Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNÚDÁGUR 14. FEBRÚAR 1993 Einar Olgeirsson í þingveizlu með Ólafi Thors og Hermanni Jónassyni. Ljósm.: Þjóðviijinn 20 nú þarf að safna liði sem aldrei fyrr í þágu þjóðlegra viðhorfa á íslandi þegar stjórnvöld og meiri hluti Al- þingis hafa ákveðið að knýja dyra hjá Evrópubandalaginu með aðild íslands að Evrópsku efnahags- svæði. Við vitum einnig margfaldri reynslu ríkari að markaðsþjóðfélag- ið treystir ekki nema síður sé undir- stöður manneskjulegra þjóðfélags — nú eru fleiri atvinnulausir á Is- landi og reyndar í Evrópu allri en á kreppuárunum. í því verki sem fram undan er byggjum við á reynslu þeirrar aldar sem er að líða, þeirri reynslu sem Einar var og verður áfram óaðskiljanlegur hluti af. Því þótt öldin líði þá lifa hugsjón- imar — hugmyndin um réttlátara þjóðfélag. Þangað ætlum við. Svavar Gestsson. Einar var maður hugsjónarinnar og baráttunnar. Honum var ekki tamt að tala mikið um sjálfan sig, en hefur þó sagt svo frá, að 17 ára hafi hann farið að hugsa um þjóðfé- lagsmál. Það sem einna fyrst vakti áhuga hans var íslensk ijóðabók. Síðan tóku erlendar bækur við og hann sannfærðist um „að samhjálp væri undirrótin að framförum mannanna". Niðurstaðan varð sós- íalismi, og í krafti þeirra hugsjónar hóf hann ungur baráttu fyrir bætt- um kjörum íslenskrar alþýðu. Þrátt fyrii lítil ijárráð tókst Einari að stunda nám í bókmenntum og tungumálum í Berlín í tvö og hálft ár og sú dvöl gaf honum innsýn í alþjóðlega baráttu sósíaldemókrata og kommúnista á þeim tíma. Þegar heim var komið til íslands fátæktar og kreppu, tók þessi fá- gæti hæfíleikamaður til óspilltra málanna, og hikaði ekki við að gefa sig allan í baráttuna, og færa þær fórnir, sem hún útheimti. Ég veit að Einari var lítið um lof gefíð, en hlýt þó að leyfa mér að skrifa fáein kveðjuorð að leiðarlok- um. Það vill svo til að meðal fyrstu minninga minna um Einar eru orða- skipti, sem hann átti við föður minn vegna afmælisgreina um Einar fer- tugan, sem bárust Þjóðviljanum. Einar vildi ekki að þær birtust, en faðir minn sagði eitthvað á þá leið að það væri ekki á sínu færi að snúa þessu fólki til baka. Þeir tveir höfðu þá verið ritstjórar Þjóðviljans frá stofnun Sósíalistaflokksins og stýrt honum gegnum þrengingar og sigra. Saman höfðu þeir ásamt Sigurði Guðmundssyni deilt fanga- vist í London og saman fengið inni- legar móttökur fjölda manna þegar heim var komið. Þessi ár gerðu þau Einar og Sig- ríði Þorvarðardóttur konu hans að einlægum vinum fjölskyldu minnar, og ég hef því notið þess að fylgjast með honum úr nálægð í meira en 50 ár. Það er margs að minnast, en stórbrotna sögu hins mikla hæfí- leikamanns reyni ég ekki að rekja. Hitt hlýt ég þó að segja að stjórn- málabarátta hans snérist aldrei um smámuni eða eigin frama. Stjórn- málabarátta hans var barátta hug- sjónamannsins fyrir betra samfé- lagi mannanna á þessari jörð. Einar var ekki aðeins afburða mælskumaður, sem samstillti hugi manna og örvaði til dáða á stórfund- um. Hann var einnig góður kennari og því fólki, sem tók þátt í leshringj- um hans verða þeir ógleymanlegir. Hann hafði áhuga á þeim einstakl- ingum, sem hann hitti í pólitísku starfi, og velferð þeirra í stóru og smáu var honum ekki óviðkomandi. Hann gat áminnt ungu eldhugana um að gleyma nú samt ekki að lesa skólabækurnar, og ég man hvað honum var umhugað um, að ég fengi bílfar heim eftir langa kvöld- fundi þau árin sem ég naut þess að starfa með honum í Sósíalista- flokknum. Einar kaus að hætta þing- mennsku í fullu fjöri, hann vildi ekki lifa sjálfan sig á þingi. Eftir það