Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 28

Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1993 Ingimar Eydal — Minning Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (Vald. Briem.) Elsku Ásta, Guðný, Inga, Ingi- mar, Dísa og fjölskyldur. Okkar inni- tegustu samúðarkveðjur. Gugga, Fía, Inga og Ragna. Horfinn er á braut mikill hæfi- leikamaður, sem sárt er saknað um land allt. I vöggugjöf hlaut hann tónlistargáfu sem hann ræktaði af Joistgæfni og varð öðrum til ánægju í áratugi. Hann var einstakur elju- maður, sem skipti sótarhringnum niður í starfseiningar og stuttan svefntíma, kátur félagi með gnótt af græskulausum gamansögum, fullur áhuga um heilbrigt mannlíf og mátti ekkert aumt sjá. Stundum tilfinninganæmur og alvörugefinn viðmælandi, vandur að virðingu sinni og fastur fyrir í skoðunum, þegar rætt var um menn og málefni, mik- ill félagshyggjumaður og svo hjálp- samur að hann gat varla sagt nei 'vdð nokkurri bón. Þetta var góður drengur og íslendingur eins og þeir verða bestir. Ingimar Eydal var innfæddur Akureyringur. Komungur fór hann að leika á hljóðfæri og varla kominn af bamaskólaaldri þegar hann var ráðinn í hljómsveit. Hann stofnaði sína eigin hljómsveit 1960 og starf- aði á þeim vettvangi allt til dauða- dags. Þær hljómsveitir sem hann stjómaði náðu allar miklum vinsæld- um og gerðu nafn hans þekkt um land allt. Hann var líka einstaklega laginn við að finna hæfileikaríkt fólk til samstarfs og það virti hann og dáði. En Ingimar lét sannarlega ekki staðar numið við hljómsveitarstjóm- Hann aflaði sér mikillar þekking- ar á tónlist svo og kennaraprófs í faginu og 1965 hóf hann kennslu í Tónlistarskóla Dalvíkur og var þar jí tvö ár, en eftir það kenndi hann við grunnskólana á Akureyri, mest við Gagnfræðaskóla Akureyrar, einnig að hluta við Barcaskóla Akur- eyrar í nokkur ár og um 15 ára skeið að hluta við Oddeyrarskóla. Ingimar var skemmtilegur kenn- ari, sem fór á kostum við hljóðfær- ið, spjallaði við krakkana, sagði þeim brandara og hló eins og þau. Hann 'stjómaði stómm skólakórum og oft- ast fór stærð þeirra eftir því hversu margir vildu vera með, því sönggleði einstaklinganna á gmnnskólaaldrin- ^im taldi hann skipta meira máli en afburðaárangur fárra krakka eftir miklar æfingar og oft strangan aga. Ég kynntist Ingimari þegar hann hóf störf hér við skólann og mat hann því meir sem kynni okkar urðu lengri. Vinnudagurinn var tvöfaldur eða jafnvel þrefaldur á við það ssem almennt gerðist. Hann átti sæti í ijölmörgum nefndum og ráðum svo sem æskulýðsráði, áfengisvama- nefnd, félagsmálaráði, umhverfis- nefnd og um tíma i skólanefnd svo eitthvað sé nefnt. Lengi var hann æðstitemplar stúkunnar Brynju nr. s99, í stjórn Borgarbíós, virkur félagi í starfsemi KEA, sat í félagsráði Tónlistarskóla Akureyrar og einn af stofnendum Kiwanisklúbbs Akur- eyrar. Hann tók einnig virkan þátt í stjómmálum og var um skeið vara- fulltrúi Framsóknarflokksins í bæj- arstjóm Akureyrar. Hann var ákaflega jákvæður og -iifandi einstaklingur sem lét sér málefni dagsins varða og til hans var kallað um störf úr öllum áttum. Hann var ekki fyrr búinn að loka hljóðfærinu í skólanum en hann var farinn á fundi, hljómsveitaræfíngar eða í hljómleikaferðir vítt og breitt um landið eða jafnvel