Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 33 Vöruvottun - til hvers? eftir Björgvin Njál Ingólfsson Á undanförnum misserum hefur umræðan um gæði vöru og þjón- ustu verið allsráðandi í íslensku I atvinnulífi. Oftar en ekki er bent á nauðsyn þess að fyrirtæki hérlendis uppfylli ákveðnar gæðakröfur og hljóti jafnvel viðurkenningu óháðra aðila á því, hvort varan eða þjónust- an uppfylli ákveðin skilgreind gæði. Rökin eru oft þau, að þetta sé nauð- synlegt til þess að íslensk fyrirtæki verði samkeppnishæf á markaðnum jafnt hérlendis sem erlendis. Um- ræðan hefur gjarnan komið fram þegar rætt er um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og þar bent á að fyrirtæki hérlend- is geti ekki selt vörur sínar á hinum nýja markaði, nema þær uppfylli fyrirfram ákveðnar kröfur og þar j með gæði og að framleiðandi geti ' sýnt fram á að svo sé. Þetta á ekki við um eitt ákveðið starfssvið eða iðngrein. Kröfumar eiga við um alla starfsemi, hvort heldur um er að ræða framleiðslu eða þjónustu. | Viðskiptavinurinn gerir auknar kröfur til framleiðenda vöru og þeirra er starfa við þjónustu og ætlast til þess að starfsemin upp- fylli ákveðnar kröfur. Kröfumar geta þó verið mjög mismunandi allt eftir þörfum hvers einstaklings fyr- ir sig. En til þess að hægt sé að tala um að vara eða þjónusta upp- fylli ákveðin gæði þarf að skilgreina í hveiju tilfelli, hvaða kröfur á að uppfylla. Þetta er gert með því að prófa vömna samkvæmt viður- kenndum aðferðum og standist var- an prófíð, fær hún viðurkenningu prófunaraðilans, þar sem fram kem- ur hvaða kröfur varan hefur upp- fyllt. Skilgreiningarnar em oft sett- 3 ar fram í stöðlum, þar sem skýrt kemur fram hvaða kröfur em gerð- . ar til viðkomandi hluta og hvemig I á að staðfesta að varan uppfylli kröfurnar. j Húsgagnaprófanir - hagur viðskiptavinarins Meðal þess sem prófað er s'am- kvæmt ákveðnum aðferðum em húsgögn. Nútíma viðskiptavinur ætlast til þess að húsgögnin sem hann fjárfestir í endist í ákveðinn tíma og þ.a.l. gerir hann kröfu um að þau uppfylli ákveðin gæði m.t.t. styrkleika, þols yfirborðs o.s.frv. Tilgangur þessarar greinar er að vekja athygli á nauðsyn þess að gerðar séu ákveðnar kröfur til þeirra húsgagna sem viðskiptavin- urinn fyrirhugar að festa kaup á, SAMANTEKT PRÓFANA Útdráttur úr prófunarskýrslu. ásamt því að gera honum kleift að bera saman þau húsgögn sem valið stendur á milli. Þetta á ekki ein- göngu við um einstaklinga heldur einnig fyrirtæki, opinberar stofnan- ir o.s.frv. Kröfurnar ná ekki einung- is til ákveðinnar tegundar hús- gagna, heldur allra húsgagna, s.s. stóla, borða, rúma, skrifstofuhús- gagna, eldhúsinnréttinga, fata- skápa og þar fram eftir götunum. Iðntæknistofnun íslands hefur á undanförnum ámm komið upp próf- unaraðstöðu fyrir hverskonar hús- gögn í samráði og samræmi við sænsku húsgagnastofuna „Möbel- fakta“ í Svíþjóð. Prófunaraðferðir Möbelfakta em samnorrænar próf- unaraðferðir og byggjast að veru- legu leyti á alþjóðlegum stöðlum frá staðlasambandinu ISO (Intemat- ional Standardization Organizati- on). Iðntæknistofnun hefur gefið út sérstaka notendahandbók um Vöruvottun, sem lýsir starfseminni á skýran og einfaldan hátt. Prófunarskýrslur - vitnisburður um þol húsgagnsins Kaupandi húsgagna ætti ætíð að fara fram á að fá staðfestingu á því að húsgagnið sem hann hyggst festa kaup á uppfylli fyrirfram skil- greindar kröfur og þar með gæði. Þetta getur t.d. verið í formi út- drátts úr fullkominni prófunar- skýrslu þar sem fram kemur hvaða kröfur húsgagnið