Morgunblaðið - 06.08.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
19
Brynja við Cessna-flugvél Flugtaks sem hún flýgur reglulega. Morgunbiaðið/Gunniaugur Rögnvaidsson
Var hálfskelkuð í
fyrsta flugtímanuni
- segir Brynja Sigurðardóttir flugkennari
„Hún er góður kennari og karlmenn taka henni vel, þó sumum
þyki stundum skrítið að sjá kvenkyns flugkennara,“ sagði Reynir
Sigurðsson, yfirmaður Bryiyu, sem sýnir hér flugbókina þar sem
flugtimar hennar eru samviskusamlega skráðir.
FLUGKENNARI. Líklega
35—40 ára karlmaður með Ray-
ban sólgleraugu í leðurjakka
og gallabuxum. Þá ímynd hafa
margir í huganum af flugkenn-
urum og þá ekki síst að hann
sé karlkyns. En þó karlmenn
séu í miklum meirihluta sem
flugmenn hérlendis þá starfa
hérlendis þrír kvenkyns flug-
menn hjá Flugleiðum, og ein
sem vinnur sem flugkennari hjá
Flugskólanum Flugtaki i
afleysingum. Brynja Sigurðar-
dóttir heitir hún og á að baki
rúmlega 250 flugtíma.
„Það bregður sumum í brún að
sjá kvenmann sem flugkennara og
menn í fluginu taka mér misjafn-
lega, sumir líta mig hálfgerðu horn-
auga, en ég á marga góða félaga
í fluginu og hef kynnst mörgum í
gegnum þetta áhugamál og starf,“
sagði Brynja í samtali við blaða-
mann sem hitti hana að máli á flug-
móti í Múlakoti. Þar flaug hún
Cessna-flugvél Flugtaks, skrapp
m.a. til Vestmannaeyja og sveim-
aði í kringum Þórsmörk í eins
hreyfils vélinni. Hún fór í sinn
fyrsta flugtíma fyrir fjórum árum
en leist ekkert of vel á flugið eftir
þann tíma, „Ég var eiginlega hálf-
skelkuð eftir fyrsta tímann Það var
rok og rigning í þessum fyrsta tíma
og ég fór ekki aftur fyrr en að
hálfu ári liðnu, leist ekkert á lætin
í flugvélinni í veðrinu", sagði
Brynja. „Reyndar gerir veðrið hér-
lendis flugið erfitt, því það er óút-
reiknanlegt og sól og rigning bítast
á í háloftunum. En þetta er spenn-
andi og í fluginu er maður alltaf
að upplifa og sjá eitthvað nýtt í
hverri ferð,“ sagði Brynja. Hún
hefur um stundarsakir atvinnu við
símvörslu hjá SS en vinnur einnig
við ræstingar á kvöldin og sem
afleysingakennari i fluginu.
„Ég reyni að fljúga hvenær sem
efni eða aðstæður bjóða upp á, en
annars reyni ég að verja frístund-
unum við einhveija tómstundaiðju,
hjóla t.d. mikið inn í Elliðaárdaí á
fyallahjóli, stundum 3-5 sinnum í
viku. Mig langar að reyna fallhlíf-
arstökk og hef prófað að fljúga
með mótorknúnum svifdreka hér á
flugmótinu sem var sérstök tilfinn-
ing og öðruvísi en að sitja um borð
í flugvél. Að svífa um loftin blá er
spennandi og kemur i staðinn fyrir
spenninginn sem maður fékk fyrst
eftir að hafa fengið bílprófið," sagði
Brynja. Einn nemenda hennar kvað
hana mjög nákvæma sem kennara
og lausa við tilgerð sem stundum
fylgir karlkyns flugmönnum, færi
vel yfir öll öryggisatriði og fylgdist
vel með nemendum sínum. Reynir
Sigurðsson, sem stjórnar málum
hjá Flugtaki, kvað henni vel tekið
af nemendum en hún er ein átta
kennara sem þar starfa og hefur
minnkað hlutfall karlpeningsins um
eina stöðu.
Viðhorfíð gagnvart kvenfólki er
greinilega að breytast í þessu starfi
sem öðrum, sem karlmenn hafa
verið einráðir í síðustu áratugi.
- G.R.
Landlæknisembættið:
Brjóstamjólk er besta nær-
ingin fyrir nýfædd börn
ÞESSA dagana stendur yfir vika sérstaklega helguð kynningu á mikil-
vægi brjóstamjólkur. Það eru alþjóðasamtökin WABA (World Alliance
for Breastfeeding Action) sem tóku þá ákvörðun að helga dagana 1.-7.
ágúst brjóstagjöf. Sérstakur samstarfshópur fulltrúa þeirra stofnana
sem láta sig bijóstagjöf varða hefur verið stofnaður hér á landi og
mun hann leitast við kynna málefni er tengjast brjóstagjöfinni.
Samtök þessi sem hér um ræðir
voru stofnuð í fyrra og starfa í nán-
um tengslum við Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunina. Markmið þeirra er meðal
annars að að samræma og koma
upplýsingum um btjóstagjöf milli
landa og hinna ýmsu heilbrigðisfag-
hópa.
í fréttatilkynningu frá Landlækn-
isembættinu er sagt frá tillögum sem
settar voru fram af sérstökum Ráð-
gjafahóp um bijóstagjöf en hann
vann á vegum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar. Þar er hvatt til auk-
innar fræðslu og kynningar varðandi
bijóstagjöf. í skýrslu hópsins kemur
fram að þurrmjólkurneysla hafi auk-
ist á kostnað neyslu bijóstamjólkur.
Hópurinn leiðir að því líkum að fag-
fólk í heilbrigðisstéttum hafi ekki
stutt nægilega notkun bijóstagjafar
og vanti færni til að gefa konum
með barn ráð.
Samkvæmt mati Landlæknisemb-
ættisins á umræða á borð við þessa
fullan rétt á sér hér á landi. Af þeim
sökum hefur nú verið stofnaður sam-
starfshópur til að vinna að fræðslu
um nauðsyn bijóstagjafar. í hópinn
hafa valist allir fulltrúar þeirra stofn-
ana og samtaka er telja sig málefnið
varða. Meginmarkmið hópsins verður
að taka saman allar upplýsingar um
málefnið og safna þeim á einn stað
9g vinna almennt að þeim í landinu.
í fréttatilkynningunni kemur fram
sú skoðun að nauðsynlegt sé að koma
á ákveðinni stefnumörkun varðandi
brjóstagjöf íslenskra kvenna. Þá sé
og mjög mikilvægt að mynda góða
og markvissa samvinnu milli fag-
hópa. Loks er hvatt til þess að
fræðsla og ráðgjöf sé samræmd.
í grunnatriðum er boðskapur
hópsins og Landlæknisembættisins
sá að bijóstamjólk sé besta næringin
fyrir nýfædd börn og oftar en ekki
þurfi ekki aðra næringu fyrstu 4-6
mánuðina.
TILBOÐ
VIKUNNAR
FLOBIDAMA
axtasafiIMW^
,0-
CROWN
mmsídós 48
WEIAA
hAbnækng
OSTK.SAMAN
ssss
,... 1 ltr.
w I 1 aðub
rví\ aður
HAGKAUP
- allt í einniferd