Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 33 flokkinn og studdi dyggilega fram- sóknarménnina sem voru í lands- málapólitíkinni. Kosningar voru meiriháttar mál. Þótt ég væri sér- hlífinn og latur krakki og reyndi bæði að koma mér hjá að gæta bama eða fara í sveit þá var ég alltaf til í að vera í snatti fyrir Fram- sóknarflokkinn. Þar bauðst kók og súkkulaði og gott fólk sem ég sent- ist fyrir. Stundum hafði ég þó áhyggjur af Jóni í pólitíkinni. Fannst hann ekki nógu samkvæmur sjálfum sér. Eins og dag einn eftir kosningar þegar ég var svona 7-8 ára. Ég kem hjólandi á fullri ferð fyrir hornið á Kaupfélaginu í góðu veðri og má engu muna að ég hjóli á Kaupfélagið vegna þeirra sýnar sem við blasir. Ég sé Jón frænda og Björgvin skólastjóra sitja á bekk við blómagarðihn talandi og hlægj- andi eins og bestu vinir. Það voru ekki nema nokkrir dagar frá því að Jón hafði verið að reyna að sann- færa alla bæjarbúa um það með tilþrifum á sviðinu í Alþýðuhúsinu að fylgismenn Aiþýðuflokksins, og svo sem allra annarra flokka en Framsóknarflokksins, væru vafa- samar persónur. Ég hélt í einfeldni minni að hann mundi ekki sýna svo ískyggilegt ístöðuleysi að eyða svo miklu sem einu orði á það fólk fram- ar! Núna skil ég að auðvitað þóttu honum menn eins og Hannibal, Björgvin eða Matthías milljón sinn- um skemmtilegri en það fólk sem hafði hvorki áhuga né skoðanir á pólitík. Til voru þau þverpólitísku mál sem hann vann að með hveijum sem vera vildi. Slíkt mál var varð- veisla Hrafnseyrar. Heilagur staður í augum Jóns og annarra Arnfirð- inga. Hann var eitt sinn með Hannibal í Hrafnseyrarnefnd. Hannibal sendi Jóni að sunnan minningarpeninga um Jón Sigurðs- son sem hann átti að selja á ísafirði. Jón gat ekki hugsað sér að fara að pranga slíku upp á fólk þannig að hann keypti alla minningarpen- inga sjálfur. Oktavía gaf ekki mikið fyrir svona nefndarstörf. Sambandið á milli Jóns og Oktav- íu var sérstakt. Stundum heyrði ég talað um hana út í bæ eins og ein- hveija Xanþippu og satt var að hún fór ekki í launkofa með skoðanir sínar en það var undantekning ef það sem hún var að beijast fyrir var ekki velferð annarra. Hún var skólahjúkrunarkona, í barnavernd- arnefnd, heilbrigðisnefnd og eigin- lega eins og sér flokkur með stefnu- skrá líka þeirri sem Kvennalistinn er nú með. Ég held að Jóni hefði þótt tilveran daufleg ef Oktavía hefði verið skoðanalaus væfla stöð- ugt sammála seinasta ræðumanni. Þótt Jón vildi ekki selja minnis- peninga í frítímanum seldi hann bækur fyrir Menningarsjóð. Pabbi hefði ekki keypt sér bækur eins og Tunglið og tíeyringurinn eftir Som- erset Maugham eða Rómarveldið eftir Will Durant nema vegna þess að Jón ætlaðist til þess. Margar af þessum bókum voru og eru enn mínar uppáhaldsbækur. I ísfirðingi birti Jón oft ljóð. Ekki bara eftir framsóknarskáld eins og Guðmund Inga Kristjánsson heldur líka eftir svona utanflokksmenn eins og Bronté-systur. Sjötíu og eitthvað birtist í ísfirðingi stutt kynning á þeim og þýtt ljóð eftir Emily Bronté. Þýðandinn var Anonymus. Ég varð sjúklega forvitin. Ljóð eftir þessa konu birtust á þessum tíma helst í femínistatímaritum í útlöndum. Hver gat verið að þýða þau á ísafirði? Allir voru ólíklegir! Eg lof- aði mömmu uppvaski í marga daga ef hún gæti komist að því hver þýðandinn var. Anonymus reyndist vera mágur Jóns, Guðjón E. Jóns- son, maður Jensu. Þeir voru góðir