Morgunblaðið - 20.01.1993, Page 23

Morgunblaðið - 20.01.1993, Page 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Gjaldtaka og náttúruvernd Sú ákvörðun landeigenda í Dyr- hólahverfi að innheimta gjald af ferðamönnum, sem vilja skoða Dyrhólaey, hlýtur að vekja at- hygli og umræður. Hingað til hef- ur það alls ekki verið venjan að þeir, sem vilja skoða náttúruperlur Islands, hafí þurft að greiða sér- stakan aðgangseyri, þótt lengi hafí verið innheimt gjöld fyrir tjaldstæði og afnot ýmiss konar aðstöðu á fjölfamari ferðamanna- stöðum. I fréttaskýringu í Morgunblað- inu í dag kemur fram að Náttúru- vemdarráð telur ákvörðun land- eigendanna stangast á við lög, því að ekki megi selja aðgang að frið- lýstum svæðum nema með sam- þykki ráðsins. Burtséð frá því hvort ákvörðun landeigendanna stenzt lagabókstaf, hljóta menn hins vegar að velta því fyrir sér hvers vegna hún sé til komin og hvort gjaldtakan sé nauðsynleg og réttlætanleg. í samtali við Morgunblaðið í gær skýrir Gunnar Ágúst Gunn- arsson, talsmaður landeigenda í Dyrhólahverfí, frá því að reynt hafí verið að fá opinbert fé til þess að hægt yrði að halda uppi landvörzlu í Dyrhólaey og ráðast í nauðsynlegustu framkvæmdir til að ráða bót á ýmsu, sem er ábóta- vant í öryggismálum, og koma í veg fyrir að eyjan skemmist af átroðningi ferðamanna. Umleitan landeigenda um opinbert framlag var hins vegar synjað og þess vegna ákváðu þeir að taka sjálfír upp gjaldtöku, að sögn Gunnars. Víða er máium með líkum hætti farið og í Dyrhólaey. Dimmuborg- ir í Mývatnssveit eru dæmi um ómetanlega náttúruperlu, sem er í hættu vegna átroðnings ferða- manna. Varanlega göngustíga skortir og umferð 100.000 ferða- langa á ári veldur gróðurspjöllum, sem síðan leiða til uppblásturs og landeyðingar. Fé hefur einnig ver- ið af skornum skammti til að halda uppi nauðsynlegu eftirliti með umferð á svæðinu. Oft hefur verið rætt um að taka mætti gjald af þeim, sem koma í Dimmuborgir, til þess að hægt væri að ráðast í bráðnauðsynlegar aðgerðir. Eins og í Dyrhólaey væri slíkt auðvelt, þar sem staðurinn er afgirtur. Svipuð dæmi er víða að finna og nefna mætti hverasvæðið í Haukadal, Gullfoss, Landmanna- laugar og Herðubreiðarlindir. Við aðstæður sem þessar er skiljanlegt að hugmyndir um gjaldtöku komi upp. Þeim hefur aðeins á einum stað verið hrint í framkvæmd til þessa, í Höfða við Mývatn, þar sem Skútustaða- hreppur innheimtir 100 króna gjald, sem stendur undir um helm- ingi kostnaðar við framkvæmdir á staðnum. Hins vegar vakna margar spurningar í sambandi við slíka gjaldtöku. Hvar á að draga mörk- in? Er réttlætanlegt að innheimta gjald aðeins þar, sem aðstæður bjóða upp á það, til dæmis í Dyr- hólaey eða Dimmuborgum? Hvemig ætti til dæmis að koma við gjaldtöku af þeim, sem vildu ferðast um Homstrandir, sem em friðlýst svæði, eða ganga á Heklu? Einnig má spyija hvort hver sem er geti lagt slíkt gjald á. Geta landeigendur bannað mönnum aðgang að fagurri náttúru nema fyrir komi hátt gjald? Hvar ber að draga mörkin um upphæð gjaldsins? Væri réttlætanlegt að t.d. landeigendur, hreppsfélag eða ríki innheimti svo háan aðgangs- eyri að náttúravin að hann gerði meira en standa undir kostnaði við umhverfisvernd og væri orðinn að hreinni tekjulind? Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að Ferðamálaráð og for- svarsmenn ferðaskrifstofa leggj- ast eindregið gegn gjaldtöku af því tagi, sem hér er til umræðu. Rökin eru þau, að ferðamenn hafí þegar greitt fyrir aðgang sinn að landinu í formi ýmiss konar gjalda og að ferðaskrifstofur muni sneiða hjá þeim svæðum, þar sem að- gangseyrir er innheimtur. Gjald- taka muni því koma niður á ferða- mannaiðnaðinum. Þessi rök era allrar skoðunar verð og spyrja má, hvort tekjur þær, sem íslendingar hafa af ferðaþjónustu, myndu minnka ef ferðamenn þyrftu í auknum mæli að greiða fyrir aðgang að ýmsum vinsælustu ferðamannastöðunum hér á landi. Hins vegar kemur á móti sú röksemd, að tryggja verð- ur með einhveijum hætti að nægi- legt fé fáist til að koma í veg fyrir náttúraspjöll af völdum ferðamannanna. Ef gjaldtaka á einstökum stöðum þykir óæskileg, verður að tryggja að hæfílegur hluti af tekjum hins opinbera af ferðaþjónustu renni til landvörzlu og náttúraverndar. Eins og mál- um er nú háttað liggja margar dýrmætustu gersemar íslenzkrar náttúru undir skemmdum vegna þess að framlög úr ríkissjóði era allsendis ónóg - með öðram orð- um skila þau gjöld, sem ferða- menn greiða til hins opinbera, sér ekki til verkefna á sviði umhverf- isverndar. Þær hugmyndir, sem fram eru komnar um innheimtu aðgangs- eyris af ferðamönnum, era til komnar vegna þessa ástands. Vonandi verða þær til þess að vekja upp málefnalegar umræður um það hvernig bezt megi haga þessum málum í framtíðinni. Hitt er ljóst, að við núverandi ástand verður ekki unað, ef Islendingar vilja standa vörð um náttúru landsins. AF INNLENDIIM VETTVANGI eftir FRIÐRIK INDRIÐASON Gjaldíð í Dyrhólaey kom Náttúruverud- arráði í opna skjöldu ÞAU AFORM landeigenda við Dyrhólaey að heimta gjald af ferðamönnum sem um staðinn fara komu Náttúruverndarráði í opna skjöldu því ráðið lagðist gegn svipuðum áformum í fyrra þar sem um frið- lýst svæði er að ræða. Náttúruverndarráð er nú að kanna hvort gjaldheimtan samrýmist lögum um frið- lýst svæði. Þá er gjaldheimtan í Dyrhólaey gagnrýnd harðlega af forsvarsmönnum þeirra ferðaskrifstofa sem annast hópferðir erlendra ferðamanna hingað til lands. Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri Sam- vinnuferða segir að hér sé um vont mál að ræða fyrir landeigendur því gjaldheimta sem þessi ieiði til þess að ferðaskrifstofur sneiði hjá viðkomandi svæðum með hópa sína. Goði Sveinsson deildarstjóri hjá Úrvali-Útsýn gagnrýnir m.a. tímasetninguna því ferðaskrifstofurnar gáfu út sína verðskrá fyrir þetta ár í september síðastliðnum og þær verða því að taka á sig þennan kostnað sjálfar á sama tíma og reynt er að halda öllu verðlagi í lágmarki. Ferða- málaráð hefur ekki fjallað sérstaklega um gjald- heimtuna við Dyrhólaey en Ferðamálaráð hefur ávallt verið mótfallið gjaldheimtu af ferðamönnum í þessu formi. Málið hefur enn ekki komið til um- ræðu innan samgönguráðuneytisins. Þær spurningar vakna hvort gjaldheimtan sé heimil lögum samkvæmt og hvort þetta þýði að landeigendur á öðrum vinsæl- um ferðamannastöðum sem eru friðlýst svæði eins og til dæmis á Hornströndum geti innheimt svipað gjald. Gjaldheimtunni við Dyrhólaey er sem kunnugt er ætlað að standa undir landvörslu, vernd og um- hirðu eyjarinnar. Dyrhólaey fellur undir það sem kallast friðlýst svæði og lög virðast við fyrstu sýn banna landeig- endum gjaldheimtu af slíkum stöðum án heimildar frá Náttúruverndarráði. Landeigendur við Dyrhólaey sendu Náttúruverndarráði í fyrra erindi um gjaldheimtu af ferðamönnum á svæð- inu og þá lagðist ráðið gegn þeim fyrirætlunum. í bréfi sem ráðið sendi landeigendum