Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 14

Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992 TENNIS / ISLANDSMOTIÐ Hrafnhildur og Einar þre- faldir meistarar EINAR Sigurgeirsson gerði sér lítið fyrir og vann þrefalt, ein- liða-, tviliða- og tvenndarleik, á íslandsmeistaramótinu ítennis sem fram fór á tennisvöllum Þróttar um helgina og er það fjórða árið í röð sem hann vinnur einliðaleik og tvíliðaleik en annað árið ítvenndarleik. Hrafnhildur Hannesdóttir, sem er aðeins fjórtán ára, stóð sig ekki síður, vann einnig þrefalt og allar sínar lotur. Alls tóku 109 keppendur þátt í mótinu. I irslit mótsins komu lítið á óvart enda þurfti aðeins tvær hrinur til að ljúka öllum leikjum nema úr- slitaleik karla. Einar og Ólafur Svéinsson þurtu að leika þriðju hrinuna og var leik- urinn bæði tvísýnn og spennandi, en þetta var í fyrsta sinn sem Einar fékk verulega keppni í úrslitaleik hér heima. Stefán Stefánsson skrífar Spennandi úrslitaleikur Ólafur vann fyrstu hrinu og var yfir í næstu en Einari tókst að meija sigur og vann þriðju hrinuna frekar auðveldlega. „Eg þekki Ólaf og veit að hann getur unnið mig á góðum degi. Ég var smeykur í annari hrinu þegar ég gerði mörg klaufamistök og stressaðist allur upp. Ég vandaði uppgjafirnar og sótti strax þegar hann gaf upp og undir lokin fór hann að missa einbeitinguna", sagði Einar. Hrafnhildur sigursæl Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hrafnhildur unnið flestöll mót sem hún hefur tekið þátt í á árinu. Úr- slitaleikurinn gegn Guðrúnu var jafn í byijun en síðan náði Hrafnhildur yfirhöndinni og vann létt. „Ég var svolítið lengi í gang i úrslitaíeiknum en síðan gekk betur. Ég hef æft skipulega í tvö ár og æfi þrisvar til fjórum sinnum i viku á vetuma en reyni að æfa á hveijum degi á sumr- in“, sagði Hrafnhildur en hún vann einnig einliðaleikinn og tvenndar- leikinn í fyrra. Þess má geta að Einar Sigurgeirs- son og Óðinn Ægisson, sem léku saman i tvíliðaleiknum, eru bræður þrátt fyrir nafnið því Einar er Ægis- son en þurfti að breyta föðurnafninu vegna nafnareglna í Bandaríkjunum. Ólafur Sveinsson, sem kom fast á hæla Einars og náði öðru sæti í einl- iða-, tvíliða- og tvenndarleik, er stjúpbróðir Einars. ■ Úrslit / C17 Sigurvegari fjórða árið í röð Einar lék gegn Ólafi Sveinssyni í tvísýnum og spennandi og bráðskemmtilegum leik leik. Morgunblaðið/KGA Ungur meistari! Morgunblaðið/KGA Hrafnhildur Hannesdóttir, sem er aðeins fjórtán ára, stóð sig vel og vann alla ieiki sína nokkuð auðveldlega. Ætla í atvinnu- mennsku - segir Einar Sigurgeirsson íslandsmeistari Einar Sigurgeirsson, sem hefur verið sigursæll á tennismótum á íslandi undanfarin ár, hefur stundað nám við Troy State Uni- versity í Alabama í ijögur ár og keppt fyrir hönd skólans og á eitt ár eftir í námi. Hann hefur alltaf komið heim á sumrin til að þjálfa nema síðasta sumar þegar hann fór til Frakklands og keppti í mótum atvinnumanna. „Mér gekk mjög vel, keppti á fímm mótum og vann þijú en ég tek fram að þetta voru ekki stærstu mótin þó verðlaunin væru góð“, sagði Einar, en á slíkum mótum eru alltaf peningaverðlaun í boði. „Ég ætla aftur til Frakklands næsta sumar. Þó ég hafí keppt á atvinnumótum er ég ekki inní stiga- kerfi ATP, sem eru samtök atvinnu- tennisleikara, en hinsvegar ætla ég að fara inn í það kerfí næsta ári og prófa. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki prófað þetta fyrr er að ég byijaði mjög seint að æfa, orðinn 15 ára, og tel mig fyrst núna eiga möguleika. Eg tók líka þátt í undankeppni Ólympíuleikana á móti í Lilleham- mer í Noregi en gekk ekki nógu vel, var að jafna mig eftir tognun í öxlinni og uppgjafírnar voru því alls ekki nógu góðar." Til stendur að byggja tennishöl! í Kópavogi í vetur þar sem öll að- staða verður mjög góð. „Það sem stendur íþróttinni mest fyrir þrifum hér er aðstaðan. Þó komnir séu nokkrir góðir vellir verður að vera hægt að spila allt árið óháð veðri og ef tennishúsið kemur upp er möguleiki", sagði Einar. KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA H ri ngavrtieysa Einhver misskilningur varð í sambandi við leik Vals og Þórs í 1. deild kvenna á laugardag. Þórsstúlkur töldu sig hafa fengið leiknum frest- að fram á sunnudag en Valsstúlkur eru á annri skoðun. Leikurinn var flautaður af á laugardaginn á meðan stúlkurnar frá Akureyri sátu á ÍSÍ hótelinu í Laugardalnum og biðu væntanlegs leiks daginn eftir. Ef Þórs- stúlkur finna einhver gögn máli sínu til stuðnings verður leikurinn væntan- lega leikinn en annars tapa þær honum 3:0.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.