Morgunblaðið - 15.01.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 15.01.1993, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993 OF lífid loft i hjólböróum eykur bensíneyéslu, jcifnvel um mörg pró- senf. Það er betra að hafq of hqqn þrýsting en of lágan. „Heimsbíll" með öryggið í fyrirrúmi Toyota Corolla bíll ársins í Finnlandi BLAÐAMENN við Tuulilasi sem er stærsta bílablaðið í Finnlandi hafa kosið Toyota Corolla bfl ársins í Finnlandi. Tuulilasi kemur mánaðarlega út í 100 þúsund eintökum, og er það orðin föst venja að blaðamenn þess kjósi bfl ársins. ÞÝSKU bílarisarnir BMW og Mercedes Benz hafa löngum keppt um efstu sætin á þýskum bílamarkaði og víðar hvað varðar vinsældir, öTff&i °S gæði og raunar á öllum sviðum. Fyrirtækið sem framleið- ir Mercedes Benz hefur þar ávallt haft forystu en nú þykja nokkur teikn á lofti um að BMW sé að síga framúr. Þýska bílablaðið „auto, motor und sport“ heldur þessu fram í nýlegri grein og bendir á að BMW hafi framleitt fleiri bíla á nýliðnu ári en Mercedes Benz og telur blaðið BMW standa betur að vígi í samkeppninni. Ástæðurnar fyrir góðri samkeppnisstöðu BMW telur blaðið vera stefnu fyrirtækis- ins og stjómun, hönnun, framboð í úrvali gerða, gæði, tækni, verð öryggi og ímynd - að fyrirtækið standi betur en keppinauturinn á öllum þessum sviðum. í öðru sæti á eftir Toyota Co- rolla, sem hlaut 26 stig í kosning- unni, varð Volkswagen Vento með 21 stig. í þriðja sæti varð Renault Safrane með 17 stig, Toyota Car- ina E og Mitsubishi Colt/Lancer urðu í fjórða til fímmta sæti með 11 stig, Alfa Romeo 155 varð í sjötta sæti með 10 stig, í sjöunda sæti varð Mazda 626 með sjö stig, í áttunda sæti varð Fiat Cinquec- ento með sex stig, í níunda sæti varð Mitsubishi 3000 GT með þijú stig og í tíunda sætinu urðu Toy- ota Previa, Ferrari 512 TR og Subaru SVX með tvö stig. ■ í lok síðasta árs var talið að heild- arframleiðsia BMW yrði kringum 588 þúsund bílar og að frá Merce- des Benz kæmu um 528 þúsund bflar. Mest sala hjá BMW er í 300 línunni sem er orðin mun meiri en bflar af 190 gerðinni frá Benz. Þýska bflablaðið telur BMW mun fljótari að bregðast við óskum markaðarins um breytingar og Nýr Saab 900 á markaðinn í haust NÝR SAAB 900 verður sýndur opinberlega í fyrsta skipti á alþjóðlegu bílasýningunni sem hald- in verður í Frankfurt næsta haust, og auk fímm dyra hlaðbaksútgáfunnar sem sést á myndinni hér til hliðar verður bíllinn fáanlegur í tveggja dyra útgáfu og með blæju. Hinn nýi Saab 900 hefur verið í tilraunaakstri undanfarið og hefur árvökulum ljósmyndurum þá tekist að ná af honum mýndum. Bíllinn verður fáan- legur með 2,3 lítra fjögurra strokka vél en auk þess verður hægt að fá hann með 2,5 lítra V-6 vél frá General Motors. Dýrasta gerðin verður fjórhjóladrifin sex gíra út- gáfa sem nær 225 km hámarkshraða, og 100 km hraða á innan við sjö sekúndum. ■ Nýr Saab 900 verður kynntur i Frankfurt næsta haust bendir á að ávallt líði 10 til 12 ár milli stórbreytinga hjá Mercedes Benz og staðhæfir einnig að nýja 300 línan hjá BMW sé mun betur heppnuð en S-línan hjá keppinautn- um. Þá segir að yfirstjóm hjá Mercedes Benz er mun fjölmennari og ákvarðanataka hægari en hjá BMW. Enn eitt dæmið um betri stöðu BMW er framboð og fjölbreytni inn- an hverrar línu. Af bílum úr 300 línunni seldust kringum 156 þúsund á síðasta ári meðan aðeins seldust um 76.500 af Mercedes Bens 190 gerðunum. Árið 1982 vom báðar þessar gerðir kynntar