Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
Loðnuvertíðin
21
Dani gefur safn ís-
lenskra fyrirtækja-
og einkennismerkja
DANSKUR maður, Otto Christiansen, gaf á dögunum Árbæjar-
safni safn íslenskra fyrirtækja- og einkennismerkja og mun elsta
merkið vera frá árinu 1903. Afhendingin fór fram á heimili Haf-
liða Jónssonar, píanóleikara, og Jónheiðar Níelsdóttur. Það var
Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörður sem tók við merkjun-
um.
í samtali við Otto Christiansen
kom fram að hann hafi byrjað að
safna merkjunum árið 1966 þegar
hann var í einni af sínum mörgum
íslandsferðum en honum og Haf-
liða Jónssyni er vel til vina. Hann
sagðist hafa rekið augun í hve
glæsileg merkin hafi verið á ein-
kennisbúningi íslensku flugmann-
ana og farið á skrifstofu Flugfé-
lags Islands á Hótel Sögu til að
falast eftir merkjum. Otto sagði
að mjög vel hefði verið tekið á
móti sér og að þetta hafi verið
byrjunin á söfnun hans. Otto hélt
svo áfram að heimsækja hin ýmsu
fyrirtæki, t.d. bifreiðastöðvar og
skipafélög og voru allir tilbúnir
til að gefa Otto merki ef þau voru
til.
Otto sagði að þegar hann var
að hefja söfnunina á einkennis-
merkjunum hefði fólk orðið hissa
því ekki væri her á íslandi og lít-
ið um einkennisbúninga. En Otto
sagði það ekki vera rétt því hann
hefði séð allskonar merki og bún-
inga til að mynda hjá lögreglu-
mönnum, tollvörðum, slökkviliðs-
mönnum og sýslumönnum.
Elsta merkið úr safni Ottos er
merki af sýslumannshúfu sem er
frá þeim tíma þegar Island var
enn undir konungsveldi Danmerk-
ur eða frá árinu 1903.
Otto vildi koma því á framfæri
að hann væri ekki hættur söfnun-
inni og ef fyrirtæki og stofnanir
vildu leggja sitt af mörkum þá
þægi hann það með þökkum því
að miklar heimildir lægju í þessum
barmmerkjum hvað varðar sögu
fyrirtækja og byggðar á íslandi.
Morgunblaðið/Kristinnn
Frá afhendingu safnsins f.v. Helgi Sigurðsson safnvörður muna-
deildar, Margrét Hallgrímsdóttir, borgarminjavörður og Otto
Christiansen. Á myndinni má sjá brot safnsins sem gefið var til
Árbæjarsafns.
Ný alþjóðleg skoðanakönnun um hvalveiðimál
Andstaða við hvalveiðar teng-
ist lítilli þekkingu á hvölum
Lítið veiðst
vegna ótíð-
ar síðustu 3
vikumar
DRÆM veiði vegna ótíðar hefur
verið á loðnumiðunum norðan við
landið síðustu þrjár vikur. Þórður
Jónsson, rekstrarstjóri Síldar-
verksmiðja ríkisins, sagði að ekk-
ert hefði veíðst í fyrrinótt og spáð
væri vaxandi veðri og stormi í
morgun.
Þórður sagði að samtals hefði
verið landað 3733 t af loðnu á Siglu-
firði en engu hefði verið landað þar
frá því fyrir helgi. Hann sagði að
nokkur skip væru á miðunum en lít-
ið hefði veiðst síðustu 3 vikur vegna
ótíðar. Hefði t.d. ekkert veiðst í fyrri-
nótt, einhver von væri í nótt en aft-
ur væri spáð vaxandi veðri og stormi
á miðunum í morgun. Aðspurður
sagði Þórður að greiddar væru 4000
kr. fyrir tonnið af loðnu enda kreppti
að mörkuðum.
Jóhann Andersen, framkvæmda-
stjóri Krossanesverksmiðjunnar,
sagði að þar hefði verið landað 3440
t en engu síðan 5. september. Lönd-
uðu þá Björg Jónsdóttir ÞH og Guð-
mundur Olafur ÓF. Aðspurður sagði
Jóhann að loðnan væri heldur ma-
grari á vesturmiðunum en þeim aust-
ari. Hann sagði að greiddar væru
rúmlega 4000 kr. fyrir tonnið.
Engu hafði verið landað í Bolung-
arvík í gær en Einar Jónatansson,
framkvæmdastjóri Einars Guð-
finnssonar hf., sagði að von væri á
ísleifi ef eitthvað veiddist.
Um það bil 12 skip eru á loðnu-
miðunum um 90 mílur norður af
landinu. Loðnuskipin eru fremur
dreifð á miðunum.
