Morgunblaðið - 09.12.1992, Side 36

Morgunblaðið - 09.12.1992, Side 36
36 ooo R-i mvFwmrVM María Amalía Þórð- ardóttir — Mhming Fædd 16. apríl 1898 Dáin 1. desember 1992 Elsku amma mín er dáin. Amma sem hefur alltaf verið til staðar þegar ég hef þurft á henni að halda. Amma sem lifði erfíða tíma og veik- indi en komst í gegnum þrenging- amar sterk og úrræðagóð. Hún átti alltaf til góð ráð fyrir þá sem til hennar leituðu og var óspör að miðla af reynslu sinni. Þessi sterka kona sem þrátt fyrir háan aldur, slæma sjón og heym og sára verki í fótum bjó ein, saumaði dúkkur Og hugsaði um garðinn sinn. Hún var sem óhagganlegur klettur í til- vera minni og því verður erfítt að venjast lífínu án hennar. En nú er hún komin þangað sem hana hefur lengi langað að fara. Hún hefur fengið langþráða hvíld og henni líð- ur núna vel. En við sem eftir stönd- um verðum að laga líf okkar að þessari breytingu og læra að lifa með það tómarúm sem nú er í hjarta okkar. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast ömmu jafn vel og raun- in varð. Anna María og fjölskylda. Það var haust, komið fram að vetumóttum þegar ég flutti í Skipa: sundið. Ég hafði steytt báti mínuni á skeri og úr brimgarðinum skolaði mér í lygnan sjó þama í sundið. Ég var í húsi númer 88. Fljótlega eftir að ég flutti tók ég eftir gamalli konu í næsta húsi. Hún var að hlú að garðinum sínum fyrir veturinn. Ég tók Iíka eftir því að falleg tré vora meðfram allri girðingunni og stórt og gróskumik- ið grenitré stóð innar í garðinum. Kona þessi var mikil á að sjá, þrek- vaxin, hreyfingar hægar og hátt- bundnar. Eitthvað var í fari hennar sem vakti athygli mína, en samt leið svo af veturinn að við tókum ekki tal saman. Næsta vor var ég að hreinsa til í mínum garði þegar hún var allt í einu komin til mín, býður góðan dag, talar um veðrið og síðan ekki meir. Nema ég er á leið í vinnu einn morgun þegar hún kallar til mín af tröppunum á húsi sínu hvort ekki megi bjóða henni glóðvolga ástarpunga, sem ég þáði með þökkum. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom í gráa húsið vina- lega númer 86. Meðan ég drakk kaffið og neytti þessara ljúffengu ástarpunga, nýkomnum úr feitinni, fann ég þennan varma sem umlyk- ur allt og alla sem era í nálægð þeirra sem geisla kærleikanum frá sér. María Þórðardóttir hét hún, ætt- uð austan úr sveitum. Foreldrar hennar skildu þegar hún var ung að áram og var hún látin í fóstur. Fyrir mörgum áram dreymdi Maríu að búið væri að ýiöggva grenitréð í garðinum hennar. Skömmu síðar missti maðurinn hennar Ingimar heilsuna og var óvinnufær æ síðan þar til hann lést 4. maí 1980. Það mætti skrifa langa sögu um það hvemig hún reyndist manni sínum í veikindum hans. Það er stórbrotin saga um fórnfysi og kærleika sem kalla ekki til launa en fær umbun í starfí.- Þau hjón eignuðust þijá syni og eina dóttur og tóku auk þess telpu í fóstur og ólu upp sem eigið bam. Sonur hennar Olafur drakknaði ungur. Aður en það gerðist dreymdi Maríu að hann kæmi sjóblautur til sín, en þegar hann nálgaðist hana sá hún að þetta er mágur hans sem var með honum á bátnum og frétti hún af drakknun hans skömmu síð- ar. En það varð ekki langt á milli vinanna, því Ólafur var allur að nokkram tíma liðnum, drakknaði frá þremur ungum bömum. Það er skemmst frá því að segja að ég varð heimagangur í húsinu númer 86. Einhver óskiljanleg öfl ófu um okkur þræði, ósýnilega en sterka, svo að mér fannst að aldrei mundu slitna meðan báðar lifðu. Einhveiju sinni kom ég út til hennar, hún hafði lagt sig og ég segi hlæjandi „var ég að senda eitt- hvað á undan mér?“ „Ég veit hvað fylgir þér“ ansaði hún, „það er mórauður hundur og ég vissi að við ættum eftir að kynnast, hann horfði svoleiðis á mig.