Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 29

Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 29
i MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 29 Hjörleifur Guttormsson ESS verðskuldar umræðu 1. umræða um lagabreytingar á sviði heilbrigðis- og tryggingamála HJÖRLEIFUR Guttormsson (Ab-Al) gagnrýndi fjölmiðla fyrir að tí- unda þann tíma sem farið hefur í umræður um EES-samninginn, full ástæða væri til að ræða það mál vel. Hann og Sighvatur Björg- vinsson heilbrigðisráðherra bættu nokkru við þá umræðu í gær. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lagaákvæðum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna aðildar að samningi um Evr- ópskt efnahagssvæði, EES. Frum- varpið er eitt af hinum rúmlega 60 svonefndu fylgifrumvörpum sem Alþingi verður að afgreiða vegna EES-samningsins. Það frumvarp sem heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherrann mælti fyrir varðar ýmis lög á hans málasviði, s.s. lög um heilbrigðisstéttir og starfsréttindi þeirra, lög um atvinnuleysistrygg- ingar, lög um eiturefni, lög um lyfjamál, og ýmis lög á vátrygg- ingasviði. Framsögumaður gerði grein fyrir nokkrum helstu breytingum sem frumvarpið miðar að til aðlögunar við ákvæði EES-samningsins, t.d. að reglur EB og EES krefjast þess að engum sé mismunað á grund- velli ríkisfangs og þarf því að breyta lögum um starfsleyfi til þess að umsóknir ríkisborgara í EES-ríkj- um væru meðhöndlaðar á sama hátt og umsóknir íslendinga. Húsatryggingar Reykja- víkurborgar Mjög miklar breytingar eru gerð- ar á lögum á vátryggingasviði og lúta að því að ryðja úr vegi einka- rétti einstakra vátryggingafélaga til að selja tilteknar tryggingar, og einnig að skattalegum ívilnunum sem sum þessara fyrirtækja njóta umfram önnur félög. Heilbrigðis- og tryggingaráðherra lét þess getið að í EES-samningnum væri sér- stakt undanþáguákvæði fyrir Húsa- tryggingar Reykjavíkurborgar. En hann hefði tekið þá ákvörðun að nota það ekki heldur breyta lögun- um um brunatryggingar í Reykja- vík samhliða breytingum á lögunum um brunatryggingar utan Reykja- víkur. Óeðlilegt væri að mismuna húseigendum eftir því hvar þeir byggju á landinu. Hnípið þing framtíðar Hjörleifur Guttormsson (Ab- Al) furðaði sig á því að fjölmiðlar hefðu reiknað saman og tíundað tímafjölda sem umræður um EES- samninginn hefðu tekið. Og þætti það tíðindavert að hann næmi nú nokkrum tugum klukkustunda. Fjölmiðlar ættu að setja sig inn í hvers eðlis þetta mál væri. Það væri EES-samningurinn sjálfur sem væri undirstaða og forskrift allra þeirra lagabreytinga sem Alþingi væri nú ætlað að afgreiða. Við værum ekki bara að bindast við það sem EB segði núna heldur einnig það sem EB segði í framtíðinni. Löggjafarvald færi frá Alþingi. Fræðilega væri hægt að segja nei, en slík tilvik yrðu ekki mörg. Frum- kvæðið og völdin um lög og reglur fjórfrelsisins á evrópska efnahags- svæðinu yrðu hjá framkvæmda- stjóminni í Brussel. Hjörleifur hafði ekki mikla trú á ákvæðum um sam- ráðsferli í EES-samningi; við vær- um að færast aftur á stig bæna- skránna. Það yrði heldur hnipið lið á þingi sem nauðugt viljugt gæti ekki gert annað en goldið jáyrði við boðum frá Brussel með því að rétta upp hönd eða ýta á takka. Ræðumaður^ reifaði í nokkru máli ýmsa þá annmarka sem hann taldi vera á EES-samningnum, s.s. að við værum að galopna okkar vinnumarkað. Hjörleifur benti einn- ig