Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
Stofnfundi NAMMCO lokið í Færeyjum
Fulltrúar sjómanna
meta árangur fund-
arins á ólíkan hátt
FULLTRÚAR hagsmunasamtaka sjómanna, sem tóku þátt í stofn-
fundi Sjávarspendýraráðs Norður-Atlantshafsríkja (NAMMCO), í
Þórshöfn í Færeyjum í vikunni, meta niðurstöðu fundarins á ólíkan
hátt.
„Að mínu áliti hreyfðist lítið fram
á við á þessum fundi,“ sagði Bene-
dikt Valsson framkvæmdastjóri
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins. „Hér var fyrst og fremst
gengið frá ákveðnum formsatriðum
varðandi NAMMCO en ekki teknar
ákvarðanir um aðra áþreifanlega
hluti, það er að segja um hvaða
sjávarspendýr ráðið eigi að fjalla
eða hvemig eigi að standa að nýt-
ingu þeirra,“ sagði Benedikt.
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambands íslands taldi hins
vegar að fundurinn hefði verið mun
árangursríkari en hann hefði þorað
að vona. „Þetta er allt á réttri leið.
Það náðist samkomulag um hvar
skrifstofa NAMMCO skuli vera,
hvemig vísindanefnd þess skuli
starfa og ýmislegt annað og ég tel
að upphaf þessa samstarfs lofi mjög
góðu,“ sagði Óskar.
Ekki náðist samkomulag um
hvaða dýrastofnar eigi að heyra
undir NAMMCO og var frekari
umfjöllun um það frestað til næsta
fundar ráðsins. íslendingar vilja að
hrefna verði á lista yfir þær sjávar-
spendýrategundir sem heyri undir
NAMMCO og fari þannig inn á
verksvið Alþjóðahvalveiðiráðsins. Á
stofnfundinum í Þórshöfn kom fram
mikil andstaða Grænlendinga við
þetta. Einar Lemche, formaður
grænlensku sendinefndarinnar á
stofnfundinum, sagði við Morgun-
blaðið að afstaða Grænlendinga til
NAMMCO væri sú að hvað nýtingu
sjávarspendýra varðaði ætti
Vesturland
3,5% atvinnu-
leysi en vinna
samt í boði
ATVINNULEYSI á Vesturlandi
er nú um 3,5% en samt gengur
erfiðlega að fá fólk í vinnu á svæð-
inu. Samkvæmt frétt í blaðinu í
gær kemur fram að þrátt fyrir
auglýsingar eftir fólki hefur fisk-
verkun í Ólafsvik ekki fengið
starfskrafta og eru forráðamenn
fyrirtækisins að íhuga að auglýsa
eftir útlendingum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins er atvinnuástand á
Snæfellsnesi þó þokkalegt miðað við
landshlutann í heild. Þannig eru að-
eins 10 manns á atvinnuleysisskrá í
Ólafsvík, 34 eru á skrá í Stykkis-
hólmi og 10 á skrá á Hellissandi.
NAMMCO að fjalla um seli og smá-
hvali. „Ég sé þó ekki inn í framtíð-
ina og hlutir þróast hratt, en á
þessari stundu eru Grænlendingar
og Færeyingar aðilar að Alþjóða
hvalveiðiráðinu og á meðan svo er
teljum við að veiðistjómun á stærri
hvölum, þar á meðal hrefnu, eigi
að falla undir hvalveiðiráðið," sagði
Lemche.
Sjá einnig frétt á bls. 21.
Slátursala hófst í Miklagarði í gær og var nokkuð lífleg.
Morgunblaðið/Kristinn
Verð á sauðfjárafurðum til bænda lækkar samkvæmt ákvörðun sexmannanefndar
Smásöluverð kindakjöts
óbreytt, nautakjöt lækkar
Grundvallarverð á sauðljárafurðum til bænda lækkar um 1% sam-
kvæmt ákvörðun sexmannanefndar í gær. Frá og með 1. september
færðust niðurgreiðslur á sauðfjárafurðum til neytenda af heildsölu-
stigi til framleiðenda í formi beinna greiðslna. Við það lækkuðu niður-
greiðslurnar Iítillega. Sauðfjárbændur hafa lagt mikla áherslu á að
þessi breyting leiði ekki til hækkunar á verði kindakjöts til neytenda.
