Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993
11
Einsöngstónleikar í Gerðubergi
ÁSA LÍSBET Björgvinsdóttir,
mezzosópran, og David Know-
les, píanóleikari, halda tón-
leika í Gerðubergi, fimmtudag-
inn 21. janúar. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30.
og einnig hjá Anthony Hose.
Síðastliðið ár hefur hún verið nem-
andi Elsu Waage og er nú á förum
til New York í framhaldsnám hjá
Michael Trimble hjá hjá New York
Vocal Institute.
Nýr sýningarsalur í Hafnarfirði
David Knowles er Englendingur
af velskum og þýskum ættum.
hann hefur verið búsettur á ís-
landi síðastliðin tíu ár. Hann út-
skrifaðist sem píanóleikari með
undirleik sem sérgrein, frá Royal
Northern College of Music í Manc-
hester. David hefur verið þátttak-
andi í ijölda námskeiða, meðal
annars hjá Peter Pears, Dalton
Baldwin, Gerard Sousay og Geof-
frey Parsons. Hann hefur komið
fram með söngvurum og hljóð-
færaleikurum bæði hérlendis og
erlendis.
Ása Lísbet Björgvinsdóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Guðjón Ketilsson og Þórdis Sigurðardóttir sýna verk sín á opnunar-
sýningu Portsins.
Ása Lísbet byijaði að læra söng
haustið 1982 við Söngskólann í
Reykjavík, hjá Guðrúnu Á. Símon-
ar. Síðan var hún í sex ár í ein-
katímum hjá Guðmundu Elíasdótt-
ur, fyrir utan eitt ár sem hún
dvaldi í Austur-Berlín, hjá Cristu
Nico, prófessor við tónlistarhá-
skólann þar. Ása Lísbet hefur auk
þess sótt námskeið hjá Eugeniu
Ratti, bæði á Ítalíu og á íslandi
VACHAREÚWPlSÍYTEXm
nairfatnaouna hetlasoluverdi
fáuívþess fjöldi snyrtivara á kynninparverdi
Cáarr JJ^m^Vsm? 7't......riniiin ~
wBjFaplegraosnöf ? ’ardandt jórdunoglitiM
t&OKKIihf, heildverslun^^^^^^-
Haraldur Jónsson
sýnir í Gerðubergi
í GERÐUBERGI stendur yfir
sýning áverkum Haraldar Jóns-
sonar. Á sýningunni eru lág-
myndir og skúlptúrar sem Har-
aldur hefur unnið að á undan-
förnum árum. Þetta er fimmta
einkasýning Haraldar og er hún
opin til 16. febrúar.
Haraldur er fæddur 1961 í Hels-
inki í Finnlandi. Hann stundaði
nám í Myndlista- og handíðaskóla
íslands og Kunstakademie í Dus-
seldorf í Þýskalandi og útskrifaðist
þaðan 1990. Hann hefur haldið
einkasýningar á íslandi og í
Þýskalandi og tekið þátt í samsýn-
ingum á íslandi, Þýskalandi, Aust-
urríki, Finnlandi, Póllandi og Hol-
landi. Haraldur hefur einnig
stundað ritstörf og framið gjörn-
inga.
Verkin í Gerðubergi eru rýmis-
verk og öll ný af nálinni. Þau eru
unnin úr ólíkum efnum og við-
fangsefnin eru gegnsæi og tak-
mörk.
Sýningin er opin mánudaga til
fimmtudaga kl. 10-22, föstudaga
kl. 10-16 og laugardaga kl.
13-18. Lokað á sunnudögum.
(Fréttatilkynning)
Vegna fjölda áskorana:
LAUGARDAGINN 23. JANUAR
Þríréttuð máltíð og sýning á aðeins kr. 2.900,-
Þú sparar kr. 2.000,-
Missið ekki af einni bestu sýningu sem hér hefur verið.
Matseðill:
Gratineruð frönsk lauksúpa
Lambapiþarsteik m/rósapiparsósu
Jarðarberjarjómarönd
Kynnir: Hinn eldhressi Hemmi Gunn.
Rúnar Júlíusson.Shady Owens og Cuba Libra leika fyrir dansi.