hélt hann þó miklum starfs- kröftum vel og lengi, en nú vann hann mest heima hjá sér. Þar með gáfust mér tíðar en áður tækifæri til að sitja í fallegu stofunni á Hrefnugötu 2 og eiga góðar stund- ir með þeim hjónum. Síðustu árin hafa þau hjónin búið á Hrafnistu í Hafnarfirði, og notið þar virðingar og góðrar umönnunar. Það hefur líka verið gott að heimsækja þau á þann stað. Stofan þeirra í litlu íbúðinni þar hafði sama yfirbragð og stofan á Hrefnugötu, og skrifborðið hans Einars og úrval bóka fengu einnig sinn stað. Smekkvísi Sigríðar var jafnóbrigðul og fyrr. Stundum fór- um við í smáökuferðir og það er dýrmætt að minnast þess hve glað- ur og hrifnæmur hann var í þeim ferðum. Ég gleymni seint rödd hans, þegar við stóðum saman og horfðum yfír Þingvelli og hann sagði. „Að ég skyldi eiga eftir að sjá Þingvelli einu sinni enn.“ Einari var gefín bjartsýni og glaðlyndi, sem entist honum vel og lengi. Honum féll þó að vonum þungt að fylgjast með þróun þjóðfé- laganna í Austur-Evrópu og fram- sókn hægri aflanna í hinum vest- ræna heimi. Sóknin til hins réttláta jafnaðarþjóðfélags hefur reynst tor- sóttari, og villgötumar fleiri en bjartsýni hans_gat órað fyrir. En hér heima á Islandi standa eftir afrek hans, sem eru ríkur þáttur í því „kraftaverki einnar kynslóðar" sem breytti lífskjörum á íslandi. Það verður mikil þörf fyrir menn á borð við Einar á næstu öld til að halda áfram baráttunni fyrir betra samfélagi. Ég hef öðru hvoru nefnt Sigríði í þessum fáu orðum. Þau hjón voru svo samstillt í lífí sínu, að þau fylgj- ast óhjákvæmilega að í minning- unni. Glæsileg og sterk hefur hún staðið við hlið hans á langri ævi. Ég flyt henni, Sólveigu og öðmm aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Adda Bára Sigfúsdóttir. Einn skörulegasti stjórnmála- maður íslands á miðri 20. öld er látinn. Þótt ótal manna hafi innt fjölmargt af hendi í daglegri bar- áttu vinnandi fólks fyrir bættum lífskjörum verður á engan hallað þótt Einar sé sagður glæstastur málsvari þess sama fólks á opinber- um vettvangi á bilinu 1930 til 1960. Menn geta með rétti sagt að orð skipti minna máli en gerðir. Samt er staðreynd að orð vekja menn til dáða. Hlutirnir gera sig aldrei sjálf- ir, sagði Einar, og var þar vita- skuld sem oftar í andstöðu við það sem kreddumarxistar hafa löngum haldið á loft. Þess eru ófá dæmi hversu orð Einars og gerðir juku viðbragðs- flýti og snerpu alþýðufólks á íjórða og fímmta áratug þessarar aldar. Einstökum manni verður að sjálf- sögðu aldrei þakkað eða kennt um miklar breytingar á högum þjóða og heims, ekki einu sinni Sesari, Napóleon, Stalín, Hitler, Jónasi frá Hriflu eða de Gaulle. Eldmóðurinn sem Einar hleypti í íslenskt alþýðu- fólk var samt með ólíkindum. Per- sónulega tel ég mig sem ungling eiga engum óskyldum manni meira að þakka þótt ég þekkti hann ekki nema á ljósmynd og kynntist honum aldrei fyrr en lítillega eftir að ég var orðinn harðfullorðinn. Einar kom heim í sumarleyfí frá námi í sögu og fagurfræði árið 1924. Þá lenti hann í pólitíkinni og afsalaði sér ríkisstyrk sem fáeinir afburða námsmenn nutu á þeim árum. Stundum hafa menn and- varpað yfir því að hann skyldi ekki heldur verða háskólakennari. Það hefði án efa orðið gaman í þeim tímum eins og heyra mátti í yfir- gripsmiklum en gagnorðum fyrir- lestrum um bókmenntir sem stund- um urðu óforvarandis til í stuttu samtali. Hinum snöfurlega stúdent fannst það hinsvegar vera köllun sín að upphefja svokallaðan smælingja. Og það gerði hann. Lífskjarabylting alþýðu og umskipti í menntunar- málum á fjórða og fimmta áratugn- um eru öðrum fremur að