Morgunblaðið - 12.09.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
47
ÓLYMPI'UMÓT FATLAÐRAI BARCELONA
Gefr Sverrisson byijaði að æfa sund fyrir fimm árum og lauk sundferlinum með gulli í gær. Hann ákvað í fyrra að
snúa sér að fijálsíþróttum og vann til bronsverðlauna í 400 m hlaupi fyrr í vikunni. Eins og sjá má felst fötlun Geirs í því
að það vantar á hægri handlegg við olnboga.
Geir fékk gull
ogsettimet
GEIR Sverrisson bætti enn
einni rósinni í hnappagatið í
gær, þegar hann vann til gull-
verðlauna í 100 metra bringu-
sundi (flokki SB9) á Ólympíu-
móti fatlaðra í Barcelona. í úr-
slitasundinu fékk hann tímann
1.19,48, sem er ólympíumóts-
met, en Geir á jafnframt heims-
metið í greininni í sínum flokki,
1.19,20.
Qeir ákvað fyrir ári að leggja
áherslu á fijálsíþróttir í stað
sundsins og fylgdi breytingunni eft-
ir með brosnverðlaunum í 400 m
hlaupi í sínum fiokki s.l. miðviku-
dag. Eftir það sagði hann við Morg-
unblaðið að hann tæki þátt í sund-
inu á mótinu til að synda sig niður
áður en hann sneri sér alfarið að
fijálsum. í undanrásunum í gær-
morgun gerði hann það sem hann
þurfti til að tryggja sér sæti í úrslit-
um undir kvöldið, en fór engu að
síður á 1.22,75, sem var ólympíu-
mótsmet. í úrslitunum bætti hann
síðan um betur eftir að hafa haft
örugga forystu frá byijun og lauk
sundinu með gulli.
„Hann vissi hvað hann þurfti að
gera í undanrásunum," sagði Ólafur
Magnússon, fararstjóri. „I úrslitun-
um hélt hann nánast sama hraða
allan tímann, var á rúmlega 37
sekúndum eftir 50 metra og vissi
hvað hann gat boðið sér eftir það.
Hlaupin hafa styrkt hann í fótunum
og þó hann hafi ekki æft sundið
eins og áður er keppnisskapið til
staðar og það hafði mikið að segja.“
Kristín Rós Hákonardóttir (flokki
S8) setti íslandsmet í 100 m bringu-
sundi, synti á 1.44,78 og varð í
fímmta sæti í úrslitunum.
Sóley Axelsdóttir (S7) setti líka
íslandsmet, fékk tímann 1.25,30 í
50 m flugsundi og varð í 10. sæti
í undanúrslitum.
Ólafur Eiríksson (SB8) varð 10.
í undanrásum í 100 m bringu á
1.38,84 og komst ekki í úrslit.
Svanur Ingvarsson (S7) keppti í
50 m flugsundi, en gerði ógilt og
var dæmdur úr leik í undanúrslitun-
um.
Keppni á mótinu lýkur í dag, en
á morgun verður lokaathöfnin.
UM HELGINA
Knattspyrna
LAUGARDAGUR
1. deild karla
Valsvöllur, Valur - KR.......kl. 14
Akureyrarv.,Þór-ÍA...........kl. 14
Kaplakriki, FH - Fram........kl. 14
Stjömugróf, Víkingur-UBK.....kl. 16
Vestm.eyjar, ÍBV - KA.........kl. 16
2. deild karla
Isafjörður, BÍ - Leiftur kl. 13.30
/ Fylkisvöllur, Fylkir - Selfoss.kl. 14
’ Garðabær, Stjaman - ÍBK.......kl. 14
Grindavík, Grindavík - IR....kl. 14
BLeik Víðis og Þróttar, sem vera átti á
| Garðsvelli í dag, hefur verið frestað þar til
á þriðjudaginn, vegna hins hörmulega sjó-
slyss í fyrradag, en skipveijarnir þrír voru
, allir búsettir f Garðinum. Leikurinn hefst
( kl. 17.30 á þriðjudag.
STAÐAN I' 2. DEILD
Fj. leikja u j T Mörk Stig
ÍBK 17 12 4 1 41: 14 40
FYLKIR 17 13 1 3 38: 18 40
UMFG 17 9 2 6 35: 30 29
leiftur 17 7 4 6 34: 23 25
ÞRÓTTUR 17 8 1 8 30: 33 25
stjarnan 17 5 6 6 27: 25 21
Bl 17 5 6 6 26: 32 21
Ir 17 3 6 8 22: 33 15
VÍÐIR 17 2 6 9 17: 29 12
SELFOSS 17 1 4 12 19: 52 7
I Keila
.. Reykjavfkurmót para hefst um helgina í
Oskjuhlíð. Keppt verður f tveimur flokkum.