Þórshöfn í Færeyjum. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
MIKILL meirihluti Ástrala og Þjóðverja og nokkur meirihluti Breta
og Bandaríkjamanna er á móti hvalveiðum undir hvaða kringumstæð-
um sem er. En mikill meirihluti Japana og Norðmanna telur hvalveið-
ar eðliiegar ef þeim er stjórnað á viðunandi hátt. Almenningur í þess-
um löndum virðist hafa takmarkaða þekkingu á hvölum og hvalveiði-
málum en þekking Norðmanna og Japana er þó mun meiri en hinna.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar sem unnin var í háskól-
um í Bandaríkjunum og Kanada og liggur frammi á stofnfundi Norð-
ur-Atlantshafssjávarspendýraráðsins í Þórhöfn í Færeyjum.
í könnuninni voru 500 manns í
Ástralíu, Bretlandi, Noregi, Þýska-
landi og Japan og 1.000 manns í
Bandaríkjunum spurðir um afstöðu
til hvalveiða. Fyrst var spurt hvort
menn væru sammála þeirri fullyrð-
ingu að ekki væri hægt að ímynda
sér hvers vegna nokkur vildi drepa
jafngáfaðar skepnur og hvali. 64%
Ástrala voru sammála þessu, 22%
í ályktuninni segir ennfremur:
„Þessari, stefnu ríkisvaldsins hefur
aldrei verið fylgt eftir af meiri hörku
en nú og kemur hún jafnt fram í
afstöðu þess í þeim samningaviðræð-
um sem það á nú í við Félag háskóla-
kennara sem og í auknum niður-
skurði fjárveitinga til skólans. Að
því er launamál varðar hafa félagar
í Félagi háskólakennara mátt sæta
beinni tímakaupslækkun sökum þess
að yfirvinna við rannsóknir fæst nú
ekki greidd í sama mæli og áður. Á
sama tíma hefur ríkisvaldið einungis
boðið félaginu 1,7% launahækkun
enda þótt kaupmáttur taxtalauna
félagsmanna hafi fallið meira en hjá
öðrum háskólamönnum í þjónustu
ríkisins og meðallaun séu með því
lægsta sem þekkist meðal háskóla-
menntaðra manna. Allt hefur þetta
gerst á tímum svonefndrar „þjóðar-
sáttar". Niðurskurður á fjárveiting-
voru ósammála en 13% tóku ekki
afstöðu. 64% Breta voru sammála
þessari fullyrðingu, 20% voru ósam-
mála og 13% tóku ekki afstöðu. 59%
Þjóðveija voru sammála, 24% ósam-
mála og 18% tóku ekki afstöðu.
25% Japana voru sammála, 50%
ósammála og 16% tóku ekki af-
stöðu. 22% Norðmanna voru sam-
mála, 57% ósammála og 16% tóku
um til skólans kemur einkum niður
á launaútgjöldum. Hann mun því
hafa bein áhrif á laun kennara sök-
um minnkandi yfirvinnu.
Aukin hagsæld og velferð þjóðar-
innar er ekki síst undir því komin
að efla það starf sem fram fer við
Háskóla íslands. Skipbrot í atvinnu-
rekstri undanfarinnar ára staðfesta
að besta fjárfestingin er í því fólgin
að auknu fé sé varið til að efla rann-
sóknir og vísindastörf. Félag há-
skólakennara krefst þess að ríkis-
valdið sjái svo um að Háskólinn geti
starfað eftir þeim markmiðum sem
honum hafa verið sett skv. lögum.
En til þess að svo megi verða þarf
að stórauka fjárveitingar til skólans.
Því skorar Félag háskólakennara á
yfirvöld fjármála og menntamála að
endurskoða stefnu sína í málefnum
Háskólans.“
ekki afstöðu. Loks voru 57%
Bandaríkjamanna sammála, 25%
ósammála og 20% tóku ekki af-
stöðu.
60% Ástrala. sögðust sammála
þeirri staðhæfingu að þeir væra á
móti hvalveiðum undir hvaða kring-
umstæðum sem væri. 29% voru
ósammála og 11% tóku ekki af-
stöðu. 43% Breta voru sammála
þessu, 37% voru ósammála en 19%
tóku ekki afstöðu. 54% Þjóðveija
voru sammála, 24% ósammála og
18% tóku ekki afstöðu. 48% Banda-
ríkjamanna voru sammála, 34%
ósammála og 27% tóku ekki af-
stöðu. 24% Japana voru sammála,
50% ósammála en 18% tóku ekki
afstöðu og 21% Norðmanna voru
þessu sammála, 57% ósammála en
18% tóku ekki afstöðu.
