1,0 millj. Laus fljótl.
HRAUNBÆR. Góð ca 92 fm íb. á
3. hæð. íb. er í góðu ásigkomul. Flísar og
parket á gólfi. Tvennar svalir. Sér svefn-
álma. Verð 6,8 millj. Áhv. veðd. ca 2,3 millj.
SKÓGARÁS. Góð ca 84 fm íb. á 2.
hæð. Þvottah. í íb. Lóð frág. Verð 6,9 millj.
Áhv. veðd. 2,8 millj.
2JAHERB.
DIGRANESVEGUR. tíi söiu
björt og góð ca 75 fm íb. á jarðhæð i tvíb-
húsi. Talsvert endurn. Áhv. ca 2,7 millj.
Verð 5,2 millj.
HOLTSGATA. Vorum að fá i sölu
ca 60 fm ib. á 1. hæð. Góð baklóö. Suð-vest-
ursv. fb. er laus fljótl. Verð 5,2 millj.
INN VIÐ SUND. Góð ca 75 fm ib.
í kj. innarlega á Kleppsvegi. Rúmg. stofa,
stórt hol, gott eldhús með nýl. innr. og
borðkróki, gott herb. með skápum. Nýir
gluggar og gler. Ákv. sala. Laus fljótl.
NÆFURAS. Góð ca. 80 fm íb. á 2.
hæð. þvottah. í íb. Tvennar svalir. glæsil.
útsýni. Verð 6,5 millj. Ahv. 2,9 mlllj.
SAFAMÝRI. Ca 61 fm íb. í kj. m.
sórinng. Húsið nýmálað utan. Nýtt gler.
Laus strax. Verð 5,2 millj.
FLYÐRUGRANDI - LAUS.
Ca 50 fm ib. á 3. hæð. Stórar svalir. Áhv.
veðd. ca 1.200 þús. Verð 6,0 mlllj. Lyklar
á skrifst.
BUGÐULÆKUR - LAUS. ca
50 fm kjíb. fb. er rúmg. og ( góðu standi.
M.a. nýtt gler. Verð 4,5 millj. Áhv. 1,5 millj.
GRETTISGATA - LAUS.
Mjög falleg 51 fm einstaklíb. á 2. hæð. Allt
endurn. Parket og marmari á gólfum. Arinn
í stofu. Verð 5,8 millj.
Arnold Eidslott
hljómar hér rödd skálds sem höfðar
sterkt til samtímans.
A fyrrnefndri bókmenntahátíð í
Molde flutti annað roskið skáld ljóð
sín, Lars Huldén frá Finnlandi.
Huldén hefur ort í ýmsum stílteg-
undum, enda afar fjölhæfur. Hann
las að þessu sinni sonnettur sem
fiestar voru eftirmæli eða minning-
arljóð. Ein þeirra fjállaði um hund
skáldsins.
Undir lestrinum rifjaðist upp
Minningarljóð Tómasar Guðmunds-
Holland
_______Myndlist__________
Eiríkur Þorláksson
Samstarf við erlenda aðila um
listsýningar hefur alia tíð verið
mikilvægur hluti í starfsemi Ný-
listasafnsins við Vatnsstíg. Nú
stendur yfir í safninu sýning á verk-
um hollenskra listamanna, og er
hún hingað komin sem fyrri hluti
samstarfsverkefnis sem er einfald-
lega nefnt Holland - ísland; í síðari
hlutanum (sem haldinn verður í
september) verða haldnar sýningar
á verkum fimm íslenskra lista-
manna í Hollandi.
Það hefur verið mikill samgangur
í myndlistinni milli þessara landa í
meira en tvo áratugi. íslendingar
hafa sótt til náms í Hollandi, og
sumir hafa jafnvel sest þar að um
lengri eða skemmri tíma; hollenskir
listamenn hafa Verið tíðir gestir
hér, og hafa sumir þeirra einnig
fest rætur meðal íslendinga. Þessi
samskipti hafa alla tíð verið nokkuð
fjölbreytt, enda hafa þau byggst á
samböndum víða um Holland, en
ekki aðeins í Amsterdam eða Haag;
þetta verkefni tengir t.d. Nýlista-
safnið við borgirnar Goes, Middel-
burg og Vlissingen, sem ekki er
víst að Islendingar þekki mikið til,
en þar verða sýningar þeirra Dan-
íels Magnússonar, Haraldar Jóns-
sonar, Hrafnkels Sigurðssonar,
Hreins Friðfinnssonar og Rögnu
Sigurðardóttur haldnar í næsta
mánuði.
Val þessarra íslensku lista-
manna, sem og þeirra hollensku
sem sýna hér, mun vera á ábyrgð
listfræðinganna Tom van den Berge
og Joyce van Elzakker. Þau sitja
bæði í stjórn stofnunar sem heitir
First Floor Foundation, og stendur
fyrir þessum sýningum, m.a. í sam-
vinnu við Nýlistasafniðog menning-
armálanefnd Vlissingen. Þessi
stofnun virðist gott dæmi um hvað
gera má í krafti samvinnu lista-
manna og smærri sýningarstaða,
sem hver fyrir sig hefur vart færi
á að standa í erlendu samstarfi, en
geta lagt sitt af mörkum í sam-
starfí fleiri aðila.
