Morgunblaðið - 11.08.1992, Side 9
MÖRGUNBLAÐIÐ 099 BARCELONA '92 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992
C 9
KORFUKNATTLEIKUR
Króatar veittu
draumaliðinu
nokkra keppni
ÞAÐ fór eins og flesta grunaði
að bandarísku stórstjörnurnar
úr NBA-deildinni sigruðu á
Ólympfuleikunum. Draumaliðið
fékk þó óvænta mótspyrnu frá
Króötum í úrslitaleiknum og
kynntist því i fyrsta sinn á leik-
unum að vera undir um tíma.
Það kom þó ekki að sök því
öruggur sigur vannst, drauma-
liðið gerði 117 stig en Króatar
85.
Bandaríkjamenn virtust hálf
þungir í fyrri hálfleiknum en
í þeim síðari náðu þeir sér á strik
og þá var aldrei spurning um hvor-
um megin sigurinn lenti. Michael
Jordan gerði 22 stig, Charles Bar-
kley 17 og Patrick Ewing 15 auk
þess sem hann tók sex fráköst.
Króatar höfðu um tíma 25:23 yfir
og það voru þeir Drazen Petrovic
og Dino Radja sem voru atkvæða-
mestr, Petrovic gerði 24 stig og
Radja 23.
„Vondi strákurinn“ í liði Banda-
ríkjanna, Charles Barkley var fyrst-
ur til að taka við gullpeningnum
hjá Juan Antonio Samaranch og
Magic Johnson kom næstur og þeg-
ar hann vinkaði áhorfendum ætlaði
allt að tryllast í höllinni. „Þetta er
það allra skemmtilegasta sem ég
hef upplifað. Þó ég leggði alla sigra
saman þá jafnast ekkert á við að
fá gull á Ólmpíuleikum," sagði
Johnson.
Króatar voru aðeins yfir í 15
sekúndur og staðan í leikhléi var
56:42. Króatar veittu draumaliðinu
mikla mótspyrnu, þá mestu sem
milljónamæringarnir bandarísku
fengu á leikunum. „Króatar léku
fastar og betur en nokkurt annað
lið í keppninni og þetta var
skemmtilegur leikur. Við vissum þó
alltaf að við myndum sigra, það var
ekki nokkur spuminG í huga okk-
ar,“ sagði Scottie Pippen.
„Eg sagði við strákana í leikhléi
að þetta gengi ekki. Við erum
komnir hingað til að vinna og við
verður að fara að gera eitthvað.
Það hefði verið alveg út í hött að
tapa,“ sagði Charles Barkley.
Reuter
Alanovic kemur Króötum yfir með því að troða yfir David Robinson (nr. 5)
og hanga í hringum líkt og Barkley er frægur fyrir. Á myndinni hér til hliðar
má sjá Petrovic í baráttu við Barkley og virðist sá síðamefndi hafa betur.
Landsbergis beið
í búningsklefanum
eftir að Litháar höfðu sigrað SSR í leik um bronsið
Allir mættu en
með niðurbrettan
kragann svo
merkið sæist ekki
Leikmenn draumaliðsins mættu
allir við verðlaunaafhending-
una þrátt fyrir að nokkrir hefðu
hótað að mæta ekki þar sem þeir
voru skikkaðir til að mæta í
íþróttabúningi frá fyrirtækinu Ree-
bok en viðkomandi leikmenn eru
samningsbundnir Nike.
Þeir mættu allir í búningi banda-
ríska ólymíuliðsins eins og krafist
var en ekki þó alveg eins og ætl-
ast var til. Allir sem einn renndu
frá niður á nafla og brettu niður
kraganum þannig að merki Reebok
sást ekki. Nokkrir mættu einnig
með bandaríska fánann þannig að
öraggt væri að ekkert merki sæist.
„Við féllumst. allir á að spilla
ekki „Reebok-verðlaunabúning-
unum“ og eina leiðin sem ég sá
til að gera það ekki var að bera
bandaríska fánann,“ sagði Michael
Jordan. „Bandaríski fáninn spillir
ekki fyrir neinu. Hann er yfir allt
annað hafinn.“
„Við erum ánægðir með að fá
gullið og okkur er alveg sama hvað
þeir gera eftir kvöldið í kvöld,“
sagði Magic Johnson en rætt var
um að niðurbrettir kragar liðsins
gætu haft einhveija eftirmála.
Reuter
Kraginn nlörl og ekkert Reebok. Með niðurbretta kraga hiýddu leikmenn draumaliðsins á bandaríska þjóðsönginn
Litháar unnu sætan sigur, 82:78,
á Samveldismönnum í leiknum
um þriðja sætið. Það ekki síst stór-
leikur hins risavaxna miðvarðar
Arvidas Sabonis sem skóp sigurinn,
en hann var einmitt aðalmaðurinn
í sigri Sovétríkjanna á síðustu
Ólympíuleikum en nú lagði hann
grunninn að sigri Litháen. Þessi
frábæri leikmaður gerði 27 stig og
það geiguðu aðeins fjögur skot hjá
honum. Hann tók einnig 16 fráköst
í leiknum.
Sigurinn var sérstaklega sætur
fyrir Litháa þar sem þeir líta á
Samveldisliðið sem tákn rúmlega
hálfrar aldar kúgunar. Eftir að
flautað var til leiksloka fögnuðu
leikmenn ógurlega, tolleruðu Vlad-
as Garastas þjálfara sinn fjórum
sinnum og hlupu síðan til búnings-
herbergis síns þar sem Vytautas
Landsbergis, forseti Litháen fagn-
aði hetjunum.
„Þetta var sögulegur sigur,“
sagði Landsbergis eftir leikinn og
þakkaði leikmönnum fyrir hönd
þjóðarinnar. Þegar hann kom úr
búningsherberginu rennandi blaut-
ur eftir að leikmenn höfðu sprautað
á hann kampavíni og í hauskúpu-
bolnum sagði hann. „Eg er svo
ánægður, eins og þið sjáðið. Bush
myndi ekki einu sinni þora að láta
sjá sig í svona bol!“
„Þetta er stærsta stund í lífi
mínu,“ sagði Sabonis, sem er 2,24
metrar á hæð. „Þessi bronspeningur
er mér miklu meira virði en gullpen-
ingurinn sem ég fékk á síðustu leik-
um með Sovétríkjunum. Þessi pen-
ingur er tileinkaður löndum mín-
um“, bætti hann við.
„Mér leið eins og ég væri á víg-
vellinum," sagði Marciulionis sem
einnig var í gullliði Sovétríkjanna í
Seoul. Hann átti einnig stórleik í
liði Litháa að þessu sinni. „Við gát-
um ekki tapað. Það var gjörsamlega
útilokað,“ sagði hann.
Marciulionis ásamt þremur öðr-
um í liðinu hjálpuðu til við að safna
fé þannig að liðið kæmist á leik-
ana. Hann fór á hljómleika með
prateful Dead á síðasta ári og ræddi
við hljómsveitarmeðlimi eftir tón-
leikana og fékk þá til að styðja við
bakið á liðinu.
Framleiddir voru sérstakir bolir
með hauskúpu, sem er merki hljóm-
sveitarinnar, og hafa liðsmenn
klæðst bolunum auk þess sem þeir
hafa runnið út eins og heitar lumm-
ur á 3.000 krónur hver. Eftirspurn-
in er svo mikil að varla hefur verið
unnt að anna henni.