Verð á dansleik kr. 1.000,-
Morgunblaðið/Sverrir
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ásamt listamönnunum
Braga Ásgeirssyni og Sverri Ólafssyni við opnun hins nýja sýningar-
salar Myndlistaskólans í Hafnarfirði.
ar yrðu haldnar á ári en þar fyrir
utan yrði sýningasalurinn rekinn
eins og annað sýningarhúsnæði
allt árið um kring.
Myndlistaskólinn í Hafnarfirði
tók til starfa síðasta haust. Að
sögn Arnars voru um 70-80 nem-
endur á haustönn en kennsla á
vorönn hefst í næstu viku. Kennd
er málun, vatnslitamálun, og
teiknun. Skólinn starfrækir einnig
barna- og unglingadeildir þar sem
kennt er að vinna í leir, teikna og
mála. Örn sagði að lokum stefnt
væri að því að opna skúlptúrdeild
næsta haust ef fjárráð leyfðu.
Myndlistaskólinn í Hafnarfirði
er rekinn af hlutafélaginu Himni
og hafi, og eru Sverrir Ólafsson
og Olgeir Skúli Sverrisson í for-
svari fyrir það. Rekstur skólans
er styrktur að hluta af bæjaryfir-
völdum í Hafnarfirði. Að sögn
Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar,
bæjarritara, styrkir bærinn Mynd-
listaskólann í Hafnarfirði með
framlagi sem samsvarar húsleigu
fyrir húsnæði skólans.
Þrír listamenn sýna á opnunar-
sýningu Portsins. Það eru þau
Bragi Ólafsson, Þordís Sigurðar-
dóttir og Guðjón Ketilsson.
$ HOm, Ig'LAND
Húsið opnað kl. 20
Miðasala oe borðaDantanir í síma 687III,
2:hæð, RevkiavíkTsimi 677599.
MYNDLISTASKÓLINN í
Hafnarfirði opnaði nýjan sýn-
ingarsal laugardaginn 16. jan-
úar sl. Telst það nýlunda hér-
lendis að myndlistaskóli reki
sýningarsal. Sýningarsalurinn
nefnist Portið og er á neðri
hæð skólans við Strandgötu 50
í Hafnarfirði.
Örn Óskarsson, skólastjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að sér væri ekki kunnugt um það
að annar skóli hefði rekið sýning-
arsal eins og Myndlistaskólinn í
Hafnarfirði. Hann sagði að for-
ráðamönnum skólans fyndist það
mikilvægt að nemendur skólans
væru í nánum tengslum við lista-
menn sem væru orðnir fullnuma
í sinni list. Þannig gætu nemendur
séð hvernig framtíðin yrði. Örn
sagði að forráðmenn skólans teldu
þetta fyrirkomulag mjög hvetjandi
bæði fyrir nemendur og starfandi
listamenn. Tvær nemendasýning-
Nýjar
bækur
Út ERU komnar fjórar nýj-
ar kiljur sem íslenski kilju-
klúbburinn hefur sent frá
sér:
■ Hella sem er fyrsta skáld-
saga Hallgríms Helgasonar
kom fyrst út árið 1990.
Bókin er 151 blaðsíða og
kostar 790 krónur.
■ Hringsól er skáldsaga eft-
ir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur
sem fyrst kom út árið 1987.
Bókin er 310 blaðsíður og
kostar 790 krónur.
■ Leiðarbækur úr fyrstu
siglingunni til Indíalands
1492-1493 eftir Kristófer
Kólumbus eru nú gefnar út í
nýrri þýðingu Sigurðar Hjart-
arsonar í tilefni af því að 500
ár eru liðin frá fyrstu landtöku
Kólumbusar í Ameríku.
Þýðandi samdi inngang og
tók saman skýringar.
Bókin er 187 bls. og kost-
ar 690 krónur.
I Síðasti njósnarinn er
saga eftir danska rithöfundinn
Leif Davidsen.
í kynningu segir um sögu-
efnið: „I Danmörku kemur upp
dularfullt njósnamál sem teyg-
ir anga sína bæði til Tékkó-
slóvakíu og Rússlands.
Sverrir Hólmarsson þýddi.
Bókin er 281 bls. og kostar
690 krónur.
Útgefandi er íslenski kilju-
klúbburinn.