Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
37
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
Bréfburðargjald innan
Norðurlanda til umræðu
Árnadóttir frá Oddgeirshólum, upp-
eldissystir mín, orti og kom út árið
1936 í ljóðakveri sem heitir Kátir
krakkar.
En þið megið gá út um gluggann
gæta að fuglunum smá,
þegar þeir koma og kroppa
í komið er gaman að sjá.
Fuglinn var hikandi og hræddur
og horfði upp í loftin blá.
Svo byijaði hann komið að kroppa
og krafsa með fðtum smá.
Einn lítill fugl var mikið uppá-
hald hjá Maríu. Hún gaf honum
nafn og nefndi Surtlu. Hann gerði
sig heimakominn og pikkaði í
gluggann og lét vita að gott væri
að fá meiri mat, munnarnir væru
margir. Á vorin fjölgaði í litlu hús-
unum og þá varð María að fara og
skoða öll börnin. Að sjálfsögðu var
sungið fyrir hana í staðinn.
Svo komu þeir allir í einu,
og alltaf færðust þeir nær.
Loks svifu þeir saddir í burtu
og sungu um stúlkumar tvær.
María og bóndi hennar höfðu
ákaflega gaman af að ferðast með-
an Ingimar hafði sjón og heilsu.
Þá ferðuðust þau mikið á bíl sínum
og nutu samverunnar úti í náttúr-
unni og fegurðar landsins. Þau
byggðu sér lítið sumarhús í landi
Haukholts í Hrunamannahreppi og
nefndu húsið Dalakofann. Einnig
þar kom ég og gisti og naut þess
að láta stjana við mig. Þar var líka
lítill garður og hagamúsin var ekki
afskipt. Þá upplifði ég einu sinni
enn hve María var stórkostleg og
átti fáa sína líka. Hún hafði verið
að gefa Krumma mat, setti matinn
út fyrir hlið. Allt í éinu heyrist
„krunk, krunk“, hún fer að athuga
og segir: „Ég er nýbúin að gefa
þér krummi minn.“ Krummi lét sig
ekki, vildi fá hana út fyrir hliðið.
Er hún kemur út fyrir er krummi
kominn með ungana sína þrjá og
var stórkostlegt að sjá Maríu og
krumma tala saman. Svona var
þetta líka í Skipasundinu, fuglarnir
virtust þekkja Maríu og skilja hana.
Lítill fugl skauzt úr lautu,
lofaði guð mér ofar.
Sjálfur sat ég í lautu
sárglaður og með tárum.
(Jónas Hallgrímsson)
Um leið og ég kveð mína tryggo
vinkonu vil ég þakka henni fyrir
40 ára kynni og öll hollu ráðin sem
mér tókst ekki alltaf að fara eftir.
Ég leyfi mér að þakka öllum sem
heimsóttu Maríu og gáfu sér tíma
til að líta til hennar.
María var heima til hinstu stund-
ar og andaðist aðfaranótt 1. desem-
ber. Ég bið Guð að styrkja börn
hennar, barnabörn og barnabarna-
börn svo og allá hennar vini.
_____________Brids________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Sveit Karls G. Karlssonar hefír enn
forystu í haustsveitakeppninni en nú
er lokið 6 umferðum af 8. Staða efstu
sveita:
Karl G. Karlsson 120
Kolbeinn Pálsson 110
SveitAmeyjar 106
Sigurður Davíðsson 98
Sveit Bátaþjónustunnar 95
Bridsfélag Suðurnesja
Gísli Torfason, Logi Þormóðsson og
Jóhannes Sigurðsson standa best að
vígi í jólatvímenningnum. Spila er í
þijú kvöld og tvö efstu kvöldin látin
ráða til verðlauna. Staða efstu para:
Gisli Torfason - Logi Þormóðsson -
Jóhannes Sigurðsson 190-190
Valur Símonarson - Gunnar Guðbjömsson -
Stefán Jónsson 194-165
Birkir Jónsson - Gísli ísleifsson 188-157
Amór Ragnarsson - Karl Hermannsson 166-168
Óskar Pálsson - Sigurhans Sigurhanss. 168-154
Síðasta umferðin verður spiluð í Hótel Kristínu
nk. inánudagskvöld kl. 19.45.
Námskeið fyrir yngri spilara
f. ’68 og yngri
Bridssamband Islands hefur ákveð-
ið að halda námskeið í brids fyrir
yngri spilara, fædda 1968 og yngri.
