Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 1
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGl ÝSINGAR
Framkvæmdastjóri
iimflutningsfyrirtækís
Traust og vel þekkt innflutningsfyrirtæki í Reykjavík
auglýsir í blaðinu í dag eftir framkvæmdastjóra. Honum
er ætlað hafa með höndum stjómun og skipuiagningu á
daglegum rekstri, stefnumótun og markmiðasetningu í
samráði við stjóm. Reynsla af stjórnun, þekking á ís-
lensku atvinnulífi, ásamt áræði og dugnaði er sögð nauð-
synleg.
Gæðastjóri útgerðar-
fyrirtækis
Útgerðarfyrirtæki á landsbyggðinni sem m.a. rekur
frystitogara óskar að ráða gæðastjóra. Starfið felst í
umsjón gæðamála fyrirtækisins og uppbyggingu gæða-
stjómunar.
Blaðamaður á Heims-
mynd
Tímaritið Heimsmynd auglýsir í blaðinu í dag eftir
menntuðum og/eða reyndum blaðamanni sem og hæfum
lausapennum. Tekið er fram að með umsóknir verði far-
ið sem trúnaðarmál.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Ráðstefna um grasvelli
Mannvirkjadeild KSÍ boðar til ráðstefnu um uppbygg-
ingu, rekstur og viðhald grasvalla til íþróttaiðkunar.
Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimili Kópavogs föstu-
daginn 4. september nk. kl. 9.00-16.00. Þar verður m.a.
fjallað um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hvað
varðar kostnað við gerð og viðhald íþróttamannvirkja,
hlutverk innlendra rannsókna- og menntastofnan, hönnun
og uppbyggingu, rekstur og viðhald íþróttagrasvalla og
reynslu af eldri völlum.
Heimilislist í Kolaport-
inu
Ákveðið hefur verið að tileinka sunnudaginn 13. sept-
ember sérstaklega heimilislist á markaðnum í Kolaport-
inu. Þetta er í annað sinn sem staðið er að slíkum degi
á markaðstorginu. Þennan dag verður fólki sem stundar
hverskonar heimilislist, t.d. föndur og listir, gefínn kostur
á plássi í Kolaportinu gegn vægu verði til að sýna og
selja sín verk.
SMAAUGL YSINGAR
Göngfuferðir í dag
Ferðafélag íslands og Útivist efna að vanda til ferða
í dag. M.a. efnir Ferðafélagið til ferðar um Þingvelli og
Kaldadal þaðan sem gengið verður á Presthnúk og áfram
í Þórisdal. Lagt er af stað kl. 9.00. Þá efnir Útivist til
íjörugöngu, 1. áfanga. Lagt verður upp frá skrifstofu
Útivistar og farið í Eyðieyjar á Kollafirði.
BORGARFJÖRÐUR
Stærsta gróðurhús
landsins í Sólbyrgi
STÆRSTA gróðurhús landsins var byggt á
vegum Ylræktarversins hf. í Sólbyrgi í Reyk-
holtsdal í Borgarfirði síðastliðinn vetur. Hús-
ið er um 3.000 fm að stærð og með tilkomu
þess hefur gróðrarstöðin stækkað um helm-
ing. a
Tnýja húsinu eru eingöngu rækt-
-I- aðar agúrkur, en í sumar hefur
verið sannkallaður gúrkutími, eða
síðan 10. júní þegar uppskera hófst.
Búið er að skera u.þ.b. 50 tonn af
agúrkum, en áætlað er að heildar-
gúrkuuppskera verði um 60 tonn.
í eldri hluta stöðvarinnar eru rækt-
aðir tómatar og er uppskeran þar
orðin u.þ.b. 45 tonn þannig að allt
útlit er fyrir að 100 tonna múrinn
verði rofínn í Sólbyrgi í sumar,
segir í fréttatilkynningu frá Yl-
ræktarverinu hf.
Það eru mörg handtökin sem
þarf að vinna áður en uppskeran
er send til Ágætis hf., sem sér um
dreifingu á grænmetinu en 10—14
manns hafa verið við vinnu í sumar
í gróðurhúsunum í Sólbyrgi.
Búðardalur
Nýr íþróttavöllur
NÚ er unnið af kappi við frágang
íþróttavallar hér í Búðardal. Verið er
að leggja drenlagnir og síðan verður
sett á hann slitlag.
*
Iþróttavöllurinn er í skemmtilegum dal
í miðju þorpinu á vonandi eftir að
koma að góðu gagni fyrir íþróttafólk hér.
Mikill íþróttaáhugi er meðal íbúanna,
einkum unga fólksins og barnanna, en
erfiðlega hefur gengið að fá menntaða
íþróttaþjálfara til starfa undanfarið. Við
erum þó svo heppin að hafa áhugasamt
heimafólk sem hefur séð um íþróttaþjálfun
og hefur íþróttafólkið náð góðum árangri
á mótum og keppnum í ýmsum greinum
þrátt fyrir aðstöðuleysi.
Nú fer vonandi að styttast í að aðstað-
an batni. Framkvæmdir eru dýrar og eft-
ir er að byggja upp alla búnings- og baðað-
stöðu auk áhorfendasvæðis. Brekkurnar
í dalnum eru hins vegar mjög hentugar
sem áhorfendasvæði en þarfnast lagfær-
inga. Næsta sumar verður væntanlega
hægt að nota íþróttavöllinn þótt öll áður-
nefnd aðstaða sé enn ekki komin.
Nú er verið að mála félagsheimilið
Dalabúð og verður það mikil prýði fyrir
staðinn. Húsið er fallegt og unnið hefur
verið að endurbótum á því undanfarið.
- Kristjana
Sauðárkrókur
Undraefni
til múr-
viðgerða
kynnt fag-
mönnum
KYNNING á nýjum múrviðgerð-
arefnum fór nýlega fram á vegum
Aðalsteins Maríussonar, múrara-
meistara á Sauðárkróki, og fyrir-
tækisins Vesturports hf. í Reykja-
vík. Um er að ræða allmargar
gerðir af efninu Betokem, sem nú
er að koma á markaðinn, en það
hefur að undanförnu verið í
ströngum prófunum hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins og sagði Páll Þ. Pálmason
múrarameistari að þær prófanir
lofuðu mjög góðu.
Þeir Páll og Aðalsteinn sögðu að
efnin reyndust mjög vel til
ýmiskonar viðgerða á steypu-
skemmdum, hvort sem væri vegna
veðrunar eða af öðrum orsökum. Þá
hefði efnið þann eiginleika að raki í
vegg sem gera ætti við skipti raunar
litlu máli þar sem efnið drægi raka
úr steypunni og hleypti honum út
en lokaði hann ekki inni.
Þá gerðu þeir grein fyrir þeim
kostnaði sem því fylgir að gera við
til dæmis þak á bílgeymslu og sýndu
hvernig efnið er borið á og hvemig
það þekur.
Aðalsteinn Maríusson skýrði frá
og sýndi myndir af gömlum húsum
sem hann hefur verið að gera við
og meðal annars notað til þess Beto-
kem-efnin. Meðal þessara húsa eru
Árbæjarkirkja í Vesturdal í Skaga-
fírði og gamla prestssetrið á Sauða-
nesi á Langanesi, en það var byggt
árið 1879. Verið er að endurgera
þennan gamla embættisbústað undir
eftirliti Þjóðminjasafnsins og hefur
sú stofnun samþykkt þá viðgerðaá-
ætlun sem lögð hefur verið fram.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Aðalsteinn Maríusson múrara-
meistari sýnir notkun Betokem-
efnanna.