Morgunblaðið - 06.08.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
29
Persaflóastríðið
— Afmæliskveðja
eftir Hjört
Hjartarson
Þann 2. ágúst sl. voru tvö ár liðin
frá upphafi Persaflóadeilunnar. Hún
hófst sem kunnugt er með innrás
íraka í Kúvæt. Rúmum fimm
mánuðum síðar hófust loftárásir fjöl-
þjóðahersins undir stjórn Banda-
ríkjamanna á stöðvar íraka í Kúvæt
og borgir í írak. Með loftárásunum
urðu kaflaskil í deilunni og af um-
fjöllun fjölmiðla eftir það ekki annað
að ráða en ákvörðun um stórstyijöld
til „lausnar henni væri sjálfsögð.
Hún var þó ekki sjálfsagðari en svo
að í öldungadeild bandaríska þings-
ins munaði aðeins þremur atkvæðum
að stríðsheimild til handa forsetan-
um fengist ekki í gegn.
Áhlaup Bush-stjórnarinnar og
fjölþjóðahersins hófst þrátt fyrir og
eftir að búið var að einangra íraks-
stjórn pólitískt, efnahagslega og
hernaðarlega; ákvörðun um stór-
styqold var tekin eftir að íraksstjórn
hafði verið þvinguð til að fallast á
að draga her sinn frá Kúvæt.
Forleikur
2. ágúst 1990 fordæmdi öryggis-
ráð SÞ innrás íraka í Kúvæt og
krafðist þess að þeir drægju herlið
sitt til baka, ekkert ríki var á móti
ályktuninni.
6. ágúst samþykkti ráðið við-
skiptabann á írak, ekkert ríki var á
móti.
9. ágúst samþykkti öryggisráðið,
samhljóða, að innlimun íraka á Kú-
væt væri ómerk.
25. ágúst heimilaði ráðið aðild-
arríkjum Sameinuðu þjóðanna að
beita valdi til að framfylgja við-
skiptabanninu, ekkert ríki var á
móti.
25. september samþykkti ráðið
bann við flugsamgöngum við Irak,
einungis Kúbanir voru á móti.
Og enn eitt vopn var lagt mönnum
í hendur: Þann 29. nóvember heimil-
aði öryggisráðið, að tillögu Banda-
ríkjamanna, aðildarríkjum Samein-
uðu þjóðanna að „gera allar ráðstaf-
anir sem nauðsyn krefði gegn írök-
um, ef þeir drægju ekki hersveitir
sínar frá Kúvæt, í síðasta lagi eftir
15. janúar.
Ástæða er til að taka fram, að
þetta var ekki beiðni SÞ um innrás
í Kúvæt og írak; framkvæmdastjóri
þeirra frétti af innrásinni eftir að
hún var hafin. Mönnum var, eftir
sem áður, í sjálfsvald sett hvernig
þeir leystu deiluna. Og, í stuttu
máli, Vesturlönd klúðruðu málinu.
Með öll tromp á hendi tókst þeim
ekki að spila úr stöðunni nema upp
á gamla móðinn. Auk þess bendir
allt til þess að Bush-stjómin hafi
aldrei ætlað sér annað en styijöld.
Var stríð eini kosturinn?
Nei, stríð var ekki eini kosturinn.
Viðskiptabannið hefði getað sparað
mönnum ómakið.
Þær raddir heyrðust að viðskipta-
bann væri gagnslaust, írakar hefðu
það prýðilegt, þrátt fyrir að það
hefði staðið í 5 mánuði. Metupp-
skera hefði verið í írak um sumarið
og að auki væri margreynt að auð-
velt væri að komast hjá viðskipta-
banni. Því er til að svara, að við-
skiptabannið hafði, þegar hér var
komið, lamað efnahagslíf Iraka.
Skortur var orðinn sýnilegur á ýms-
um varningi í Bagdað og innflutn-
ingur, í trássi við viðskiptabannið,
nánast enginn.
