Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 11

Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ Q99 BARCELONA ’92 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992 C 11 Morgunblaðið/RAX irðlaununum í hendur Frakka. Á myndinni má sjá Héðinn Gilsson, Þorberg Aðalsteinsson íl Geir Sveinsson, fyrirliði: Einkennilegt „ÞAÐ er hálf einkennilegt að ná fjórða sæti á Ólympíuleik- um og vera dapur yfir því. Væntingar voru miklar og von- brigðin því meiri, þvívið vor- um farnir að finna lyktina af því að standa á palli," sagði Geir Sveinsson, fyrirliði ís- lenska liðsins, eftir tapið gegn Frökkum. Geir sagði vörnina háfa verið mjög slaka gegn Frökkum. „Ég held að miðjan hafi alveg brugðist,“ sagði hann og vísaði til sjálfs sín og Júlíusar. „Það er kannski engin skýring á þessu, en það er þó erfitt held ég að komast í gegnum heila Ólympíuleika án þess að eiga engan slakan leik. Það hittist þannig á að í dag á maður sinn lélegasta leik, það þurfti endilega að vera í dag.“ Geir sagði fleira spila inn í, t.d. þreytu: „Þegar menn eru komnir yfir viss þreytumerki er erfitt að ná gleðinni fram, sem við höfum reynt að rúlla á hér. Og þá skiptir ekki máli hver andstæðingurinn er. En þetta eru rosalega von- brigði. Menn átta sig á því betur er þeir koma heim af hveiju þeir voru að missa. Við fengum tæki- færi til að verða öruggir með pen- ing. Með sigri á Samveldinu í und- anúrslitum hefði liðið spilað um 1. sætið og nú fengum við annað tækifæri en aftur mistókst okkur það sem við ætluðum að gera. Það eru ekki nema tveir menn af þjóð okkar sem fengið hafa verðlaun á Ólympíuleikum — það hefði verið stórkostlegt að komast i þann hóp.“ Geir var daufur eftir tapið, og sagði þegar verið var að kynna lið Samveldisins og Svíþjóðar, sem mættust í úrslitum: „Mig langar mest inn á, til að spila við Frakk- ana strax aftur.“ tAX órum Samveldið fékk gullið Samveldið fagnaði sigri í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, síðasta mótinu sem liðið tekur þátt í. Svíar urðu í öðru sæti eftir 20:22 tap í úrslitaleiknum, sem var mjög vel leikinn og æsispenn- andi. Frakkar í þriðja sæti eftir 24:20 sigur á íslendingum sem urðu því_ í íjórða sæti. í öðrum leikjum um sæti varð niðurstaðan þessi: Spánn var í fimmta sæti, burstaði Kóreu 36:21, Ungverjar urðu í sjöunda eftir 23:19 sigur á Rúmenum, Tékkar urðu í níunda sæti — lögðu Þjóðverja að velli 20:19, og Egyptar urðu númer ellefu. Sigruðu Brasilíumenn 27:24. Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari ánægður með margt í leik liðsins á Ólympíuleikunum, en: Eins og rothögg aðnáekkií verðlaunapening „ÞAÐ er engin spurning að þetta eru gffurleg vonbrigði. Einhvern veginn var það þannig að við komumst aldrei inn í leikinn, gáfum hann frá okkur þegar fbyrjun," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið eftir tapleikinn gegn Frökkum f Barcelona á laugardaginn. „Þeir komust f 3:0 og það er erfitt að vinna það upp. Þeir voru enn þremur mörkum yfir i' hálfleik og gerðu fjögur fyrstu mörk í seinni hálfleik. Þá urðum við að fara íaðrar varnaraðgerðir sem kannski heppnuðust, en við nýttum það ekki í sókninni þannig að leikurinn rann út í sandinn." Þorbergur sagði að hugsanlega væru kröfur til strákanna frá sinni hendi of miklar. „Það er erfitt að segja, strákamir eru náttúrlega búnir að leggja alveg gíf- urlega mikið á sig hérna og hafa staðið sig vel — komust í íjögurra liða úr- slit — en þegar maður er kominn í Skapti Hallgrímsson skrífar frá Barcelona þá stöðu að möguleiki er á verð- launapeningi verður maður auðvitað svekktur er það mistekst. Þetta er eins og rothögg." Bronsið var í a ugsýn, en mér fannst Frakkarnir strax ákveðnari og kraftmeiri. Hvað var að? „Það getur legið í því að við höfum kannski ekki nægan kraft í sjö leiki. Við hefðum efiaust átt að vera klók- Ekki vístað svona tæki- tæn getist aftur sagði Gunnar Gunnarsson „ÞAÐ var komin rosaieg þreyta í lykilmenn, sem leikiö höfðu bæði í vöm og sókn allt mótið. Svo byrjuðum við mjög ilia í dag og komumst aldrei almennílega inn f leikinn. Fengum þó tækifæri, unnum boltann en töpuðum honum altt of oft klauf alega aftur,“ sagði Gunnar Gunnarsson, leikstjórnandi landsliðsins, eftir tapið á laugardag. Gunnar sagði það gt'furleg von- brigði að tapa ieiknum um bronsverðlaun. „Það hefði verið betra að leika um 5.