Morgunblaðið - 11.08.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.08.1992, Blaðsíða 15
C 15 , ,, J,; ,, „f|.*TTn.^l • t * (-•/ -r MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992 Aðvörun og áminning | Israeismenn fóru mikið aftan í menn og hér er Þorvaldur Örl- ygsson stöðvaður á ólöglegan hátt rétt utan vítateigs. ÍSLENSKA landsliðið í knatt- spyrnu, sem fór f rægðarför til Búdapest i byrjun júní s.l., var heldur betur skotið niður á jörð- ina á heimavelli á sunnudag, þegar ísraelsmenn unnu það 2:0 í æfingaleik fyrir næstu HM-leiki. Strákarnir voru ger- samlega úti á þekju, ósamstillt- ir og virtust jafnvel áhugalausir. Þeir réðu ekki við verkefnið og tilraun landsliðsþjálfarans — að sækja meira — fór út um þúfur. Ljós í myrkrinu er að um æf- ingaleik var að ræða og skömm- inni skárra að fá skellinn nú frekar en í haust, þegar alvaran byrjar á ný. Íslendingar ætluðu sér að leggja áherslu á sóknarleikinn, en sókn er til einskis, ef vörnin gleymist. Miðjumennirnir fóru Steinþór helst ekki aftur og Guðbjartsson fyrir vikið áttu Isra- skrifar elsmenn greiða leið upp miðjuna, sem þeir nýttu óspart í skyndisóknum. Þeir fengu nokkur færi til að bæta við, en það besta kom 13 mínútum fyrir leikslok, þegar þeir sóttu fjórir gegn Arnóri sem aftasta manni, en voru teknir í landhelgi og dæmdir rangstæðir eins og svo oft áður. íslensku strákarnir spiluðu ekki vel saman, en engu að síður fengu þeir líka sín færi. Ólafur Þórðarson átti þrumuskot utan vítateigs, en rétt yfir markið þegar á fyrstu mín- útu. Rúnar Kristinsson gaf góða stungusendingu á Andra Marteins- son á 12. mínútu, en markvörðurinn bjargaði vel með úthlaupi. Hörður Magnússon var með glæsilegt lang- skot um miðjan fyrri hálfleik, sem markvörðurinn varði í horn. Þorvald- ur Örlygsson komst í ágæta stöðu eftir gott spil undir lok hálfleiksins, en skaut að marki í stað þess að gefa fyrir — tveir samheijar voru í betra marktækifæri. Hætta skapað- ist við mark ísraelsmanna snemma í seinni hálfleik eftir horn Rúnars, en menn voru of seinir að átta sig, og um miðjan hálfleikinn léku Hörð- ur og Sigurður Grétarsson skemmti- lega í gegn og Hörður skallaði að marki, en markvörður ísraels náði að vetja í horn. Nokkrum mínútum síðar skaut Rúnar í hliðarnetið beint úr aukaspyrnu. Lánleysið var algjört og ekki var það til að bæta úr skák. Engin samkeppni? Ásgeir veit sem er að besta æfing- in er fólgin í því að líkja sem mest eftir raunverulegum leik og ætlast til þess að menn framkvæmi á æf- ingu, það sem útfæra á í leiknum. Til þess var þessi leikur — lokaæfing fyrir átök haustsins og því mikil- vægt að stilla upp sterkasta liði. Atvinnumennirnir voru með á nótunum og það var virðingarvert hjá þeim að mæta, að láta landsliðið ganga fyrir atvinnu sinni, en Sigurð- ur Grétarsson og Ólafur Þórðarson áttu báðir að leika með félagsliðum sínum um helgina. Hins vegar er spurning hvort ekki orki tvímæiis að láta menn leika, sem ekki hafa náð sér eftir meiðsl, því vitað er að þeir hlífa sér og skila því ekki sínu, þó það eigi ekki við Ólaf að þessu sinni. Ásgeir hefur ákveðna menn í huga og treystir þeim, en þeir mega ekki líta á landsliðssætið sem sjálfsagðan hlut. Til að mynda voru Valur Vals- son og Hörður Magnússon í byijun- arliðinu og Baldur Bjarnason kom inná, en þrermenningarnir hafa ekki staðið undir væntingum með fé- lagsliðum sínum í sumar. Þeir vita það sjálfir og eins það að þeir geta betur, en er þá ekki rétt að ýta við þeim og gefa öðrum tækifæri? Að mínu mati á að stilla úpp sterkasta liði, sem völ er á hveiju sinni, því það eykur samkeppnina, breiddin verður meiri og auknar lýkur eru á að menn leggi sig alla