Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
31
EVROPSKA VINNUVERNDARARIÐ
Áhrif efna í vinnuumhverfi
eftir Egil Einarsson
Inngangur
Alls konar efni og efnasambönd
eru notuð í miklum mæli í nútíma-
samfélagi. Fjöldi þeirra er trúlega
mestur í • iðnaðarframleiðslu alls
konar en einnig er mikil notkun
ýmissa efna í landbúnaði, garðyrkju
og í lyfjaiðnaði. Áætlaður fjöldi til-
búinna efnasambanda í heiminum
í dag er um 50 þúsund. Flest þess-
ara efna eru skaðlaus eða skaðlítil
heilsu manna en það á þó ekki við
um þau öll.
Rannsóknir á eiturvirkni efna
Mikilvægar upplýsingar á þessu
sviði fást úr dýratilraunum, og eru
notaðar mest mýs og rottur til
þeirra rannsókna. Fundið er það
magn efnisins sem veldur dauða
50% tilraunadýra ef efnið er annars
vegar gefið inn með fæðu (LD50)
eða því andað inn (LC60). Einnig
eru sum efnin borin á húð dýra til
að kanna ofnæmisviðbrögð.
Ekki er þó eingöngu verið að
kanna líkur á að efnið valdi dauða
heldur einnig áhrif á ýmis líffæri,
t.d. lifur, nýru, hjarta, heila og á
æxlun. Dýratilraunir skapa nauð-
synlegan grundvöll til þess að meta
hugsanleg áhrif efna á menn og
einnig þegar settar eru reglur til
um magn efnanna í umhverfí
mannsins.
Krabbameinsvaldandi efni
Ekki er beint samband á milli
krabbameins í dýrum og í mönnum.
Rannsóknir á krabbameini i dýrum
eru þó mikilvægur þáttur í að afla
upplýsinga um einstök efni. Einnig
er byggt á faraldsfræðilegum rann-
sóknum þegar meta á líkur á
krabbameini af völdum efna.
Dæmi um efni sem sýnt hefur
verið fram á að valdi krabbameini
í mönnum með faraldsfræðilegum
rannsóknum eru asbest, vinýlklóríð
og bensen en þetta eru allt efni sem
notuð hafa verið í miklum magni í
iðnaði. Aðalvandkvæði þess að meta
krabbameinsvirkni efna á menn er
langur huliðstími (tíminn frá því
að notkun efnis hefst og þar til sjúk-
dómseinkenni koma fram) sem get-
ur verið 10-30 ár.
Efni sem hafa áhrif á æxlun
Áhrif þessi geta verið tvenns
konar:
a. Áhrif á fullorðinn einstaklings
sem koma fram í breytingum á
egg- og sæðisfrumum, ófrjósemi og
breytingum á hormónastarfsemi.
Efnin geta valdið stökkbreytingum
á kynfrumum og eru þetta í mörg-
um tilfellum sömu efnin og eru
krabbameinsvaldandi.
b. Áhrif eiturefna á vaxtarskeiði
sem geta valdið breytingum á vexti,
þroska og eðlilegri líkamsstarfsemi
milli getnaðar og kynþroskaskeiðs.
Þau geta leitt til dauða fósturs,
vansköpunar, seinkunar vaxtar og
galla í líkamsstarfsemi.
Dæmi um efni sem finnast í
umhverfínu og talin eru hafa áhrif
á æxlun hjá konum eru svæfíng-
argös (eingöngu við störf), bensen,
lífrænt og ólífrænt blý, PCB og
metýl kvikasilfur.
Ofnæmisvaldandi efni
Snertiofnæmi er einn algengasti
atvinnusjúkdómur af völdum efna.
Eftir að ofnæmi hefur myndast hjá
einstaklingi þarf mjög lítið magn
af efninu til þess að framkalla of-
næmisviðbrögð. Tíminn sem líður
frá snertingu við efnið þar til of-
næmi kemur fram er mislangur.
Ofnæmi af völdum króms í sementi
kemur t.d. fýrst fram eftir 10-30
ára vinnu með efnið. Önnur efni
geta framkallað ofnæmi eftir eitt
skipti eða fáein.
Dæmi um efni sem notuð eru í
iðnaði í dag og geta valdið ofnæmi
Egill Einarsson
eru akrýlöt og epoxí sem notuð eru
t.d. í málningu. Nikkel sem notað
er í skartgripi veldur snertiofnæmi
og formaeldhýð sem mjög víða er
notað t.d. í límum og lökkum og
getur valdið ofnæmi bæði á húð og
í öndunarfærum.
