Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ 089 BARCELONA ’92 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992
FRJALSIÞROTTIR
Áhoriendur trylltust er
Fermin Cacho vann óvæntasta sig-
ur Ólympíuleikanna í Barcelona
er hann sigraði í einni helstu skraut-
grein leikanna, 1500 metrá hlaupi
karla, með fádæma glæsibrag að
þjóðhöfðingja sínum, Juan Carlos
Spánarkonungi, viðstöddum. Troð-
fullur leikvangurinn nánast sprakk
af æsingi, slík var gleði 63.000 him-
inlifandi áhorfenda, er Cacho geyst-
ist áfram síðustu 100 metrana og
vann einhver eftirsóttustu Ólympíu-
verðlaunin.
„Mig dreymdi ekki einu sinni að
ég ætti eftir að keppa í úrslitum
1500 metra hlaupsins þegar Barcel-
ona var úthlutað Ólympíuleikunum
árið 1986,“ sagði Cacho, 23 ára
hæglætismaður frá þorpinu Agreda
í Soria-héraði.
„En þegar leikvangurinn var vígð-
ur 1989 ákvað ég að leggja enn
harðar að mér við æfíngar," sagði
Cacho. „Ég keppti mest á minni
háttar mótum því ég vildi spara mig
fyrir Ólympíuleikana. Þótt ég sé ung-
ur til að vinna Ólympíusigur vildi ég
ekki láta tækifærið ónotað, tók
áhættu og dæmið gekk upp,“ sagði
hann. Eftir sigurinn hljóp Cacho til
foreldra sinna og faðmaði þá að sér,
var síðan leiddur upp í stúku til kon-
ungshjónanna sem fögnuðu sigri
hans.
Cacho útfærði hlaupið stórvel,
hélt sig fremst í hópnum og fylgdist
með hverri hreyfingu keppinautanna.
Þegar um 200 metrar voru eftir lét
hann til skarar skríða, fór fram úr
Kenýumanninum Joseph Cheshire og
slíkur var sprettur hans að hinir
hlauparamir virtust nánast standa í
stað. „Áhorfendur báru mig síðustu
metrana, stuðningur þeirra var stór-
kostlegur," sagði Cacho eftir hlaupið.
Hlaupið fór óvenju rólega af stað
Reuter
Fremfn Cacho frá Spáni kemur hér fyrstur í mark í 1.500 metra hlaupinu
og vann einhver eftirsóttustu Ólympíuverðlaunin.
og eftir því sem á leið stefndi í því
meira spennandi uppgjör á loka-
sprettinum. Heimsmeistarinn frá
Alsír, Nourredine Morceli, þótti sig-
urstranglegur en gerði slæm mistök,
lokaðist inni í miðjum hóp, komst
aldrei út úr þeirri klípu og átti því
ekki möguleika á lokahringnum.
Égerstoltur
Síðasti íþróttamaðurinn til að
hlaupa um Montjuic Ólymp-
íuleikvanginn í Barcelona var
vinnumaður frá Botswana, mara-
þonhlauparinn Benjamn Keleketu.
Hann kom í mark 32 mfnútum á
eftir sigurvegaranum í maraþon-
inu, en sagði kokhraustur að hann
ætlaði sigra næst.
Hann var reyndar ekki sá síð-
asti í maraþoninu. Þeir sem á eftir
honum komu urðu að gera sér það
að góðu að hlaupa lokahringinn á
æfingavelli við hliðina á aðalvellin-
um, þar sem lokaathöfn Ólympíu-
leikanna var að hefjast.
„Ég er mjög stoitur yfir því að
hafa verið síðasti íþróttamaðurinn
til að fjúka keppni á Ólympíuleik-
vanginum,“ sagði Keleketu eftir
hlaupið. Hann sagðist þó oft hafa
hugleitt að gefast upp, sérstaklega
vegna hitans. „Það er alveg örugg-
lega ekki svona heitt í Botswana,“
sagði hann. Áhorfendurnir 65 þús-
und á leikvanginum hylltu Kele-
ketu þegar hann hljóp síðasta
hringinn, síðasta íþróttamanninn
sem hljóp um Ólympíuleikvanginn
á Ólympíuleikunum í Barcelona.
Heike Henkel
áfram best
Var sú eina sem fóryfir 2,02 metra í hástökki
HEIMSMEISTARINIU íhá-
stökki kvenna frá því í fyrra,
þýska stúlkan Heike Henkel,
sigraði í hástökkskeppninni á
laugardag. Henkel var eini
keppandinn íhástökkinu sem
fór yfir 2,02 sem er sjö senti-
metrum frá heimsmeti Stefku
Kostadinova.
Henkel kenndi strangri öryggis-
gæslu um hvað hún var lengi
að ná sér á strik í hástökkinu.
