Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 32

Morgunblaðið - 20.01.1993, Side 32
T i MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993 Helga G. Veturliða- dóttir — Minning Fædd 13. ágúst 1917 Dáin 7. janúar 1993 Föðursystir okkar Helga G. Vet- urliðadóttir, eða Helga frænka eins og við kölluðum hana, lést á Borgarspítalanum 7. janúar síðast- liðinn. Helstu minningar okkar um Helgu eru úr Akurgerði 20, en þar bjó hún með fósturbörnum sínum. Það var alltaf gott að koma þang- að, Helga frænka lét okkur öll fínna að við ættum stað í hjarta hennar svo innilegar voru móttökur hennar og viðmót. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þessari góðu konu sem hafði svo stóran faðm sem veitti öllum fósturbörnum hennar öryggi og skjól. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilis prýðin í hinzta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimavon góð í himininn. (V. Briem.) Við systkinin þökkum allar liðnar stundir og sendum eiginmanni og öðrum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Andrea, Guðrún, Ármann, Helga og Ágúst. í dag er borin til moldar Helga Guðríður Veturliðadóttir, Kársnes- braut 53 í Kópavogi. Þegar ég svip- ast um eftir starfsheiti þessarar merku konu þá streyma þau mörg og margvísleg fram í hugann: Fóstra og móðir skjólstæðinga sinna, uppeldisfrömuður, kennari, hjúkrunarkona, hagsýslustjóri, sálusorgari og svo náttúrulega húsmóðir. Öll eru þessi heiti við hæfi þegar Helga Veturliðadóttir á í hlut. Ekki tengjast þau þó skóla- göngu eða prófgráðum heldur ein- ungis orðum og athöfnum þeirrar hugprúðu kærleiksríku konu, sem við erum í dag að kveðja hinstu kveðju. Helga var Vestfirðingur, fædd á Suðureyri þann 13. ágúst 1917 en ól mestan bemskualdur sinn að Vatnadal í Súgandafirði. Á þessum tíma var fátækt meðal aimennings landlæg víðast hvar, einnig á Vest- ljörðum. Helga kynntist henni snemma en einnig því, að jafnvel Gamli heimilislæknirinn minn er fallinn í valinn. Hann var orðinn háaldraður og farinn að kröftum og þráði að fara úr þessu jarðvistar- lífi. Hvað þráir annað gamall og þreyttur líkami en hvíid, svefn? Hann var búinn að lifa langan ævi- dag og búinn að skila miklu og löngu starfí, var vinsæll og virtur af sjúklingum sínum og samtíðar- mönnum. Ég tel hann hafa verið mikinn gæfumann. Hann skapaði sér sína eigin atvinnu, var sjálfs sín hús- bóndi, var heilsugóður, átti góða konu sem stóð við hlið hans eins og klettur og góð böm. Ég tel að læknar í þá daga hafí þurft til að bera mikla mannkosti og vera miklir mannþekkjarar og einnig sálfræðingar meira að segja þurftu þeir oft að leysa misklíð á sá sem ekkert á hefur alltaf eitt- hvað til að gefa ef vilji og kærleik- ur eru fyrir hendi. Móðir hennar bætti umkomulausu bami við barnahópinn sinn og tólf ára gömul var Helga farin að miðla þeirri litlu bóklegu kunnáttu, er henni hafði hlotnast, til annarra sem minna máttu sín. Það er augljóst að snemma beygðist krókurinn til ákveðinnar iífsstefnu og starfa. Helga sagði mér að hún hefði þráð mjög að komast á skóla eftir að hún lauk bamaskólanámi, sem var bæði stutt og fyrirferðarlítið. En því var ekki að heilsa. Skólaganga var munaður efnafólks á þeim árum. Helga hafði yndi af handa- vinnu og varð snemma fingrafim við sauma. Það kom henni vel æ síðan. Æsku- og fullorðinsár sín á ísafirði vann hún fyrir sér með saumaskap. Á þeim ámm varð hún fyrir slysi og lá þrjú ár á sjúkra- húsi. Afleiðingar þessa slyss verða hvorki vegna né metnar hér. Á ísa- fjarðarárunum giftist Helga og skildi eftir þrettán ára sambúð. Hún flutti til Reykjavíkur og giftist þar aftur árið 1953 Þórði Andrés- syni. Þau fluttu til Vestfjarða og hófu búskap að Þórisstöðum í Þor- skafirði. Það var gott