Önnur áhrif
Sem dæmi má nefna skaðleg
áhrif lífrænna leysiefna. Svipað og
alkóhól hafa þau deyfandi áhrif og
geta valdið vímu séu þau í nægilegu
magni. Þetta er t.d. þekkt af „sniffi"
þar sem verið er viljandi að sækjast
eftir þessum áhrifum. En þessu
fýlgja önnur áhrif eins og svimi,
höfuðverkur, þreyta og ógleði. Þessi
áhrif hverfa þó yfirleitt fljótt sé
farið út í hreint loft. En við mikla
og langvarandi notkun lífrænna
leysiefna geta komið fram óbætan-
legar skemmdir á miðtaugakerfið,
þ.e. heila og mænu. Þessi áhrif lýsa
sér sem minnisleysi, sljóleiki, þreyta
og erfiðleikar með einbeitingu.
Reglur um mengunarmörk
Til þess að fyrirbyggja heilsutjón
af völdum efna hafa verið settar
reglur um mengunarmörk. Meng-
unarmörk segja til um leyfilega
hámarksmengun í andrúmslofti
starfsmanna og eru þau sett fyrir
öll algengustu efni sem notuð eru
í iðnaði. Þau eru skilgreind þannig
að starfsmaður geti unnið 8 stunda
vinnudag heila starfsævi án þess
að bíða varanlegt heilsutjón af ef
mengun af viðkomandi efni er ekki
yfir mengunarmörkum. í reglum
um mengunarmörk er einnig tekið
fram hvort efnið er ofnæmisvatd-
andi eða krabbameinsvaldandi.
Mengunarmörk eru í stöðugri
endurskoðun eftir því sem þekkingu
manna á áhrifum efnanna fleygir
fram og eru breytingar oftast í átt
til lækkunar. Sem dæmi má nefna
að mengunarmörk fyrir perklóretý-
len (notað við fatahreinsun) voru
30 ppm (ppm=milljónustu hlutar
af andrúmslofti) á Íslandi árið 1978
en eru nú í 20 ppm. í Danmörku
hefur verið gengið enn lengra og
efnið verið sett á skrá yfir krabba-
meinsvaldandi efni.
Eftirlit með mengun
og efnanotkun
Vinnueftirlit ríkisins fylgist með
því að reglum um mengunarmörk
sé framfylgt. Farið er reglulega á
vinnustaði þar sem notuð eru efni
sem hættuleg eru heilsu manna og
tekin sýni af andrúmslofti starfs-
manna yfir heilan vinnudag. Dæmi
um slíka vinnustaði eru fyrirtæki
þar sem unnið er með lífræn leysi-
efni og stóriðjufyrirtæki. Ef meng-
un mælist yfir mörkum eru gerðar
kröfur um lagfæringar, sem geta
falist í notkun hættuminni efna,
bættri loftræstingu eða notkun önd-
unargríma og annars hlífðarbúnað-
ar. Síðastnefnda atriði er þó talið
neyðarráðstöfun ef ekki er hægt
að nota önnur úrræði.
Einnig er fylgst með reglum um
merkingar, flutning og meðhöndlun
hættulegra efna á vinnustöðum sé
framfylgt. Vinnueftirlit ríkisins
fylgist með að ekki séu flutt til
landsins efni sem bönnuð eru nema
undanþágur liggi fyrir og nauðsyn-
legra varúðarráðstafana sé gætt.
Höfundur er efnaverkfræðingur
og starfar hjá Vinnueftirliti
rúdsins.
'eijoð
í tilefni af 50 óra afmæli fyrir-
tækisins bjóðum við
vörur ó afmælistilboði út þessa viku.
NÝBÝLAVEGUR 12,
sími 44433.
Honda Civic '88, hvit, sj.sk. 55 þ.km,
4 dyr., forláta Honda, kr. 620 þ.
Chrysler Le Baron '88, rauður, 4. dyr.,
sjálfsk., o.fl. 34 þ.m. Góður bíll frá
USA. Skipti og skuldab. kr. 880 þ.
Volvo 240 DL 87, gullbr., 28 þ.km,
aðeins. Bíll til eignar. Kr. 650 þ.
Fiat Uno 45-S 88, 5 dyr., rauður, 49
þ.km, kr. 270 þ.
Peugeot 205 XL 88, hvitur, 69 þ.km,
320 þ.
Subaru Justy 4x4 '88, hvítur, 4 dyr.,
61 þ.km, kr. 400 þ.
MMC Colt EXE '87, hvítur, 56 þ.km,
kr. 390 þ.
MMC Galant 1600 '87, hv. 4 dyr., 87
þ.km, kr. 420 þ.
