Morgunblaðið - 12.09.1992, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) (Hfc
Komandi mánuðir fela í sér
miklar breytingar heima
fyrir. í kvöld skaltu varast
að lenda í deilum við ætt-
ingja.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Nú hefst tímabil sem hentar
til ferðalaga eða listsköpun-
ar. Skemmtanalífið heillar,
en varastu að ganga of
langt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér hættir til að eyða of
miklu í skemmtanir í dag.
Nýjar leiðir opnast til að
auka tekjumar í dag og á
komandi mánuðum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlO
Ekki þröngva skoðunum
þínum upp á aðra. Þér hætt-
ir til að taka of sterkt til
orða. Láttu slúðursögur sem
vind um eyru þjóta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að nota komandi
vikur til að ljúka áríðandi
verkefni. Farðu varlega með
peninga og láttu örlætið
ekki keyra úr hófí.
Meyja
(23. ágúst - 22. septembcr) j&t
Leggðu þig fram við að efna
loforð sem þú gefur ein-
hverjum nánum í dag. Vinur
getur verið eitthvað afund-
inn í kvöld.
(23. sept. - 22. október) iH
Starfsorkan er mikil um
þessar mundir, en gerðu
ekki of mikið úr smá ágrein-
ingi við yfirmann. Tíminn
vinnur með þér.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þótt þú skiljir báðar hliðar
á deilumáli gengur ekki vel
að leysa það. En samkvæm-
islífið er líflegt í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Ferðalög og rómantík ráða
ríkjum í dag. En á komandi
vikum þarft þú að skapa þér
fjárhagslegt öryggi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Ferðalangar eiga það til að
vera dálítið eyðslusamir í
dag. Láttu ekki smá ágrein-
ing spilla sátt og samlyndi
í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér verða falin ný og áhuga-
verð verkefni eftir helgina.
í kvöld er þér eða þeim sem
þér er kær hætt við eyðslu-
semi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Skemmtilegir dagar fara í
hönd. Þú og félagi þinn eða
maki ættuð samt að reyna
að gæta hófs í skemmtana-
lífinu.
Stjömusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra stadreynda.
DÝRAGLENS
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
Aftur steiktir grænir tómatar?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Austur opnar á 2 hjörtum,
Flannery, sem sýnir 5-4 í hjarta
og spaða og 11-16 punkta. Tvö
pöss og norður á að segja með
þessi spil. Enginn á hættu:
Norður
♦ KG10753
¥-
♦ KG1053
♦ K6
Vestur Norður Austur Suður
Þessi vandi blasti við Michel
Perron í næstsíðustu lotu úrslita-
leiks Frakka og Bandaríkja-
manna á Ólympíumótinu í Salso-
maggiore. Hann doblaði og datt
heldur betur í lukkupottinn:
Norður
♦ KG10753
¥-
♦ KG1053
♦ K6
Austur
.. ♦D862
II V AK632
♦ D8
♦ G98532 ♦ D4
Suður
♦ Á
¥ DG8754
♦ 972
♦ Á107
Paul Chemla í suður var dobl-
inu feginn og passaði. Bob Ham-
man í vestur sá ekki ástæðu til
að breyta í 3 iauf með ás, 109
í trompi og tvíspil til hliðar. Það
hefði þó reynst betur, því Bobby
Wolff fékk einungis 3 slagi —
ÁK í trompi og tígulás!
Chemla kom út með spaðaás
og skipti yfír hjartadrottningu.
Vömin var nákvæm í framhald-
inu og Bandaríkjamenn urðu að
skrá 1.100 í dálk Frakkanna. Á
hinu borðinu fóru Meckstroth
og Rodwell einn niður í 4 spöð-
um, svo Frakkar græddu 15
IMPa á spilinu.
Vestur
♦ 94
¥109
♦ Á64
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hraðmóti í Gausdal í Noregi
í ágúst kom þessi staða upp í við-
ureign þeirra Smára Ólafssonar
(1.870), Akureyri, sem hafði hvítt
og átti leik, og Francois Brac-
onniers frá Frakklandi. Svartur
lék síðast 30. — 4d-d3? og hótaði
máti, en hvítur varð á undan:
31. Hh7+! og svartur gafst upp,
því eftir 31. - Rxh7 32. Dg8+ -
Hxg8 33. Hxg8 er hann mát.
Um helgina: Taflfélagið Hellir
og Skákfélag Hafnarfjarðar halda
opið mót í atskák (hálftímaskákir)
um helgina í Gerðubergi í Breið-
holti. Taflið hefst kl. 13 bæði á
laugardag og sunnudag.
„Startmót“ Skákfélags Akur-
eyrar, sem er hraðskákmót, verð-
ur haldið í félagsheimili SA, Þing-
vallastræti 18, Akureyri, sunnu-
daginn 13. september kl. 14.
Opið hús í Faxafeni 12, Reykja-
vík, frá kl. 15 bæði á laugardag
og sunnudag. Þar er fylgst með
sjöundu og áttundu skákum Fisch-
ers og Spasskís um leið og þær
eru tefldar.