til annarra landa. Ætti hann smugu þurfti hann oftast að leika á hljóðfæri hér og þar eða fara í útvarpið, en þar var hann um langan tíma með hljómlist- arþætti. Ingimar stóð þó ekki einn. Hann átti úrvalskonu, Ástu Sigurðardóttir, og með henni fjögur böm sem nú em uppkomin. Þau heita Guðný Björk, Inga Dagný, Ingimar og Ás- dís Eyrún Eydal. Heimilið var honum homsteinn lífsins og auðfundið var að skoðanir konu hans skiptu hann mjög miklu máli. Margar leiðir liggja um heim. Einn er endir á öllum þeim. Sumir lifa skemur en aðrir, en afreka þó meira en margur á langri ævi. Ingimar Eydal var einn þeirra. Hann markaði áberandi spor í sam- tíðina. Spor, sem öll lágu að því marki að hjálpa, bæta og göfga. Hans munu margir minnast um ókomin ár. Ég flyt eiginkonu hans, bömum og öðmm ættingjum innilegar sam- úðarkveðjur. I.Ú. Fagrar myndir ljóma af Ingimar Eydal í blámóðu minninga minna. Þær lýsa á skilnaðarstund og fylla mig þakklæti fyrir að hafa mátt njóta vináttu hans og að verða fyrir áhrifum af honum. Við kynntumst á því viðkvæma aldursskeiði í lífi mínu þegar heim- urinn var hvítur eða svartur, menn vom algóðir eða ómögulegir, fá- dæma dirfska birtist í að vera með bítlakoll og maður laumaðist til að leika eftir eyranu og bæta bláum tónum, sjöundum, níundum og svo- litlu „offbíti" í eymakonfektsupp- skrift í annars hefðbundnu tónlist- amámi. í óvissunni um sjálfan mig, rétta eða ranga tónlist, hvort hinir heitu tónar sveiflunnar og krydduðu hljómar þyldu dagsbirtu kom Ingi- mar inn í líf mitt. Ég var formaður fyrir fámennu tónlistarfélagi MA 1962-1965 og við urðum okkur m.a. úti um hljóm- plötur á ameríska bókasafninu í Geislagötu til að færa út landhelgi tónlistarheims okkar félaga. Á safn- inu var djassinn og klassísk tónlist í sömu rekkum á ósköp jafnaðarlegu plani og þessu áttum við ekki að venjast. Jafnræði þessara jurtategunda í lystigarði tónanna varð svo endan- lega innsiglað í huga mínum þegar Ingimar kjmnti fyrir okkur, lék alla stílana, talaði eins og honum var einum lagið um Ellington, Count Basie, Monk, Coleman og alla hina svo vel að maður gat búist við að mæta þeim í kaupfélaginu næsta dag. Ekki dugði að vera venjulegur áheyrandi í viðurvist slíks manns og fyrst maður blés ekki í lúður og pían- istum ofaukið, þá varð að láta eigin barka hljóma. Við stofnuðum kvartett sem við vomm feimnir að gefa nafn, því það hefur aldrei verið til nema einn MA-kvartett. Fljótlega nutum við aðstoðar Ingimars og sveiflan fór að aukast. „Hvemig líst ykkur á þetta strákar; Deep river boys sungu þetta svona um árið“, og fylgdi hljómandi dæmi, fint! útsetningar fæddust á staðnum, og hvort sem það vom Djúpárdrengir eða Glerár- strákar þá srnitaði Ingimar okkur af sannri söng- og llfsgleði svo við urðum aldrei samir. Þetta rifjaðist upp þegar við tók- um upp þráðinn á 25 ára stúdents- afmæli okkar 1990, og sungum á fyrstu MA ’90 hátíðinni í íþróttahöll- inni á Akureyri og sem fyrr var Ingi- mar driffjöðurin. Ingimar var ekki einhamur og það var hreint með ólíkindum hve vítt hans áhugasvið spannaði, en velferð fólks, umhyggja fyrir náunganum og friður á jörð tengdust oftar en ekki áhugamálum hans. Þegar ég kom að utan frá tónlist- amámi og hóf kennslu á Akureyri þá var ég með eitt og annað í