á að það frumvarp sem nú væri til umræðu veiti rétt ríkisborgurum EES-ríkja til atvinnuleysisbóta, á sama tíma og hagur Atvinnuleysis- tryggingasjóðs væri verulegt áhyggjuefni. Ræðumaður taldi að íslensk verkalýðshreyfing hefði þó náð fram nokkrum árangri varð- andi félagsleg réttindi og félagslegt öryggi. Það gæti reynst freistandi fyrir fólk í lakar settum hlutum EES að flytja sig og sitt skyldulið hingað. Hjörleifur gagnrýndi fjöldamargt annað á þeim 62 mínútum sem Hjörleifur Guttormsson Sig-hvatur Björgvinsson „mjög óhressir" með ákvörðun heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra svaraði ýmsum þeim spumingum sem til hans hafði verið beint. Und- anþágu vegna Húsatrygginga Reykjavíkurborgar hefði ekki verið aflað að sínu frumvæði. En ráðherr- ann svaraði einnig ýmissi gagnrýni sem beinst hefur almennt að EES. Einkum og sér í lagi beindi hann máli sínu til Hjörleifs Guttormsson- ar. Sá maður talaði alltaf eins og við væmm að undirgangast byrðar og skyldur, þegar við værum að veita öðmm þann rétt sem við öðluðumst í útlöndum. Sighvatur hafði litla trú á því að útlendingar frá laklega settum löndum við Mið- jarðarhafíð myndu flykkjast hingað til að setjast upp á velferðarkerfíð, „sósíalinn", Hjörleifur Guttormsson væri menntaður í Þýskalandi og vissi hvað þvílík sjónarmið væm kölluð þar. Hjörleifur Guttormsson vildi mótmæla aðdróttunum um að hann vildi flokka fólk eftir því hvaðan úr heimi það kæmi. En jafnframt væri spurning hvort við ætluðum að hafa hér einn flatan akur. Hætta að hugsa um okkar stöðu, réttindi og möguleika í þessu landi eða ekki. Hann liti svo til að niðjar þess fólks sem hér hefði búið um aldir ætti það skilið að hugsað væri um ís- lenska hagsmuni og stöðu, ekki bara í nútíð heldur einnig til lengri tíma litið. Hann mæti það ekki að jöfnu að gera kröfur til þjóðríkja um að virða almenn mannréttindi og líta til hagsmuna þess fólks sem hér byggi og reyna að tryggja grundvöll fyrir áframhaldandi þjóð- lífí í þessu landi. Auk fyrrgreindra þingmanna tóku Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) og Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) til máls. Þessari fyrstu umræðu lauk kl. 17.35. Tímatal Ræður Hjörleifs Guttormssonar voru tvær, 62 mínútur og 45 mín- útur. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra flutti þijár ræður, 15 mínútur, 65 mínútur, 20 mínútur. Auk þessa veittu þeir stundum andsvör. Ég virði fnunkyæði og frelsi Haskóla Islands - segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra ÁHRIF stefnu ríkisstjórnarinnar á Háskóla íslands voru til umræðu utan dagskrár í gær. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra svar- aði fjórum spumingum sem málshefjandi, Ingibjörg Sólrún Gisladótt- ir (S-Rv), beindi til hans. MMIMSI þessi ræða hans tók. Var það bæði almennt um EES og sértækt um frumvarpið s.s. óhóflegt reglugerð- arvald, „kommissara" í stjórnarráði íslands og í höfuðstöðvum EB í Brussel. Guðmundur Bjarnason (F-Ne), fyrrum heilbrigðisráðherra, ræddi og reifaði ýmis atriði frumvarpsins og spurði eftirmann sinn margs. Guðmundur lýsti sig samþykkan þeirri ákvörðun Sighvatar Björg- vinssonar að nýta ekki „þetta furð- anlega undanþáguákvæði“ um Húsatryggingar Reykjavíkurborg- ar. Hann furðaði sig á því hvernig þetta ákvæði væri til komið; minnt- ist þess ekki að það hefði verið rætt í tíð fyrri ríkisstjómar, það hlyti að