Morgunblaðið - 06.08.1992, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
/fJíQrta e.Ls/car-fóUc. En aðaUegQ
■faer fyann. hundamcit ár'<UÓ5um.,>
Með
moixunkaffínu
koma í heimsókn. Guð sé oss
næstur.
7-17
. . . að brjótast út úrskelinni.
TM Reg. U.S Pat Off. — all rights reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndicate
Var hann eins og fólk er
flest, þessi sem þér erfðuð?
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
ÓFRIÐARÁSTAND
Frá Pétri Dokladal:
í þessu bréfi ætla ég að lýsa hinu
flókna ástandi sem er í Tékkóslóv-
akíu um þessar mundir. Enginn
veit hversu lengi þetta land verður
til. Eins og flestir gera sér ljóst
af fréttum óttast fólk klofning og
átök. í kosningum í Bæheimi og
Slóvakíu sigruðu gjörólíkir flokkar
og flokkapólitík þeirra fer ekki að
skynsamlegum rökum. Ef við
hugsum okkur ríkið sem vagn
dreginn af tveimur hestum er eins
og annar hesturinn vilji til vinstri
en hinn til hægri. Hestamir, Klaus
og Meciar, eru jafnsterkir og útlit
er fyrir að vagninn, Tékkóslóvak-
ía, verði rifinn í sundur.
Tékkar komast þá undir áhrif
frá Þýskalandi en Slóvakíubúar
verða að snúa sér til Pólverja í
norðri, Ungverja í suðri og Úkra-
ínubúa í austri. Þessar breytingar
munu kosta mikinn sársauka því
sáð hefur verið miklu hatri mílli
þjóðarbrotana — og það er vatn á
millu þeirra sem vilja uppreisnar-
og eyðileggingarástand. Václav
Havel var ekki kosinn forseti á
ný og enginn veit hvort embættið
verður til í framtíðinni. Því miður
kom forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, aldrei hingað eins
og áætlað var í fyrra.
Ég veit ekki hvað mun gerast
hér. Václav Klaus er líklegur for-
ystumaður í augum Vesturlanda-
Frá Vilhjálmi Alfreðssyni:
FYRIR nokkrum mánuðum skrif-
aði Gunnar Eyþórsson merkilega
grein í DV þar sem hann lýsti því
yfír að síðustu mánuðir í kosninga-
slag Bandaríkjamanna gætu orðið
hættulegir. Nú er það svo að Bush
Bandaríkjaforseti ætlar að nota
íraksmálið sér í hag. írakar hafa
fyrir löngu brotið vopnahlésskil-
mála en ekkert. var að gert. En
manna. Flokkur hans, ODS, stend-
ur með honum og við þegnarnir
óttumst einhvers konar auðvalds-
stefnu eins og _var í Evrópu fyrir
styxjöldina. Vafalaust er það rétt
að við teljumst með Vesturlöndum
en sem stendur er það bara draum-
ur. Laun manna hér og á Vestur-
löndum er ekki hægt að bera sam-
an. Maður með 3.000 til 4.000
króna laun á mánuði og borgar 6
krónur fyrir mjólk, 20 krónur fyr-
ir ost, 18 krónur fyrir lítra af bens-
íni eða 300 krónur fyrir skyrtu í
búðinni er ekki mjög ánægður.
Nú er erfítt fyrir mig að senda
bréf til íslands, sendingar eða
gjafir eins og áður. Það kostar 150
krónur að senda grammófónsplötu
héðan til íslands en kostaði áður
37 krónur. Það er mikil verðhækk-
un.
Ungar fjölskyldur með börn
eiga í miklum erfíðleikum, at-
vinnuleysi er mikið. Mikill hluti
verksmiðja í Slóvakíu var tilbúinn
til vopnaframleiðslu. Núna eru um
10 prósent íbúa í Slóvakíu atvinnu-
laus og það er vatn á myllu komm-
únista og sósíalista. Málið er þó
ekki svona einfalt. Landsmenn
verða fyrir miklum áhrifum er-
lendis frá, einkum frá Bandaríkj-
unum. í kvikmyndahúsum er varla
boðið upp á annað en bandarískar
spennumyndir og sjónvarpið send-
ir út endemis vitleysu. Aður var
allt rússneskt en nú skal apa allt
nú þykir allt í einu tími til kominn
að þýsta á íran. Svo mikið liggur
á að þegar flugmóðurskipið John
F. Kennedy lét úr höfn 27. júlí
voru fimmtíu sjóliðar skildir eftir,
svo mikil læti voru í Pentagon.
Verði aftur átök milli Banda-
manna og íraka munu ísraelar
áreiðanlega svara fyrir sig.
VILHJÁLMUR ALFRÉÐSSON
Efstasundi 76, Reykjavík
eftir Bandaríkjamönnum.
Við getum að vísu tjáð okkur
opinberlega en fólk virðist ekki
tilbúið að lifa við lýðræði og marg-
ir óttast að hin sterka hönd muni
hrifsa valdið. Nú er mikið talað
um alþjóðahyggju í sambandi við
Evrópubandalagið. Slíkt getur litið
sæmilega út en getur í rauninni
eyðilagt manneskjuna hið innra.
Ég var mjög feginn þegar Danir
afneitUðu Evrópusamrunanum í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég dáðist
að Norðurlandabúum sem stoltum
afkomendum víkinganna og trúi
að þeir feti í fótspor Dana.