uppfyllir m.t.t. styrkleika, þols yfirborðs og efnis og frágangs. Nákvæmari upplýsingar koma fram í sjálfri prófunarskýrslunni, sem framleiðandinn velur sjálfur hvort hann birtir opinberlega eða ekki. Hér geta viðskiptahagsmunir verið í húfí sem geri það að verkum að framleiðandinn vill ekki birta niðurstöðurnar m.a. vegna þess að hann ætlar að nýta sér þær í frek- ari þróun húsgagnsins. í vöruvottunarkerfi Iðntækni- stofnunar eru gæðin flokkuð í þijá flokka allt eftir því hvort húsgögnin uppfylli lágmarkskröfur, meðal- kröfur eða hámarkskröfur. Að vara Próíunarskýrslu má gefa út í heild. Afla þarf skriflegs leyfis frá löntœknistofnun Islands tll að gefa út hluta hennar. Eitt ein- tak af þessari framleiöslutegund er prófaö og falla húsgögn sömu tegundar undir sömu niöurstöðu. IÐNTÆKNISTOFNUN (SLANDS uppfylli lágmarkskröfur þýðir alls ekki að vararn sé léleg eða að ekki sé um gæðavöru að ræða, heldur segir það til um að húsgagnið henti vel til notkunar á fyrirfram ákveðn- um stöðum, t.d. að þau séu heppileg til notkunar á „venjulegum" heimil- um. Uppfylli húsgögnin hámarks- kröfur er það t.d. merki um að húsgögnin séu heppileg til notkunar á opinberum stöðum þar sem mikið mæðir á þeim. Hér verður hver og einn að gera það upp við sig hvaða kröfur hans húsgögn skuli uppfylla, allt eftir því til hvers og hvar hann ætlar að nota húsgagnið. Kröfur um vöruvottun í útboðslýsingum Við gerð útboðslýsinga við stærri innkaup er nauðsynlegt að farið sé fram á að þau húsgögn sem verið er að bjóða út uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur, þar sem miðað er við samræmdar prófanir á húsgögn- unum. Þannig að hægt sé að bera saman húsgögnin á sama grund- velli og út frá því taka ákvörðun um kaup á hentugustu húsgögnun- um. Á Iðntæknistofnun eru í dag framkvæmdar prófanir á eftirfar- andi húsgögnum samkvæmt ákveðnum forskriftum, samskonar og þeim sem Möbelfakta nota: For- skrift Húsgagn 11:10 Stólar A1:20 Rúm (ekki dýnur) Al:30 Borð Al:40 Hirslur Al:45 Innréttingaeiningar A2:13 Háir barnastólar A2:22 Barnarúm (ekki dýnur) 14:12 Skrifborðsst. (ekki hjóí) 14.30 Skrifborð B4:40 Hirslur fyrir skrifstofur 43:1 Stólar fyrir skrifstofur 43:2 Borð fyrir sjúkrastofnanir 14:35 Skólaborð i Jafnframt eru garðhúsgögn prófuð. Við gerð útboðslýsinga er sjálf- sagt að tekið sé fram að húsgögnin skuli uppfylla ákveðnar kröfur og „Tilgangur þessarar greinar er að vekja at- hygli á nauðsyn þess að gerðar séu ákveðnar kröfur til þeirra hús- gagna sem viðskipta- vinurinn fyrirhugar að festa kaup á, ásamt því að gera honum kleift að bera saman þau hús- gögn sem valið stendur á milli.“ að vitnað sé til samræmdra prófana á ákveðinn hátt. Sé t.d. um að ræða útboð á skólahúsgögnum fyrir barna- og/eða framhaldsskóla, ætti tilvitnunin í útboðslýsingunni að líta svo út: Öll borð og stólar skulu uppfylla hámarkskröfur (lágmarkskröfur, meðalkröfur eða hámarkskröfur, allt eftir kröfum útboðsgeranda) miðað við húsgagnaprófanir Iðn- tæknistofnunar Islands. Húsgögnin skulu prófuð samkvæmt eftirfar- andi forskriftum: Skólaborð — Forskrift 14:35 Skólastóll — Forskrift 11:10 Með tilboði fylgi staðfest prófun- arskýrsla fyrir hvert húsgagn. Þetta gerir útboðsgeranda mögulegt að bera tilboðin saman á raunhæfan hátt, áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Þetta kemur m.a. í veg fyrir það að verð húsgagnanna sé allsráðandi við ákvarðanatöku. Líttu eftir vöruvott- unarmerkinu Hinn almenni viðskiptavinur ætti að spyijast fyrir um það, hvaða kröfur viðkomandi húsgagn