hafa komið til síðar. Guðmundur hafði heyrt að fulltrúar Húsatrygg- inga Reykjavíkurborgar væru Málshefjandi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) sagði tilefni þessarar utandagskrárumræðu vera sú „nöturlega staða“ sem upp væri komin við Háskóla íslands vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í flestum málum sem að þeirri stofn- un sneru. Ræðumaður vitnaði til niðurstaðna úr skráningu nýstúd- enta. Konum í hópi nýnema fækk- aði um 30%, körlum um 17%. Ræðu- maður sagði þetta vera beina afleið- ingu af ákvörðunum stjórnarþing- manna; Samþykkt frumvarpsins um Lánasjóð íslenskra námsmanna og 17 þúsund króna innritunargjaldi fyrir veru í HÍ. Ingibjörg Sólrún benti á að nú lægi það fyrir að 150 nemendur hefðu hætt við nám og farið fram á endurgreiðslu, þar af 100 konur. Málshefjandi sagði að framlög til Háskólans hefðu nánast staðið í stað síðustu 5 árin þrátt fyrir fjölg- un nemenda um 20%. Háskólinn gæti ekki veitt þá þjónustu sem honum bæri lögum samkvæmt að veita fyrir það fé sem honum væri skammtað. Ingbjörg Sólrún vildi benda þing- mönnum á að ef fjárframlög til HÍ yrðu ekki hækkuð væri bara þriggja kosta völ. 1) Fella niður nám í ein- stökum deildum eða greinum. 2) Takmarka aðgang nýnema. 3) Hækka innritunargjöld verulega. Ekkert af þessu yrði gert í Háskól- anum heldur á Alþingi. Davíð Oddsson forsætisráðherra Við eigum ekkert erindi í EB að EES-samningnum gerðum DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í þingræðu aðfaranótt fimmtu- dags að hann teldi að gerðust íslendingar ekki aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) myndi þrýstingur á inngöngu í Evrópubanda- lagið (EB) aukast. Forsætisráðherra sagði að að EES-samningnum gerðum ættu íslendingar ekkert erindi í EB. Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni að þegar EES-samningurinn hefði tekið gildi, sæi hann engan ávinning af inngöngu í Evrópu- bandalagið sem réttlætti það að ís- land gengi í bandalagið. Hann sagð- ist ekkert gera með það, sem menn hefðu sagt, að íslendingar ættu fremur að vera í bandalaginu en að gera EES-samning, því að í EB myndu þeir hafa áhrif. Davíð sagð- ist telja þau áhrif afskaplega lítil eðli málsins samkvæmt og að þau væru ekki þess virði að kaupa þau. Ráðherrann sagðist því vera í hjarta sínu „algerlega andvígur“ inngöngu í EB. Davíð sagði að ef og þegar hin EFTA-ríkin gengju í EB, sem margt virtist benda til að þau myndu gera, myndi EES-samningurinn breytast í tvíhliða samning við ísland og end- urskoða yrði stofnanaþætti samn- ingsins. Samningurinn yrði þá tví- hliða samningur, en með öllum þeim ávinningi, sem íslendingar teldu sig hafa af gerð hans. Menntamálaráðherra var krafínn svara við Qórum spurningum. 1) Hvaða skýringar hann teldi á því að konum fækkaði meira en körl- um? Væri það tilviljun eða ætti stefna ríkisstjómarinnar hlut að máli? 2) Hver væri skoðun mennta- málaráðherrans á því að hefja inn- heimtu þjónustugjalda í formi inn- ritunargjalda af námsmönnum á sama tíma og þjónusta við nemend- ur væri skorinn niður? 