“ Ég át eftir henni „mórauður hundur". „Já, það er enginn einn sem hefur hund með sér,“ svarar hún. Af hjarta er ég þakkiát fyrir að hafa kynnst þessari vinkonu minni. Aldrei fann ég aldursmun á okkur. Sál hennar var síung og við ræddum hin duldu rök tilverannar jafnt sem dægurmálin. Hana dreymdi mikið og mundi draumana vel. Nú fækkar ferðum í Skipasund og mun ég sakna þess, en minning- ar lifa um samferðamenn sem gott var að deila geði með. Ég bið bömum hennar og afkom- endum öllum guðs blessunar, þau reyndusí henni frábærlega vel. Friður guðs sem er æðri öllum skiln- ingi varðveiti Maríu mína Þórðar- dóttur. Brandís. Amma er dáin, 94 ára og fékk að deyja alveg eins og hún óskaði, hægt og hljótt. Hún sýndist bráð- hress til síðasta dags, en amma talaði ekki um sína eigin heilsu, svo erfitt var að vita hvemig henni leið. Hún var stórbrotin kona sem alltaf var gaman að heimsækja. Amma var af þeirri kynslóð sem barmaði sér ekki og taldi nánast skömm að því ef ekki væri hægt að sjá fyrir sér og sínum, þrátt fyrir atvinnu- leysi og kreppu. Þannig vora þau bæði, afí og amma. Afí dó 1979 eftir langt sjúkdómsstríð og fannst mér aðdáunarvert hve amma hjúkr- aði honum og sá um hann til síð- asta dags, enda vora ein síðustu orð sem ég heyrði afa segja að hann hefði bestu hjúkrunarkonu sem hægt væri að fá. Amma reyndist mér alltaf vel og eftir að ég fór að eldast fann ég góðan vin í henni. Ég vona að nú séu þau afí og amma búin að ná saman að nýju, en ég veit að því trúði amma. Ég þakka fyrir þann tíma sem ég fékk að þekkja hana. Hvíli hún í friði. Chrístian. Lát mig starfa, lát mig vaka, lifa meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka, lofsöng, Drottinn flytja þér meðan ævin endist mér. Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, Drottinn hár. Lát mig þreytta þjáða styðja, þeirra tár og græða sár, gleðja og fóma öll mín ár. (Oterdahl. Margrét Jónsdóttir þýddi.) Ég vissi að lífsklukka vinkonu minnar var farin að slitna. Hún taldi sig samt eiga svo margt ógert. Að vísu var hún nýbúin að taka allt húsið sitt í gegn, húsið sem Ingimar hennar hafði byggt meira og minna með sínum tveimur hönd- um í frístundum. Hún hafði hugsað sér að skila öllu af sér í lagi. Hún var búin að setja nýtt gler í alla glugga, klæða húsið að utan og nú síðastliðið sumar var þakið allt end- urnýjað. Slík dugnaðarkona var hún María mín í Skipasundinu, sem var „aðeins 94 ára“. Við sem eftir lifum lútum höfði í virðingu og þökk er við horfum á eftir fólkinu okkar sem var fætt á öldinni sem leið, því við vitum að þar var og er kjami þjóð- ar vorrar. María hét fullu nafni María Amalía Þórðardóttir og var fædd 16. apríl 1898 að Auðsholti í Bisk- upstungum. Hún var dóttir hjón- anna Olafíu Ólafsdóttur og Þórðar Magnússonar. Böm þeirra urðu tíu en sex komust til fullorðinsára. Þau era: Magnús, skipstjóri, sem kvænt- ist norskri konu og bjó í Bergen í Noregi; Sigurður, sjómaður, ókvæntur; Valgerður, giftist norsk- um manni og bjó í Tönsberg í Nor- egi; Helga, gift dönskum manni og bjó á Engi fyrir ofan Reykjavíkur- borg; Þóra, bjó hér í Reykjavík, ógift. Era nú öll systkinin og mak- ar þeirra horfín yfír móðuna miklu. A þessum áram fóra ungar stúlk- ur gjarnan til Reykjavíkur í vist á góð heimili og var það talið á við bestu húsmæðraskóla. María fór í slíkar vistir t.d. hjá Indriða Einars- syni, rithöfundi. Síðar sigldi hún með gamla Gullfossi og réðst í vist í Noregi og vann einnig á hóteli í Osló, en alls var hún í Noregi í um tvö ár. Þegar María kom heim aftur kynntist hún ungum manni, Ingi- mar Þorkelssyni. Þau felldu hugi saman og giftu sig 19. maí 1928. María og Ingimar eignuðust fjögur mannvænleg börn. Þau era: Hauk- ur, bifreiðasmiður, kvæntur Ásu Hjálmarsdóttur og eiga þau eina dóttur, Maríu, gifta Þorsteini Sæ- mundssyni og eiga þau tvö böm; Þorkell, þungavélaviðgerðarmaður, kvæntur Gretu Karlsen. Böm þeirra eru tvö, Christian Emil, sem kvænt- ur er Önnu Ragnheiði Harðardóttur og eiga þau eitt barn, Anna María er í sambúð með Páli Inga Krist- jónssyni og eiga þau tvö börn; Martha, fulltrúi á Félagsmálastofn- un, gift Alexander Goodall og eiga þau tvö börn, James Ingimar og Elísabetu; Ólafur, sjómaður, kvænt- ur Guðnýju Kjartansdóttur, en Ólaf- ur drakknaði er hann tók út af tog- aranum Guðmundi Pétri í desember 1973. Var það þeim hjónum Maríu og Ingimar sár harmur að missa son sinn frá konu og þremur litlum bömum, en þau era Halldóra Katr- ín, gift