upp- fylli áður en ákveðið er að ráðast í viðskiptin. Þetta er nauðsynlegt til þess að hann geti betur borið saman gæði húsgagnanna og út frá því og verði viðkomandi húsgagns, tekið ákvörðun um besta kostinn. Húsgögn sem hlotið hafa viður- kenningu Iðntæknistofnunar á að merkja með vöruvottunarmerkinu Vöruvottun. Með aðstoð húsgagnaprófana fær væntanlegur kaupandi, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða opinberar stofnanir, óhlutdræga aðstoð við að setja fram kröfur sínar. Framleiðandi hús- gagnsins fær í hendur tæki sem gerir honum kleift að uppfylla þess- ar kröfur. Einungis er mögulegt fyrir viðskiptavininn að meta gæði krtfur krötur krðtur Styrkleiki Þol yfirborðs Efni og frógangur STENST KRÖFUR HÚSGAGNA- OG INNRÉTTINGAPRÓFANA Björgvin Njáll Ingólfsson vörunnar á grundvelli vandaðra prófana. Líttu eftir merkinu Vöruvottun næst þegar þú ert að huga að því að fjárfesta í húsgögnum og/eða innréttingum. Höfundur er starfsmaður framleiðslutæknideildar Iðntæknistofnunar íslands. ÖRYGGIS OG GÆSLUKERFI FRÁ ELBEX SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapið öruggari vinnu og rekstur með ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eða í lit, úti og inni kerfi. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguleikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sími 91-622900 Deep Jimi & The Zep Creams á Púlsinum HLJÓMSVEITIN Deep Jimi & The Zep Creams heldur sína fyrstu tónleika á íslandi eftir tónleikaferðalag um Bandarikin. Tónleikarnir sem verða haldnir á Púlsinum í kvöld eru einnig útgáfutónleikar hljómsveitarinnar í tilefni útkomu geisladisksins Funky Dinosaur sem kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins Time-Warner. og er Aðalstöðin fyrst útvarps- stöðva að Bylgjunni undanskilinni til að nýta sér þessa möguleika sem ljósleiðarinn býður upp á. Hljómsveitina Deep Jimi skipa: Júlíus Guðmundsson, Sigurður Jóhannesson, Þór Sigurðsson og Bjöm Ámason. Tónleikarnir verða sendir út í beinni útsendingu Aðalstöðvar- innar í boði tískufataverslunar- innar Persónu í Keflavík. Púlsinn hefur nýverið tekið inn ljósleiðara sem jafnar aðstöðu útvarpsstöðva sem ekki hafa yfír sérstökum upptökubíl að ráða til útsendinga Todmobile með tón- * leika í ópenmni HLJÓMSVEITIN Todmobile heldur sína árlegu tónleika fimmtudaginn 10. desember nk. í íslensku óperunni. Á þessum tónleikum verða leik- in ný lög af plötunni 2603 sem kom út á þessu ári svo og eldri lög sem ekki hafa heyrst lengi á tónleikum með Todmobile. Tón- leikarnir hefjast kl. 21. VAIL - VAIL - VAIL - VAIL ■ VAIL - VAIL - VAIL - VAIL ■ VAIL ■ VAIL - VAIL - VAIL - VAIL - VAIL ■ VAIL - VAIL 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 Farið verður 12. febrúar og komið til baka 27. febrúar 1993. Irmifalið íverði: Flug til Denver, ferðir til og frá flugvelli til gististaðar. Gisting á fyrsta flokks hóteli, sem erígöngufæri frá aðalskíðalyftunni. Morgunmatur, íslensk fararstjórn. Verð á mann miðað við tvo íherbergikr. 139.500,- miðað við gengi 7.12.’92. SKÍÐAFERÐ TIL COLORADO Ferðaskrifstofa GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF., býður upp á stórkostlega skíðaferð í Klettafjöllin, á eitt besta skíðasvæði Ameríku - VAIL, Colorado s Þ l i I 2 2 2 I I É 2 5 Ferðaskrifstofa , 2 GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF., Borgartúni 34, sími 683222. VAIL ■ VAIL ■ VAIL - VAIL - VAIL ■ VAIL ■ VAIL ■ VAIL ■ VAIL - VAIL - VAIL - VAIL ■ VAIL - VAIL ■ VAIL ■ VAIL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.