( Keppnin í dag kl. 11.00 og 13.30. I kvöld
verður mót Lærlinga og Keiluhallarinnar
kl. 20.00. Á morgun verður paramótinu svo
, framhaldið og verða úrslit kl. 14.00.
' Golf
LEK mót verður hjá NK á morgun, sunnu-
dag. Ræst verður út kl. 9.00.
Handknattleikur
Hraðmót Stjömunar f handknattleik
kvenna, Islandsbankamótið, verður haldið í
íþróttahúsinu Ásgarði f Garðabæ um helg-
>na. Mótið hófst í gærkvöldi, en keppni
heldur áfram klukkan 11.00 í dag. Leikir
hefjast á kiukkustundar fresti, sá sfðast kl.
16.00. Á morgun eru tvær síðustu umferð-
imar. Fyrsti leikurinn er þá kl. 10.00 og
sá síðasti kl. 15.00. Stjaman, FH, Grótta,
IBV, Haukar og Selfoss taka þátt.
Körfuknattlelkur
Körfuknattleiksdeild KR stendur fyrir
hraðmót í kvennaflokki um helgina í fþrótta-
húsi Hagaskóla. Mótið hefst kl. 12.00 í
dag. ÍR, UMFG, UMFN, KRa, KRb og ÍBK
tnka þátt. Keppni á morgun hefst kl. 13.00.
URSLIT
Körfubolti
|sl®n®ka kvennalandsliðið tekur þátt f móti
I Wales ásamt fimm breskum félagsliðum.
Island-Waterford..............50:55
Island - Northampton..........42:66
West-C°ast Coolers.-....71:59
■Stulkurnar mæta Northampton í undan-
urshtum ! dag.
KORFUKNATTLEIKUR
Flugeldasýning
Valsmenn töpuðu með 40 stiga mun
VALSMENN-áttu aldrei mögu-
leika gegn sterku liði Lyon í
Evrópukeppni félagsliða í
körfuknattleik í gærkvöldi.
Frakkarnir, sem unnu fyrri leik-
inn 109:74, fóru á kostum og
var sem um flugeldasýningu
að ræða, en úrslit urðu 128:88
eftir að staðan hafði verið
65:30 í háifleik. Þetta var seinni
leikur liðanna í 1. umferð og
heimaieikur Vals, en báðir fóru
fram ytra.
Valsmenn voru sérstaklega slakir
í fyrri hálfleik og þá var það
helst Rhodes, sem stóð upp úr, en
hann sýndi mikla baráttu ailan leik-
inn, tók 21 frákast og skoraði níu
stig.
I seinni hálfleik tók Franc Boo-
ker við sér og gerði þá 30 stig en
41 stig alls. Magnús Matthíasson
barðist vel og Ragnar Jónsson var
góður í vörninni.
Leikmenn Lyon voru mun betri
en í fyrri leiknum, voru ákveðnir
og öruggir í vörninni og fljótir fram,
skoruðu grimmt eftir hraðaupp-
hlaup, sem voru góð. Þar fór Banda-
ríkjamaðurinn Lion Wood fremstur
í flokki, en hann skoraði 30 stig
og átti níu stoðsendingar. Bressau
var með 17 stig og 14 stoðsending-
ar, en Bandaríkjamaðurinn Ravp-
ings lék aðeins með í fyrri hálfleik
og skoraði þá 23 stig.
Svali Björgvinsson, þjálfari Vals,
lék ekki með vegna meiðsla í hné
og verður sennilega ekki með í
Reykjavíkurmótinu eftir helgi.
Stig Vals: Booker 41, Magnús 16, Rhodes
9, Ragnar 7, Sfmon Óiafsson 6, Jóhannes
Sveinsson 4, Brynjar Sigurðsson 4, Matthí-
as Matthiasson 1.
Franc Booker
■ TORBEN Piechnik, vinstri
bakvörður í knattspymulandsliði
Dana, er undir smásjánni hjá Li-
verpool. Graeme Souness gerði
sér ferð til Dan-
merkur s.l. mið-
vikudag til að sjá
kappann í æfinga-
landsleiknum gegn
Þjóðverjum.
I ROBERT Fleck átti ekki von á
Frá
Bob
Hennessy
I Englandi
að leika gegn fyrrum félögum sínum
í Norwich fyrr en eftir áramót, en
umferðaröðinni í ensku úrvalsdeild-
inni hefur verið breytt — liðin sem
mættust 18. og 19. ágúst, mætast
aftur um þessa helgi. Fleck leikur
því með Chelsea gegn Norwich í
dag, en Norwich vann fyni leikinn
2:1 og 3:0 í London í fyrra.
