Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993
Akvarðanir
verði teknar
um GATT
ARTHUR Dunkel, fram-
kvæmdastjóri GATT, Almenna
samkomulagsins um tolla og
viðskipti, sagði í gær að viðræð-
umar um nýjan GATT-samning
væru á lokastigi. Hann hvatti
ríkisstjómir til að taka þær
pólitísku ákvarðanir sem nauð-
synlegar væni tiL að leiða þær
til lykta. Sir Leon Brittan, sem
fer með utanríkisviðskipti inn-
an framkvæmdastjómar Evr-
ópubandalagsins, sagði að hver
vika sem Jiði án þess að samn-
ingurinn tæki gildi væri afar
dýrkeypt fyrir þjóðir heims.
Málshöfðun
gegn dómur-
um Honeckers
NOKKRIR þýskir þingmenn
sögðu í gær að þeir hygðust
höfða mál gegn dómurunum
sem kváðu upp þann úrskurð
að leysa bæri Erich Honecker,
fyrrverandi leiðtoga Austur-
Þýskalands, úr haldi. Þeir
sögðu að fallið hefði verið frá
ákæmnum á hendur honum af
pólitískum ástæðum en ekki
vegna sjúkdóms hans.
Árásir á olíu-
stöðvar í
Angóla
OLÍUVINNSLUSTÖÐVAR
Angóla urðu fyrir árásum UN-
ITA-skæmliða í gær og stjórn-
arerindrekar skýrðu frá hörð-
um bardögum í borginni Hu-
ambo. Flytja varð erlenda
starfsmenn og fjölskyldur
þeirra úr olíuborginni Soyo eft-
ir árásimar og talið er að
skæruliðamir séu að heija um-
sátur um borgina.
„Tótó“ kveðst
saklaus
SALATORE „Tótó“ Riina,
voldugasti mafíuforingi Ítalíu,
hefur neitað því að vera viðrið-
inn ítölsku mafíuna, að sögn
ítalskra dagblaða í gær. „Það
skrímsli sem allir álíta mig vera
er ekki til,“ sagði hann við yfír-
heyrslur dómara í máli hans.
„Það sem er raunverulega til
er það sem þið sjáið; vesælt og
veikt gamalmenni."
Uppgangs
ekki að vænta
í Þýskalandi
STJÓRN Þýskalands sagði í
gær að ekki væri að vænta
efnahagsuppgangs á árinu en
efnahagurinn gæti þó byrjað
að rétta úr kútnum í lok ársins
takist að draga úr útgjöldum
ríkisins og fallist verkalýðsfé-
lög á takmarkaðar launahækk-
anir.
Eftirlaun
hækka í Rúss-
landi
VASÍLÍJ Bartsjúk, Qármála-
ráðherra Rússlands, sagði í gær
að ákvörðun rússneska þings-
ins um að hækka eftirlaun um
90% væri dauðadómur yfir Ijár-
lagafmmvarpi stjómarinnar
fyrir þetta ár. Taka þyrfti það
til endurskoðunar þar sem
ákvörðun þingsins þýddi
„hækkun launa og allra ann-
arra útgjalda".
Skoðanakannanir um væntingar Bandaríkjamanna til Clintons
Fleirijá-
kvæðir en
í nóvember
New York. Reuter.
MUN fleiri hafa jákvæðar skoðan-
ir á Bill Clinton, verðandi Banda-
rílqaforseta, en áður en hann var
kjörinn forseti í nóvember, sam-
kvæmt tveimur skoðanakönnun-
um sem birtar voru á mánudag.
í könnun, sem gerð var fyrir CBS-
sjónvarpið og dagblaðið The New
York Times, sögðust 45 af hundraði
aðspurðra hafa gott álit á Clinton
en 19% slæmt. Fyrir kosningamar
vom 40% jákvæðir í garð Clintons
en 41% neikvæðir.
Niðurstaða könnunar ABC-sjón-
varpsins og dagblaðsins Washington
Post var svipuð. 68% aðspurðra sögð-
ust hafa jákvæðar skoðanir á Clint-
on, 12 prósentustigum fleiri en fyrir
kosningamar, 60% vom ánægðir
með val hans á ráðhermm og 81%
sögðu að hann hefði staðið vel að
undirbúningi valdatökunnar. Rúmur
helmingur aðspurðra kvaðst telja að
Clinton myndi standa sig betur í for-
setaembættinu en George Bush, fráf-
arandi forseti. Áður en Bush varð
forseti töldu aðeins 23% að hann
myndi standa sig betur en fyrirrenn-
ari hans, Ronald Reagan.
