Morgunblaðið - 11.08.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 11.08.1992, Síða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ 9S& BARCELONA ’92 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992 FRJALSIÞROTTIR Hassiba Doulmerka fagnar sigri sínum. Hún grét síðan við verðlaunaafhendinguna. Reuter Éggrét fyrir Alsír - sagði Doulmerka sem réði ekki við tilfinning- arsínareftirsigurinn í 1500 m hlaupi kvenna „EG grét fyrir Alsír,“ sagði Hassiba Doulmerka frá Alsír sem ekki gat dulið tilfinningar sfnar eftir sigurinn í 1500 m hlaupi kvenna, hún grét af gleði eftir sigurinn og hrópaði til áhorfenda; „Alsír!, Alsír!“ og við verðlaunaafhendinguna streymdu tár í stríðum straum- um niður kinnar hennar. Doulmerka er fyrsti keppandinn frá Alsír til að sigra í frjáls- íþróttagrein á Ólympíuleikum. Hún sigraði á heimsmeistaramótinu í Tókýó á síðasta ári en var þá harð- legum gagnrýnd af löndum sínum fyrir að hlaupa berleggjuð. Hún gerði það einnig nú en samkvæmt trú múslíma eiga kvenmenn ekki að vera berleggjaðar og hún hefur því verið litin hornauga af löndum sínum þrátt fyrir velgengni á hlaupabraut- inni. Vonir Alsír um fyrsta gullið á Ólympíuieikunum voru að mestu bundnar við Noureddine Morceli í karlahlaupinu á sömu vegalengd en hann stóð ekki undir væntingunum, varð aðeins sjöundi en Doulmerka bætti upp fyrir það í sínu hlaupi með stórkostlegum sigri. Lyudmila Rogacheva frá Sam- veldinu leiddi hlaupið lengst af og þegar einn hringur var eftir virtist Doulmerka örugg um annað sætið á eftir henni. En Doulmerka ætlaði sér meira, - hún beið færis og þegar 200 metrar voru í markið hóf hún gífurlegan endasprett sem Samveld- isstúlkan réði ekki við. Doulmerka hlaut tímann 3:55,30 mínútumi Rússneska stúlkan jók einnig hrað- ann en náði ekki að fylgja henni eftir og fékk silfur er hún kom í markið á 3:57,08 mín. rétt á undan Kínversku stúlkunni Qu Yunxia. Þess má geta að bandaríska stúlk- an, Patti Sue Plummer féll þegar hún kom tíunda og síðust í markið og það þurfti að færa hana af vellin- um á börum. 4 X 400 m hlaup kvenna: Bryzgína tryggði SSR gullið Samveldisstúlkurnar sigruðu í 4 x 400 metra hlaupi kvenna á laugardag eftir spennandi keppni við bandarísku sveitina. Olga Bryzgína, ólympíumeistari í 400 metra hlaupi frá því í Seoul, tók stíðasta sprettinn fyrir Samveidið og Rochelle Stevens fyrir Bandarík- in. Stevens var með forystu þar til 100 metrar voru eftir en þá tók Bryzgína mikinn endasprett og fór framúr og tryggði Samveldisstúlk- unum sigur. Bryzgína var einnig í sveit Samveldisins sem sigraði í sömu grein á HM í Tókíó í fyrra. Sveit Samveldisins kom í mark á 3:20.20 mín. og Bandaríkin í öðru sæti á 3:20.92 mínútum. Sally Gunnell, ólympíumeistari í 400 m grindahlaupi, tók síðasta sprett fyrir Bretland og tryggði heima- landi sínu þriðja sætið á 3:24.23 mín. HANDKNATTLEIKUR / KONUR Sagan frá Seoul endurtekin SUÐUR-Kórea sigraði Noreg með sjö mörkum í úrslitaleikn- um í handknattleik kvenna á laugardaginn. Norsku stúlk- urnar byrjuðu ágætlega og virtust ætla að hafa í fullu tré við þær kóreönsku, en það breyttist snarlega og líkt og í úrslitaleiknum á Ólympíuleik- unum í Seoul fyrir fjórum árum, þegar sömu lið áttust við, endaði ieikurinn með sigri S-Kóreu. að fór reyndar svo að í leiknum um 3. sætið sigruðu Samveld- isstúlkur, en Sovétstúlkur urðu einmitt í þriðja sæti í Seoul. Röð þriggja efstu liða nú varð því hin sama og á síðustu leikum, að und- anskyldu því að í stað liðs Sovét- ríkjanna lék lið Samveldis sjálf- stæðra ríkja. En þrátt fyrir að vinna silfrið í Seoul áttu norsku stúlkurnar ekki víst sæti á Ieikunum nú. Þær voru í sömu sporum og íslenska karla- handknattleiksliðið, komu í stað liðs Júgóslavíu, sem fékk ekki að keppa vegna samskipta- og við- skiptabanns Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. En hvorki íslenska karlaliðið né norska kvennaliðið náðu að feta í fótspor danska knattspyrnulands- liðsins, sem vann til gullverðlauna á Evrópumóti landsliða eftir að komið inn á síðustu stundu sem staðgengill Júgóslavíu. Norska lið- ið hafði þó betra tækifæri, lék til úrslita en hafði ekki roð við lands- liði S-Kóreu. Eftir heldur rólega byijun hjá þeim kóreönsku tóku þær öll völd á vellinum og hrein- lega skyldu þær norsku eftir. Það var ekki fyrr en í síðari hálfleik, þegar munurinn var orðinn heil tíu mörk, að norsku stúlkurnar reyndu eitthvað að gera. Þær náðu að minnka muninn í fimm mörk, en komust ekki lengra og töpuðu að lokum með sjö mörkum. Heidi Sundal var markahæst norsku stúlknanna með sjö mörk, en Susann Goksor gerði fjögur. Lim O-kyung gerði átta mörk fyr- ir S-Kóreu og Lee Mi-young og Oh Sung-ok gerðu fimm mörk hvor. Reuter Oh Sung-ok skorar hér eitt af fimm mörkum sfnum í úrslitaieiknum gegn Noregi. Norsku stúlkurnar Cathrine Svends- en og Karin Pettersen koma ekki neinum vörnum við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.