fram. Morgunblaðið/KGA Ekkert gengur baráttulaust - sagði Sigurður Grétarsson, fyrirliði landsliðsins, sem var óánægður eins og fleiri Sigurður Grétarsson, fyrirliði, átti að spila með Grasshopper í svissnesku deildinni um helgina, en tók landsleikinn fram yfir. „Landsliðið gengur fyrir, en þetta var ósköp dapurt. Alla baráttu og samheldni vantaði — menn voru ekki að gera sömu hluti á sama tíma. Verið getur að við höfum verið að reyna að spila of mikinn bolta á kostnað baráttunnar, en til að ná árangri verðum við alltaf að beijast — ef baráttan er ekki fyrir hendi gengur ekkert upp.“ Guðni Bergsson meiddist á hásin fyrir fjórum vikum og hefur því ekki tekið þátt í undirbúningnum með Tottenham. Hann sagðist hafa viljað láta reyna á hvort sinin væri í lagi, en þar sem hann hefði stífnað upp hefði hann ekki viljað taka meiri áhættu og því aðeins leikið fyrri hálfleikinn. „Það verður að viðurkennast að þetta var lélegur leikur hjá okkur. Við vorum þungir og seinir og náðum aldrei taktinum. Israelsmenn voru mun betri en í leiknum úti í vor, en þeir leika svipað og Grikkirnir og vonandi lærum við af þessu.“ Ráðum ekki við að stjórna sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari Asgeir Elíasson, landsliðsþjálf- ari, lagði upp leikkerfið 3-5-2 með heimaleikina í HM í huga, þar sem hann segir að liðið verði að sigra heima til að eiga möguleika á að komast í lokakeppnina. En dæmið gekk ekki upp og hann sagði að liðið yrði að leika aftar á vellin- um í næstu leikjum. „Það var ágætt að fá þennan leik til að sjá hvar við stöndum, en þetta var engan veginn nógu gott og segir okkur að við ráðum ekki við að stjórna leiknum. í fyrri hálfleik vorum við að reyna að veij- ast frammi, sem gekk ekki. Við héldum ekki boltanum, hlífðum okkur í tæklingum, útsjónasemi vantaði og við náðum engu hraða- upphlaupi. Hugsanlega verðum við að veijast aftar, því þá eru meiri möguleikar á hraðaupphlaupum. En þetta var góð lexía og vonandi náum við góðum leik næst.“ Arnór Guðjohnsen lék seinni hálf- leikinn, fyrri hlutann á miðjunni, en seinni hlutann sem miðvörður. „Eg er ánægður með að ég gat spilað — meiðslin tóku sig ekki upp. Hins vegar er ég gersamlega æf- ingalaus og hef ekki snert bolta síð- an í byijun maí. Því er þetta ekki marktækt hvað mig varðar, en næst á dagskrá er að ná aftur upp hraða og fyrri styrk.“ Ómarkvissir íslendingar Shlomo Sharf, þjálfari ísraels- manna, var ánægður með leik sinna manna, sagði þá hafa spilað skyn- samlega en sama væri ekki liægt að segja um íslendingana. „Ljóst er að ísland hefur verið mjög sterkt á heimavelli og því var ég hræddur fyrir leikinn. Þess vegna ákváðum við að veijast aftarlega, bíða og beita síðan skyndisóknum. Þetta gekk vel hjá okkur, en íslend- ingarnir gerðu þau mistök að reyna langsendingar upp á von og óvon, héldu ekki boltanum og voru of fljót- ir að losa sig við hann — léku ómark- visst.“ OB afl ísraelsmenn sneru vöm í sókn á 7. mínútu. Gefíð var inní ■ I hægra hornið, þar sem A. Cohen tók við boltanum; Birkir varði frá honum, en hélt ekki boltanum og Berkovic náði að skalla í netið. Þama var vörnin illa á verði. ^«OBírkir varði glæsilega einn á móti einum og íslendingar \J m (Cíihófusókn, en misstu strax boltann. Banin fékk hann upp í hornið vinstra megin, gaf fyrir markið á Tikva, sem skoraði örugg- lega af stuttu færi á 57. mínútu. Klaufalegt. FIRMAKEPPNI í KNATTSPYRNU verður haldin 22.-23. ágúst á nýja gervigras- velli Hauka á Ásvöllum. Spilað verður sam- kvæmt reglugerð KSÍ um miniknattspyrnu. Þátttökutilkynningar berist fyrir 15. ágúst í síma 54580 (Magnús). KNATTSPYRNA / ÆFINGALANDSLEIKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.