■ VINNY Jones, sem var seldur
frá Chelsea s.l. fimmtudag fyrir
700.000 pund (tæplega 73 millj.
ISK) og gerði fjögurra ára samning
við Wimbledon, byijar að leika með
félaginu, sem hann var hjá í þijú ár,
í Ipswich í dag.
KÆRUMAL
Kæru Leifturs á
ÍR var vfsað frá
- og kæru Völsunga á Þrótt vísað aftur
heim í hérað vegna rangrar málsmeðferðar
DÓMSTÓLL Knattspyrnusam-
bands íslands vísaði í gær frá
kæru Leifturs gegn ÍR. Leift-
ursmenn kærðu leikinn í 2.
deild, sem ÍR vann 2:1, vegna
þess að tveir leikmenn ÍR sem
voru í banni voru á leikskýrslu
sem liðsstjórar.
Dómstóll KRR dæmdi ÍR í hag,
Ólafsfírðingarnir áfrýjuðu til
dómstóls KSÍ, en fulltrúi þeirra
mætti hins vegar ekki þegar málið
var dómtekið á mánudaginn, og
ákvað dómstóllinn því í gær að fella
málið niður.
Þá hefur dómstóll KSÍ ákveðið
að vísa kæru Völsunga gegn Þrótti
frá Neskaupstað aftur heim í hér-
að, vegna rangrar málsmeðferðar.
Málið verður því aftur tekið fyrir
nyrðra, og ljóst að ekki fæst úr því
skorið strax hvort það verður Þrótt-
ur eða Grótta sem fer upp í 2. deild
ásamt Tindastóli.
Völsungar kærðu Þróttara fyrir
að skipa inn á manni, sem ekki var
skráður á leikskýrslu. Dómstóll
HSÞ úrskurðaði Völsungi sigur í
leiknum, en hann fór 1:0 fyrir Þrótt.
Austfírðingar áfrýjuðu úrskurði
dómstóls HSÞ til dómstóls KSÍ, en
hann hefur vísað málinu aftur til
baka. Standi úrslit leiksins fara
Þróttarar upp í 2. deild, en falli
úrskurður Völsungum í hag fer
Grótta upp.
Mm
FOLK
■ MARK Bright, fyrrum samherji
Ians Wrights hjá Crystal Palace,
var seldur til Sheffield Wednesday
í gær. Palace fékk 350.000 pund
og einnig miðheijann Paul Will-
iams, en Bright, sem er 29 ára og
hefur verið í sex ár hjá Palace, var
metinn á 700.000 pund.
■ DAVID Hirst, miðhetji Sheffi-
eld Wednesday, verður frá næstu
þijá mánuði vegná meiðsla og því
greip Trevor Francis til buddunn-
ar.
■ STEVE McMahon leikur ekki
með Manchester City næsta mán-
uðinn — var skorinn upp vegna
meiðsla í fæti.
■ IAN Rush, sem var með þrennu
í fyrsta sinn í landsleik, þegar Wal-
es vann Færeyjar 6:0 í undan-
keppni HM í vikunni, hefur þar með
gert 23 mörk fyrir Wales, sem er
metjöfnun. Iver Allchurch og Tre-
vor Ford deildu áður metinu.
■ NIGEL Spackman var seldur
frá Glasgow Rangers til Chelsea
fyrir 450.000 pund í gær. Spack-
man hefur verið á ferðinni undan-
farin þrjú ár, fór frá QPR til
Chelsea, þaðan til Liverpool, síðan
til Rangers og nú aftur til Chelsea.
■ DEAN Saunders verður í byij-
unarliði Aston Villa gegn Leeds á
Elland Road á morgun. Á fjórum
árum hefur hann farið á milli félaga
fyrir samtals um sex milljónir punda
(um 625 milljónir ÍSK).
■ LEEDS hefur stillt upp sama
byijunarliði allt tímabilið, en verður
að gera breytingu — Rod Wallace,
miðheiji, er meiddur.
■ TONY Cottee hefur náð sér
eftir meiðsl og leikur með Everton
gegn Manchester United, en Ever-
ton vann 3:0 á Old Trafford.
■ RONNY Rosenthal verður
sennilega í byijunarliði Liverpool í -
fyrsta sinn á tímabilinu.
■ JOHN Aldridge, sem er 34
ára, var þrennu fyrir írland gegn
Lettlandi fyrr í vikunni og hefur
þar með gert 11 mörk í 48 land-
sleikjum fyrir íra. „Aldur hefur
ekkert að segja nema á fæðingar-
og dánarvottorðum og ég hef hug
á að verða Roger Milla HM ’94.
MiIIa sló sem kunnugt er í gegn á
HM ’90, þá 38 ára.