Grundvallarverð nautakjöts lækkar einnig samkvæmt ákvörðun sex-
mannanefndar. Eftir verðlagninguna ætti smásölúverð kindakjöts að
haldast óbreytt og smásöluverð nautgripakjöts að lækka.
Samkvæmt upplýsingum frá sex- asta flokki dilkakjöts og 285,03 kr.
mannanefnd kemur við ákvörðun
hennar um grundvallarverð sauð-
fjárafurða til framkvæmda sú 4%
hagræðingarkrafa sem nýi búvöru-
samningurinn kveður á um. Sam-
komulag hefur náðst um að hliðstæð
hagræðingarkrafa komi til fram-
kvæmda hjá sláturleyfishöfum. Með
þessu tekst að vega upp áhrif þess
að niðurgreiðslur lækkuðu og halda
heildsöluverði kindakjöts óbreyttu.
Smásöluverð á því ekki að þurfa að
hækka.
Grundvallarverð til bænda á
nautakjöti lækkar frá gildandi verði
um 13% að meðaltali. Það er sú
heildarlækkun sem nautgripakjöts-
framleiðendur fóru fram á við nefnd-
ina vegna erfiðrar birgðastöðu. Hef-
ur grundvallarverðið lækkað samtals
að meðaltali um 18% á síðustu 12
mánuðum.
Verðlækkun nautgripakjöts til
bænda felur í sér þá meginreglu að
þeim mun lakari sem kjötgæðin eru
þeim mun meiri verður lækkunin.
Fyrsti flokkur ungneytakjöts lækkar
svo dæmi séu nefnd um 4% frá gild-
andi verði en lökustu flokkar
vinnslukjöts um allt að 30%. Sem
dæmi má nefna að samkvæmt
ákvörðun sexmannanefndar fær
bóndi 217,63 kr. fyrir kg af algeng-
fyrir slátrið. Fyrir algengasta flokk
nautakjöts fær bóndinn nú 317,03
kr. fyrir kg.
Flýta þurfti -ákvörðun sexmanna-
nefndar vegna þess að sláturtíð er
hafin og því þurfti að ákveða skjótt
verð til bænda. Má í því sambandi
benda á að byijað var að selja ófros-
ið slátur í Miklagarði við Sund eftir
hádegi í gær. Bjarki Gunnarsson,
kjötiðnaðarmeistari, sagði að hvert
slátur væri á 599 kr. og væri það
eitthvað lægra en í fyrra ef tekið
væri mið af kjöthækkunum. Innifalið
í slátrinu eru haus, hjarta, lifur, tvö
nýru, vambir, mör og blóð.
Hann sagði að slátursala hefði
aukist í fyrra miðað við undanfarin
ár og athygli hefði vakið hversu
margt fólk hefði þá tekið slátur í
fyrsta sinn. Ekki kvað hann ólíklegt
að vart yrði við jafnvel meiri áhuga
í haust. Aðspurður sagði Bjarki að
fólk sýndi ófrosnu slátri meiri áhuga
en frosnu, en farið verður að selja
ófrosið slátur í þriggja slátra og
fimm slátra pakkningum upp úr
helgi.
Kindakjötsbirgðir hafa aldrei verið minni í landinu
Sala lambakjöts í ágúst-
mánuði jókst um 50%
KINDAKJÖT seldist mun betur í ágúst en reiknað hafði verið með.
Við uppgjör á sölunni sem fram fer þessa dagana hefur komið í ljós
að 1.530 tonn seldust og er það 500 tonnum meira en í ágúst í fyrra.
Söluaukningin nemur 50%. Um mánaðamótin var gerð talning á birgð-
um kindakjöts í landinu og voru birgðirnar 300 tonn og eru það á
sama hátt mun minni birgðir en búist hafði verið við og raunar minni
birgðir en áður hafa þekkst.
Um síðustu mánaðamót tók gildi
nýr búvörusamningur og þá urðu
þær breytingar að verðábyrgð ríkis-
ins á kindakjötsframleiðslunni lauk.