kemur m.a. fram að gjaldheimta af þessu tagi samrýmist ekki lögum um friðlýst svæði og til þess að af henni geti orðið þurfi und- anþágu frá Náttúruverndarráði. Þessi ákvörðun landeigenda nú kom því Náttúruverndarráði í opna skjöldu þar sem hún var tekin án vitundar ráðsins. Þóroddur Þóroddsson fram- kvæmdastjóri Náttúruvemdarráðs segir að ráðið sé nú að kanna málið frá lagalegu sjónarmiði. í lögum um skipulag ferðamála er fjallað um gjaldheimtu af stöðum í umsjá ríkisins í 34. grein. Öll greinin hljóðar svo: „Ráðherra er heimilt að ákveða að fenginni umsögn Ferða- málaráðs að greitt skuli sanngjamt gjald fyrir þjónustu sem veitt er á stöðum í umsjá ríkisins enda sé fé það sem þannig safnast, að frádregn- um innheimtukostnaði, eingöngu not- að til verndar, fegrunar og snyrtingar viðkomandi staðar og til að bæta aðstöðu til móttöku ferðamanna. Ákvæði þessi taka þó ekki til þjóð- garða eða annarra svæða á vegum Náttúruverndarráðs nema samþykki þess komi til.“ Ef túlka ber orðalagið „annarra svæða“ í seinni málsgrein þessarar lagagreinar m.a. sem frið- lýst svæði virðist tvímælalaust að Iandeigendum við Dyrhólaey beri að afla sér samþykkis Náttúruvernd- arráðs fyrir gjaldheimtu sinni. Gjald heimt í Mývatnssveit Aðeins eitt dæmi er til um gjald- heimtu af ferðamönnum fyrir aðgang að fagurri náttúru hérlendis. Um nokkurra ára skeið hefur gjald verið heimt af ferðamönnum fyrir aðgang að Höfða í Mýtvatnssveit. Árið 1988 hófu landeigendur við Mývatn gjald- heimtu af ferðmönnum sem vildu fara út í Höfða við vatnið. í frétt Morgunblaðsins frá 22. júlí það ár um gjaldheimtu þessa segir m.a. að um nýjung í ferðamálum sé að ræða og að gjaldheimtunni sé ætlað að standa undir kostnaði við viðhald, hreinsun og ræktun á staðnum. Mun- urinn á þessari gjaldheimtu og þeirri í Dyrhólaey er að Höfði er í einka- eign Skútustaðahrepps og fellur ekki undir umsjá Náttúruverndarráðs. Sigurður Rúnar Ragnarsson sveitar- stjóri Skútustaðahrepps segir að gjald fyrir aðgang að Höfða hafi ver- ið í gildi frá 1988 ef undan er skilið árið 1990 er það var fellt niður. Gjald- ið nemur nú 100 krónum á mann Dyrhólaey fyrir alla eldri en 15 ára. Sigurður Rúnar segir að gjaldið hafi verið not- að til að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn í Höfða svo sem bíla- stæði, salerni og göngustíga. Eins og er stendur gjaldið nú undir um 50% af þeim kostnaði sem Skútu- staðahreppur hefur af Höfða. „Gripið var til þess ráðs að innheimta þetta gjald þar sem erfiðlega gekk að fá nægilegt rekstrarfé til að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum á svæðinu," segir Sigurður Rúnar. „Og gjaldtaka af þessum toga á við víðar að mínu mati en þar má nefna sem dæmi Dimmuborgir sem er svæði sem ekki þolir þann ágang sem á því er. Verulegt rekstrarfé skortir til að undirbúa svæðið undir þá umferð sem um það er.“ Ferðamálaráð og ferðaskrifstofur mótfallnar gjaldinu Magnús Oddsson markaðsstjóri Ferðamálaráðs segir að gjaldheimtan í Dyrhólaey sem slík hafi ekki komið til umfjöllunar innan ráðsins. Hins- vegar megi benda á að Ferðamálaráð hafi oft fjallað um gjaldtöku af ferða- mönnum, m.a. á þennan hátt, og ávallt lagst gegn slíkum áformum. „Ég tel öruggt að sama afstaða gildi hér og bendi á að ekki er sanngjarnt að þessi atvinnugrein borgi sérgjöld fyrir afnot af náttúru landsins," seg- ir Magnús. „Það má einnig nefna að ferðamenn bæði innlendir og erlendir hafa greitt ýmis