49% telja nú að Clinton muni
standa sig vel þurfí hann að takast
á við kreppu á alþjóðavettvangi, 27
prósentustigum fleiri en fyrir kosn-
ingamar. Bandaríkjamenn höfðu þó
alltaf mun meira traust á Bush á
þessu sviði.
♦ » ♦
Clinton inn - Bush út
Bill Clinton verður settur í embætti forseta Bandaríkjanna við hátíðlega athöfn í dag og verður hún sýnd í beinni
útsendingu í ríkissjónvarpinu klukkan 16. Myndin er af vaxmyndum af Clinton og George Bush, fráfarandi for-
seta, þegar myndin af Clinton var sett í sýningarsal Tussaud-safnsins í Lundúnum en vaxmyndin af Bush flutt út.
Sænskir jafnaðarmenn óánægðir með Myntbandalag Evrópu
Taka ekki afstöðu
Barcelona
býður 260
milljónir
San Lorenzo del Escoria. Reuter.
DAGBLÖÐ á Spáni hafa skýrt frá
því að Barcelona-borg bjóðist til
að halda heimsmeistaraeinvígið í
skák í haust. Verðlaunaféð sem
borgin býður nemur fjórum millj-
ónum dala (tæpum 260 m.kr.).
Að sögn blaðanna hefur heims-
meistarinn Garrí Kasparov lýst sig
reiðubúinn til að tefla í Barcelona
við áskorandann, sem verður annað-
hvort Nigel Short eða Jan Timman.
Aðrir staðir sem nú eru til umræðu
eru Berlín, Zagreb og Djakarta.
8. febrúar næstkomandi, þremur
dögum eftir að einvígi Shorts og
Timmans lýkur, ætlar Alþjóðaskák-
sambandið, FIDE, að tilkynna hvar
einvígið fer fram.
til EB-aðildar strax
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
EIN helsta krafa sænska Jafnaðarmannaflokksins, áður en viðræð-
umar um aðild að Evrópubandalaginu (EB) hefjast, er að Svíar
þurfi ekki að taka afstöðu strax til þriðja og síðasta skrefsins í átt
að Myntbandalagi Evrópu, EMU. EB gerir hins vegar þá kröfu að
Svíar geri upp hug sinn nú þegar þó að það skýrist ekki fyrr en á
ríkisstjórnaráðstefnu EB árið 1996 hvað muni felast í þessu þriðja
skrefi. Hafa þvi jafnaðarmenn frestað því að taka afstöðu til aðildar.
Á þetta vilja jafnaðarmenn ekki
fallast þó svo að þeir gangi ekki jafn
langt og ungliðahreyfíng flokksins,
SSU, sem á flokksráðsfundi á mánu-
dag fór fram á að haldinn verði þjóð-
aratkvæðagreiðsla um EMU. Engar
tillögur voru uppi á flokksráðsfundin-
um um að fresta aðildarviðræðunum
en hins vegar ákvað flokkurinn að
taka ekki afstöðu til EB-aðildar fyrr
en niðurstöður aðildarviðræðnanna
liggja fyrir.
Þá verður kallað saman auka-
flokksþing þar sem stuðningsmenn
og andstæðingar aðildar munu kynna
mat sitt á samningnum. í framhaldi
af því mun flokkurinn ákveða hvort
að hann beini því til flokksmanna
sinna að samþykkja eða fella aðild
þegar þjóðaratkvæðagreiðsla verður
haldin um málið. Flokkurinn sjálfur
mun ekki hafa afskipti af sjálfri þjóð-
aratkvæðagreiðslunni heldur eiga
flokksmenn að beijast á báðum víg-
stöðvum.
Þingflokkur jafnaðarmanna sam-
Mannskætt óveður í Vestur-Noregi
Yfir 400 manns fluttir
á brott vegna snjóflóða
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÁRVIÐRI gekk yfir vesturhéruð Noregs um helgina, í bænum
Odda við Suðurfjörð, er gengur suður úr Harðangursfirði, fórst
kona um sjötugt í snjóflóði og nokkur hundruð manns voru flutt á
brott. Víða Ienti fólk í hrakningum, samgöngur, þar á meðal lesta-
ferðir milli Óslóar og Björgvipjar, fóru úr skorðum og um hríð var
óttast um nokkra ferðalanga en ólíklegt er talið að fleiri hafi far-
ist. Veðrið var að ganga niður síðdegis í gær.