tímabil, sagði Helga. Hún var þá óðum að koma til heilsu á ný. Á sumrin hópuðust börn til þeirra Helgu og Þórðar bæði vensluð og óvensluð. Árið 1959 tóku þau hjónin fyrsta drenginn að beiðni Magnúsar Sig- urðssonar hjá Barnavemdarráði íslands. Skömmu síðar kom annar. Þannig hófst hið ómetanlega umönnunarstarf Helgu Veturliða- dóttur fyrir þroskahefta og um- komulausa unglinga og böm. Árið 1965 stóðu þau Helga og Þórður reiðubúin til þess að taka við forstöðu drengjaheimilisins í Breiðuvík. Á síðstu stundu breyttist sú áætlun og þau snem stefni sínu til Reykjavíkur. Yngri drengurinn frá Þórisstöðum fylgdi þeim eftir þangað og brátt voru þau beðin að taka að sér fleiri böm bæði úr Breiðuvík og Höfðaskóla. Helga og Þórður stofnuðu þá svokallað fjöl- skylduheimili, hið fyrsta sinnar teg- undar á íslandi og e.t.v. á Norður- löndum. Þau ráku það á eigin veg- um og Reykjavíkurborg greiddi með bömunum svo sem á öðmm bamaheimilum. Seinna komust þau Þórður og Helga að því að ráða- menn borgarinnar greiddu þeim mun lægra meðlag fyrir umönnun og uppeldi þessara þroskaheftu bama allan sólarhringinn heldur en almennt gerðist. Skyldi ekki sómakæm fólki sortna fyrir aug- um? heimilum og eftir langan vinnudag þurftu þeir að fara í sjúkravitjanir og vom í þeim langt fram á kvöld. Þetta fóra þeir allt gangandi eða á hjóli. Það vom margir sem leituðu til hans löngu eftir að hann hætti læknisstörfum. Eiríkur var ákaflega einlægur og hreinskilinn maður, en einnig skapstór og tilfínninganæmur eins og oft er um stórlynt fólk, og sanngjam. Ég minnist hans þegar ég kom fyrst til hans í læknastofuna hvað hann tók mér vel og hvað hann var sérfróður um allt. Þegar ég var búinn að nefna nafnið mitt vissi hann strax hverrar ættar ég er. Þetta sýnir hversu mikill fróð- leiks maður hann var, enda las „Fjölskylda" Helgu og Þórðar stækkaði brátt. Þau ákváðu að kaupa hús handa henni í Nökkva- vogi. En íbúar þar settu strik í reikning fjölskyldunnar. Hún hafn- aði því aftur í leiguhúsnæði. Árið 1969 var Félagsmálastofnun Reykjavíkur tekin til starfa. Á hennar vegum keypti Reykjavíkur- borg húseignina Akurgerði 20, fjöl- skylduheimilið fluttist þangað og Helga fékk í fyrsta sinn laun frá borginni. „Bömin“ voru ýmist fimm eða sex og Helga og Þórður sáu ein um heimilið allan sólarhringinn allt árið. Þau komust aldrei í leyfi því enginn varð til að leysa þau af. Nokkur síðustu starfsár sín fékk Helga greidda vinnu á helgidögum en aldrei yfírvinnu. Árið 1973 fékk Helga aðstoðarstúlku hluta úr degi. Hún tók einnig að sér heimilið svo að Helga gat farið í leyfí. Þegar Þórður lá banaleguna fékk Helga starfslið frá Félagsmálastofnun Reykjavíkur til þess að vera á næturvakt hjá fólkinu hennar í Akurgerði svo að ekkert færi þar úrskeiðis. Sú skipan hélst í nokkurn tíma og var Helga sæl með hana. Hún var síðar afnumin í sparnaðar- skyni og Helga varð að sinna næt- urvörslu á ný. Helga hætti störfum endanlega árið 1988. Eftirlaun hennar voru tuttugu og eitt þúsund á mánuði. Þau segja sitt um launin fyrir öll hennar störf bæði nætur og daga. Mér sýnist allt benda til að forráða- menn Reykjavíkurborgar hafí ekki kunnað til að meta þau. Bar þá Helga Veturliðadóttir ekkert úr býtum fyrir áralanga önn og erfiði? Jú, það gerði hún sannar- lega. Öll hennar störf hnigu til sam- ræmis við bernskuhugleiðingar hennar og óskir: Að láta gott af sér leiða fyrir minni máttar og þá einkum þroskaheft börn. Það virtist sama hversu vonlaust verkefni henni var fengið í hendur. Hún kom, sá og sigraði. Öllum „böm- um“ sínum kom hún til nokkurs þroska og lífshamingju. Hún kenndi þeim og agaði þau til starfs og hugsunar. Hún útvegaði þeim vinnu og brýndi fyrir þeim að gæta fengins ijár. Hún var félagsmála- ráðunautur