gjöld áður en þeir koma til Dyrhólaeyjar svo sem flug- vallaskatta, innritunargjöld, vega- gjöld, bensínskatta og fleira." í máli Magnúsar kemur einnig fram að landeigendur við Dyrhólaey hafa aldrei sótt um styrk til Ferða- málaráðs en ráðið veitir mörgum aðilum milljónir króna til viðhalds og umhverfisvemdar á ferðamannastöð- um árlega. Fram kom hinsvegar í máli forsvarsmanns bænda við Dyr- hólaey í Morgunblaðinu í gærdag að þeir hefðu tekið ákvörðun um gjald- heimtuna þar sem opinbert fjármagn hefði ekki fengist til að halda uppi landvörslu. Helgi Jóhannsson framkvæmda- stjóri Samvinnuferða segir að hann telji gjaldheimtu af þessum toga slæmt fordæmi og það skjóti skökku við að grípa til svona aðgerða miðað við þá umræðu sem verið hefur um hve dýrt sé að ferðast á íslandi. „Svona gjaldheimta kallar á að fleiri aðilar leggi hana á en útkoman verð- ur sú að ferðaskrifstofur sneiða hjá þessum stöðum með hópa sína,“ seg- ir Helgi. „Ég get tekið Höfða í Mý vatnssveit sem dæmi en hópar er- lendra ferðamanna á vegum Sam- vinnuferða eru hættir að eiga við- komu þar eftir að gjaldheimta var sett á.“ Goði Sveinsson deildarstjóri innan- landsdeildar hjá Úrvali-Útsýn segir að þar séu menn afskapiega óhressir með þessa ákvörðun og telja hana alveg út í hött. „Það er sérstaklega tímasetningin sem gera verður at- hugasemdir við því okkar verðskrá í ár var tilbúin í september sl. og þá sendum við ferðabæklinga okkar utan. Það er síðan búið að bóka tölu- vert í ferðir hingað samkvæmt því verði,“ segir Goði. „Við getum ekki bætt þessu gjaldi á okkar hópa og verðum því að taka það á okkur sjálf- ir. Hér getur verið um töluverðar upphæðir að ræða eða um 10.000 krónur á hvem hóp sem ætlar sér að skoða Dyrhólaey." Goði segir að það sé lágmarkskurt- eisi af hendi landeigenda að taka svona ákvörðun með meiri fyrirvara og jafnframt að gera ferðasicrifstof- unum grein fyrir í hvað peningarnir eiga að fara. „Ég hef i sjálfu sér ekkert við gjaldheimtu að athuga sé fé frá henni notað til að gera viðkom- andi ferðamannastað meira aðlað- andi. Hinsvegar kemur þessi tíma- setning mjög illa við okkur því við miðuðum okkar verðáætlanir við að halda sama verðlagi í ár og var í fyrra en hagræða og skera niður á móti. Þetta setur þær áætlanir tölu- vert úr skorðum.“ Þjóðhagsstofnun spáir 5% atvinmileysi á árinu Áætlað að verðbóigan verði um fjögur prósent ATVINNULEYSI verður að meðaltali um 5% á þessu ári, verðbólgan verður um 4%, landsframleiðslan er talin verða 1,4% minni á þessu ári en i fyrra en draga mun úr viðskiptahalla við útlönd og er hann talinn verða um 9 milljarðar króna samanborið við 14,7 milljarða á síðasta ári. Kaupmáttur ráðstöfunartekna verður um 5V2% minni á árinu en í fyrra. Spáð er að staða erlendra lána þjóðarbúsins verði komin í 237 milljarða króna í lok ársins eða í ríflega 60% af landsframleiðslu. Hag- vöxtur verður væntanlega lítill á næstu 2-3 árum, en búast má við að úr rætist að þeim tíma liðnum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri spá Þjóðhagsstofnunar um efnahagshorfur á þessu ári. í frétt frá Þjóðhags- stofnun kemur fram að verðbólga frá upphafi til loka síðasta árs var sú minnsta sem mælst hefur hér á landi í 32 ár eða 2,4% á mælikvarða framfærsluvísitölunnar. Landsframleiðsla á íslandi og OECD 1980-1993 Vísitala: Gildin árið 1980 eru sett á 100 1992 er áætlað I OECD-löndum - 1993 er byggt á spá t-^T I —I----------1-----1---1----1---1———I-----1-----1----1----1---h 100 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 I U IIUIII I r o -2 -4 6 1992 er áætlað 1993erbyggtáspá % -8 Viðskiptajöfnuður á íslandi 1980-1993 sem hlutfall af landsframleiðslu Áætlað er að útflutningsfram- leiðsla á föstu verði hafi dregist sam- an um U/2% á síðasta ári frá árinu á undan en Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að verðmæti heildarafla á árinu 1993 verði 1,3% minna en á síðasta ári. Byggir áætlunin á þeirri forsendu að þorskafli verði um 220 þúsund tonn á árinu og annar botnfískafli verði um 380 þúsund tonn. Er gert ráð fyrir að botnfiskaflinn í heild minnki um 3% á föstu verði frá árinu 1992, þar af dragist þorskafli saman um 18V2%. Að öllu samanlögðu reikn- ar Þjóðhagsstofnun með samdrætti í útflutningsframleiðslu sjávarafurða um ‘/2% milli áranna 1992 og 1993. Viðskiptakjör rýrna Bráðabirgðatölur benda til að við- skiptakjör hafi rýrnað um rúm 4% á milli áranna 1991 og 1992 ogerreikn- að með að þau rými enn frekar á þessu ári, einkum vegna þess að gert er ráð fyrir að meðalverð sjávarafurða standi í stað í erlendri mynt á árinu og lækki því að raungildi. Er þetta breyting frá fyrri spám sem gerðu ráð fyrir 2% hækkun á verði sjávarafurða í erlendri mynt. Þá er þess ekki vænst að verð á áli og kísiljárni hækki um- talsvert í bráð. Að öllu samanlögðu er því spáð að viðskiptakjör verði um 3% lakari á þessu ári en í fyrra. Aukið atvinnuleysi Atvinnuleysi tvöfaldaðist á síðasta ári og telur Þjóðhagsstofnun að aukn- ing þess hafi verið meiri en búast mátti við miðað við þróun helstu hag- stærða og reynslu af fyrri samdráttar- skeiðum. Skýringin felist væntanlega í hagræðingu í atvinnurekstri og skipulagsbreytingum í hagkerfinu. Miðað við þetta og áframhaldandi samdrátt í þjóðarbúskapnum gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að atvinnu- leysi fari í vöxt á næstunni og verði um 5% af mannafla að meðaltali á þessu ári. Hærri verðbólguspá Þjóðhagsstofnun bendir á að spá um verðlagsþróun á þessu ári sé óvissu háð þar sem kjarasamningar eru að renna út. í verðlagsspá þjóðhagsáætl- unar og fjárlagafrumvarpi á síðasta ári var ekki gert ráð fyrir neinum launahækkunum á þessu ári og föstu gengi. Af því leiddi að verðbólga var áætluð um 2% á þessu ári. Verðlags- áhrif gengislækkunarinnar í nóvem- ber sl. eru hins vegar metin rúmlega 2% og komu þau að nokkru fram á síðasta ári. „Ljóst er að verðlag mun hækka örar á fyrstu mánuðum þessa árs en þegar líður á árið, meðal ann- ars vegna áhrifa gengisbreytir.garinn- ar. Þannig hækkaði vísitala fram- færslukostnaðar um 1,2% í janúar. Endurskoðuð verðlagsspá sýnir um 4% hækkun framfærsluvísitölu frá meðaltali í fyrra til meðaltals í ár. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skatta- málum sem lögfestar voru í lok sið- asta árs gera ráð fyrir aukningu beinna skatta heimilanna um ríflega 4 milljarða króna. Mat Þjóðhagsstofn- unar er að aukin byrði beinna skatta heimilanna rýri ráðstöfunartekjur um fast að 2%. Að öllu samanlögðu fela forsendur í sér að kaupmáttur ráðstöf- unartekna á mann verði um 5 lh% minni á þessu ári en í fyrra. Til saman- burðar var gert ráð fyrir 1,7% rýrnun kaupmáttar í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1993,“ segir í greinargerð Þjóð- hagsstofnunar. Minnkandi skuldasöfnun heimila Gangi áætlanir fjárlaga eftir verður tekjuhalli ríkissjóðs þriðjungi lægri en á síðasta ári. í