Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 19 Upplýsingamiðlun fyrir erlend verkefni Það er nauðsynlegt að koma á upplýsingamiðlun yfir væntanleg útboð á stærri og smærri verkum, hvar sem er í heiminum, þannig að verktakar geti í góðum tíma velt því fyrir sér hvort það muni henta að bjóða í verk erlendis og geti gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess að takast á við slík verk- efni. Einhver aðili, t.d. Verktaka- sambandið í samvinnu við utan- ríkisþjónustuna, þarf að lesa yfir erlend blöð og tímarit, athuga aug- lýsingar um útboð og koma þeim á framfæri. Að vísu mun EES samningurinn gera ráð fyrir, að auglýsingar um útboð á stærri verkefnum verði að birtast í öllum EES-ríkjum, en það eru ef til vill miklu fremur smáverkefnin, sem við kynnum að hafa áhuga á. Ég varð t.d. var við það fyrir nokkrum árum er ég dvaldist í rannsókna- leyfí í Þýzkalandi, að pólskir undir- verktakar voru víða að störfum, þar sem ég kom á byggingarstaði. Þeir höfðu greinilega lesið þýzku blöðin vel og haft augun opin. Þjóð- verjar hafa lengi heimilað að err lendir verktakar í smærri verkefn- um mega taka með sér starfslið að heiman og þurfa ekki formlegt atvinnuleyfi fyrir slíkan mannskap. Pólvetjarnir sáu sér því leik á borði og nýttu sér þetta til fulls. Nú er ástandið í Evrópu ekki sérlega glæsilegt, því efnahagsleg- ur samdráttur í nær öllum löndum Evrópska efnahagssvæðisins er mikill og einmitt þessvegna rétt að vara við of mikilli bjartsýni varð- andi verkefni þar. Það eru hins vegar mikil verkefni framundan í Austur-Evrópu, en þar er við það vandamál að glíma, að ríkin þar eiga enga peninga. Þau ætlast til þess að ráðgjafarnir og verktakarn- ir komi helzt með fjármagnið með sér. Að vísu er hugsanlegt að gera vöruskiptasamninga og verðum við að hafa augun opin fyrir slíku. Taka við olíu og timbri eða öðrum verðmætum sem greiðslu fyrir verk svo dæmi séu tekin. Annars verður þar aðallega að eiga við stýringu alþjóðastofnana svo sem Evrópska þróunarbankans, og er þá aftur komið að því, sem ég nefndi áður, að fulltrúar hinna Norðurlandanna og annarra Evrópuþjóða gína þar yfir öllum verkefnum og hætt við, að við smákarlarnir verðum útund- an. Þá reynir á að okkar menn, þ.e. fulltrúar okkar hjá þessum stofnunum, hugsi til okkar sem heima sitjum. Ef til vill er leið að stofnsetja dótturfyrirtæki í löndum Austur Evrópu eða í næsta ná- grenni við þau. Hefur að minnsta kosti eitt íslenzkt fyrirtæki reynt þetta með árangri. Verkefni í Austurlöndum fjær Þægilegast væri að leita uppi og taka að sér verkefni í ríku löndun- um, en það útheimtir þekkingu á málefnum Arabaríkja og Austur Asíu. Danir t.d. kræktu í athyglis- vert verkefni, sem vel hefði getað hæft íslenzkum verktökum, sem sé eldhúsinnréttinguna í soldánshöl- lina í Brunei. Hér var um risastórt verkefni að ræða, því soldánninn í Brunei er með ríkustu mönnum heims. Til að treysta betur aðstöðu sína á þessum athyglisverða mark- aði í Suðaustur Asíu, sendu þeir síðan bæði Margréti drottningu og Uffe Ellemann í opinbera heimsókn til Brunei til að fylgja þessu eftir. Allt svona fer því miður fram hjá okkur, þar sem við fylgjumst ekki með því, sem er að gerast rétt í kring um okkur. Ég hef nú tekið nokkur dæmi um þá möguleika, sem við þrátt fyrir allt eigum. Ekki dugar leggja árar í bát, heldur verða allir að taka höndum saman og hjálpast að við að finna ný verkefni og leysa þau saman. Þetta ættu menn að hugleiða þótt þeir starfi í ólíkum atvinnugreinum. Kannski þurfum við byggingarmenn ekki að skipta um starf eftir allt saman. