Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 15
O R A F f T
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
Tröllakirkja er eina
skáldsagan sem
tilnefnd er til
íslensku bókmennta-
verðlaunanna.
„Atburðarásin er hröð og spennandi.
Stíll Olafs er með öllu laus við þá
tilgerð sem allt of margir íslenskir
rithöfundar tileinka sér og gera bækur
sínar þar með tyrfnar og lítt
skiljanlegar ...Söguþráðurinn er
óvæntur og óhefðbundinn,
sannarlega spennandi frásögn og
fpllega unnin ..."
Jón Birgir Péturssan
í Alþý&ublaóinu
„I Tröllakirkju tekst Olafi Gunnarssyni
að flétta alla þessa þætti saman í stíl
sem bæði býr yfir nákvæmni og
spennu, hugmyndaauðgi og ögun,
sem gerir það að verkum að lesandi
getur notið frásagnarinnar á mörgum
plönum samtímis. Sagan er í serin
vitsmunalegt áreiti og hin besta
skemmtun ... Olafur Gunnarsson
skilar ákaflega góðu skáldverki til
lesenda."
Gunnlaugur Astgeirsson
í Rikisútvarpinu
„Tröllakirkja er einlæg bók,
skemmtileg og spennandi. Hún lýsir
jafnframt angist aðalpersónu sinnar
og sívaxandi geðbilun á afar
nærfærinn hátt... Persónusköpun
Sigurbjarnar hlýtur að teljast helsta
afrek bókarinnar sem er látin gerast
fyrir um 40 árum en gæti eins átt við
okkar daga og þau siðblindu
athafnaskáld sem gera okkur lífið leitt
með stórhug og gjaldþrotum allra í
kringum sig."
Gísli Sigurósson i DV
4>
FORLAGIÐ
tAUGAVEGI 18
SÍMI 2 51 88