lánsfjárlögum er miðað við að lánsfjárþörf opinberra aðila verði 26 milljarðar eða 6,7% af lands- framleiðslu sem verði að mestu mætt á innlendum lánsfjármarkaði. Lán- tökuáform opinberra aðiia á innlend- um markaði eru ríflega 40% af ný- sparnaði ársins samanborið við rúm- lega 60% í fyrra. Þjóðhagsstofnun bendir á að betra jafnvægi hafi verið í peningamálum á síðasta ári en árið á undan, einkum þar sem dró úr iáns- fjárþörf ríkissjóðs og skuldasöfnun heimilanna. Bent er á að nafnvextir hafi lækkað mun hægar en nemur hjöðnun verð- bólgu og að raunvextir víxillána og óverðtryggðra skuldabréfalána hækk- uðu um 1-1,8% frá 1991-1992. Er áætlað að mismunur á kjörum verð- tryggðra og óverðtryggðra lána geti orðið allt að 2,7% yfir árið í heild. „Þótt horfur séu á að lánsfjárþörf hins opinbera verði ívið minni á þessu ári en í fyrra verður hún áfram hátt hlut- Túlkun á lögrim um forfallaþjónusta bænda Einstakir bændur geta losnað und- an greiðsluskyldu ÓÁNÆGJA er meðal bænda í nokkrum búgreinum með túlkun landbúnaðarráðuneytisins á lögum um forfallaþjónustu í sveitum. Samkvæmt henni er niður fallin undanþága nokkurra búgreinafé- laga, sem staðið hafa utan við forfallaþjónustuna, til greiðslna í þann sjóð sem kostar afleysingar bænda. Hins vegar geta einstak- ir bændur farið fram á undandþágu. Stéttarsamband bænda sér ýmis vandkvæði og kostnað við þessa breytingu. Með breytingu á lögum um bún- aðarmálasjóð á árinu 1990 var ein- stökum búgreinum heimilað að hætta þátttöku í afleysinga- og forfallaþjónustu í sveitum. Það gerðu búgreinafélög garðyrkju- bænda, hrossabænda, eggjafram- leiðenda og svínaræktenda. Með samþykki landbúnaðarráðuneytis og Stéttarsambands bænda afsöl- uðu bændur sér rétti til forfalla- þjónustu samhliða því að felld var niður innheimta gjalda til starfsem- innar af framleiðslu þeirra. Lögum breytt í vor Lögum um forfallaþjónustu í sveitum var breytt í vor. Samkvæmt þeim nær ofangreind undanþága til búgreina aðeins til þeirra félags- manna búgreinafélagsins sem stað- fest hafa með undirskrift sinni að þeir séu ekki lengur aðilar að for- fallaþjónustunni. Stéttarsamband bænda hefur, að sögn Hákonar Sig- urgrímssonar framkvæmdastjóra, litið svo á að þetta ákvæði næði aðeins til þeirra búgreinafélaga sem eftir gildistöku laganna óskuðu undanþágu frá forfallaþjónustunni og framkvæmdin héldist óbreytt gagnvart þeim sem áður fengu undanþágu. Nú hefur landbúnaðar- ráðuneytið gefið út þá túlkun lag- anna að þetta eigi við allar búgrein- ar, enda sé það tilgangur laganna að þeir bændur sem kjósa að njóta réttar til forfallaþjónustu glati hon- um ekki vegna ákvörðunar viðkom- andi félags. Greiða þjónustu við aðra Með þessu er kippt grundvellin- um undan undaþágu garðyrkju- bænda, eggjaframleiðenda, svína- ræktenda og hrossabænda frá greiðslu til forfallaþjónustunnar, að mati Hákons. Einstakir bændur geta hins vegar krafist undanþágu. I flestum þessarra búgreina er mik- ið um að bændur hafí aðstoðarfólk í vinnu. Reglur um forfallaþjón- ustuna kveða hins vegar á um Kið afleysingin nái aðeins til bóndans sjálfs og konu hans. Fyrir nokkra hafnaði búnaðarþing að breyta þessu. Þessar búgreinar greiða því mun meira en nemur þeirri þjón- ustu sem bændur í þeim eiga rétt á. Hákon Sigurgrímsson sagði að mikil óánægja væri meðal bænda í þessum búgreinum með túlkun lag- anna. Þá virtust vera vandkvæði á framkvæmd reglnanna, meðal ann- ars innheimtu. Benti