þeirra og hagstjóri, aðstoðaði þau við íbúðakaup og lántökur og þannig við inngöngu að nýrri tilvera. Hún fylgdist með sálarhræringum þeirra jafnt á nótt sem degi, ávallt reiðubúin til að hlaupa undir bagga ef mikið lá við en þó ekki við hvert þeirra kvak því uppeldi hennar stefndi að því að hjálpa þeim til sjálfstæðis og sjálfsbjargar. „Bömin“ hennar, þau sem ég hef hitt elska hana og virða án takmarka og orð hennar og skoðanir eru þeirra boðorð. Helga hefur þannig skilað miklu, fögru og árangursríku starfi. Það em góð laun og þau er henni eflaust hafa þótt eftirsóknarverðust. Þegar ég hugleiði hvert er meginafl þessa starfs þá veit ég að það er kæríeik- hann mikið og skrifaði bækur og ritgerðir. Hann var alltaf að lesa alveg fram á það síðasta. Það var eins og hann væri alltaf að leita eins og við gemm öll. Við töluðum stundum um tilvemstigin eftir þetta jarðlíf, sem enginn hefur getað sannað eða afsannað neitt um. Ég hef þá trú að fyrir utan þetta hismi sem við búum í á jörðinni og þegar við fömm úr því séum við alls stað- ar, í storminum, þokunni, skýjum himinsins, regninu og í ljúfum þyti trjánna. Ég vil hverfa langt langt inn í græna skóga inn í launhelgar tijánna og gróa þar tré gleymdur sjálfum mér finna ró í djúpum Rótum og þrótt í ungu Ijósþyrstu laufi leita svo aftur með visku tijánna á vit reikulla manna. (Snorri Hjartarson) Ég votta bömum og barnaböm- um innilega samúð mína. Matthildur Þ. Matthíasdóttir. ur. Hann er mestur alls, segir Pét- ur postuli. Um það leyti er Helga hætti störfum sæmdi forseti íslands hana riddarakrossi fálkaorðunnar. Síðustu fímm til sex ár hefur Helga búið með frænda mínum Sigurgeiri Péturssyni frá Gautlönd- um. Þau giftu sig í fyrra. Það var skemmtilegur atburður þótt ekki skipti hann sköpum í þeirra sambúð sem mér hefur alltaf fundist eins og yfirlætislaus perla full af innri birtu. Við ættingjar og vinir Sigur- geirs kveðjum Helgu með söknuði og samhryggjumst öllum aðstand- endum hennar nær og fjær. Ásgerður Jónsdóttir. Kæra vinkonu mína Helgu Vet- urliðadóttur kveð ég í dag. Hún var glæsileg kona, merk og farsæl í störfum. Hér verða ekki rakin æviatriði, aðeins hjartans kveðja og þakklæti til konunnar sem auðnaðist sú gæfa að leysa fagurlega af hendi — það sérstæða starf að verða í móðurhlutverki fjölda barna á ýmsum aldri, sem henni var treyst fyrir vegna mis- vinda í lífí þeirra. Hún eignaðist allt þeirra traust og til þeirra sló móðurhjartað alla tíð til hinsta dags. Guð gaf henni þessa hæfíleika og farsæld. Góður vinur í raun er guðs gjöf. Vinátta okkar hefur auðgað líf mitt. Með hrærðum huga og virðingu þakka ég ætíð ávexti okkar kynna, vináttu sem náði einnig til barna minna og alls þess sem mér var kærast. I þessum hughrifum mín- um nú, bið ég skáldið Stefán frá Hvítadal að ljá mér orð úr kvæði sínu Aðfangadagskvöld. Kveikt er ljós við ljós, burt er sortans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Niður stjömum stráð, enginn fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin alþjóð er. Guð er eilíf ást, engu hjarta er hætt. Ríkir eilíf ást, sérhvert böl skal bætt. Lofíð guð, sem gaf, þakkið hjálp og hlíf. Tæmt er húmsins haf, alit er Ijós og líf. í trú minni á guð, ljósið og lífið sendi ég mínar einlægustu samúð- arkveðjur til Sigurgeirs eiginmanns hennar, fósturbarna og systkina hennar svo og allra aðstandenda. Dagbjört J. Jónsdóttir. Helga Guðríður Veturliðadóttir lést í Borgarspítalanum í Reykjavík 7. þ.m. á 76. aldursári. Helga fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 13. ágúst 1917. For- eldrar hennar vom hjónin Andrea Guðmundsdóttir og Veturliði Hír- am Guðnason, formaður og síðar bóndi í Vatnadal í Súgandafirði. Helga ólst upp í foreldrahúsum Kveðja