-6. sæti og tapa þar, hér vorum við að missa af verðlaunapeningi. Og það er ekki víst að þetta tækifæri gefíst nokkum tíma aftur. Svíar, til dæm- is, með allan sinn árangur, eru nú í fýrsta skipti í undanúrslitum á Ólympíuleikum! Leikamir em á fjögurra ára fresti; lið þurfa að tryggja sér sæti þar og síðan að verða á meðal þeirra fjögurra efstu til að eiga möguleika á verðlaun- um. Það er rosalega erfitt." Gunnar sagði erfítt að halda því fram, eftir leikinn á laugardag, að hann væri ánægður, „en auðvitað verðum við að vera ánægðir með árangurinn. Leikirnir um sæti, þar sem bæði Tékkar og Ungveijar hafa unnið, sýna að allt tal um að riðillinn okkar hafi verið léttari á ekki við rök að styðjast.. Á svona móti em allir leikir erfiðir. En það er vissulega erfitt að kyngja því að ná ekki þriðja sætinu — maður á öragglega eftir að svekkja sig á þessu alla ævi.“ ir og láta Svíaleikinn liggja alveg á milli hluta. Hvíla lykilmenn. En maður getur alltaf verið klókur eftir á, og þetta er vonandi hinn besti skóli fyrir strákana." Þú átt við að liðið hafi ekki verið nægilega vel tilbúið líkamiega til að spila á fullu allt mótið, kannski vegna þess að þið voruð ekki að æfa endilega með Olympíuleikana íhuga, heldur aðallega HM í Svíþjóð eftir áramót? „Hefðum við vitað fyrir tveimur árum að við væmm á leiðinni hingað hefði sumarið í fyrra verið skipulagt öðruvísi. Það kom ekki upp fyrr en í vor að við færum hugsanlega hing- að, en eflaust hefðum við gert margt öðruvísi hefðum við vitað það fyrr.“ Ef þú lítur yfir mótið í heild, ertu ánægður með þína menn? „Eg er mjög ánægður með marga hluti. Við gerðum margt gott í keppninni, sérstaklega var varnar- leikurinn nánast undantekningar- laust mjög góður, nema kannski í dag, og þá hefur markvarslan verið nokkuð jöfn og mjög góð á köflum.' Það er hins vegar ljóst að það sem við vomm að vinna að í júní var sóknarleikur, og þá með Bjarka Sig- urðsson í aðalhlutverki sem örvhenta leikmanninn fyrir utan. í fyrsta æf- ingaleik sumarsins gegn Spánveij- um meiðir hann sig svo og var ekk- ert meira með, þannig að það fór geysileg vinna úr skorðum þarna. En þessari vinnu hefur auðvitað ekki verið kastað á glæ því við erum fyrst og fremst að hugsa um HM á íslandi 1995. Reynum að vinna þetta markvisst. Ég tel það yrði mjög gott að vera í hópi átta bestu í HM í Svíþjóð á næsta ári og í hópi fjög- urra bestu á íslandi ’95. Og þeir sem eru í kringum þetta verða að hafa, þolinmæði fyrir því að við erum að byggja upp lið. Við gerðum kannski meira en efni stóðu til hérna og ég er náttúrlega rosalega ánægður með það, en einhvernveginn er maður svo metnaðarfullur og bijálaður að að manni fmnst alveg synd að ná ekki í verðlaunapening." Er framtíð íslenska landsliðsins björt að þínu mati? „Já, við eigum geysilega stóran hóp góðra leikmanna og það er eng- in spurning að framtíð íslensks handbolta er geysilega björt. Við þurfum bara að fá að vinna nógu markvisst. Fá nógu marga leiki og vinnufrið." Og heldurðu að svo verði? „Já, já. Ég vona að minnsta kosti að HSI standi undir því í næstu framtíð því við þurfum geysilegan tíma, og allt kostar þetta peninga." Skotanýting og markvarsla Skotanýting einstakra leikmanna íslenska liðsins í leiknum gegn Frökkum, og í keppninni f heild; fyrst mörk, skottilraunir og prósentuhlut- fall gegn Frökkum og síðan það sama hvað keppnina varðar í heild: Birgir Sigurðsson .............1 1 100% - 6 8 75% Jakob Sigurðsson .........1 1 100% - 8 13 61,54% Valdimar Grímsson ......5 11 45,45% - 35 58 51,47% Gunnar Gunnarsson .......4 7 57,14% - 14 21 66,67% Patrekur Jóhannesson ..................0 1 - 2 4 50% Konráð Olavson ...3 4 75% - 3 5 60% Héðinn Gilsson ..........3 8 37,5% - 18 40 45% Geir Sveinsson...0 0 - 20 25 80% Einar Gunnar Sigurðsson .............0 2 - 10 22 45,45% Júlíus Jónasson .........3 7 42,86% - 18 50 36% Gunnar Andrésson......- 1 1 100% SigurðurBjamason ...- 5 16 31,25% Markvarsla íslenska liðsins var sem hér segir á Ólympíuleikunum: Guðmundur Hrafnkelsson varði 63 af 172 skotum sem hann fékk á sig, sem em 36,63%. Bergsveinn Berg- sveinsson varði 23 af 60 skotum, serp er 38,33% ■ Guðmundur varði 14 af 40 línu- skotum, 7 af 19 skotum úr horni, 34 af 76 langskotum, 2 vítaköst af 10 og 6 skot af 27 eftir hraðaupphlaup. ■ Bergsveinn varði 2 af 9 línuskot- um, ekkert af 3 úr homi, 16 af 30 langskotum, 2 af 8 vítum og 3 skot af 10 sem hann fékk á sig eftir hrað- aupphlaup.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.