Leiðbeinendur verða Jón Baldurs-
son, heimstari í brids, og Sævar Þor-
Nú legg ég aupn aftur,
Ó guð, þinn náðarkraftur
min veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(Foersom - Sb. 1872. S. Egilsson.)
Að leiðarlokum óska ég Maríu
minni góðrar heimkomu og endur-
fundar við mann sinn. María verður
lögð til hinstu hvíldar við hlið manns
síns. Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 9. des-
ember kl. 13.30.
Veri María Þórðardóttir kært
kvödd, Guði á hendur falin. Hafi
hún hjartans þök, fyrir allt og allt.
Jónína Bjömsdóttir
frá Oddgeirshólum.
Við erum í sífellu minnt á hverf-
ulleika lífsins. Þó ávallt megi eiga
von á fráfalli aldraðs fólks, er eins
og dauðinn komi okkur sífellt á
óvart. Lífsþróttur Maríu Þórðar-
dóttur var slíkur að flest okkar sem
þekktum hana hnykkti við er hún
lést snögglega aðfaranótt 1. desem-
ber sl. Aðeins degi áður hafði hún
tekið þátt í afmælisveislu eins af
barnabarnabörnum sínum og var
þar kát og hress að vanda. María,
eða langa, eins og hún hét ávallt á
heimili okkar, eftir að barnabama-
börnin komu til sögunnar, var fædd
16. apríl 1898 og var því á 95. ald-
ursári er hún lést.
Langa var um margt óvenjuleg
kona. Aður en hún giftist Ingimar
langafa árið 1928, hafði hún unnið
fyrir sér sem stofustúlka og kokk-
ur, fyrst hjá nokkrum fjölskyldum
í Reykjavík og síðar einnig á einka-
þeimili og hóteli í Noregi. Á þessum
árum var fátítt að ungar stúlkur
úr íslenskri sveit tækju sér slíkt
fyrir hendur, en langa hleypti heim-
draganum eftir erfíða æsku og hélt
á vit ævintýranna. Hún minntist
þessara tíma oft og mundi undra-
margt. Hún var og ætíð úrvals verk-
manneskja, góður kokkur, og mundi
hinar ýmsu uppskriftir frá þessum
tíma. Þessi reynsla kom henni að
góðu gagni við heimilisrekstur á
erfiðum tímum.
Auk þess að hafa sex manna fjöl-
skyldu að hugsa um var stöðugur
straumur gesta sem allir fengu
beina og góðar móttökur. Langa
giftist eins og áður sagði Ingimar
Þorkelssyni, fæddur 1902, dáinn
1980, 19. maí 1928. Þau eignuðust
fjögur böm: Mörthu, fædda 1928,
gifta Alexander Jakobssyni, þau
eiga James Ingimar og Élísabetu,
Þorkel, fæddan 1929, kvæntan
Grétu Kortsen, þau eiga Kristján
og Önnu Maríu, Hauk, fæddan
1930, kvæntan Ásu Hjálmarsdótt-
ur, þau eiga Maríu Jónu, og Ólaf,
fæddan 1932, dáinn 1973, var
kvæntur Guðnýju Kjartansdóttur,
bjömsson, Norðurlandameistari i
brids.
Kynningarfundur verður haldinn í
húsi Bridssambands íslands, Sigtúni
9, laugardaginn 12. des. kl. 13.00.
Yngri spilara landslið íslands verður
valið úr þeim hópi sem tekur þátt.
Þeir sem áhuga hafa á að taka
þátt eru beðnir um að skrá sig á skrif-
stofu Bridssambands íslands, s. 91-
689360, eða mæta á kynningarfund-
inn 12. dés.
Þeir spilarar eða félög utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins sem áhuga hafa
setji sig í samband við skrifstofu BSÍ
s. 91-689360.
Vetrar-Mitcell BSÍ
Föstudagskvöldið 4. des. voru 26
pör í Vetrar-Mitcell BSÍ í Sigtúni 9.
Úrslit urðu þessi:
N/s—riðill:
KjartanJóhannsson-HelgiHermannsson 388
Sturla Snæbjömsson - Helga Berpiann 373
Þráinn Sigurðsson - Vilhjálmur Sigurðsson 367
AndrésÁsgeirsson-ÁsgeirSigurðsson 336
A/v-riðill:
PállÞórBergsson-SveinnÞorvaldsson 418
Bjöm Ámason - Bjöm Þorláksson 379
Hrafnhildur Skúladóttir - Jömndur Þórðarson 377
Sveinn Sigurgeirsson - Ólafur Oddsson 333
Á föstudagskvöldum er alltaf spil-
aður eins kvölds tvímenningur og
skráning er á staðnum. Spilamennska
hefst kl. 19.
