Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 1

Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 1
pior0wnili(toÍMÍ> C 1992 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST BLAÐ adidas annað ekki ÓLYMPÍULEIKARNIR í BARCELONA Ólympíu- leikarnir kostuðu 88 milljaiða Forsvarsmenn Ólympíuleikanna í Barcelona skýrðu frá því um helgina að leikarnir stæðu undir sér fjárhagslega og gott betur; myndu skila 5-6 milljóna dojlara hagnaði, um 300 milljónum ÍSK. Pedro Palacios, talsmaður fram- kvæmdanefndarinnar, sagði að það hefði verið ásetningur borgar- yfirvalda að ekki þyrfti að leggja gjöld eða skatta á borgarbúa vegna Ólympíuleikanna'. Heildarkostnaður við fram- kvæmd leikanna er 1,6 milljarður Bandaríkjadala, jafnvirði 88 millj- arða ÍSK. Af því eru um 600 milljónir dala (33 milljarðar ÍSK), í tekjur fyrir sölu sjónvarpsrétt- inda og aðgöngumiða. Vegna Ólympíuleikanna var efnt til ýmissa löngu tímabærra framkvæmda í Barcelona. M.a. voru gerðar miklar úrbætur á sam- göngukerfi borgarinnar, lagðar nýjar hraðbrautir og ný flugstöð byggð á flugvellinum. Sá kostnað- ur nemur um 500 milljörðum ÍSK og féll ekki undir kostnað vegna leikanna. Bestur íslendinga í frjálsíþróttum á ÓL síðan 1956 Morgunblaðið/RAX Sigurður Einarsson hafnaði í fimmta sæti í spjótkasti á Ólympíuleikunum í Barcelona. Þetta er besti árangur íslendings á ÓL síðan Vilhjálmur Ein- arsson varð annar í þrístökki í Melbourne 1956. Á myndinni sést Sigurður tryggja sér fimmta sætið. Besta sem ég hef gert / C6 og C7. „Hvaðer’etta" Lukkudýr Ólympíuleika hafa að jafnaði vakið mikla at- hygli þegar þau eru kynnt til sögunnar. Svo var einnig þegar lukkudýr Ólympíuleikanna í Atlanta 1996 steig fyrst fram á sjónvarsviðið á lokaathöfn Barcelona lejkanna á sunnu- dagskvöldið. I ljós kom að vísu að hér er vart um „dýr“ að ræða, allavega er ekki með góðu móti hægt að sjá hvaða dýr þetta á að vera. Lukkudýr- ið er einna líkast skorkvikindi en með hendur og fætur og útstæð blá augu og Ólympíu- hringina á höfðinu og skottinu. Það hefur líka hlotið nafn við hæfi; „Hvaðer’etta", eða What- izit upp á engilsaxnesku. Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, hefur vísað gagn- rýni á þetta kynjadýr á bug. „Mér líkar vel við þetta lukku- dýr og nafnið á því,“ sagði hann, en þess má geta að það er hannáð í tölvu. Lukkudýr Ólympíuleikanna í Atlanta heitir „Hvaðer’etta. KNATTSPYRNA/SJONVARP Heimildin afturkölluð Heimild sem Knattspyrnusam- band íslands veitti sjón- varpsstöðvum til að fela hljóðnema á dómurum í knatt- spyrnuleikjum hefur verið aftur- kölluð. Eggert Magnússon, for- maður KSI, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það hafi aldrei verið ætlun þeirra hjá KSÍ að bijóta landslög og þess vegna hefði heimildin verið afturkölluð, en talið er að þetta samrýmist ekki fjarskiptalögum eins og kom fram í Morgunblaðinu í síðustu viku. Stöð tvö tók upp samtöl dómara og leikmanna í leik ÍA og Vals í síðasta mánuði með þessum hætti, og vakti það uppátæki mikil við- brögð. Heimir Karlsson, forstöðu- maður íþróttadeildar Stöðvar tvö, sagði þetta mál vera orðið mjög hlægilegt, en vildi ekki láta hafa meira eftir sér um málið. KNATTSPYRNULANDSLEIKUR: AÐVORUN OG AMINNING / C15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.