Morgunblaðið - 06.08.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
fclk f
fréttum
wm^^—mmm
BUÐARDALUR
Sturlu reistur minnisvarði
Minnisvarði um Sturlu Þórðar-
son, lögmann, sagnaritara
og skáld, var afhjúpaður fimmtu-
daginn 30. júlí sl. við hátíðlega
athöfn í Búðardal eins og skýrt
hefur verið frá hér í blaðinu. Minn-
isvarðann gerði Hallsteinn Sig-
urðsson myndhöggvari.
Athöfnin fór fram í fögru veðri
og glampaði á listaverkið þar sem
það stendur fyrir framan Stjóm-
sýsluhúsið í Búðardal. Þar fluttu
ræður Marteinn Valdimarsson
sveitarstjóri og Friðjón Þórðarson
sýslumaður en að athöfn lokinni
var boðið til veislu í félagsheimil-
inu í Dalabúð þar sem Matthías
Johannessen cand.mag. flutti er-
indi um Sturlu og umhverfi hans.
Félagsheimilið var þéttsetið og
fylgja þessum orðum myndir frá
samkomunni.
Hallsteinn Sigurðsson á ættir
að rekja í Dali vestur og er bróður-
sonur Ásmundar Sveinssonar
myndhöggvara en sú ætt er frá
Kolsstöðum í Miðdalahreppi.
I ræðu sinni sagði sýslumaður
að Stjórnsýsluhúsið væri sameign
nokkurra aðila svo sem venja
væri um slík hús, bæði ríkis og
heimamanna. Og hann bætti við:
„Það er m.a. Héraðsbókasafn
Dalasýslu. Ég tel rétt að geta
þess við þetta tækifæri að fýrir
nokkrum árum kom fram sú hug-
mynd að í safni þessu yrði sérstök
deild sem varðveitti öll rit Sturlu
og önnur rit honum tengd eða
allt safnið yrði honum helgað, þ.e.
Sturlusafn.
Færi einkar vel á því að héraðs-
bókasafnið yrði aukið og eflt, sér-
staklega á sviði sögunnar og þjóð-
legra fræða. Það yrði gert í anda
Gestir við minnisvarðann.
Morgunblaðið/Kristjana R. Ágústsdóttir
Friðjón Þórðarson sýslumaður ávarpar viðstadda.
þess bókhneigða og námsgjama
fólks sem búið hefur á þessum
slóðum öldum saman og hinna
miklu bókasafnara sem hér hafa
átt heima. Get ég ekki stillt mig
um að nefna tvö nöfn í því sam-
bandi: Sjálfan Áma Magnússon,
prófessor sem fæddur var í
Kvennabrekku í Miðdölum og ólst
upp í Hvammi í Dölum og átti
mér vitanlega aðeins lögheimili á
tveim stöðum á ævinni, í Dala-
sýslu og Kaupmannahöfn. Og svo
Þorsteinn Þorsteinsson sem var
sýslumaður Dalasýslu í 35 ár og
átti mikið og frægt bókasafn sem
nú er geymt í Skálholti en sumir
telja að betur væri komið í Búðar-
dal svo sem um hefur verið rætt
og ritað.
Þessi höggmynd sem hér er ris-
in og uppsetning hennar hefur að
sjálfsögðu kostað all mikið fé. En
hvort tveggja er að Listskreyt-
ingasjóður ríkisins hefur lagt fram
myndarlegan styrk og í annan
stað hafa verið gerðar litlar af-
steypur myndarinnar sem ætlunin
er að selja ef þörf krefur svo að
fyrir öllu verði séð og allur kostn-
aður greiddur skilvíslega.“
Frá veislunni í Dalabúð.
Einstakt tækifæri:
Kjalvegur - Hveravellir - Blönduvirkjun
Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykiavík
verðurfarin laugardaginn 8. ágúst 1992
Farið verður um:
Gullfoss - Geysi - Hveravelli -
Blönduvirkjun
Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSf og
ekiö að Geysi í Haukadal, þar sem
fólki gefst kostur á að skreppa í
sjoppu.
Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi.
Ekið norður Kjöl að Hveravöllum. Þar
munu ferðalangar borða nesti sitt.
Kl. 15:00 Lagt af stað frá
Hveravöllum og ekið norður að
Blönduvirkjun, þar sem virkjunin
verður skoðuð í fylgd
leiðsögumanns.
Kl. 18:00 Lagt af stað frá
Blönduvirkjun og ekið að
Staðarskála.
Kl. 21:00 Lagt af stað frá
Staðarskála og ekið til Reykjavíkur.
Áætlað er að koma til Reykjavíkur
kl. 23:45.
Fargjald kr. 2.800,-
Tekið verður á móti sætapönfunum í síma 624480 eða á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4. - 7. ágúst.
COSPER
Þú færð stöðuna, ef þú getur kastað núverandi
útkastara út.
m Ttí/Tiifo
<& n bO OO Góðan daginn!