Ástæðan fyrir því hve áhrifin voru
lítil á yfirborðinu er sú að Kúvæt
var mjög vel birgt og væntanlega
hafa írakar komið sér upp birgðum
fyrir innrásina. Hins vegar þurfa
þeir að flytja inn 70 - 80% af öllum
matvælum og hefðu tæplega þolað
margra mánaða viðskiptabann, án
þess að upp úr syði innanlands.
Hafa verður í huga að þetta var
ekkert venjulegt viðskiptabann. All-
ar samgöngur við írak og Kúvæt
voru bannaðar og eftir 15. janúar
var heimilt að framfylgja því með
vopnavaldi.
Hvað hefði gerst?
Ef marka má fréttir, áður en loftá-
rásir (og ritskoðun) hófust, m.a. frá
blaðamanni Morgunblaðsins, taldi
íraskur almenningur innrásina í
Kúvæt réttmæta. Hins vegar var
hann orðinn þreyttur eftir margra
ára stríðsátök við írani og leit svo
á að best væri að draga hersveitim-
ar til baka.
Hvað varðar íraska herinn er það
að segja, að sá sem fer fyrir matar-
lausum her þarf ekki að kemba
hærurnar. í stuttu máli:„Vinsældir
Saddam Hussein hefðu snúist upp í
andúð og leitt til uppreisnar hers
og almennings. Iraskar hersveitir
hefðu dregið sig til baka frá Kúvæt.
Franska tillagan
Önnur lausn var einnig möguleg.
Á elleftu stundu komu Frakkar
með tillögu sem gerði ráð fyrir að
írakar drægju sig til baka frá Kúvæt
og haldin yrði alþjóðleg ráðstefna
um frið í Miðausturlöndum. Þjóðveij-
ar og fleiri þjóðir tóku þegar í stað
undir hana. Bandaríkin, Bretland og
Sovétríkin gátu ekki sætt sig við
orðalag tillögunnar og var hún því
ekki tekin fyrir í öryggisráðinu. Hún
var aldrei borin formlega fram við
írösk stjómvöld. Ríki þessi máttu
ekki heyra á það minnst að brottför
íraka frá Kúvæt tengdist á nokkurn
hátt ráðstefnu um málefni Miðaust-
urlanda.
Afstaða Sovétríkjanna kom ekki
fram fyrr en eftir að afstaða Banda-
ríkjanna var látin í ljós. Skýringin
er sú að Sovétríkin riðuðu til falls á
þessum tíma og áttu allt sitt undir
velvilja Bush- stjómarinnar.
Nei-maðurinn í Bagdað
írakar höfðu, þegar hér var kom-
ið, neitað með öllu að fallast á skil-
yrðislausa brottför frá Kúvæt, þrátt
fyrir að margir stórpólitíkusar
heimsins, hefðu skriðið á hnjánum
til Bagdað að telja Saddam Hussein
á að endurskoða afstöðu sína.
Hvernig má ætla að hann hefði fall-
ist á frönsku tillöguna; frá Bagdað
heyrðist hvorki hósti né stuna?
Sú staðreynd að írakar létu ekk-
ert frá sér fara um tillöguna, þegar
hún var óformlega til umræðu, bend-
ir einmitt til þess að þeir hafi beðið
hennar í ofvæni; hún fól í sér það
sem Saddam Hussein ætlaði að
bjarga sér á út úr klandrinu, án
þess að tapa algjörlega andlitinu.
Irakar voru eins og mús undir fjala-
ketti og biðu færis að losna út úr
Kúvæt.
Það sem ekki má
Bush vísaði á bug öllum samning-
um við slíkt ómenni sem Saddam
Hussein er. Allt bendir til þess að
hér hafi forsetinn talað þvert um
hug sér:
Árið 1982, í forsetatíð Reagans
og varaforsetatíð Bush, er írak tek-
ið af svörtum lista yfir ríki sem
styðja hryðjuverk. Bush og James
Baker, núverandi utanríkisráðherra,
þrýstu á um að Saddam Hussein
yrði fenginn bandarískur tæknibún-
aður, sem félli vel að áformum hans
um hernaðaruppbyggingu, m.a. um
þróun kjarnorkubúnaðar.