Samstarfsnefnd um sölu kindakjöts
er að vinna að uppgjöri á sölu ársins
og lét af þessu tilefni gera birgða-
talningu. Sala verðlagsársins, það
Evrótipparar af staó
Fyrsti vinningur gæti gefið 50
m.kr. 14
Landkynning
Úlfar Bragason fjaiiar um hvernig
Stofnun Sigurðar Nordals hefur
stuðlað að Islandskynningum 16
Hvalveiðar óvinsælar___________
Skoðanakannanir í nokkrum lönd-
um sýna að andstaða við hvalveiðar
tengist þekkingarleysi 21
Leiðari
Stefnumótun í norrænu
samstarfi 24
REYKDAL
Lesbók
► Útlenskur magi í íslenskum
búk - Hitler og framtíðaráformin
- Perth er afskekktasta borg
heims - Ráðgátan Snorri
Sturluson
Menning/Listir
► Þakkarávarp Kundera vegna
heiðursverðlauna - Samsýning
Leifs Breiðfjörðs og Jóns Reyk-
dals - Leikrit um Dunganon frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu.
er frá 1. september í fyrra til jafn-
lengdar í ár, varð tæp 8.400 tonn.
Er það örlitlu meiri sala en verðlags-
árið á undan þegar 8.377 tonn seld-
ust.
Ástæðan fyrir því að salan dalaði
ekki frá fyrra ári, eins og lengi var
útlit fyrir, er, að sögn Katrínar Olgu
Jóhannesdóttur framkvæmdastjóra
Samstarfshóps um sölu lambakjöts,
góð sala í ágústmánuði. Þá seldust
1.530 tonn sem er um 500 tonnum
meira en reiknað hafði verið með.
Ástæður fyrir þessari óvæntu sölu
eru að sögn Katrínar m.a. þær að
afurðastöðvar og verslanir keyptu
mikið af kjöti fyrir mánaðamótin
vegna sérstakra aukaniðurgreiðslna
sem giltu í ágúst. Hún sagði að því
miður stækkaði markaðurinn ekki
við þessa sölu. Birgðirnar færðust
til söluaðilanna og hefðu væntanlega
áhrif á söluna í þessum mánuði.
Hins vegar væri ágætt fyrir Sam-
starfshópinn að skilja við sölustarf
sitt með birgðir í lágmarki.
Samkvæmt athugun löggiltra
endurskoðenda reyndust birgðir 1.
september vera rúm 300 tonn sam-
kvæmt bráðabirgðatölum, 200 tonn-
um minni en reiknað var með við
gerð búvörusamnings og um 500
tonnum minni en búist hefur verið
við undanfarnar vikur. Á sama tíma
í fyrra voru 1.400 tonn af kinda-
kjöti til í birgðum. Starfsmenn land-
búnaðarráðuneytisins voru farnir að
undirbúa útflutning á þeim 300
tonnum af kindakjöti sem áætlað var
að yrðu til umfram þau 500 tonn
sem gert var ráð fyrir í búvörusamn-
ingi en nú þarf ekki að koma til
þess. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er mun hagstæðara fyrir
ríkið að kjötið skuli hafa selst á inn-
anlandsmarkaði og munar þar um
200 krónum á kílóinu. Sparnaður
ríkisins gæti því numið 60 milljónum
kr. á 300 tonnum.
— ♦ ♦ ♦------------
Seljaskógar og
Breiðholtsbraut
Umferðarljós
á gatnamótin
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
hið fyrsta verði sett upp umferð-
arfiós á mótum Seljaskóga og
Breiðholtsbrautar. Eldri lyón lét-
ust í hörðum árekstri við sjúkra-
bíl á þessum gatnamótum í síðasta
mánuði.
Umferðarnefnd Reykjavíkur bók-
aði fyrr í mánuðinum að umferðar-
öryggi skyldi aukið á Breiðholtsbraut
með nýju skipulagi. Tillögur umferð-
ardeildar gera m.a. ráð fyrir umferð-
arljósum á gatnamótum Seljáskóga
og Breiðholtsbrautar.