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Nú er lokið Hraðsveitakeppni deild-
arinnar með sigri svitar Þórarins
þeirra börn eru Halldóra Katrín,
Oddur og Kristján Gunnar. Einnig
ólu María og Ingimar upp sem sitt
eigið barn Karlottu Aðalsteinsdótt-
ur, Lottý, fædda 1939, dána 1978.
Hún var gift Jóni Sigurðssyni, þau
skildu, þeirra börn eru Sigurður og
Helga. Barnabarnabörn Löngu eru
nú 10.
Á langri ævi fór ekki hjá aföllum
í lífí Löngu og langafa. Þyngstu
höggin voru þegar Ólafur sonur
þeirra fórst af slysförum árið 1973,
og þegar Lottý andaðist aðeins 39
ára gömul eftir löng veikindi. Tók
þetta þyngt á þau hjón. Ingimar
langafi andaðist síðan 4. maí 1980,
eftir alllanga vanheilsu.
Bjó Langa síðan ein í húsinu sínu
í Skipasundi, en hafði ávallt leigj-
endur. Batt hún vináttubönd við
leigjendur sína og er það allstór
hópur sem hefur átt fyrstu búskap-
aráar sín upp á lofti í Skipasundi.
Ávallt var gott að koma í Skipa-
sundið til Löngu. Alltaf bauð hún
upp á kaffí og átti alltaf gott upp
í litla munna sem áttu leið um. Én
skjól Löngu í Skipasundi og dvöl
hennar þar hefði ekki verið möguleg
seinustu árin án aðstoðar vina og
vandamanna, sér í lagi Ásu og
Hauks, sem vöktu yfír vegferð
Löngu allt til síðasta dags! Verður
seint að fullu metið allt sem þau
lögðu á sig til þess að létta henni
lífíð.
Þrátt fyrir að Langa væri heilsu-
lítil lengi ævinnar, entust henni
kraftar lengi. Hún vann í garðinum
í Skipasundi og gróðursetti bæði
þar og í sumarbústað sínum, Dala-
kofanum, þar sem hún dvaldi oft á
sumrum allt til þess að hún var á
94. aldursári. Einnig saumaði hún
fram á síðasta dag, þrátt fyrir sjón-
depru. Seinni árin heyrði hún auk
þess illa, en það kom ekki í veg
fyrir að hún fylgdist með öllu sem
markvert gerðist, innan lands sem
utan, fýrir utan að vita um flest
sem viðkom fjölskyldunni.
Á seinasta ári stóð hún ennfrem-
ur í stórframkvæmdum í Skipa-
sundi. Slíkur var hugurinn og lífs-
orkan. Hún lagði einnig ótrauð upp
í langferðir í svartasta skammdeg-
inu þau ár sem nafna hennar bjó á
Eskifírði, til þess að eyða þar jólum,
skipti þá engu máli veðurútlit og
færð og þó Langa væri þá um nír-
ætt. Síðasta árið var Langa farin
að þreytast, en minni og eftirtekt
var óbreytt til hinsta dags. Sú ósk
hennar að fá að dveljast á eigin
heimili allt til enda rættist og nú
hefur langa lagt í ferð sína 'inn í
ljósið til móts við hinn hæsta. Þar
verður vel tekið á móti henni. Að-
standendur hennar og vinir munu
ætíð minnast hennar. Guð blessi
minningu löngu, Maríu Þórðardótt-
ur.
ÞS.
Ámasonar. Með honum spila Gísli
Víglundsson, F'riðjón Margeirsson,
Valdimar Sveinsson og Gunnar Bragi
Kjartansson. Úrslitaröð:
Sv. Þórarins Ámasonar 2.902
Sv. Sigurðar ísakssonar 2.821
Sv. Péturs Sigurðssonar 2.800
Sv. Kristins Oskarssonar 2.778
Sv. Árna Magnússonar 2.747
Besta skor síðasta kvöldið:
Sv. Þórarins Ámasonar 626
Sv. Áma Magnússonar 575
Sv. Ragnars Bjömssonar 572
Sv. Péturs Sigurðssonar 564
Nú verður tekið jólafrí. Aðalsveita-
keppni deildarinnar hefst 4. janúar
1993. Spilastjóri verður ísak Öm Sig-
urðsson. Upplýsingar gefur Ólafur í
síma 71374.