félagar og samband Jóns og Jensu var verulega fallegt. Börn Jensu gátu ekki gefið henni eftirsóknar- verðari afmælisgjöf fyrir mánuði en að bjóða henni vestur að heim- sækja Jón og að skoða æskustöðv- arnar í Arnarfirði. Ég á svo margar góðar minning- ar af kynnum mínum af Jóni og Oktavíu að þær eru mér eins og „veisla í farangrinum" á þessu ferðalagi sem lífið er og fyrir þann veislukost er ég þeim þakklát. Svala Sigurleifsdóttir. Björg’vin D. Bjöms- son — Minning Fæddur 17. október 1976 Dáinn 5. september 1992 Okkur langar til að kveðja með örfáum fátæklegum orðum ástkær- an sonarson, sem lést af slysförum 5. september sl. Björgvin Davíð ólst upp á Siglu- firði hjá móður sinni, Halldóru Björgvinsdóttur og góðum fóstur- föður, Ólafi Þór Ólafssyni. Hann átti þó margar ferðir hingað til Ólafsfjarðar, til föður síns, Björns Vals Gíslasonar, og konu hans, Þuríðar Rósenbergsdóttur. Hann var þá tíður gestur á heimili ömmu og afa og kynntist þar frændsystk- inum sínum búsettum í Reykjavík, sem voru á svipuðu reki, en þau eru árlegir sumargestir hér. Björgvin hafði gaman af að spjalla og gerði sér far um að vita nöfn sem flestra ættingja og var ákaflega minnugur á þau enda greindur vel. Hann stundaði íþróttir eins og aðrir unglingar og starfaði mikið með KS. Knattspyrna var hans uppáhaldsíþrótt. Björgvin var okkur ákaflega kær sem og öðrum sem hann þekktu. Það er því sár og þungur harmur kveðinn að hans nánustu. Elsku Dóra, Óli, Þurý, Bjössi, litlu systurnar og önnur náin ætt- menni, megi góður Guð gefa ykkur styrk til þess að bera þessa þungu sorg. Nú er kveðjustundin komin. Mynd Björgvins og minningarnar um hann verða greiptar í hjörtu okkar svo lengi sem þau slá. Við kveðjum elskulegan sonarson okk- ar. Amma og afi, Ólafsfirði. Við fórum góða ferð í Héðins- fjörðinn um verslunarmannahelgina í fyrra, Bjössi bróðir, ég, konurnar okkar, og sex barnabörn mömmu og pabba. Elstir, tveir stálpaðir strákar, Björgvin Davíð, sonur Bjössa og Stefán Hafliði, sonur Alla bróður. Við sögðum í gríni að þeir hefðu verið teknir með til að sjá um uppvaskið. Og það máttu þeir eiga að þeir voru duglegir við uppþvottabalann, þótt ekki þætti þeim það verulega skemmtilegt sem von var. Lífið var í hæsta máta óréttlátt svona rétt á meðan þeir voru að skola af diskunum. En þeir tóku gleði sína fljótt aftur og voru snöggir að drífa sig út á vatn á árabátnum að afloknu uppvaskinu á vit ævintýra, tveir ungir drengir, bráðum menn. Og við nutum lífsins sannarlega þarna, veiddum silung, borðuðum góðan mat, spiluðum á spil og höfð- um það notalegt. Eftir þetta frí var samþykkt ein- um rómi að fara aðra Héðinsfjarð- arferð að ári. Seint í ágúst var svo lagt af stað í þá ferð. Stefán Hafliði komst ekki með en í staðinn var komin í hópinn dóttir okkar Láru, Hilda Jana. Hún hringdi í frænda sinn og jafnaldra, Björgvin Davíð á Siglufirði, og bað hann endilega að koma með, nú yrði uppvaskið létt, búið að kaupa pappadiska! Jú, hann var til í tuskið. Margar stundir frá því Hilda Jana og Björgvin Davíð voru agnarlítil hafa þau leikið sér á sumrin hjá afa og ömmu á Gunnólfsgötunni í Ólafsfirði. Og alltaf fór jafn vel á með þeim, þótt hún byggi í Reykja- vík og hann fyrir norðan. Alltaf var eins og þau hefðu aldrei skilið, tóku upp þráðinn eins og þau hefðu síð- ast sést í gær. Síðustu vikuna í ágúst var slæmt veður á Norðurlandi og við kom- umst ekki