Eiríkur Björnsson læknir frá Karlsskála fyrst á Suðureyri en frá fjögurra ára aldri og fram um tvítugt í Vatnadal. Helga var næst elst sex systkina. Tvö þeirra dóu í frum- bemsku og elsti bróðirinn, Guð- mundur, bóndi í Bæ í Súgandafirði lést árið 1959 í blóma lífsins. Systk- inin sem eftir lifa eru Guðrún, matráðskona við Sjúkrahús ísa- fjarðar um áratuga skeið og Ólafur Ágúst, múrari og flokksstjóri hjá Álverinu í Straumsvík. Frá Súgandafirði lá leið Helgu um tvítugsaldur til ísafjarðar, en þar lá hún á sjúkrahúsinu um tíma. Eftir það starfaði hún um skeið á Sjúkrahúsi ísafjarðar, auk þess sem hún sótti saumanámskeið á ísafirði og vann síðan að hluta til við sauma. Árið 1941 giftist hún Elí Ágústi Ingibjartssyni. Þau bjuggu á ísafirði nokkur ár en slitu samvistir. Á árinu 1953 lá Helga langdvöl- um á Vífilsstaðaspítala. Þar kynnt- ist hún Þórði Andréssyni, ættuðum úr Gufudalssveit, sem þar var þá einnig sjúklingur. Þau náðu þar bæði góðri heilsu og héldu þaðan saman út í lífíð. Þórður var glæsi- menni mikið, ljúfur og hjartahlýr. Helga og Þórður giftu sig árið 1955 og hófu búskap að Þórustöð- um í Gufudalssveit árið 1956, þar sem Þórður varð oddviti sveitar sinnar. Lífið í sveitinni átti vel við Helgu og mun varla ofmælt að árin á Þórustöðum hafí verið henni einhver hin bestu. Þarna byijar starf Helgu og Þórðar að uppeldismálum þroska- heftra með því að þau taka í fóstur dreng úr Reykjavík árið 1959, þá 10 ára gamlan. Hann var sá fyrsti af einum tíu einstaklingum sem þau hjónin tóku inn á heimili sitt og veittu dýrmæta aðstoð við að kom- ast út í lífíð. Um þriggja áratuga skeið veitti Helga forstöðu fjölskylduheimili fyrir þroskaheft börn og unglinga, fyrst að Þómstöðum og síðan í Reykjavík, en þangað fluttu þau hjónin árið 1966 og héldu þar upp- teknum hætti þannig að hjá þeim bjó jafnan hópur ungmenna, sem þau önnuðust og veittu andlega og líkamlega aðstoð. Eftir að Þórður veiktist alvarlega 1973 ríkti nokkur óvissa um framtíð þessarar starf- semi hennar og um tíma leit helst út fyrir að ungmennunum yrði dreift á stofnanir, en það var þeim sjálfum mjög á móti skapi. „Okkur langar til að eiga heimili eins og önnur börn og vera hjá konu sem er eins og mamma,“ sögðu þau. Helga vann eftir megni að þvi að unnt væri að halda hópnum saman og það varð úr að Félagsmálastofn- un Reykjavíkurborgar keypti hús við Akurgerði 20 og þar var fyrsta ungmennaheimili sinnar tegundar í Reykjavík sett á fót. Þau hjónin Helga og Þórður voru einkar samhent við að hlúa að þess- um ungmennum. Þau töluðu ávallt mikið við þau, gjarnan í léttum tón, eins og væru þau að ræða við fullorðna. Þau töluðu hreinskilnis- lega við þau um andlegt ástand þeirra og skýrðu fyrir þeim að þau yrðu öll í sameiningu að reyna að ná tökum á og vinna upp það sem þau hefðu misst. Helga og Þórður fóru með börnunum í ferðalög út úr borginni eins og um venjulega fjölskyldu væri að ræða. Einnig bar við að farið væri í ferðalag til út- landa, svo sem á sólarströnd við Miðjarðarhafið. Þórður lést árið 1977 en Helga hélt áfram starfrækslu heimilisins. Með þrotlausri þolinmæði tókst henni að ná undraverðum árangri í því að hjálpa fjölda ungmenna, sem af ytri eða innri orsökum hafa orðið það sem við köllum þroska- heft. Þegar nafn Helgu ber á góma nú í viðræðum við þessi fósturbörn hennar, sem flest em orðin fullorð- ið fólk og nýtir þjóðfélagsþegnar, er eins og ljóma bregði á andlit þeirra og þau segja með elsku og aðdáun í röddinni: „Já, hún Helga, við megum alltaf koma til hennar." - Helga eignaðist ekki böm sjálf, en hún sagði oft, um fósturbörnin sín: „Mér fínnst ég eiga börnin." Þessa einlægu móðurumhyggju hennar skynjuðuð börnin vel og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.