Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 45

Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 45 X n w 4 mg - É /17w/ * m á m á á W; H m w §§ 7/&r Wá Wr fl M w & A A w A M % H' M & w á AÐALSAFNAÐARFUNDUR DIGRANESSÓKNAR verður haldinn í íþróttahúsinu Digranesi, þriðjudag- inn 15. september 1992, og hefst klukkan 20:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kirkjubyggingarmálið. Önnur mál. Rétt til fundarsetu hefur allt safnaðarfólk, 16 ára og eldra. Hafíð persónuskilríki meðferðis. Sóknarnefndin. Mikið fer til spillis Frá Árna Helgasyni: í Jóhannesarguðspjalli er rætt um þegar Jesús mettaði 5.000 manns, eitt af þeim kraftaverkum sem hann gjörði hér á jörð. í öllum 4 guðspjöllunum er rætt um þennan atburð, svo ekki fer á milli mála að hann hefir vakið alveg geysilega athygli bæði meðal fólksins og postula Jesú. En í Jóhannesarguð- spjalli er þessi atburður ítarlegri, því þar segir Jesús: Safnið saman leifunum, því ég vil að ekkert fari til spillis. Þessi orð sækja ríkt á huga minn í dag þegar ég sé hvernig við íslend- ingar högum okkur með allar þær gjafir sem guð gefur okkur. Þegar ég sé allt þetta sem er hent á haug- ana, allar þessar einnota umbúðir, sem svo menga andrúmsloftið og eru því til spillingar, hversu sóunin er geigvænleg á öllum hlutum. Sú hugsun verður því ávallt ásæknari með hverjum degi: Hvað skyldu margir milljarðar fara í súginn og til spillis í okkar litla þjóðfélagi á hveiju ári? Við tölum um halla í rekstri bæði ríkissjóðs og fyrir- tækja, sem vissulega er rétt, en hins vegar reynum við að fara fram- hjá því af hveiju hann stafi, og hvernig sú nauðsyn að safna saman og forðast allt sem fer til spillis í okkar þjóðlífi. Hvers vegna ekki að nema staðar og skoða hvaða þátt þjóðin sjálf á i því sukki og eyðslu sem nú sýkir allt okkar athafnalíf, þetta að hversu gífurlega við hend- um á glæ öllum þeim verðmætum, sem okkur finnast lítil en vitum þó af göngu okkar gegnum hið dag- Fjárstuðn- ingnr við ól- ympíufara Frá Camillu Hallgrímsson: Margir hafa haft samband við skrif- stofu Iþróttasambands fatlaðra og spurt hvernig megi styrkja ólymp- íufarana okkar. Þar sem fastir starfsmenn skrifstofunnar eru nú í Barcelona hefur ekki alltaf verið fólk í stað þeirra til að svara þessum fyrirspurnum. íþróttasamband fatlaðra hefur bankareikning sem leggja má inn á framlög til íþróttamannanna. Þetta er tékkareikningur nr. 6455 við aðalbanka Búnaðarbankans: 301-26-6455. CAMILLA HALLGRÍMSSON varaformaður íþróttasambands fatlaðra lega líf að margt smátt gerir eitt stórt. Hvað skyldi vera hægt að gera marga hluti fyrir það sem hent er og eins hvað eru mörg verðmæti í þessum einnota umbúðum, sem vetja mætti til uppbyggingar í okk- ar þjóð- og atvinnulífi? Ef við áttum okkur ekki á þessu og bætum úr í tíma, getur vel svo farið að við þurfum að fá tilsögn frá NEYÐINNI, hvort sem okkur likar það betur eða verr. Við vitum að jörðin er gjöful, en svo má blóð- mjólka að lítið verði eftir handa þeim sem á eftir okkur koma, en þrátt fyrir öll þessi stríð og mann- dráp fjölgar fólki á jörðinni sem heimtai: sinn mat og engar refjar. En við höldum áfram á eyðslu- brautinni, trúandi því að enn sé öllu óhætt. RÍKIÐ á að sjá fyrir okkur en við ekki fyrir því. Jón Þorláksson, sá framsýni og stórkostlegi maður, sagði einu sinni svo ég heyrði, við skulum fyrst og fremst hugsa um að okkar sameig- inlegi sjóður, ríkissjóður, verði okk- ur sterkur varasjóður. Þá verða áföll komandi tíma okkur léttari, eða eitthvað á þessa leið. Hann vissi að þetta sífellda „ÉG“ þar sem menn sjá ekkert annað en sjálfa sig Pennavinir Einhleypur bandarískur karlmað- ur sem getur ekki um aldur en vill komast í samband við 25-33 ára konur: John Lerro, 2440 Merwood Lane, Havertown, PA 19083, U.S.A. Nítján ára Nígeríupiltur með áhuga á bókalestri, ferðalögum og tónlist: Douglas Obi, 42 Bale Street, OIodi-Apapa, Lagos, Nigeria. LEIÐRÉTTING Hækkun á Ijaldferðum í GREIN Magnúsar Oddssonar, Ferðamál á föstudegi, í blaðinu í gær varð meinleg prentvilla í töflu um prósentuhækkanir á tjaldferð- um til íslands. Raunhækkun á tjald- ferð frá Þýskalandi er 15% en ekki 1,5 og frá Bretlandi 13% en ekki 1,3%. Þetta leiðréttist hér með. og gleyma náunga sínum myndi aldrei verða neitt réttlæti í þessu blessaða landi. Er ekki kominn tími til að „safna saman leifunum svo ekkert fari til spillis" í okkar þjóðfélagi, sem sagt að fara vel með hlutina, nýta sem mest og henda ekki svona miklu á haugana eða út í buskann. Myndi þá ekki mengunin minnka, bæði þessi veraldlega og hugarfarsins? ÁRNI HELGASON, Neskinn 2, Stykkishólmi. Innanhússarkitekt ráðleggur viðskiptavinum Metró Atbs INNRÉTTINGAR Guðrún Benediktsdóttir innanhússarkitekt, FHÍ, ráðleggur um val á KAM- innréttingum í versluninni Metró fimmtudag og föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14. í hinni glæsilegu KAM-línu eru eldhúsinnréttingar, baðherbergisinnréttingar og fataskápar. Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf. ifiVMETRO I MJODD ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050 4 UTSOLUMÁRKAÐURINN A 3. HÆÐ I KRINGLUNNI Bamasportskór frá689,- 4glösíkassaá499,- Borðmottur á 299,- Murniþurrkur á 199,- Sk\rtur frá689,- Herrabuxur frá 1.995,- HAGKAUP Kringluntti 3■ hœö

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.