til Héðinsfjarðar. Þegar við sátum heima í eldhúsinu hjá Bjössa og Þurý og vorum að vand- ræðast með jiað hvað við ættum að gera, fyrst ófært væri í Héðins- fjörðinn, komu mamma og pabbi í óvænta heimsókn og buðu okkur dvöl í sumarhúsi sem þau útveguðu við Höfðavatn í Skagafirði. Húsinu fylgdu tveir árabátar og Björgvin Davíð og Hilda Jana fóru strax fyrsta daginn í ævintýralega ferð út á Höfðavatn. Smáan punkt í sólargeisla langt út á vatni rak undan norðanvindin- um. Þegar við sáum að þau myndi bera upp að ströndinni sunnanmeg- in vatnsins fórum við að gæta að hveiju það sætti að þau ætluðu að landi þar en ekki norðanmegin þar sem sumarhúsið stóð. Jú, þau höfðu misst aðra árina og hröktust nær stjórnlaust undan vmdinum. Jæja.'og hvað gerðuð þið á meðan?, spurðum við. Við reynd- um fyrst að veifa ykkur en þegar við sáum að það vakti engin við- brögð; þá fórum við bara að syngja. Og hvað sunguð þið? Hafið bláa hafið, Stolt siglir fleyið mitt. Queen- lög og Skjóttu, ja há. Daginn eftir náðu þau í bátinn og reru- í tvo og hálfan tíma á móti vaxandi norðanvindi og komu bátnum í rétta höfn. Þau voru þreytt og stolt það kvöld. Við foreldrarnir vorum stoltir af duglegu börnunum okkar. Þrjár nætur af fjórum kusu Björgvin og Hilda að sofa úti í tjaldi í rigningu og roki. Hlustuðu á uppá- haldslögin sín af spólu, töluðu um allt milli himins og jarðar, stráka og stelpur, framtíðina og nýju skól- ana sem þau voru að byija í. Björg- vin Davíð hlakkaði mikið til að byija í Fjölbrautaskólanum á Sauðár- króki. Svo var farið í sund að Barði í Fljótum. Keppt var í öllum þeim sundgreinum sem við kunnum, unglingarnir gáfu ekkert eftir og Björgvin sigraði i baksundi. Það var stutt í það að þessi stóri hrausti strákur yrði fullorðinn. Það var gaman að sjá hann þarna í sund- lauginni leika sér við litlu systurnar sínar, Sigurveigu Petru, Berglindi Hörpu, Kötlu Hrund og Gísla Tryggva frænda sinn, 5 ára snáða. Björgvin var góður við böm og trúði Hildu Jönu fyrir því eina nóttina þarna í tjaldinu að hann hlakkaði mikið til að eignast börn sjálfur. Hann er óvenju einlægur af strák að vera, sagði Hilda Jana, ánægð með það að eiga svoleiðis frænda. En í einni svipan er allt breytt og fyrir okkur sem þekktum Björgv- in Davíð og þótti vænt um hann er heimurinn öðmvísi, framtíðin öðruvísi án hans. Hilda Jana hefur misst kæran vin og frænda. Við öll höfum misst mikið, stórt skarð er höggvið í fjöl- skyldu okkar, Björgvins Davíðs er sárt saknað. Fyrir okkur verða þessir síðustu dagar í ágúst, samveran við Höfða- vatn, dýrmæt minning og við þökk- um fyrir hana. Elsku Bjössi, Þurý, Dóra, ÓIi og fjölskyldur, megi Guð gefa ykkur styrk í mikilli sorg. Gísli, Lára, Hilda Jana og Gísli Tryggvi. Það haustar snemma í ár hér á Siglufirði. Undanfarnar vikur hefur verið kaldranalegt um að litast en þó aldrei eins drungalegt og sunnu- dagsmorguninn er bæjarbúum barst fréttin um að ungur Siglfírð- ingur, Björgvin Davíð Björnsson, væri látinn og hefði farist í umferð- arslysi daginn áður. Haustið hafði hrifsað til sín ungan dreng í blóma lífsins. Björgvin Davíð var sonur frænku minnar Halldór S. Björgvinsdóttur og Björns V. Gíslasonar, sjómanns og bæjarfulltrúa á Ólafsfirði. Þau hófu búskap sinn á Ólafsfirði en slitu síðar samvistir og fluttist Hall- dóra þá heirn til Siglufjarðar með Björgvin Davíð. Tengsl þeirra feðga voru ávallt góð og mikil þó að