Monza SLE 2000 '88, rauð, sj.sk. o.fl.
50 þ.km, aðeins, 4 dyr. Dömubíll frá
upph. Góður gripur, kr. 520 þ.
Mazda 323 '85, rauð, 4 dyr., kr. 290 þ.
Colt GLX '86, blá, 4 dyr., 90 þ.km, kr.
320 þ.
Corolla 86, rauð, 114 þ.km, kr. 300 þ.
Citroén AX 14 TRX '88, svartur, 81
þ.km, kr. 300 þ.
Daihatsu Charade TX 88, blár, 73 þ.km,
kr. 350 þ.
Citroen BX Leader '86, grár, 66 þ.km,
kr. 360 þ.
Daihatsu Cuore '87, 4x4, blár, 68
þ.km, frábær snjóbill, kr. 275 þ.
Nissan Migra '87, svört, 89 þ.km, kr.
240 þ.
Maxda 626 '86 2000, GLX, st.grá,
toppl., sjálfsk., v + s dekk, fordekraður,
skuldabréf æskil. kr. 460 þ.
Colt EXE '87, rauður, 67 þ.km, kr. 395
Þ.
Toyota Tercel station '87, grænn, 71
þ.km, v + s dekk, einn eig. kr. 620 þ.
Mazda 626 GLX 2000, '85, blá, 4 dyr.,
kr. 290 þ.
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til,
allir kaupa eitthvað fallegt,
í það minnsta bíl og spil.
ÞJÓÐMÁL
50 ára lýðveldi 1994
Þá verða og 90 ár frá heimastjórn, þ.e. stofnun Stjórn-
arráðs Islands, o g 120 ár frá endurreisn Alþingis sem
löggjafarþings og samþykktar fyrstu fjárlaganna
SUMARIÐ 1994 verða 50 ár lið-
in frá stofnun islenzka lýðveld-
isins. Ríkisstjórnin hefur flutt
þingsályktunartillögu um und-
irbúning að hálfrar aldar af-
mæli lýðveldisins það ár. Skal
hver þingflokkur tilnefna einn
fulltrúa til setu í nefnd er gera
á tillögur um hátiðarhaldið.
Forsætisráðherra skipar for-
mann nefndarinnar, án tilnefn-
ingar.
I
Þijú ártöl eru öðrum minnis-
stæðari úr fullveldisbaráttu þjóð-
arinnar: 1904, 1918 og 1944.
Árið 1904 er tengt merkum
áfanga í fullveldisbaráttunni,
heimastjórn, en það ár var stofn-
sett innlent ráðherraembætti,
samkvæmt stjórnarskrárbreyt-
ingu samþykktri á Alþingi 1902
og 1903. Þá vóru embætti lands-
höfðingja í Reykjavík og ráðu-
neyti Islandsráðgjafa í Kaup-
mannahöfn lögð niður en við tók
Stjórnarráð íslands.
Fyrsti ráðherrann var Hannes
Hafstein, sem sat frá 1. febrúar
1904 til 31. marz 1909. Þessu
embætti gegndu síðan: Bjöm
Jónsson 1909-11, Kristján Jóns-
son 1911-12, Hannes Hafstein
aftur 1912-14, Sigurður Eggertz
1914- 15 og Einar Amórsson
1915- 17.
Fyrsta íslenzka ráðuneytið var
síðan skipað 4. janúar 1917: Jón
Magnússon forsætisráðherra,
Björn Kristjánsson fjármálaráð-
herra og Sigurður Jónsson at-
vinnumálaráðherra.
Árið 1994 verða 90 ár liðin frá
stofnun Stjómarráðs íslands og
embættis fyrsta íslenzka ráðherr-
ans.
II
Nokkurt los var komið á tengsl
íslands og Danmerkur í fyrri
heimsstyijöldinni, 1914-18. Hug-
myndir um sjálfsákvörðunarrétt
þjóða og þjóðarbrota fengu ríkari
hljómgrunn en áður. Danir hugðu
á endurheimt Slésvíkur, sem þeir
töpuðu til Þjóðveija 1864, og juku
þau áform trúlega á skilning
þeirra á sjálfstæðiskröfum íslend-
inga.
