Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
JÓLATÓNLEIKAR
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Sinfóníuhljómsveit íslands stóð
fyrir jólatónleikum í Langholts-
kirkju sl. fímmtudag. Á efnis-
skránni voru verk eftir J.S. Bach,
Wagner, Tsjajkovskíj og jólalög
m.a. eftir Jórunni Viðar og Sig-
valda Kaldalóns. Auk Sinfóníu-
hljómsveitarinnar komu fram
Skólakór Kársnesskóla og Tómas
Tómasson en stjómandi var Há-
kon Leifsson.
Tónleikamir hófust með þriðja
Brandenborgar-konsertinum eftir
J.S. Bach en þennan glæsilega
konsert, ásamt fímm öðrum lista-
verkum, vildi Kristján Lúðvík af
Brandenborg hvorki heyra flutta
af sinni ágætu hljómsveit né sjá
skrásetta í sínu merkilega nótna-
bókasafni. Það er rangt, eins og
stendur í efnisskrá, að lokakaflinn
sé „nokkurskonar fúga“ og leikinn
í „tríólum", því eltingaleikur radd-
anna er nær því að vera unninn
eins og stuttar kanon-tónhending-
ar og taktskipanin er 12/8. Það
er hins vegar rétt, að vel má hugsa
sér kaflann sem „léttleikandi
dans“, þar sem meistarinn leikur
sér að hljómbundnum „fugato"
vinnubrögðum í fjörugri hrynskip-
an en form kaflans er í tvenndar-
formi, sem var einkennandi fyrir
barokktímann á sama hátt og
sónötuformið var hjá klassikerun-
um. Konsertinn var leikinn blátt
áfram og í föstum hryn út allt
verkið.
Tómas Tómasson er mjög efni-
legur bassasöngvari og söng ein-
söng í Grosser Herr-aríunni úr
Jólaóratoríunni eftir J.S. Bach. í
heild var hljómsveitin nokkuð
sterk en ágætur og hljómmikill
söngur Tómasar skilaði sér vel.
Lárus Sveinsson átti fallegan
trompetteinleik í þessum áhrifa-
mikla lofsöng meistarans. Sieg-
fried Idyll eftir Wagner var næst
á efnisskránni og það var eins
með það verk og verkin eftir Bach,
að þetta tilfínningaþrungna verk
var leikið slétt og fellt. Sama má
segja um Hnotubijótinn eftir
Tsjajkovskíj, en fjögur af dans-
sýningarlögunum svonefndu voru
leikin, auk þess Snjókomavalsinn,
en þar bættist í hópinn Skólakór
Kársnesskóla og söng með sínum
yndislega æskuþokka.
Tónleikunum lauk svo með fjór-
um jólalögum, sem Skólakór
Kársnesskóla söng fagurlega og
með tærum hljómi. Þórunn
Björnsdóttir hefur stjórnað þess-
um ágæta barnakór og reis söng-
ur hans hæst í sérlega fallegu
jólalagi eftir Jórunni Viðar. Nóttin
var sú ágæt ein eftir Sigvalda
Kaldalóns var sungin af Tómasi
Tómassyni og bamakórnum en
tónleikunum lauk með Heims um
ból og tóku hljómleikagestir undir
í síðasta versinu. Ekki er getið í
efnisskrá hver hafí raddsett jóla-
lögin en það verður að segjast
eins og er, að fyrir utan Jólalag
Jómnnar, sem hún auðvitað radd-
setti sjálf, vom raddsetningamar
eftir Pál P. Pálsson og Ed Welch,
á Bjart er yfír Betlehem og Nótt-
in var sú ágæt ein, langt frá því
að vera í samræmi við lögin sjálf
hvað snertir stíl og gerð þeirra.
„Enginn verður óbarinn bisk-
up“, segir í gamalli sögu og það
á við um þá ungu hljómsveitar-
stjóra, sem reynt hafa fyrir sér
undanfarið og „Róm var ekki
byggð á einni nóttu“ stendur
heima, því þar er á þann brattann
að sækja, sem engrar hjálpar er
að vænta en allir snúa önugu við
þeim, er ætlar sér þar yfír að fara.
Hljómsveit er hópur manna, þar
sem hver og einn kann eitt og
annað fyrir sér og sá sem ætlar
að stýra þeim hópi til átaka, verð-
ur að vera þeim fremri, bæði er
varðar leik og listræna þekkingu
og það sem meira er, hafa skap-
kraft góðs verkstjóra, er gerir
hlýðni sjálfsagða og eðlilega í
samvirkum vinnuhópi góðra
verkamanna. Enn er ósagt hversu
hljómsveitarstjórunum ungu og
þar með Hákoni Leifssyni mun
takast að vinna úr sínum efnum,
en sem komið er, hefur þeim ekki
tekist enn að klífa þrítugan ham-
arinn.