hann á %ð búnaðarmálasjóðsgjaldið væri inn- heimt af heildarinnleggi til afurða- stöðva en ekki skipt eftir framleið- endum. Það þyrfti nú að gera og hefði verulegan kostnað í för með sér. Stéttarsambandið hefur ákveðið að kalla saman fund til að fy'alla um það hvernig eigi að framkvæma lögin samkvæmt þessari nýju túlk- un. Þangað hafa meðal annars ver- ið boðaðir fulltrúar ráðuneytis, landbúnaðarnefnda og búgreina. fall af áætluðum nýsparnaði. Jafn- framt má reikna með að eftirspum heimila verði töluverð ekki síst í ijósi þess að þrengja mun að tekjum þeirra. Þá hafa reglur um gjaldeyrisviðskipti verið rýmkaðar og stefnt er að frek- ari breytingum í þá átt á þessu ári. Þótt eftirspum fyrirtækja eftir lánsfé verði sennilega lítil áfram er að öllu óbreyttu vafasamt að reikna með að raunvextir lækki mikið í bráð,“ segir í greinargerð stofnunarinnar. Einkaneysla minnkar - samneysla vex Spáð er að einkaneysla muni drag- ast saman um 3,8% en samneysla aukist um 2% á árinu, fjárfesting dragist saman um 10 1/2%, mest hjá atvinnuvegunum eða um tæp 22%. Er áætlað að þjóðarútgjöld lækki um tæplega 4% milli áranna 1992 og 1993. Nýjustu upplýsingar benda til að viðskiptahalli á síðsta ári hafi numið 14,7 milljörðum en horfur eru á að viðskiptahalli minnki verulega á þessu ári. Þetta stafar af því að gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir innfluttum vörum og þjónustu minnki um 8% á milli ára. Hins vegar er talið að út- flutningur vöru og þjónustu minnki mun minna eða um 0,6% og vöru- skiptajöfnuðurinn verði því hagstæð- ari á þessu ári. Alls er búist við að viðskiptahallinn verði um 9 milljarðar á þessu ári sem svarar til 2,3% af landsframleiðslu og er það þriðjungi minni halli en á síðasta ári og helm- ingi minni halli en árið 1991. Greiðslubyrði erl. lána 28,6% af útflutningstekjum Áætlað er að löng erlei.f1 .an hafi numið 227 milljörðum króna í lok sft- asta árs sem svarar til 54,4% af lands- framleiðslu. Lánsfjáráætlun gerir ráð fyrir 32,5 milljarða kr. erlendum lán- tökum á þessu ári. Miklar afborganir falla til á árinu og því verður hreint innstreymi fjármagns um 10 milljarð- ar króna. Gangi þetta eftir yrði staða erlendra lána 237 milljarðar kr. í árs- lok eða ríflega 60% af landsfram- leiðslu. Horfur eru á að greiðslubyrði erlendra lána þyngist enn á árinu og muni nema 28,6% af útflutningstekj- um en til samanburðar bendir Þjóð- hagsstofnun á að greiðslubyrðin var að meðaltali 19% árin 1985-1991. Hagvöxtur fer að glæðast 1996 ■T Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði lítill næstu 2-3 árin. Nokkrar líkur séu á að hægt verði að auka sókn i þorskstofninn á ný að 3 árum liðnum og að verð stóriðjuaf- urða fari að hækka á ný á næstu 2-3 árum. Þrátt fyrir það sé ósennilegt að nýtt álver taki til starfa hér innan næstu 5 ára. Þannig spáir Þjóðhags- stofnun því að útflutningstekjur lands- manna muni standa í stað á næstu 3 árum en líkur séu á nokkrum vexti, e.t.v. um 4% á ári upp frá því. „Sé gert ráð fyrir að stjórnvöld fylgi að- haldsstefnu í peninga- og ríkisfjárm&i- um þannig að jöfnuður náist á við- skiptum við útlönd innan næstu 5 ára þá má búast við að hagvöxtur verði nánast enginn að jafnaði 1993-1995, en glæðist í 2-3% á ári frá 1996. Atvinnuleysi verður meira en verið hefur á næstu 3 árum en minnkar síðan með auknum hagvexti," segir i greinargerð Þjóðhagsstofnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.