Tilraun með „uppkastinu 1908“
til að koma viðunandi skipan á
réttarsamband Íslands og Dan-
merkur fór út um þúfur. Áfram
var samt sem áður unnið að settu
marki. Löggiltur heimafáni fékkst
um leið og breytingar vóm gerðar
á stjómarskrá 1915. Fullveldis-
sigur vannst loks 1. desember
1918 er ísland varð fijálst og
fullvalda ríki. Danir fóm þó áfram
með íslenzk utanríkismál í okkar
umboði, unz tengsl slitnuðu milli
landanna við hernám Danmerkur
í síðari heimsstyijöldinni, og við
deildum þjóðhöfðingja/konungi
með þeim þar til embætti ríkis-
stjóra var stofnsett 1941. Fyrsti
og eini ríkisstjóri landsins og síðan
fyrsti forseti lýðveldisins, þegar
það var stofnað, var Sveinn
Björnsson, fyrrv. sendiherra f
Danmörku og ráðunautur ríkis-
stjórnar um utanríkismál.
Á næsta ári, 1993, em því 75
ár frá því að Island varð fijálst
og fullvalda ríki.
III
Þjóðaratkvæði um uppsögn
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
sambandslaga við Dani og stofn-
un Lýðveldisins Íslands fór fram
20.-23. maí 1944. Sambandsslit-
in vóm samþykkt með 98,61%
atkvæða og lýðveldisstofnunin
með 95,04% atkvæða. Alþingi
staðfesti síðan einróma uppsögn
sambandslaga og lýðveldisstofnun
á Þingvöllum 17. júní 1944. Þar
og þá var og fyrsti forseti lýðveld-
isins kjörinn, Sveinn Björnsson.
Sú þingsályktunartillaga, sem
greint er frá í upphafi þessa grein-
arkoms, gerir ráð fyrir skipan
nefndar til að gera tillögur um
hvernig fagna skuli hálfrar aldar
afmæli þessa merka atburðar í
þjóðarsögunni, ákvörðunar þings
og þjóðar um stofnun Lýðveldisins
íslands.
Árið 1994 verður mikið afmæl-
isár hjá íslendingum. Þeir fagna
þá fimmtíu ára afmæli lýðveldis-
ins. En fleira kemur til. Þá verða
og 90 ár liðin fram heimastjóm,
er Stjórnarráð íslands tók við af
landshöfðingja hér og íslandsráð-
gjafa í Kaupmannahöfn, og emb-
ættistöku fyrsta íslenzka ráðherr-
ans. Að auki vill svo til að á árinu
1994 eru 120 ár frá því Alþingi
var endurreist sem löggjafarþing,
1874. Það ár fékk Alþingi löggjaf-
arvald í íslenzkum sérmálum
ásamt konungi og fjárveitinga-
vald með stofnun sérstaks lands-
sjóðs. Það ár samþykkti Alþingi
fyrstu fjárlögin, fjárlög áranna
1975 og 1976, en fjárlög giltu
framan af fyrir tvö almanaksár í
senn.
Lada 1500 station '89, blár, 44 þ.km
aðeins, kr. 290 þ.
Lada 1200 '87, hvít, 40 þ.km, kr. 120 þ.
Lada 1500 st. '90, hvít, 40 þ.km, kr.
300 þ.
Nissan Laurel '81, 2,4 I., grænn, kr.
120 þ.
Saab 81 turbó, 4 dyr, vökv.st. o.fl., kr.
250 þ.
Volvo 244 '79, blár, kr. 150 þ.
Toyota Tercel '80, ný v.dekk, f. sum-
ard. Gæðavagn. Kr. 120 þ.
Maliþu '79, tvíl., grænn, einn eig. Kr.
190 þ.
wtjwn a£ta lib
Isuzu Trooper '90, 6 cyl., sjálfsk., rauð-
ur, 31 þ.km, v + s dekk. kr. 1.850 þ.
Nissan Vanetta '92, rauö, 18 þ.km, nýr
vagn, kr. 975 þ. m/vsk.
Isuzu Trooper, dísil '82, hvítur, 110
þ.km, mælir. kr. 350 þ.
Bronco XLT '85 (sá stóri), blár-hvítur,
Windsor 351, m/kapteinsstólum og öll-
um búnaði, 88 þ.km, Sá albesti. kr.
1.100 þ.
Blazer S-10 Tahoe '83, grár, upph.
dekk 32“ brettak., beinsk. Kr. 890 þ.
Daihatsu Rocky 85, rauður, 99 þ.km,
ný dekk, skoðum skipti og bréf. kr. 690
Þ.
MMC L-300 '87, 6 sæti, hvítur, 87
þ.km, Kr. 520 þ.
Suzuki Fox 413-3X, grár, 75 þ.km, kr.
520 þ.
Allir bílarnir á staðnum. Getum
endalaust bætt við bilum á
stærsta sölusvæði borgarinnar.
. VIÐ HÖFUM SELT BÍLA FRÁ UPPHAFI
v/Miklatorg, s. 15014 og 17171.
Meísölublad á hverjum degi!