nýjar en BMW hóf að endumýja 300 línuna haustið 1990 og hefúr haldið því stöðugt áfram meðan Benz 190 hefur tekið litlum breytingum þar til að nýr bfll verður kynntur í ár. Engum vafa þykir undirorpið að báðir bflamir þykja vandaðir en bent er á að í lesendakönnunum tveggja síðustu ára sé BMW að sækja mjög á þótt Benz hafi yfír- höndina hvað varðar gæði og svip- aða sögu er að segja af tæknilegri stöðu. Minnt er á þá stefnu Merce- des Benz verksmiðjanna að nýjung- HELSTA nýjungin frá Ford á þessu ári er Ford Mondeo sem er arftaki hins vinsæla Sierra sem fyrst kom á markaðinn fyrir 10 árum síðan, en 3,4 miiyónir bfla af þeirri gerð hafa selst. Hulunni var svipt af Mondeo í síðustu viku, en bíllinn verður frumsýndur opinberlega á alþjóðlegu bflasýningunni sem haldin verður í Genf í mars og hefst þá sala á honum I Evrópu. Mondeo þýðir alheimur í lauslegri þýðingu, og hefur Ford kynnt nýja bílinn sem „heimsbO“, enda verður hann seld- ur í nánast sömu útgáfu um allan heim. Hingað tO lands er bíllinn væntanlegur næsta haust. Toyota Corolla fara framúr Mercedes Benz? Mazda með mávavængi MAZDA kynnti nýlega nýjan smábíl með dyrabúnaði sem oft hefur verið kallaður „máva- vængir“, en bílar með þessum búnaði komu fyrst fram fyrir 40 árum og hafa nokkrum sinn- um skotið upp kollinum síðan. Það hefur þótt mæla á móti búnaðinum að erfítt getur verið að komast úr úr bílum með slík- um dyrum, ef þeir velta á þakið og er það meginástæðan fyrir að þeir hafa ekki orðið algengir. Þetta er sportbíll sem kallazt Mazda AZ-1 og rúmar hann einn farþega auk ökumanns. Hann er eingöngu seldur í Japan enn sem komið er og verða 800 bílar fram- leiddir á mánuði, en ekki hefur verið upplýst hvort um útflutning til annarra landa verði að ræða í framtíðinni. í bílnum er þriggja strokka 12 ventla 675 rúmsentí- metra vél sem afkastar 65 hestöfl- um. Yfirbyggingin er úr plasti, enda vegur bíllinn aðeins 720 kfló. Vélin er að baki sætanna og liggur þversum í bflnum. Bfllinn nær 150 km hámarkshraða og 100 km hraða nær hann á 10 sekúndum. Mazda AZ-1 með „mávavængjum". Mondeo verður framleiddur í verksmiðjum Ford á fjórum stöð- um í heiminum þegar fram líða stundir, en fyrstu bflamir verða framleiddir í verksmiðju fyrirtæk- isins í Belgíu þar sem framleiðslan hófst fyrir nokkru síðan. Þar verða framleiddir 2.000 bflar á dag, en þegar eru rúmlega 100 bflar í til- raunaakstri í Þýskalandi, Bret- landi og í Finnlandi. Framleiðsla í Bandaríkjunum hefst hins vegar ekki fyrr en um mitt næsta ár. Mondeo er framhjóladrifínn og í flokki meðalstórra bfla, en með honum hefur Ford sagt skilið við bfla með afturhjóladrifí. í bílnum verður hin nýja Zeta vél úr Ford Escort, og er minnsta gerðin ný 1,6 lítra útgáfa. Stærsta vélin verður ný 2,0 lítra vél, en einnig verður bfllinn fáanlegur með 1,8 lítra vélinni sem þegar er í Ford Escort. Vökvastýri er í bílnum og ABS-bremsukerfi verður fáanlegt sem aukabúnaður. Líkt og var með Sierra verður Mondeo einungis fáanlegur sem fjögurra dyra stall- bakur og fimm dyra hlaðbakur, en einnig verður hann fáanlegur sem skutbíll. í Mondeo er lögð mikil áhersla á allan þann nýjasta tæknibúnað sem finna má í bílaiðnaðinum, og þá ekki síst hvað varðar öryggis- búnaðinn. Meðal nýjunga sem verður staðalútgáfa í öllum gerð- um bílsins er loftpúði í stýri og innan tíðar verður loftpúði einnig farþegameginn. í tengslum við Nær BMW að J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.