Kára J. Húnfjörð og eiga þau tvö böm, Oddur Magnús, ókvæntur og Kristján Gunnar, ókvæntur. Eina stúlku ólu þau upp sem sína eigin dóttur, Karlottu Aðalsteinsdóttur, og var hún fjög- urra ára þegar hún kom til þeirra, þá nýbúin að missa móður sína. Enn barði sorgin að dyram hjá þeim hjónum því Karlotta veiktist af krabbameini og lést í apríl 1979 frá tveimur bömum, Helgu, sem er ógift, og Sigurði, sem á eitt bam með unnustu sinni. Árið 1933 keyptu María og Ingi- mar sér litla íbúð að Bjamarstíg 3. Þetta var á kreppuárunum. Ingi- mar vann við höfnina og var oft lítil vinna, jafnvel var vinnan skömmtuð og ekkert eða lítið til. Þá kom sér vel að eiga útsjónar- sama konu sem kunni að gera mik- ið úr litlu. Hafa kunnugir sagt mér að á Bjamarstígnum hafí verið mik- ill gestagangur og gestrisni í fyrir- rúmi svo enginn fór þaðan svang- ur. Árið 1955 kaupa Ingimar og María húseignina að Skipasundi 86, sem Ingimar endurbyggði, og bjuggu þar æ síðan. Lóðin var stór og María hafði nóg að gera við að móta garðinn. Húsið og garðurinn vora stolt Maríu. Það er ekki of- mælt að hún „hafí dekrað við garð- inn sinn“. Matreiddi hún m.a. fín- ustu rétti úr hinum ótrúlegustuu grösum og jurtum úr garðinum. Þessi kunnátta nýttist Maríu vel þegar Ingimar missti heilsuna. Þá var ánægjulegt að sjá hvað hún skreytti matarbakkann hans til að hann hefði kannski betri lyst. Mann sinn missti María í maí 1980. Ég sem þessar línur rita hef ver- ið heimagangur hjá þeim hjónum og komið til þeirra bæði í gleði og sorg. Bæði voru þau ráðholl og úrræðagóð. María var há og tíguleg kona. Hún var ákaflega berdreymin þannig að hún sá oft fram í framtíð- ina og margir leituðu til hennar og ætíð vildi hún hvers manns vanda leysa. Góð móðir var hún einnig og mátti ekkert aumt sjá og vildi alltaf vera að gleðja og hjálpa. Hún fór ekki troðnar slóðir. Hún skapaði sér starf sem hún hafði mikla ánægju af, en hún saumaði tuskudúkkur og hafði hver dúkka sitt sérkenni eins og mannfólkið. Eftir að María fór að missa sjónina lét hún ekki deigan síga, sat oft við saumavélina og saumaði, „er að sauma upp í pantanir". Dúkkur Maríu hafa verið sendar út um allan heim. Þegar ég hugsa um alla kost- gangarana hennar Maríu og öll litlu húsin sem héngu á tijánum út um allan garðinn kemur mér í hug lítið ljóð um snjótittilinginn sem Katrín ) t Hjartkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, KATRÍN ÞÓRISDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudags 6. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Þórhildur Helgadóttir, Þórir Hilmarsson. t GUÐNÝ ÁSTA OTTESEN DAVIS andaðist 7. desember í San Fransisco. Aðstandendur. t Eiginmaður minn, ÞÓRARINN ÁRSÆLL SIGBJÖRNSSON, fiskmatsmaður, Boðahlein 25, Garðabæ, áður Vikurbraut 18, Grindavík, andaðist á heimili sínu mánudaginn 7. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Sveinsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, áðurtil heimilisá Reykjavíkurvegi 25a, Reykjavík, er lést 1. desember sl. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. desember kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afbeðin. Einar Sæmundsson, Sigrún E. Einarsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Ásbjörn Einarsson, Jóna Guðbrandsdóttir og barnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, HALLGRÍMUR GEORG BJÖRNSSON, Reykjavikurvegi 33, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 9. desember kl. 13.30. Margrét Þorvaldsdóttir, Þorvaldur S. Hallgrimsson, Svanhildur Leifsdóttir, Guðbjörn Hallgrfmsson, Hreinn Sumarliðason, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI PÉTUR JÓNASSON, Engihjalla 9, Kópavogi, sem lést þann 3. desember sl., verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 11. desember kl. 13.30. Friðjón Bjarnason, Inga Brynjólfsdóttir, Sigurður Bjarnason, Hilde Stoltz, Valgeir Bjarnason, Margrét Bjarnadóttir og barnabörn. Fjlidnkkjur (ílæsiles kíilii- o luaðborð faJlegir salir og nijög goð þjónnsta. IpplýsingiU' ísíina22322 FLUGLEIDIR HðTEL Lomeiiii

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.