Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 5

Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1993 5 Unnið að viðgerð byggðalína BYGGÐALÍNUR er hringtengja landið biluðu beggja megin við Hornafjörð í of- viðrinu er dýpsta lægð síðari tíma gekk yfir landið á dögun- um. Þurfti af þeim sökum að skammta rafmagn í Austur- Skaftafellssýslu í nokkum tíma. Er veðrinu slotaði kom í ljós að staurastæða í suðurlínu milli Klausturs og Hafnar hafði brotnað við Lómagnúp og er þetta í fyrsta skipti sem staurar brotna í þess- ari línu milli Sigöldu og Hafnar í þau 10 ár sem hún hefur staðið enda þarf nokkuð til, þar sem í þessu tilviki var ekki ísing á línunni heldur aðeins rok. Stauramir em engin smásmíði, 15 metra háir og 35 cm í þvermál. Myndin er tekin af starfsmanni Lands- virkjunar að vinna við línurnar. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Islandi í þríðja sinn stefnt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu Mál um atvinnufrelsi bíl- stjóra tekið fyrir í febrúar MÁL Sigurðar Sigurjónssonar leigubílstjóra gegn íslenska ríkinu verð- ur flutt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í Strasbourg 22. febrúar næstkomandi. Mannréttindanefnd Evrópu hefur samþykkt með 17 at- kvæðum gegn 1 að flytja mál Sigurðar fyrir dómstólnum en hann tel- ur það brjóta gegn 11. grein mannréttindasáttmála Evrópu að það sé með lögum gert að skilyrði fyrir atvinnuleyfi hans að hann sé félagi í Frama, félagi leigubílstjóra. í þriðja sinn fyrir Mannréttindadómstól Þetta er þriðja málið á nokkrum misserum sem Mannréttindanefnd Evrópu ákveður að höfða fyrir Mann- réttindadómstólnum gegn íslenska ríkinu. Fyrri málin voru mál Þorgeirs Þorgeirssonar, sem lauk með áfellis- dómi vegna 108. grein almennra hegningarlaga um æruvernd opin- berra starfsmanna, og mál Jóns Kristinssonar, sem lauk með sátt sem leiddi til hinna umfangsmiklu breyt- inga sem gerðar voru á íslenskri dómstólaskipan síðastliðið sumar. Árið 1988 dæmdi Hæstiréttur ólögmæta atvinnuleyfissviptingu Sigurðar, sem hafði verið sviptur leyfi til leiguaksturs vegna þess að hann neitaði að greiða félagsgjöld til Frama eins og skylt var sam- kvæmt reglugerð. Dómur Hæstarétt- ar byggðist á því að hömiur af þessu tagi á atvinnufrelsi væru því aðeins heimilar að þær styddust við sett lög. Islenska ríkið brást við dóminum með því að setja lög sem gerðu aðild að Frama að skilyrði fyrir leyfi til leiguaksturs og skaut Sigurður mál- inu þá til Mannréttindanefndarinnar sem samþykkti að flytja það fyrir dómstólnum. Dóms að vænta í sumar Að sögn Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar hrl., lögmanns Sigurðar Sigur- jónssonar, er það Mannréttindanefnd Evrópu sem verður sækjandi málsins gegn ríkinu fyrir dómstólnum en Jón Steinar mun ávarpa dómstólinn sem talsmaður Sigurðar. Málstað íslenska ríkisins veija Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri, Markús Sigur- björnsson prófessor og Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður. Eins og fyrr sagði verður málið flutt þann 2. febrúar en Jón Steinar kvaðst telja að vænta megi dóms öðru hvoru megin við sumarleyfi. Fornleifa- rannsóknir neðansjávar STEFNT er að því hjá Þjóð- minjasafni íslands að standa að neðansjávarkönnun á skipunum sem eru á botni Breiðafjarðar í sumar ef fjárhagur leyfir. Ef af rann- sókninni verður er þetta í fyrsta sinn sem Þjóðminja- safnið stendur að neðan- sjávarkönnun. Skipin tvö, sem fundust af áhugaköfurum, eru á sjávar- botni hjá Flatey í Breiðafirði. Guðmundur Olafsson forn- leifafræðingur hjá Þjóðminja- safninu sagði að annað skipið væri frá miðri 17. öld en hitt, sem fyrst hefði verið talið frá aldamótum, væri að öllum lík- indum eitthvað eldra. Sumarið er ekki langt undan hjá SAS og ódýru sumarfargjöldin ekki heldur! Sumarfargjöldin gilda fyrir tímabilið 15.4. - 30.9. 1993 Sölutími: 18.1. - 28.2. 1.3. - 30.4. 1-5. - 30.9. Kaupmannahöfn 22.900.- 25.900.- 28.900.- Gautaborg 22.900.- 25.900.- 28.900.- Osló 22.900.- 25.900.- 28.900.- Stokkhólmur 24.900.- 26.900.- 29.900.- Bókunarfyrirvari 21 dagur. Lágmarksdvöl 6 dagar. Hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur 33%. 1.310 kr. innlendur flugvallarskattur er ekki innifalinn 1 uppgefnu verði auk 672 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar. Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína eða söluskrifstofu SAS. SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 172 Sími 62 22 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.