þeir byggju ekki saman og einnig reyndist seinni maður Halldóru, Ólafur Þór Ólafsson, aðalbókari hjá Siglufjarð- arkaupstað, Björgvini sem besti faðir og mikill félagi. Hann átti því í raun tvo elskulega feður sem báð- um var jafn annt um vöxt hans og þroska. Frændgarðurinn í báðum þessum norðlensku fjörðum var honum líka jafn náinn og traustur. Björgvin Davíð ólst upp hér á Siglufirði og tók virkan þátt í æsku- lýðs- og íþróttastarfi eins og marg- ir aðrir unglingar. Hann stundaði skíði, badminton og knattspyrnu en hún var hans aðaláhugamál og þar náði hann mikilli leikni og árangri. Björgvin lauk prófi í vor frá Grunn- skóla Siglufjarðar og hugurinn stefndi til framhaldsnáms. Tilhlökk- unin var mikil, á sunnudaginn skyldi haldið ásamt mörgum skóla- systkinum í Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra á Sauðárkróki. Framtíðin virtist björt og skýr við nám í vinahópi. Við Siglfirðingar höfum misst einn af okkar glæsilegustu ungu sonum og það er erfitt að sætta sig við. Ég kveð Björgvin Davíð, frænda minn, með þakklæti fyrir kynnin og flyt öllum ástvinum hans dýpstu samúðarkveðjur með ósk um að þeim veitist styrkur Guðs og huggun í þungum harmi. Kristján L. Möller. „Dauðinn og ástin eru vængirnir sem bera góðan mann til himins.“ Þessi orð Michelangelos koma upp í huga minn er við fylgjum ungum og elskulegum frænda mínum til grafar í dag. Ég get varla lýst því með orðum hvemig mér varð innanbijósts er ég fékk fregnir af því að systurson- ur minn, Björgvin Davíð Björnsson, hefði látist í umferðarslysi sl. laug- ardag, aðeins 15 ára að aldri. Mað- ur spyr sjálfan sig hver sé tilgang- urinn með því að nema ungt fólk, í blóma lífsins, á brott úr þessu jarðneska lífi. Hvers vegna kveður dauðinn dyra hjá svo ungum og efnileguin dreng sem átti allt lífið framundan? Þessum spumingum verður ekki svarað, en eftir stönd- um við með tómleikann innan- bijósts og heimurinn fátækari eftir missi þessa lífsglaða drengs. Björgvin Davíð var fæddur á Siglufirði 17. október 1976, og hefði því orðið 16 ára í næsta mánuði. Foreldrar hans vom systir mín, Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir, og Björn Valur Gíslason. Þau bjuggu á Ólafsfirði fyrstu árin, en slitu samvistum árið 1978 og flutt- ist þá Dóra með son sinn aftur inn á heimili foreldra okkar í Hafnar- túni 6, Siglufirði. Björgvin Davíð var fyrsta barnabarn foreldra minna, Björgvins Jónssonar og Halldórii Pétursdóttur, og því eðli- legt að tengslin yrðu sterk við þess- ar aðstæður. Þetta varð einnig breyting fyrir okkur bræðurna, enda tókum við Björgvini Davíð sem okkar litla bróður á þessum árum. Þau eignuðust síðan eigið heimili og ég minnist þess hve móðirin unga var dugleg og stolt af því að hafa búið litla drengnum fallegt og hlýlegt heimili. Eftir að þau mæðg- in höfðu búið tvö saman um nokk- urt skeið kynntist Dóra Ólafi Þór Ólafssyni og hafa þau búið saman síðan. Miklir kærleikar tókust strax með þeim Óla og Björgvini Davíð. Þeir umgengust hvor annan eins og faðir og sonur. Fjölskyldan stækkaði síðan árið 1983, þegar Dóra og Óli eignuðust Stellu Dór- ótheu. Þrátt fyrir aldursmuninn var samband þeirra systkinanna mjög gott og einkenndist af ástúð og umhyggju. Mjög gott samband hélst alla tíð milli þeirra feðga Björgvins og Björns Vals. Hann bjó um tíma í Reykjavík en fluttist síð- an aftur til Ólafsfjarðar og styrktr- ust þá böndin enn