far- teskinu sem mér þótti ekki beint árennilegt sem kennsluefni fyrir börn og unglinga. Eitt af því var tónverk eftir Krzysztof Penderecki er hann samdi til minningar um þann hildarleik sem hlaust af atómsprengju þeirri sem varpað var á Hiroshima en þá ógn og skelfingu málar hann nístandi tónalitum. Ég átti bæði upptöku og nótur af verkinu og vakti hvort tveggja mikinn áhuga hjá Ingimar sem kennsluefni fyrir nemendur í Gagn- fræðaskóla Ákureyrar í bland við bítlatónlist og kenndi hann þetta efni með góðum árangri í mörg ár. Þar fann Ingimar að áhrif tónlist- arinnar eru ekki einasta gleði, því þau spanna allt lífssviðið og geta jafnvel speglað og magnað hið vo- veiflega og átt m.a. það erindi að forða okkur frá hinu illa. Það er svo margs að minnast og margt að þakka. Samstarf í stjóm Tónlistarfélagsins um áraraðir, kaffiumræður og alla bollana sem boðnir vom en ekki tími til að drekka. Hér verður numið staðar, en lífið heldur áfram og mikið emm við rík hér á Akureyri að hafa átt svo gef- andi þegn sem Ingimar Eydal, þess mun lengi finna stað. Við þökkum forsjóninni að mega deila með öðmm þeirri hamingju að hafa átt Ingimar að vini. Við gamlir söngkvartettfélagar: Haukur Heiðar, Jóhannes, Jón Hlöð- ver og Valtýr, kveðjum Ingimar í söknuði en með þakklæti fyrir ljúfar samvemstundir. Blessuð sé minning hans og nýir vegir. Góður Guð styrki og huggi ástvini hans. Innilegar kveðjur frá Jóni Hlöðver, Löllu og fjölskyldu. Sjá framtíðarvonimar vekja’ okkur dug, á varðbergi trúir að standa! Og brosandi geislamir benda okkar hug til bjartari hugsjónalanda. (Guðm. Guðmundsson) Með Ingimar Eydal kveður stúkan Brynja nr. 99 á Ákureyri einn sinn fremsta liðsmann og leiðtoga um áraraðir. Ingimar Eydal gekk ungur að ámm til liðs við bindindishreyfing- una og var öflugur talsmaður henn- ar uns yfir lauk. Hann gekk í bama- stúkuna Samúð nr. 102 þegar hann var níu ára gamall og starfaði þar fram á unglingsár. Árið 1959 gekk hann aftur til liðs við Góðtemplara- regluna og þá I stúkuna ísafold nr. 1 en færði sig í stúkuna Brynju nr. 99 árið 1968. Ingimar hafði öll stig Góðtempl- arareglunnar og starfaði að baráttu- málum templara innan Reglunnar og utan. Hann átti um langt árabil sæti í áfengisvarnanefnd Akureyrar og mörg síðari ár var hann formað- ur nefndarinnar. Ingimar Eydal lifði hinn heil- brigða lífsstíl, með bindindi á áfengi og tóbak, öðmm til eftirbreytni. Hann var óþreytandi að benda fólki á þessa leið og í fjölmiðlaviðtölum síðari ára kom hann gjarnan inn á þessi hugðarefni sín með margvís- legum hætti, eins og honum einum var lagið. Ein góð setning, sögð með hans stíl, gat gert meira en heill fyrirlestur um málefnið. Það segir sig sjálft að tónlistar- maðurinn Ingimar stýrði söng og lék undir á stúkufundum en auk þess gegndi hann um langt árabil æðstu embættum. Hann var umdæmi- stemplar og þingtemplar í Þingstúku Eyjafjarðar og æðstitemplar stúk- unnar Brynju nr. 99 um áratuga- skeið. En það var ekki hvað síst fyrir framgang hans sem bindindis- manns utan reglunnar sem Ingimar vakti athygli. Árið 1990 heiðraði Stórstúka Islands nokkra aðila á Stórstúkuþingi fyrir margvíslegan stuðning við bindindismál. Ingimar Eydal var í þeim hópi og var vel að þeim heiðri kominn. í aldarfjórðung hefur stúkan Brynja