Tómas Tómasson og Hákon Leifsson
Magnús Baldvinsson
'Yrn ■'iiMilllt*^
Rannveig Fríða Bragadóttir
Kór Langholtskirkju
Jolaóratóría Baehs
KÓR OG Kammersveit Langholtskirkju ásamt einsöngvurunum Ól-
öfu Kolbrúnu Harðardóttur, Rannveigu Fríðu Bragadóttur, Michael
Goldthorpe og Magnúsi Baldvinssyni flytja Jólaóratóríuna eftir Bach
29. og 30. desember. Tónleikarnir verða í Langholtskirkju og hefj-
ast kl. 20. Þetta er sjöunda skiptið sem kórinn flytur þetta verk.
Jólaóratórían er í sex hlutum og
segir hver hluti sinn þátt sögunnar
af fæðingu Jesú. Kór Langholts-
kirkju hefur tvisvar flutt verkið
óstytt en þá á tveimur dögum þar
sem verkið þykir full langt til flutn-
ings á einum tónleikum. I þetta sinn
verður óratórían flutt í styttri út-
gáfu. Fyrstu þrír hlutar verða óstytt-
ir, þá verða fluttar tvær aríur úr
Ijórða hluta og síðan upphafskór
fímmtu kantötu.
Fyrsti þátturinn er fagnaðarlof-
gjörð og lýsir eftirvæntingunni eftir
komu Krists. Annar þáttur er um
fæðingu Jesúbamsins, segir frá fjár-
hirðinum á Betlehemsvöllum og boð-
skap englanna. Þriðji hlutinn lýsir
því þegar fjárhirðarnir fara til Betle-
hem og veita Jesúbaminu lotningu.
Ur fjórða hluta era síðan sungin hin
þekkta bergmálsaría og einnig þekkt
tenóraría. Tónleikunum lýkur svo á
upphafskór fimmta hluta, „Ehre sei
dir Gott gesungen", Dýrð sé Guði
sögð og sungin.
Þau Ólöf Kolbrún og Michael
Goldthorpe er óþarft að kynna svo
oft sem þau hafa sungið með kór
Langholtskirkju Jólaóratóríuna og
önnur verk. Rannveig Fríða Braga-
dóttir syngur nú í fyrsta skipti með
kómum. Hún er búsett í Vínarborg
og hefur verið fastráðinn einsöngv-
ari við Vínaróperuna. Magnús Bald-
vinsson syngur við óperuna í San
Francisco. Hann hefur undanfarið
verið að syngja hlutverk í óperunum
Toscu, Boris Goudonov og Fidelio.
Magnús söng bassahlutverkið í
flutningi Kórs Langholtskirkju á
H-moll messunni eftir Bach árið
1990.
(Fréttatilkynning)
----♦
Nýjar
bækur
Orgill
Hljómplötur
Árni Matthíasson
Þó þjóðleg popptónlist frá ýmsum
iöndum utan Evrópu og Norður-
Ameríku hafí verið áberandi seinni
ár og áhrifa frá slíkri tónlist hafi
gætt víða hefur ekki borið ýkja á
þeim hér á landi. Orgill er eina hljóm-
sveitin sem hefur sótt í þann hafsjó
sem til er af frábærri popptónlist sem
ekki lýtur vestrænum popplögmál-
um. Framan af ferlinum voru áhrifín
kannski full mikil og lítið bar á sér-
stökum stíl Orgla sjálfra, en hægt
og sígandi hefur hljómsveitin sótt í
sig veðrið. Það má og heyra á fyrstu
hljómplötu sveitarinnar, samnefnda
henni sem kom út fyrir skemmstu.
Á plötunni bregður vissulega fyrir
áhrifum úr ýmsum áttum, en Orglar
nota þau áhrif að mestu til að þoka
fram eigin hugmyndum. Þannig er
platan á köflum bráðskemmtileg og
sprettir á henni með því besta sem
íslensk hljómsveit hefur sent frá sér
á árinu.
Upphafslag plötunnar er sungið á
ensku og reyndar bregður fyrir ýms-
um torkennilegum mállýskum á plöt-
unni í bland við ensku og íslensku.
Lagið, The Moon is Full, er afbragð
og sérstaklega er gítarhrynur vel
útfærður. Annað lag plötunnar, Ak-
sjón, veldur aftur á móti vonbrigðum
eftir svo skemmtilega byijun, en það
er greinilegt að Orglar vilja koma á
óvart og ekki hafa plötuna auðlesna.
Á milli laganna er stef, sem verkar
sem einskonar „afstilling", en slík
stef tengja öll lög plötunnar saman
og er vel til fundið að flétta þannig
saman ólík lög. Þó Aksjón sé vart
nema stefnulaus hugmynd, er þriðja
lagið, Les Moscas Zumban afbragð
og sýnir á sér ólíkar hliðar við hveija
í sókn
hlustun. Afrísku áhrifín era áberandi
í laginu Eram við svört, en það líður
fyrir full miklar hiyntilraunir. Þannig
er reyndar með fleiri lög, þó í mis-
miklum mæli sé; að þeim fatast flug-
ið fyrir rótleysi, sem líklegast myndi
mást af sveitinni með meira tónleika-
haldi. Fimmta lag plötunnar, Digida,
má kalla vestrænt popplag með til-
brigðum og sem slíkt ekki ýkja
merkilegt. Því lyfta þó góðir sprettir
í röddun, en það fjarar út í lokin.
