Morgunblaðið - 12.09.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
5
Fær barnið þitt ekki tækifæri til
að njóta sín í skólanum?
Rannsóknir sýna að börn sem fá staðgóðan
morgunverð ná betri árangri í námi.
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var á
skólabörnum leiða í ljós að vinnuhraði barn-
anna sem hófu daginn með hollum morgun-
verði var tæplega 10% meiri, þau sýndu 40%
betri árangur í samlagningu, 50% betri árangur
í margföldun og 15% betri árangur í rökhugsun.
ímyndunarafl þessa hóps var mun auðugra, þau
reyndust hugmyndaríkari, frjórri, úthaldsbetri
og höfðu mun meiri einbeitingarhæfileika en
börnin sem fengu kjarnlítinn morgunverð.
Niðurstöðurnar sýna ótvírætt mikilvægi þess að börn
fái staðgóðan morgunverð ög hollt nesti með sér í
skólann - einkum þegar haft er í huga að þau verja
allt að fjórðungi sólarhringsins í skólanum!
Rannsóknina gerði Dr. David P. Wyon, atferlisfræð-
ingur, að tilhlutan sænska mjólkuriðnaðarins. Kemur
þar skýrt fram hve námsgeta barnanna er nátengd
undirstöðumáltíð dagsins. Stillt var upp tveimur
samanburðarhópum þar sem börnin í hópunum
i’engu ýmist kjarnlítinn morgunverð sem samanstóð
t.d. af tei og ristuðu brauði
með marmelaði, eða hollan
og uppbyggjandi morgun-
verð, s.s. mjólk eða mjólk-
urmat, korn, ávaxtasafa og
brauð með hollu áleggi.
Staðgóður morgunverður er forsenda þess að blóð-
sykurinn haldist í jafnvægi. Hér má sjá hvernig góður
og slæmur morgunverður hefur áhrif á líðan barn-
anna með tilliti til blóðsykurs.
Blóðsykurmagn
A
Blóðsykurmagn
A
Tími
Timi
Ófullnœgjandi morgunverður
veldur því að blóðsykurmagn-
ið eyksl snögglega en snar-
minnkar að skammri stundu
liðinni og kemsl langt niður
fyrir það sem eðlilegt getur
talist.
Staðgóður morgunverður
leiðir til þess að blóðsykur-
inn nœr fljátlega eðlilegum
styrk og helst i jafnvœgi
í mun lengri tíma.
Foreldrar geta haft mikil áhrif á líðan barna sinna í
leik og starfl með því að sjá þeim fyrir staðgóðum
morgunverði. Skólanestið er ekki síður mikilvægt
forðabúr dagsins. Leggja ætti áherslu á hollan mat og
ósæta drykki sem veganesti barnanna út í líflð.
Skólamjólkin er til í handhægum um-
búðum sem barnið getur gripið til
hvenær sem er. Mjólkin er ein kalk-
ríkasta fæða sem við neytum að jafnaði,
hún er auk þess auðug af próteini,
fosfóri, ýmsum B-vítamínum, zinki,
magníum og kalíum og gefur einnig
A-vítamín o.ff. efni sem eru líkamanum
nauðsynleg.
MJOLKURDAGSNEFND
VIS / QISOH V1|AH