Gauti Amþórsson er yfirlæknir á
sjúkrahúsinu í Odda, tók þar við
starfi 1. nóvember sl. „Flóðið féll
úr fjallshlíðinni vestan megin við
fjörðinn sem Odda stendur við,“
sagði Gauti í samtali við Morgun-
blaðið. „Bærinn er beggja megin
við fjarðarbotninn. Við sjáum þetta
vel út um gluggann þar sem við
búum. Þetta er ofboðslegt að sjá
tilsýndar, magnið virðist vera geysi-
legt og hefur runnið yfír byggðina
að nokkru leyti. Magnið er held ég
meira en í snjóflóðum heima enda
eru Ijöllin hér hátt á annað þúsund
metrar að hæð, þar snjóar því geysi-
lega mikið, og víða eru þau alveg
snarbrött fram í sjó. Byggðin er
eiginlega öll á mjög mjórri land-
ræmu við flöruna og á klettasyllum
upp eftir fjallshlíðunum. Þetta
minnir svolítið á Týról í Alpafjöllum,
alveg ævintýralegt að sjá. Undir-
lendi er víðast hvar mjög lítið.
Sérfræðingar segja að mesta
hættan sé úr sögunni í bili. Það sem
getur skriðið er þegar skriðið en
auðvitað getur bæst hratt við snjó-
inn aftur. Þeir hafa flogið yfir svæð-
ið á þyrlum í dag og rannsakað
aðstæður. Meira en 400 manns voru
flutt af staðnum þar sem flóðið féll
en mér skilst að nú sé búið að leyfa
þeim að snúa heim á ný. Öldruð
kona fórst í flóðinu, lokaðist inni í
húsi, og fáeinir meiddust en enginn
alvarlega."
Gauti sagði að snjóflóð og aur-
skriður væru algeng á þessum slóð-
um í Vestur-Noregi vegna mikillar
úrkomu auk brattans og hæðar
fjallanna. Alls búa um 8.000 manns
í sveitarfélaginu, meirihlutinn í
bænum en þar eru tvær málmverk-
smiðjur. Áður var sauðfjárrækt að-
alatvinnugrein en iðnaður tók við
þegar byijað var að virkja vatnsföll-
in á svæðinu. Náttúrufegurð er
mikil þarna og jafnan mikið um
ferðamenn.
þykkti í gær að krefjast þess að
Svíar standi fyrir utan EMU þar til
eftir ríkisstjómaráðstefnuna 1996.
Þá vill þingflokkurinn að ríkisstjómin
lýsi því yfir að Svíar muni ekki eiga
neina aðild að hemaðarbandalögum
og að aðild að Vestur-Evrópusam-
bandinu sé því ekki á dagskrá.
„Menn verða að vita hvað þeir
vilja og við erum þeirrar skoðunar
að EB-aðild sé Svíþjóð til framdrátt-
ar,“ sagði Carl Bildt forsætisráð-
herra þegar hann var spurður um
hina breyttu afstöðu jafnaðarmanna
á blaðamannafundi í Gautaborg í
gær. Bildt tók fram að allir helstu
stjómmálaflokkar Svíþjóðar, að
Jafnaðarmannaflokknum undan-
skildum, hefðu tekið afstöðu í mál-
inu. Hann sagði EB-aðild vera mik-
ilvæga forsendu þess að hægt yrði
að ná niður atvinnuleysinu. „EB-
aðild tryggir ekki að lausn finnist á
öllum vandamálum. Hins vegar fáum
við forsendur til að leysa umhverf-
is-, efnahags- og atvinnuvandann í
Evrópu á tíunda áratugnum sem og
vandamál Austur-Evrópu. Ég vil ekki
að Svíþjóð verði jaðarsvæði í evr-
ópskri samvinnu. Það eru ekki lengur
til neinar þjóðlegar lausnir á evrópsk-
um vandamálum," sagði Bildt.
-------------» ♦ »
Utanríkis-
ráðherra
Sviss hættir
ZUrich. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
RENE Felber, utanríkisráðherra
Sviss, hefur ákveðið að láta af
störfum í lok mars af beilsufars-
ástæðum. Felber var skorinn upp
við krabbameini í blöðru í maí.
Felber beitti sér fyrir aðild Sviss
að samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES) og er hlynntur
aðild þjóðarinnar að Evrópubanda-
laginu (EB). Talið er að neikvæð
úrslit þjóðaratkvasðagreiðslunnar um
EES hafi frekar flýtt fyrir ákvörðun
hans að hætta en hitt.