Henni var til að mynda meinað að
hafa með sér „vasadiskó" inn á
Ólympíuleikvanginn og var óhress
yfír því, sagði að hún hefði stöðugt
þurft að vera hugsa um keppnina
og það hefði gert sér mun erfíðara
fyrir.
„Það er erfitt að einbeita sér við
svona aðstæður og ég vaknaði
ekki fyrr en ég var búinn að fella
tvisvar," sagði Henkel sem þurfti
þijár tilraunir til að fara yfir 197
sentimetra.
Engu líkara var en að góð
frammistaða samlöndu hennar,
Dieter Baumann í 5.000 metra
hlaupinu hvetti hana til dáða. Hen-
kel fór léttilega yfír tvo metra og
sama gerði aðalkeppinautur henn-
ar Galina Astafei frá Rúmeníu.
Þýska stúlkan tryggði sér sigurinn
með því að fara yfir 2.02 metra
og þá hæð réði rúmenska stúlkan
ekki við. Joanet Quintero frá Kúbu
varð í þriðja sæti með 197 senti-
metra.
Helke Henkel stekkur hér með miklum tilþrifum yfir 2,02 metra og tryggir
sér sigur. Á minni myndinni fagnar hún gullverðlaununum eins og hún gerði
líka á síðasta heimsmeistaramóti í Tókíó.
Reuter
Hwang Young-Cho frá Kóreu (t.v. nr. 1147) og Japaninn Koichi Morishita
(1087) börðust um sigurinn í maraþoninu lengi vel en Kóreumaðurinn átti
góðan endasprett og sigraði. Morishita varð annar, 22 sekúndum á eftir ólymp-
íumeistaranum.
Asíumenn í sérflokki
Hwang átti frábæran endasprett og sigraði örugglega
HWANG Young-Cho frá Suður-
Kóreu kom fyrstur i mark í mara-
þonhlaupi karla sem var síðasta
grein Ólympíuleikanna í Barcel-
ona. Hann hafi mikla yfirburði
og gat leyft sér að veifa til áhorf-
enda og senda þeim fingurkoss
er hann hfjóp inn á Ólympíuleik-
vanginn.
Hwang, sem er 22 ára og vann
maraþonið á heimsleikum
stúdenta á síðasta ári, kom í mark
á 2:13.23 klst. Er hann kom yfir
marklínuna var hann alveg búinn og
gat ekki staðið á fótunum. „Þetta
var mjög erfítt hlaup sérstaklega
lokakaflinn upp brekkurnar að leik-
vanginum. Ég varð að fara inn í
sjúkraherbergi eftir hlaupið til að fá
vatn,“ sagði Hwang. Japaninn Koichi
Morishita varð annar 22 sekúndum
á eftir. Bronsverðlaunin komu í hlut
Stephans Freigang frá Þýskalandi
sem fór fram úr Takeyuki Nakayama
frá Japan á endasprettinum.
Hwang var annar Asíubúinn til
að vinna maraþon á Ólympíuleikum.
Kóreumaðurinn Sohn Kee-Chung
sigraði á leikunum í Berlín 1936 og
keppti þá fyrir Japan. Þessi sami
Shon hljóp inn með ólympíueldinn á
leikunum í Seoul fyrir fjórum árum
og þá 76 ára gamall. „Þegar Sohn
sigraði 1936 varð hann að vera í
japönskum klæðnaði. Ég er mjög
stoltur að hafa borið fána Kóreu og
heyra þjóðsöng Kóreu,“ sagði
Hwang.
Morishita og Kóreumaðurinn Kim
Wan-Kit voru með forystu eftir 27
kílómetra. Hwang og Morishita tóku
við forystuhlutverkinu nokkrum kíló-
metrum síðar og héldu henni þar til
komið var að síðustu brekkunni. Þá
sýndi Hwang að hann átti mikið eft-
ir og hreinlega stakk Morishita af
þegar tveir kílómetrar voru eftir og
sigraði öruggtega.
Asíumenn frá Kóreu og Japan
komu vel frá þessu hlaupi. Af tíu
fyrstu hlaupurunum vonl fimm
þeirra frá Asíu þar á meðal japanski
heimsmeistarinn, Hiromi Taniguchi,
sem varð áttundi. Taniguchi varð
fyrir óhappi er hlaupið var hálfnað,
missti af sér. annan skóinn. Hann var
þá í forystuhópnum en varð að stoppa
og snúa við og ná í skóinn og klæða
sig í hann. Við þetta missti hann af
lestinni og kom í mark meira en
mínútu á eftir Hwang.
Tími Hwangs er lakasti sigurtími
sem náðst hefur á Ólympíuleikum
síðan í Mexíkó 1968. Meira en 20
hlauparar af 112 sem hófu keppni
komust ekki í mark og var ólympíu-
meistarinn, Gelindo Bordin frá Ítalíu,
einn þeirra.