Gler er ágætt rólegt popplag, með
þunnum texta, en þó er enski textinn
í Einn og enn þynnri og skemmir
fyrir annars ágætu lagi. Wonder er
þvælið lag, en þá kemur Sommwebo,
lag sem margir kannast við af safn-
plötu frá því í sumar. Þar eru enn
mikil afrísk áhrif og í raun stingur
það nokkuð í stúf við annað á plöt-
unni, eins og það sé ekki í sama
fasa. Það er þó ekkert þegar kemur
að lokalögum plötunnar, því því er
líkast að raglingur hafí orðið í sam-
setningu og óvart hafí tvö óútgefín
Spilverkslög lent á plötunni.
Orgill er ein eftirtektarverðasta
nýsveit landsins um þessar mundir,
sérstaklega ef litið er til þess besta
sem sveitin er að gera á þeirri plötu
sem hér hefur verið gerð að umtals-
efni. Platan er þó mörkuð af ungæð-
ingshætti, sem hefði mátt forðast ef
utanaðkomandi eyra hefðu lagt Orgl-
um lið á plötunni, þó ekki sé gott
að benda á svo víðsýna upptökumenn
hér á landi um þessar mundir. Lög
eins og The Moon is Full, Las Mosc-
as Zumban og meirihluti Digida sýna
að hljómsveitin hefur alla burði til
að hrista skemmtilega upp í íslensk-
um poppheimi, en til þess vantar
hana aga og reynslu. Umslagið bygg-
ist á aulegum menntaskólahúmor og
meira hefði mátt vera af upplýsing-
um.
Nýjar bækur
Limrur Jóhanns
S. Hannessonar
ÚT ER komin ljóðabókin
Hlymrek eftir Jóhann S.
Hannesson.
í kynningu útgefanda segir:
„Jóhann S. Hannesson (1919-
1983) er trúlega þekktastur fyr-
ir störf sín sem kennari. Eftir
hann komu út nokkrar ljóðabæk-
ur og var hann frumkvöðull hér
á landi í limrugerð. Þessi bók
geymir limrurnar úr bókinni
Hlymrek á sextugu sem skáldið
lét eftir sig. Kristján Karlsson
bjó hana til prentunar."
Útgefandi er Mál og menn-
ing. Bókin er 47 bls., prentuð
I G. Ben. prentstofu hf. og
kostar 1690 krónur.
Jóhann S. Hannesson
M Úter komin bókin Fjölskyldu-
handbókin um hjúkrun heima.
Hjúkrunarbókin er ensk að upp-
runa en þrír hjúkrunarfræðingar
hafa íslenskað hana þær Eydís
Sveinbjamardóttir, Herdis
Sveinsdóttir og Svanhildur Þeng-
ilsdóttir. Formála ritar dr. Krist-
ín Björnsdóttir.
í kynningu útgefanda segirm.a.:„í
Hjúkranarbókinni er farið reglulega
í öll grandvallaratriði og aðferðir,
bæði ytri þætti um fyrirkomulag
sjúkraherbergis og sjúkrarúms,
hreinlæti, hreyfíngu, daglega
umönnun, mælingar, lyfjagjöf, notk-
un þvagleggs og stómu, en líka hin
andlegu viðhorf um sjálfsvirðingu
og sjálfsbjörg sjúklings undir kjör-
orðinu: Veitum líkn með ljúfu geði.
Sérkaflar eru varðandi umönnun
barna, eldra fólks, fatlaðra og dauð-
vona. Hér er ýtarlegri þáttur um
Skyndihjálp en áður hefur komið út
og sérstakur kafli eftir Hildi Helga-
dóttur um hjúkrun alnæmissjúkl-
ings. Þá fylgir bókinni ýtarlegur listi
yfír þær mörgu hjálparstofnanir og
félög sem upp hafa komið á síðari
árum og eru svo mikilvæg.
Útgefandi er Fjölvaútgáfan.
Bókin er 224 bls. Verð 2.980 krón-
ur.
Tónleikar á
Solon Islandus
TÓNLEIKAR Sigurðar Halldórs-
sonar og Daníels Þorsteinssonar
verða haldnir á efri hæð Sólon
íslandus í kvöld, 19. desember, kl.
20. Tónleikamir áttu að vera á
Hvammstanga í kvöld, en voru
færðir til höfuðborgarinnar sakir
slæmrar færðar.
Á efnisskrá eru 20. aldar verk
fyrir selló og píanó: Moderato eftir
Sjostakóvítsj, Sónata eftir Debussy,
Sónata nr. 2 eftir Martinu og Sónata
eftir Schnittke.