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Fjögur fyrirtæki sama manns hafa orðið gjaldþrota á 7 árum í NÝJASTA tölublaði Dagsbrúnar, málgagns samnefnds verka- mannafélags, er rakin saga aðila sem staðið hefur í rekstri hrein- gerningarfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Hafa fjögur fyrir- tækja mannsins orðið gjaldþrota undanfarin 7 ár. „Þann tíma hefur hann rekið fyrirtæki undir þremur mismunandi nöfnum og efnt til nýrra skulda gagnvart starfsfólki sínu, lífeyrissjóðum og öðrum,“ segir í Dagsbrún. Þar kemur einnig fram að lögmenn Dagsbrúnar hafa á síðustu 12 mánuðum starfað við innheimtu vangreiddra launa fyrir 108 einstaklinga sem starfað hafa hjá 27 fyrirtækjum. „Til Dagsbrúnar berast allmörg erindi á ári, þar sem fólk hefur verið svikið um launagreiðslur, iðgjöldum í lífeyrissjóð ekki verið skilað inn og staðgreislu skatta stungið undan. Þannig má búast við að á ári hveiju tapist gífurleg- ar fjárhæðir þar sem tjónið lendir á viðkomandi launamönnum eða skattborgurunum í gegnum ábyrgðarsjóð launa. Skúrkarnir sleppa og skattpeningarnir fara í að borga brúsann," segir í Dags- brún. Síðan er rakin í blaðinu saga af fyrirtækjum sem tiltekinn mað- ur tengist og hafi hvert fyrirtækið af öðru orðið gjaldþrota og skilið eftir milljóna skuldir, meðal ann- ars í formi ógreiddra launa og tengdra gjalda en jafnóðum hafi sami maður og aðilar honum tengdir stofnað nýtt hlutafélag undir nýju nafni og haldið rekstr- inum áfram. Fram kemur að lög um ábyrgða- sjóð launa vegna gjaldþrota tryggi að launafólk fái vangreidd laun allt að 18 mánuði aftur í tímann. „Vissulega er það afar þýðingar- mikið fyrir launafólk að ríkið skuli tryggja það fyrir svona skakkaföll- um að einhveiju leyti. Hitt er ekki síður mikilvægt að löggjafínn grípi til víðtækari ráðstafana til að koma í veg fyrir að menn geti leik- ið svona leiki aftur og aftur,“ seg- ir Steinunn Guðbjartsdóttir, einn lögmanna verkamannafélagsins Dagsbrúnar í samtali við blað fé- lagsins. UUIMU Litur: Hvítur og svartur. Verð kr. 2.950 REPLIKSVAR Sími og símsvari. Verð kr. 11.980 TELE-POCKET Þráðlaus sími. Verð kr. 29.980 stgr. UHm i Litur: Blár, hvítur og svartur. Verð kr. 5.480 I CL-CM3C Litur: Hvítur. Simi fyrir sjónskerta. Verð kr. 6.995 KIRK DELTA Litur: Grár, hvítur og svartur. Verð kr. 10.980 KIRK PLUS Veggsími. Litur: Hvítur og svartur. Verð kr. 5.480 JUPITER Litur: Blár, grár, hvltur og svartur. Verð fra kr. 3.983 REPLIK Litur: Hvítur, svartur og rauður. Verð kr. 4.980 MOTOROLA Farsími Bílasími verð kr. 69.800 stgr. Burðarsími verð kr. 73.800 stgr. PÓSTUR OG SÍMI Söludeildir í Kirkjustraeti, Kringlunni, Ármúla 27 og á póst- og símstöðvum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.