Þegar halla tók á Saddam Hus-
sein í styijöldinni við írani, kom her
Bandaríkjanna honum til hjálpar,
t.d. með því að gefa upp skotmörk
í Iran fyrir margumtalaðar Scud-
flaugar.
Drápa þessi er mun lengri og
heldur áfram eftir að uppvíst varð
um slátrun írakshers á 5000 Kúrd-
um með eiturhernaði: Árið 1989
gefur Bush, þá orðinn forseti, út til-
skipun í nafni þjóðaröryggis, nr. 26,
og kemur þannig í veg fyrir að lána-
tryggingar upp á 1 milljarð $, til
handa Saddam Hussein yrðu stöðv-
aðar í Bandaríkjunum. írakar náðu
að nýta sér helming þessara trygg-
inga; hinn helmingurinn var felldur
niður 2. ágúst 1990.
Hér er ótalinn þáttur Sovétríkj-
anna sálugu og Vestur-Evrópu í
uppeldi dánumannsins Saddam Hus-
sein.
Hjörtur Hjartarson
Af hvequ stórstyijöld?
í bók Jóns Orms Halldórssonar,
Islam, sem út kom á síðasta ári,
segir: „Afrakstur nýlendutímans var
líka upplausn um allar þær álfur sem
nú mynda þriðja heiminn. Evrópu-
menn teiknuðu upp ríki í samræmi
við hagsmuni sína en þvert á þjóðir,
hefðir og menningu. Þessi gerviríki
hafa síðan mörg hver borist á bana-
spjót og mörgum þeirra hefur verið
stjórnað af öflugustu illmennum
hvers tíma, sem oft hafa reitt sig á
stuðning Vesturlanda, er í staðinn
hafa setið að efnahagslegum ávinn-
ingi.“
Til þess að viðhalda framan-
greindu ástandi þarf vald og til þess
að mark sé tekið á valdinu þarf að
sýna það af og til. Þess vegna var
franska tillagan ómöguleg. Við-
skiptabann var ófært því það hefði
getað haft þær óheppilegu afleiðing-
ar að hrekja Saddam Hussein frá
völdum.
Real-pólitík
Tölur vfir fallna hermenn í liði
íraka hafa verið nefndar: 30.000,
50.000, 100.000. Hver veit það?
Flestir þeirra voru grafnir lifandi
þegar „snjó“plógar plægðu yfir byrgi
þeirra, þar sem þeir höfðu legið
mánuðum saman undir mestu loftá-
rásum sögunnar; baráttuþrek ekk-
ert. Og hvaða fólk var þetta? Þetta
var t.d. fólk eins og það sem íslend-
ingar nefna unglinga. Þá eru ótalin
nokkur hundruð af sama fólki sem
féll í liði fjölþjóðahersins. Síðastliðið
vor kom sjónvarpsfrétt sem lét lítið
yfir sér. Þar sagði frá bandarískum
embættismanni sem var sparkað
fyrir að láta uppi tölur bandaríkja-
stjómar yfir fjölda fallinna meðal
óbreyttra borgara í írak. Þær vom
nokkum veginn svona: 60.000 karl-
ar, 40.000 konur og 30.000 böm.
Lýðveldisvörðurinn og Saddam
Hussein em við góða heilsu — enda
stóð ekki annað til.
Höfundur er rafeindavirki.
OKKAR FRÁBÆRA ÚTSALA
HEFST í DAG FIMMTUDAG
20-50% AFSLÁTTUR
TRYGGIÐ YKKUR NÚ SPORTFATNAÐ EÐA SKÓ
Á HREINT HLÆGILEGU VERÐI