Á sýningunni í Nýlistasafninu
getur að líta verk fjögurra hol-
lenskra listamanna, þeirra Eveline
van Duyl, Willem Speekenbrink,
Peter Terhorst og Marcel Zalme.
Þarna er um að ræða bæði högg-
myndir, innsetningar og málverk,
en þetta listafólk er allt á fertugs-
aldri, og fjölbreytni verka þeirra
gefur þannig örlitla mynd af þeim
straumum, sem eru að getjast með-
al þeirrar kynslóðar í Hollandi.
Hugmyndalistin er sá grunnur,
sem flest þeirra byggja á. Eveline
van Duyl setur upp snotra innsetn-
ingu, þar sem flallað er um mikil-
vægi orðsins; hinir fijálsu fuglar
himinsins þarfnast hins vegar ekki
orða, og þannig er titillinn dreginn
í efa. Peter Terhorst setur einnig
fram hugmyndafræðileg verk, t.d.
„History (nr. 2) sem bendir á að
Lars Huldén
sonar um Stubb, hjartnæmt ljóð
sem finna má í síðustu bók skálds-
ins, Heim til þín ísland. Það var
einhver skyldleiki með ljóðum Huld-
éns og Tómasar. Til dæmis í eftir-
farandi línum Tómasar: „Og þöglan
trúnað þinn ég mat því meira/ sem
málskraf heimsins lét mér hærra í
eyra.“
Huldén sagði að skáldskapur sinn
upp á síðkastið mótaðist af því að
hann væri sífellt að sjá á bak fleiri
og fleiri vinum sínum.
A
- Island
saga mannkyns, lista og vísinda
byggir á hinu ritaða orði, hversu
öfugsnúið sem það kann að virðast.
Verk Villem Speekenbrink eru öllu
meira fyrir augað, t.d. er „Silence
Please (nr. 1) skemmtileg samsetn-
ing, og „Black Hole (nr. 7) er kraft-
mikil og vel uppsett ímynd, sem
sýnir að stærð getur haft sitt að
segja.
Það voru þó verk Marcel Zalme
sem helst hrifu undirritaðan. í þeim
er að finna einhveija dulúð, sem
gerir þau eftirminnileg, og má þar
t.d. benda á „River I (nr. 15). Um
leið skýrir listamaðurinn þetta allt
út í öðru verki, „8 lessons for mod-
em painters (nr. 14), og afhjúpar
þannig sjálfan sig og alla aðra lista-
menn; slíkt eykur enn á það aðdrátt-
arafl, sem verk hans hafa.
Þó að þarna sé að finna ýmis
skemmtileg verk sem sýna að hér
eru góðir listamenn á ferð, þá líður
þessi sýning fyrir upplýsingaleysi.
Það er raunar til skammar að að-
eins sé hægt að fá ljósrit með nöfn-
um verkanna, eða þá umslag með
ljósmyndum af nokkrum verkum
hinna hollensku og íslensku lista-
manna sem taka þátt í þessu sam-
starfi. Hvergi er að finna neinar
upplýsingar um sýnendurna,
menntun þeirra, listhugsun og við-
horf, og er líklegt að þessi skortur
á upplýsingum hái flestum sýning-
argestum mikið. Það er gjörsam-
lega úrelt hugmynd að slík þjón-
usta, eða réttar sagt þjónustuleysi,
sé listinni til framdráttar. - Það
verður að vona að betur verði stað-
ið að þessum þætti varðandi sýning-
ar íslenska listafólksins í Hollandi
í næsta mánuði.
Sýningin í Nýlistasafninu á verk-
um hinna hollensku listamanna
stendur til sunnudagsins 9. ágúst.
♦ ♦ ♦------
■ NEMENDAÞJÓNUSTAN SF.
býður skólanemum nú í ágúst nám-
skeið til að rifja upp námsefni und-
anfarinna missera áður en skóli
byijar aftur. Einnig er boðið upp á
undirbúning fyrir endurtökupróf
eða stöðupróf í framhalds- og há-
skóla. Á námskeiðunum verður boð-
ið upp á kennslu í raungreinum,
tungumálum og viðskiptagreinum.
Nemendum er kennt í einkatímum
eða 2-4 manna hópum á tímum
sem nemendur og kennarar ákveða
sameiginlega. Kennararnir eru með
kennsluréttindi og kennslureynslu
úr almennum skólum. Námið er
sveigt að þörfum hvers og eins og
hentar ekki aðeins skólanemum
heldur einnig þeim sem vilja hressa
upp á kunnáttu sína í þessum grein-
um til nota í daglega lífinu. Nám-
skeiðin geta líka gagnast þeim sem
ekki hafa verið í skóia um nokkurt
skeið en hafa í hyggju að setjast á
skólabekk í framtíðinni og vilja rifja
upp grunn þeirra námsgreina sem
þeir ætla að sækja í almennum
skóla. "