3) Væri menntamálaráðherra tilbúinn að taka pólitíska ákvörðun um að fella tímabundið niður ákveðnar náms- leiðir eða loka fyrir aðgang nýnema að þeim? 4) Væri ráðherrann þeirr- ar skoðunar að breyta þyrfti lögum um Háskóla íslands í þá vem að heimila aðgangstakmarkanir að deildum skólans? Meiri alvara í námsvali Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra sagði að nokkrar skýringar hefðu verið settar fram á fækkun nýnema. Þórður Kristins- son framkvæmdastjóri kennslusviðs HÍ hefði t.a.m. bent á að betur væri nú vitað um þá sem hættu við nám vegna hinna hækkuðu gjalda; áður hefðu nemendur síður sinnt því að skrá sig úr skólanum ef þeir hættu við nám. Menntamálaráð- herra sagði að varpa mætti þeirri spurningu fram hvort hækkun inn- ritunargjalda hafi orðið til þess að ungt fólk gerði upp hug sinn af meiri alvöru en áður varðandi náms- val. Menntamálaráðherra sagði einn- ig að framkvæmdastjóri kennslu- sviðsins hefði einnig bent á niður- skurð í heilbrigðisþjónustunni og hækkun dagvistargjalda fyrir börn námsmanna sem hugsanlega or- sakavalda. Ráðherra vildi ekki leggja neinn dóm á það hvort pær skýringar væru fullnægjandi. Vonbrigði ráðherra Spurningu málsheQanda um þjónustgjöld svaraði menntamála- ráðherra á þann veg að kjarni máls- in's væri sá að þjónustugjöld væru lögð á til þess að mæta skertum framlögum ríkisins, til þess að sem minnst þyrfti að draga úr þjónustu. Ráðherra sagði það vera stefnu ríkisstjórnarinnar að virða sjálf- stæði HÍ. Fjárveitingar til Háskól- ans hefðu áður verið bundnar við einstaka þætti í starfsemi hans. Nú hefði sú breyting verið gerð að skólinn fengi ákveðna rammafj- árveitingu og þar með mun meira .. frelsi til að skipuleggja sitt innra starf. Háskólinn hefði því svigrúm til þess að færa Ijármagn milli greina og deilda eftir þeirri for- gangsröð sem hann sjálfur ákvæði. Frumkvæði í þeim efnum ætti að vera hjá Háskólanum sjálfum. Það hafði valdið menntamálaráð- herra nokkrum vonbrigðum að lengst hefur gengið erfiðlega að fá fram ákvörðun Háskólans um for- gangsröð verkefna vegna skertra ijárframlaga. Menntamálaráðherra sagði að nú kreppti að og Háskólan- inn yrði að draga úr útgjöldum um 4% eins aðrar ríkisstofnanir. „Sömu kröfur eru gerðar til Háskólans um frumkvæði, frelsi og ábyrgð á sam- dráttartímum sem á uppgangstím- um.“ Ráðherra taldi ólíklegt að Háskólinn væri reiðubúinn til að afsala sér frelsi og frumkvæði en ef s^ö ólíklega vildi til þá hlyti hann að hlusta á slíkar óskir. Fjórðu spurningu Ingibjargar Sólrúnar varðandi fjöldatakmark- anir var svarað: „Telji Háskólinn sig þurfa á slíkum heimildum að halda mun ég hiklaust beita mér fyrir því að hann fái slíkar heimild- ir.“ Menntamálaráðherra vildi í lok sinnar ræðu benta á, að Háskólinn mæti það svo að hann þyrti 129 milljónir króna til viðbótar ef rekst- ur ætti að vera með sama hætti og árið 1991. Þá væri miðað við nem- endafjöldann 5.500. Núna væri hann hins vegar um 5.000 og þann- ig í samræmi við forsendur fjárlaga í ár. Aukin fjárþörf Háskólans hefði fyrst og fremst verið talin stafa af fjölgun nemenda. Menntamálaráð- herra sagði það skiljanlegt að fjölg- un nemenda leiddi til aukins kostn- aðar, en hitt væri erfíðara að skilja að fækkun nemenda við skólann leiddi ekki til minni íjárþarfar. Þingmönnum stjómarandstöðu þóttu ekki mikið tií um ræðu og svör menntamálaráðherra og þá síður um sparnaðarstefnu ríki- stjórnarinnar. T.d. notaði Stein- grímur J. Sigfússon (Ab-Ne) orðin, „skemmdarverk og niðurrif". Krist- ín Ástgeirsdóttir (SK-Rv) óttaðist, „Vesöld á varanlegum grunni“. Þingmenn í stjómarliði lögðu hins vegar áherslu á að Háskólinn hlyti' að deila erfiðum kjörum með þjóð- inni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.