notið starfskrafta Ingimars. Og þótt hann væri oft önnum kafinn vantaði hann sárasjaldan á fundi. Hann mætti hress og kátur ásamt Ástu konu sinni sem stóð við hlið hans I stúkustarfinu eins og svo víða annars staðar. Við stúkusystkinin þökkum mikið og heilladijúgt starf liðinna ára. Ingimar hefur leikið undir sitt síð- asta lag í stúkunni en hugsjón hans mun lifa og minningin um fram- göngu hans í þágu bindindismálsins mun hvetja okkur til frekari starfa. Reglusystkinin flytja eiginkonu, bömum og öðmm ættingjum og vin- um innilegar samúðarkveðjur. Allir heilir, uns vér sjáumst næst! Fyrir hönd stúkusystkina, Matthías og IVljöll. Margt gæti ég sagt um Ingimar Eydal, tónlistarmann frá Akureyri, og ekkert nema gott. Hann var góð- semin holdi klædd, góðviljaður og góðlyndur, hnyttinn, gamansamur og hrekklaus. Við vomm skoðana- bræður, báðir íhaldssamir þjóðemis- sinnar og töldum okkur framsóknar- menn, og það var gott að eiga Ingi- mar að samheija og vopnabróður. Ingimar Eydal kynntist ég fyrir meira en fjórum áratugum þegar við bjuggum báðir á Norðurbrekkunni á Akureyri. Við, sem þá gengum í Tónlistarskólann á Akureyri, töldum hann undrabam í tónlist og enginn var í vafa um að hann fetaði hinn torsótta og krókótta stíg konsert- píanistans. En það varð ekki. Þó efast ég um að margir íslenskir tón- listarmenn hafi miðlað fleimm af tónlistargáfu sinni en Ingimar Ey- dal. Vil ég þakka honum sérstaklega það sem hann gerði fyrir Mennta- skólann á Akureyri og nemendur hans bæði fyrr og síðar. Ingimar brást ávallt vel við þegar hann var beðinn að leika á djasskvöldi í setu- stofu heimavistar með góðum félög- um sínum. í þeirri tónlist var sann- arlega bít og sterk tilfinning. Ingi- mar Eydal spilaði á skóladansleikj- um í MA áratugum saman en ógleymanlegastur verður hann mér við stúdentaveislur að kvöldi 17da júní í Sjallanum og íþróttahöllinni í meira en tvo áratugi. Þar spilaði hann og skemmti og sagði gaman- sögur og lék á als oddi, í síðasta sinn á liðnu sumri þá sjúkur. Um miðnætti þann dag tók Ingimar á móti okkur glaður og reifur þegar við komum frá því að marsjera með nýstúdentum á Ráðhústorgi og til að dansa hókí-pókí og hann var jafn- glaður og ávallt. Skarð Ingimars Eydals, tónlistar- manns frá Akureyri, verður vand- fyllt. Ágætri konu hans, Ástu Sig- urðardóttur, og börnum þeirra hjóna votta ég samúð mína. Tryggvi Gíslason skólameistari MA. Á fimmtugsafmælinu mínu í fyrra hringdi Ingimar Eydal í mig frá Kaupmannahöfn og bað mig að for- láta að hann kæmist ekki í afmælis- veisluna mína. Við töluðum um heima og geima og hann sagði mér meðal annars að lífið eftir fimmtugt væri í rauninni stórkostlegt. Nú, tæpu ári síðar, er Ingimar allur. Mig langar að minnast þessa sérstæða persónuleika og listamanns með nokkmm orðum. Skólaárið 1957-1958 urðum við bekkjarbræður og herbergisfélagar á Héraðsskólanum á Laugarvatni. Að sjálfsögðu var honum falið að stjórna skólahljómsveitinni, því þótt hann væri ekkert að flíka hæfileikum sínum vissu margir hver pilturinn var. Hann var frumlegur náungi með sérdeilis persónulega kímnigáfu og kom manni sífellt á óvart. Hann gat hermt eftir stíl hvaða píanóleikara sem var; Fats Waller, Fats Domino, Eroll Gamer ... jafnvel sjálfum Arthur Rubinstein — en samtímis