betur. Björn Valur giftist Þuríði Lilju Rósen- bergsdóttur og eiga þau saman þijár dætur; Sigurveigu Petru, Berglindi Hörpu og Kötlu Hrund. Björgvin Davíð átti því aðra indæla fjölskyldu á Ólafsfirði og þar gat hann einnig leitað til föðurafa síns og ömmu, Gísla og Sigurveigar, og frændfólks. Það er óhætt að segja að það hafi færst líf og fjör yfir heimilið í Hafnartúni 6 á Siglufirði eftir að Björgvin Davíð fæddist og þessi litli ljóshærði snáði fór að vaxa úr grasi. Við áttum saman ófáar stundirnar er við systkinin bjuggum enn í föð- urhúsum. Það er því með söknuði sem ég rifja upp þá tíma er ég tók að mér að gæta frænda míns á unglingsárunum. Þá fékk ég fyrst að kynnast þeirri tilfinningu sem maður fær með því að umgangast börn, þessari sérstöku ástúð sem aldrei hverfur. Að þessari reynslu bjó ég þegar mín eigin börn litu dagsins ljós, og fengu þau einnig að kynnast stóra frændanum sínum sem þau litu upp til. Á þessum árum fyllti Björgvin Davíð upp í það tómarúm sem myndaðist hjá for- eldrum mínum er við systkinin fór- um að flytjast að heiman. Hann var eina barnabarnið lengi vel og var því heimagangur hjá afa og ömmu í Hafnartúninu, sem oft á tíðum sóttust eftir að fá að hafa strákinn hjá sér. Hið sama má segja um tengslin við foreldra Óla eftir að fjölskyldan fluttist á Hvanneyr- arbraut 63, við hliðina á Palla og Stellu. Þau tóku Björgvini sem sínu bamabami og þar var hann dagleg- ur gestur, enda voru þeir jafnaldrar og miklir vinir Björgvin og Róbert, sonur þeirra. Björgvin Davíð hafði því fest rætur á mörgum heimilum og því er skarð höggvið í margar fjölskyld- ur við fráhvarf hans. Ekki má gleyma öllum langömmunum og langöfunum, frændum og frænkum sem fengu að njóta heimsókna hans í gegnum árin. Björgvin Davíð var bráðþroska, duglegur og vel gefinn. Hann tók námið alvarlega og hafði lagt hart að sér við að ljúka grunn- skólanum með sem bestum árangri í vor til þess að undirbúa sig fyrir haustið. Þá ætlaði hann að hefja nám í Fjölbrautaskólanum á Sauð- árkróki, en örlögin gripu inn í dag- inn áður en af því gat orðið. Svona atorkusamur og efnilegur unglingur hafði auðvitað ótal áhugamál og var virkur í öllu fé- lagslífi. Þar stóðu íþróttirnar og tónlistin upp úr. Hann stundaði knattspyrnu, badminton og skíði af miklum áhuga og var í raun lið- tækur í öllum íþróttum. Slíkur var krafturinn. Þó var mesta .kappið lagt á fótboltann þetta árið með 3ja flokki Knattspyrnufélags Siglu- fjarðar og náði hann svo langt að vera valinn til þess að æfa með drengjalandsliðinu í sumar. Það er árangur sem er afar sjaldgæfur hjá piltum úr „litlu“ liðunum af lands- byggðinni. í fótboltanum náðu þeir vel saman Björgvin og Óli, enda þjálfaði Óli strákana í sumar. Ég minnist þess þegar ég kom heim í sumarblíðuna á Siglufírði um versl- unarmannahelgina, hvað það kveikti ljúfar endurminningar að horfa á knattspyrnuleik strákanna á gamla fótboltavellinum í miðbæn- um. Og þarna var litli frændi minn orðinn fullþroska unglingur og gnæfði yfir jafnaldra sína á vellin- um, sterkur sem klettur í vörninni. Hann hafði ágæta tónlistarhæfi- leika og fallega söngrödd. Hann stundaði um tíma nám í Tónlistar- skóla Siglufjarðar, söng með kórum og spilaði í hljómsveit. Veiðiáhuginn var heldur ekki langt undan og það rifjast því upp fyrir mér hvað hann var glaður er hann fékk að fara SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.