Loks var borin undir þátttakend-
ur í könnuninni staðhæfing þess
efnis að ekkert væri á móti lival-
veiðum ef þeim væri stjórnað á við-
unandi hátt. Þessu var 21% Ástrala
sammála, 66% ósammála og 13%
tóku ekki afstöðu. 19% Breta voru
þessu sammála, 64% ósammála og
17% tóku ekki afstöðu. 26% Þjóð-
veija voru sammála, 60% ósammála
og 14% tóku ekki afstöðu, 27%
Bandaríkjamanna voru sammála,
55% ósammála og 17% tóku ekki
afstöðu. 64% Japana voru sammála,
22% ósammála en 13% tóku ekki
afstöðu og 74% Norðmanna voru
þessu sammála, 15% ósammála og
9% tóku ekki afstöðu.
Þátttakendur voru spurðir hvað
þeir teldu hvalastofna vera stóra
til að leiða fram hvort andstaða við
hvalveiðar gæti byggst á þeirri trú
að livalir væru í útrýmingarhættu.
Fram kom að þekking á þessum
efnum var almennt lítil, til dæmis
vissi aðeins 1% Þjóðveija að búr-
hvalir eru yfir milljón dýr. Þá taldi
meirihluti Bandaríkjamanna, Ástr-
ala og Þjóðveija að aðeins væru til
um 10 þúsund hrefnur og aðeins
5% töldu þær yfir 100 þúsund. En
talið er að hrefnur séu um 800.000.
Svarendur í Japan og Noregi voru
þrisvar til fjórum sinnum líklegri
til að svara rétt um stærð hrefnu-
stofna en í Ástralíu, Englandi,
Háskólinn
Háskólakennarar mót-
mæla „sveltistefnu“
Á FUNDI Félags háskólakennara sem haldinn var í Lögbergi 10. sept-
ember sl. var samþykkt ályktun þar sem harðlega er mótmælt „þeirri
sveltistefnu sem ríkisvaldið hefur löngum beitt í fjárveitingum tií
Háskóla íslands, ódýrasta háskóla á Norðurlöndum", að því er segir
í samþykktinni.
Bandaríkjunum og Þýskalandi.
í könnuninni kom einnig fram
að mjög fáir Bretar, Bandaríkja-
menn, Ástralir og Þjóðveijar töldu
eðlilegt að borða hvalkjöt. Innan
við helmingur Japana og Norð-
manna studdu hvalkjötsneyslu en
jafnmargir voru á móti henni. En
í könnuninni kom einnig fram mik-
il andstaða við neyslu hrossakjöts,
kengúrukjöts og selkjöts.
Könnun þessi var unnin af Milton
M.R. Freeman hjá Albertaháskóla
í Kanada ög Stephen R. Kellert hjá
Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hún
var meðal annars kostuð af Hval
hf., landsstjórnum Færeyja og
Grænlands og ýmsum vísindastofn-
unum í Noregi, Japan, Kanada og
Bandaríkjunum.
-----» ♦ ♦-----
Háskóli Islands
Hannes flyst í
stöðu dósents
DÓMNEFND innan félagsvís-
indadeildar Háskóla íslands hef-
ur gefið álit sitt um hæfi Hannes-
ar Hólmsteins ‘Gissurarsonar til
þess að flytjast úr stöðu lektors
í stöðu dósents við Háskólann.
Að sögn Siguijóns BjörnsSonar,
forseta félagsvísindadeildar, var
einkum litið til ritstarfa Hannesar
við mat á hæfi hans. Þau voru næg
til að hann teldist hæfur til að gegna
stöðu dósents.
Gerðuberg
Myndlistarsýning þriggja
einhverfra listamanna
MYNDLISTARSÝNING þeirra Önnu Borgar Waltersdóttur, Áslaugar
Gunnlaugsdóttur og Péturs Arnar Leifssonar verður opnuð í Gerðu-
bergi mánudaginn 14. september kl. 17.30 að viðstöddum verndara
Umsjónarfélags einhverfra, frú Vigdísar Finnbogadóttur, forseta
íslands.
Listamennirnir þrír eru allir hátt að hún gefi sem besta mynd
heimilisfólk á sambýli fyrir ein- af þróun í myndsköpun hvers og
hverfa við Hólaberg. Þau hafa öll eins. Verndari Umsjónarfélags ein-
unnið að myndlist í lengri eða liverfra, frú Vigdís Finnbogadóttir,
skemmri tíma og hafa hvert um sig verður viðstödd opnunina og Guðni
mótað sinn sérstaka stíl. Verkin á Franzson verður með tónlistarflutn-
sýningunni eru öll unnin á þessu ing. Sýningin stertdur til 1. október.
ári. Sýningin er sett upp á þann (Fréttatiikynning)
Líkamsrækt
Stjörnunnar
fyrir karla og konur og morgunleikfimi kvenna
mun hefjast mánudaginn 14. september
Upplýsingar og innritun í síma 651940.
Stjarnan Garðabæ