Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 38

Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 PP í*r>ot o .qTTrurTnvnmn/r mru TqT/nngnT/ félk í fréttum UTG AFU STARFSEMI Það sem við þorum ekki að sýna ættingjunum Hin góðkunna hljómsveit Sykur- molamir hefur staðið í ströngu að undanfömu. Skemmst er að minnast hljómleikaferðalags Molanna um Bandaríkin með hinni jafnvel enn-víðfrægari sveit U2 og er velgengninni nú fyigt eftir með útgáfu tveggja myndbanda sem að sögn hafa að geyma senur sem Molamir hafa ekki enn þorað að sýna nánustu ættingjum. „Annað myndbandið er um tónleikaferðina með U2, en hitt er einskonar íjöl- skyldumyndband, tekið upp af tveimur aðdáenda okkar, þeim Mike og James, og þykir eitt af þeim bestu sem tekin hafa verið af okk- ur,“ sagði Einar Öm Benediktsson, Sykurmoli. „Þar er meðal annars að finna atriði sem við höfum ekki þorað að sýna ættingjum okkar hingað til.“ Auk þessarar myndbandaútgáfu Smekkleysu s.m. hf., hefur Öm og Örlygur gefið út bók um Sykurmol- ana eftir Áma Matthíasson. Fjöldi Sigtryggur og Árni skoða bók. Á milli þeirra má sjá Gunnar „Dr. Gunna“ Hjálmarsson. VEUIÐ ÞAÐ BESTA VEUIÐl fö Ifö HREINLÆTISTÆKI - SÆNSK GA iÐ, AVARA FASTI BYGGINGAVORU- VERSLUNUM UM LAND ALLT. gesta var á kynningu útgáfanna í kjallara Bíóbarsins á föstudag. Einar Örn Sykurmoli og mynd- bandið ógurlega. SUNDRUNG „Stærsta“ skilnaðarmál Hollywood í uppsig’lingn Einu af stormasamari hjónabönd- um fræga fólksins fyrir vestan haf er nú að ljúka, en leikkonan Tatum O’Neil hefur krafist skilnaðar frá hinum geðstirða.eiginmanni sín- um, tenniskappanum John McEnroe. Míðað við þær sögusagnir sem geng- ið hafa um handalögmál og glímutök þau sem notuð hafa verið til að útkljá deilumál á þeim bæ er með ólíkindum talið hvað sambandið hefur staðið lengj, eða í sjö ár. Samán eiga þau Tatum og John þijú börn, sex, fimm og eins árs. Tatum lagði leikferilinn til hliðar er hún giftist McEnroe, en hún var aðeins 11 ára gömul er hún sannaði rækilega hvers hún er megnug á hvíta tjaldinu með leik sínum í kvik- myndinni „Paper Moon“, en fyrir vikið fékk hún Óskarsverðlaun. Kvik- myndaframleiðendur hafa ætið fylgst vel með henni og boðið henni hlutverk af og til, en hún hefur ekki talið tímabært að slá til fyrr en nú. McEnroe varð æfur af reiði er frú- in tilkynnti honum að hún ætlaði að snúa sér að kvikmyndaleik á ný, sagði hana hafa í nógu að snúast í — Tatum O’Neil og John McEnroe. eldhúsinu og við bamauppeldi, að hann talaði nú ekki um hvað það væri sér mikilvægt að hún ferðaðist með sér um allan heim á tennismótin. Nú er hagstætt verð á íslenskum æðardún. Hann er fáanlegur hjá framleiðendum, útflytjendum og sængurfataverslunum. Dúnsæng er vegleg jólagjöf - Veljum islenskt. Æðarræktarfélag íslands. LAUFIÐ Frönsku vinsœlu stretsbuxurnar komnar aftur - stceröir 38-50 LAUFIÐ, Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1, sími 11845. Áður en McEnroe vissi af var frú- in þó flogin með börnin, búin að skrifa undir samning við kvikmynda- framleiðanda og búin að ráða tvo af snjöllustu skilnaðarlögfræðingum Hollywoodborgar. McEnroe má muna sinn fífil fegri sem tennis- kappi, en er þó enn snjall og vinnur mót af og til. Á árum áður var hann þó engum líkur og sópaði til sín stærstu titlunum og þeim fúlgum sem þeim fylgdu. Hann fjárfesti skynsamlega og er vellauðugur. Eignir hans eru taldar nema allt að 20 milljörðum íslenskra króna og Tatum fer fram á helming þeirra eigna. Faðir McEnroes, sem er lögfræð- ingur, segir að verði Tatum kápan úr því klæðinu að ná helmingi eigna Johns verði skilnaðurinn sá „stærsti" sem sögur færu af í Hollywood. „Hitt er svo annað mál, að John hefur sjálfur aflað þessara eigna með þrotlausri og ósérhlífínni vinnu og þar kom konan hvergi nærri. Það er sjálfsagt að hún fái væna sneið, barnanna vegna, en hún er ung og fílhraust og getur unnið fyrir sér. Hún ætti að sjá sóma sinn í því að gera það og bjarga sér sjálf í staðinn fyrir að mergsjúga aðra,“ segir McEnroe eldri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.