hafði Ingimar þegar komið sér upp þessum afslappaða og fjörlega stíl sínum. Hann var líka með þetta virðulega andlit sem átti það til að breytast í eitt sólskinsbros á auga- bragði. Við settum saman svæsið draugaleikrit fyrir árshátíð skólans. Tónlistin sem hann samdi við verkið og flutti sjálfur var svo mögnuð að áhorfendur sátu stjarfir undir henni — en hann skrifaði ekki einn einasta tón niður. Þetta var bara samið og flutt í hita augnabliksins. í rauninni leit hann aldrei á sjálf- an sig sem tónskáld, þótt hann ætti auðvelt með að ryðja upp úr sér skemmtilegum, frumsömdum stefj- um þegar svo bar undir. Þegar ég spurði hann einu sinni hvers vegna hann skrifaði lögin sín aldrei niður sagðist hann hafa um nóg annað að hugsa. En þrátt fyrir þessa hóg- værð lét hann sér fátt mannlegt óviðkomandi. Þegar við voram í landsprófinu á Laugarvatni var hann beðinn að taka að sér allskyns verk- efni og var t.d. falið að kenna við barnaskólann á staðnum þótt hann væri sjálfur önnum kafinn við nám og félagsstörf. Hann var nefnilega með afbrigðum bónlipur. Ekki vegna þess að hann kynni ekki að segja nei, heldur vegna þess að hann virt- ist hafa brennandi áhuga á því sem honum var falið að gera. Löngu seinna, þegar hann var orðinn hljóm- sveitarstjóri á Akureyri, kennari, bæjarfulltrúi og í öðram trúnaðar- störfum, lét hann sig ekkert muna um að skreppa til Reykjavíkur til að sinna ýmsum störfum þar. Ég átti þess kost að fylgjast með honum taka upp hljómplötu árið 1976 og vann með honum að næturklúbba- sýningum í Sjallanum og á Broad- way rúmum áratug síðar. í öll skipt- in vann hann bæði hratt og skipu- lega, enda held ég að honum hafi lítið verið gefið um að tvínóna við hlutina. Það var gott að þekkja Ingimar. í hver skipti sem við hittumst vora fagnaðarfundir enda var gaman að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Það er erfítt að gera sér grein fyrir því að hann sé nú allur, því það er eins og hann hafi skilið lífsorku sína eftir. Ég er þess fullviss að minningu hans verður haldið á lofti meðal þjóð- arinnar um ókomin ár. Þorsteinn Eggertsson. Af eilífðarljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér, mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Hljóðum skrefum fetaði andláts- fregnin í hópinn okkar félaganna í Kiwanisklúbimum Kaldbak. Hann Ingimar er látinn. Sunnudaginn 10. janúar var þessi einlægi vinur og kiwanisbróðir kall- aður héðan á 57. aldursári eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Síðast var hann með okkur á jóla- fundi, þar sem hann stjórnaði söng að venju og síðan laust fyrir áramót- in, þá stjómaði hann jólaskemmtun barna okkar af sinni alkunnu ljúf- mennsku og vonin fyllti hugi okkar, því að hugprýðin var slík að ekki varð séð, að svo skammt yrði kveðju- stundar. Þótt harpa hans hljóðni hér, þá lifa ómar hennar í hugum okkar um ókomin ár. Það var mikið lán, þegar Kiwan- ishreyfingin barst norður til Akur- eyrar, að hitta fyrir jafn atorkusam- an félagsmálamann og Ingimar. Hann heillaðist af markmiðum henn- ar og þá einkum hinni Gullnu reglu: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra.“ (Matt. 7.12) í anda þessara orða starfaði hann ötull að markmiðinu og ávann sér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.