Sendum bridsspilurum um land allt
bestu jóla- og nýársóskir.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Hjá Bridsfélagi Breiðfírðinga eru
nú spilaðir eins kvölds tvímenningar
með jólaglaðningi fyrir efstu pör. Spil-
aður er Mitchell-tvímenningur með
tölvuútreikningi og em veitt verðlaun
fyrir efstu pör í NS og AV. Síðasta
fímmtudagskvöld mættu 18 pör til
þátttöku og úrslit urðu þessi:
NS
Sigurður Steingrímsson - Gísli Steingrímsson 252
Leifur K. Jóhannesson - Haraldur Sverrisson 250
Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 231
Hæstu skor í AV fengu:
MagnúsOddsson-MagnúsHalldórsson 265
Dan Hanson - Guðmundur Kr. Sigurðsson 249
Ingibjörg Halldórsd. - Sigvaldi Þorst.son 248
Bréfburðargjald innan Norð-
urlanda verður rætt á fundi for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs og
samstarfsráðherra Norðurlanda í
Kaupmannahöfn 9. desember nk.
Síðan 1955 hefur burðargjald inn-
anlands á Norðurlöndum verið það
sama og gjaldið fyrir bréf til ann-
arra norrænna landa, en frá næstu
áramótum verður dýrara að senda
bréf frá Svíþjóð og Finnlandi til
annarra Norðurlanda en að senda
bréf innanlands þar. Sams konar
breyting gekk í gildi hér á landi 1.
nóvember sl. hvað varðar A-póst,
en gjaid fyrir B-póst verður þó eftir-
leiðis það sama og innanlands.
Norðurlandaráð telur mikilvægt
að sama burðargjald gildi innanlands
á Norðurlöndum og til annarra nor-
rænna ríkja og verður því málið tek-
ið fyrir á fundi forsætisnefndar
Norðurlandaráðs með samstarfsráð-
herrum landanna í Kaupmannahöfn
9. desember.
Til umræðu verður einnig fram-
kvæmd þeirra tillagna sem forsæt-
isráðherrar Norðurlanda lögðu fyrr
á árinu fram um endurmat á nor-
rænni samvinnu. Meðal annars verð-
ur fjallað um fýrirhugaða samein-
ingu skrifstofu forsætisnefndar
Norðurlandaráðs í Stokkhólmi og
skrifstofu Norrænu ráðherranefnd-
arinnar í Kaupmannahöfn. Einnig
verður að venju fjallað um undirbún-
ing 42. þings Norðurlandaráðs sme
haldið verður í Osló 1.-4. mars nk.
Af íslands hálfu sitja fundinn Eið-
ur Guðnason, umhverfísráðherra og
samstarfsráðherra Norðurlanda, og
þingmaðurinn Halldór Ásgrímsson,
annar fulltrúi íslands í forsætisnefnd
Norðurlandaráðs.
t
Bróðir minn og föðurbróðir,
PÉTUR JÓNSSON
bifvélavirki,
andaðist á heimili sínu, Norðurbrún 1, Reykjavík, aðfaranótt 7.
desember sl.
Fyrir hönd anarra aðstandenda,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Kristbjörg Stefánsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
JÓNS ÓLAFSSONAR
frá Núpsdalstungu.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Ólafur Jónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður,
BRYNJÓLFS JÓNSSONAR
frá Broddadalsá.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Svava Brynjólfsdóttir, Kristinn Guðjónsson,
Viggó Brynjólfsson, Ardís Arelíusdóttir,
Kristjana Brynjólfsdóttir, Gunnar Sæmundsson.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför
INDRIÐA EINARSSONAR.
Sérstakar þakkir til (þróttafélagsins Fylkis og Knattspyrnufélags-
ins Þróttar fyrir vináttu og rausn.
Stella Jóhannsdóttir,
Arndís Einarsdóttir,
Arna Einarsdóttir,
Auður Albertsdóttir,
Einar Vilhjálmsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför, dóttur
okkar, systur og mágkonu,
ELÍNAR ÞURÍÐAR SIGDÓRSDÓTTUR,
sjúkraliða,
Hjallabraut 43,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til Kvennadeildar FH.
Guð blessi ykkur öll.
Sigdór Sigurðsson, Ida Heiður Jónsdóttir,
Halldór Sigdórsson, iVlarta Katrín Sigurðardóttir,
Ævar Sigdórsson, Una Lilja Eiríksdóttir.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna útfarar HALLGRÍMS
GEORGS BJORNSSONAR.
Málmsteypan Hella hf., Kaplahrauni 5, Hafnarfirði.