Ég er mjög hægrisinnaður mað-
ur og met persónuleikann fyrst
og fremst. Persónuleiki manna er
Guði tengdur og því nauðsynlegt
að birta rétt andlit Guðs. Nú hafa
komið fram ýmsir nýir straumar
í nafni „nýaldar“. Ég var mikill
rokkari og las guðspekibækur, s.s.
bækur Blavatsky, bækur um Zen,
Tao o.fl., svo ég veit hve aðlað-
andi þessar nýju kenningar eru,
einkum fyrir gáfaða menn. Hætta
stafar af ýmsum trúflokkum, s.s.
Vottum Jehóva, Hare krisna og
Moon, sem sækja að rómversk
kaþólsku- og lútersku kirkjunni.
Auðvitað er ómögulegt að hefja
baráttu gegn þessu en nauðsyn-
legt er að halda fast við homstein-
inn, sem er Jesús Kristur. Oft
minnist ég þá hinnar kæru eyjar,
Islands.
Ef mögulegt væri flytti ég strax
til íslands, settist kannski að á
einhveijum stað eins og Hrísey eða
einhverri ey á Breiðafírði. Hversu
gott væri ekki að njóta rósemi í
friði og ró fjarri deilum og baráttu
og öðmm vitleysum sem menn
skapa. Að predika yfír fuglum,
fiskum og blómum eins og heilajg-
ur Franciscus gjörði. Lengi lifi Is-
land og ísjendingar sem eru óháð-
ir menn til fyrirmyndar mörgum.
Ég blessa þjóðina í nafni Guðs.
FAÐIR PÉTUR DOKLADAL
Blanická 130
72400 Ostrava 24 — Stará
Bélá
Tékkóslóvakíu
Kosningabrella?
HÖGNI HREKKVÍSI
7/ann, er innuhc/ir AjÁ Ajundr,fiar\Q -
aranurn, t»
Víkverji skrífar
Skrifara var bent á það í vikunni
að íslenzkir keppendur á
ÓLympíuleikunum væru samtals 29
og svo gæti farið að meira en helm-
ingur þessa hóps kæmi heim með
verðlaunagripi. Sextán íslending-
anna keppa í handknattleik, 2 í
sundi, 3 í júdó, 1 í skotfimi, 3 í
badminton og 4 í fijálsum íþróttum.
íslendingar eiga góða möguleika
á verðlaunum í handknattleiknum,
spjótkastararnir eru til alls líklegir
og hinn öflugi Vésteinn Hafsteins-
son keppti í gærkvöldi í úrslitum
kringlukastsins, en þessi orð voru
sett á blað áður en hann lauk
keppni. Ef aðeins er litið til hand-
knattleiksmannanna er ljóst að þeir
verða ekki neðar en í 4. sæti. Jafn-
vel þó svo ótrúlega fari að liðið sigri
ekki í fleiri leikjum; vinni þijá leiki,
geri eitt jafntefli og tapi þremur
leikjum í keppninni dugar það til
fjórða sætis.
Þar sem handboltamennimir telja
rúmlega helming íslenzku keppend-
anna er ljóst að meirihluti Islend-
inganna verður í fjórða sæti eða
ofar á sjálfum Ólympíuleikunum.
Tæpast geta margar þjóðir státað
af slíkum árangri og svo er alltaf
verið að agnúast út í íslenzka
íþróttafólkið!
x X X
Oftsinnis að undnaförnu hefur
Víkveiji heyrt á öldum Ijós-
vakans talað um að keppendur hafi
báðir komið jafnir í mark. Skrifari
er svoh'tið að velta því fyrir sér ef
bara annar keppendanna hefði
komið jafn í mark!
XXX
Vestnorrænt kvennaþing verður
haldið á Egilsstöðum síðari
hluta þessa mánaðar og hafa um
350 konur skráð sig til þátttöku;
230 íslenzkar, 64 færeyskar og
50-60 grænlenzkar. í samantekt
sem blaðinu hefur borizt kemur
fram að konumar kynna menningu
sína, viðhorf og baráttumál þá daga
sem þær dvelja hér á landi. Ekki
er að efa að mikið verður um að
vera fyrir austan þá daga sem þing-
ið stendur yfir og í niðurlagi fréttar
Undirbúningsnefndar þingsins seg-
ir: „Ákvörðun um Vestnorræna
kvennaþingið var tekin á alþingi í
mars 1990 í framhaldi af þingsá-
lyktunartillögu frá Vestnorræna
þingmannaráðinu um að árið 1992
verði vestnorrænt ár. Undirbún-
ingsnefnd var skipuð af félagsmála-
ráðherra og setti hún sér það mark-
mið að 300 konur mættu til þings-
ins og það væru allar konur, en
ekki bara konur sem oft fá tæki-
færi til að sækja alþjóðleg kvenna-
þing. Þessum markmiðum er löngu
náð og gott betur og erfitt er að
bæta fleiri konum við, því ekki er
hægt með góðu móti að hýsa fleiri
á Egilsstöðum og nágrenni á þess-
um tíma.“
Jafnframt kemur fram í saman-
tektinni, að talan 20 er hæsta talan
í grænlenzku og allar hærri tölur
eru úr dönsku. Einnig að í græn-
lenzkri jafnréttisbaráttu er talað um
þijú kyn; grænlenzkar konur,
grænlenzka karla og Dani.