þakka þeim forystuhópi sósíalista sem hafði Einar í fremstu víglínu. Draumsýn Arnalds í Sölku Völku hefur smám saman orðið að veru- leika fyrir tilverknað slikra manna og reyndar líka seinlátrar skynsemi ýmissa íhaldsmanna. Eins og margir góðir, drengir hélt Einar áratugum saman að menn væru að framkvæma sósíal- ima í Sovétríkjunum. Hann átti reyndar aldrei stundarlanga dvöl í því landi nema helst á einhverjum opinberum fundum eða stöku sinn- um í sumarleyfi. Jafnaldri hans og kunningi, Halldór Kiljan Laxness, sá um að lýsa þeim ósköpum af eigin raun og list. Líklega hafa Sovétríkin hvergi í heimi eignast annan eins áróðursmann og Halldór á íslandi. Hann gaf þau ekki endan- lega upp á bátinn fýrr en aldarfjórð- ungi eftir að hann skrifaði Gerska ævintýrið. . Einar hélt hinsvegar lengur' út, og verður það honum seint til hróss. Hann var samt aldrei neitt dolfall- inn yfír ástandinu þar eystra og gat átt það til að bíta á jaxlinn og kalla þarlenda ráðamenn „helvítis asna“. Honum ofbauð framferðið í Ungveijalandi 1956 og Tékkóslóv- akíu 1968. En hann hélt blátt áfram í lengstu lög í vonina um að Eyvi kynni þrátt fyrir allt að hressast. Hollusta Éinars við Sovétríkin var hinsvegar algert aukaatriði og skipti sem betur fer engu máli fyr- ir baráttu hans heima á Islandi. Það er fyrir neðan virðingu fólks með sæmilegt brjóstvit að ræða um svo- kallaða ijarstýringu, jafvel á tímum Komintems 1930—1938. Verkefni Einars og félaga voru öllu öðru fremur dagleg vandamál íslensks verkalýðs, atvinna, kaup, húsnæði, sjúkra- og slysatryggingar, hnífur og skeið. Um þetta geta þeir fræðst sem nenna að lesa gerðabækur verkalýðsfélaga fremur en hvat- skeytileg hrópyrði ungra kommún- ista í málgögnum eða væmnar ferðalýsingar bláeyra trúmanna. Einar var reyndar íhaldsmaður af góðri gerð. Hann er til að mynda fyrsti húsverndarsinni sem lætur að sér kveða á Alþingi. Það var ungum róttæklingi á 6. áratugnum nokkur forundran og nánast hneykslun að þetta átrúnaðargoð skyldi þrásinnis eyða orku sinni í að flytja þingsályktunartilögur um vemdun gamla Miðbæjarins í Reykjavík og fárast af öllum þunga yfír misþyrmingu Útvegsbanka- hússins. Þótt Einars verði sjálfsagt einkum minnst í sögunni sem ann- ars foreldris hinnar frægu Nýsköp- unarstjórnar ásamt Ólafi Thors 1944—1946, ætti það ekki að gleymast að hann var að sumu leyti meiri aðhaldsmaður en sjálfur for- ingi hins svokallaða íhaldsflokks. Flest er gott að segja um þraut- seigju Einars og félaga hans í átök- um við óbilgjarna yfirstétt sem þrá- aðist ótrúlega lengi við að fallast á margt það sem nú á tímum þykja sjálfsögð mannréttindi. Baráttan fyrir óskertu efnahagslegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði Islands er annað höfuðskraut þeirra. Eftir á er samt hægt að vera hálffeginn að þeir skyldu ekki ná landstjórn- inni að öllu í sínar hendur meðann þeir trúðu enn á góðan vilja Sovét- stjórnarinnar. Það er ekki að vita hvað þeir hefðu óviljandi getað flækt sig í. Og þá er hætt við að Einar hefði ekki orðið níræður. Árni Björnsson. Einar Olgeirsson er látinn. Þegar þessi mikli áhrifavaldur í lífí ein- staklinga og þjóðarinnar allrar kveður, snertir það okkur vini hans og samheija djúpt. Virðing og þökk kemur efst í hugann þegar hugsað er til Einars Olgeirssonar. Hann fór fremstur í flokki þeirra manna á Islandi, sem trúðu því að Island gæti risið úr fátækt og eymd og búið íbúum sínum fagurt mannlíf og góða menntun. Hann var í hópi þeirra manna, sem brettu upp erm- arnar og tóku af alefli til við að heija hinn vinnandi lýð íslands til áhrifa á eigin tilveru. Það var mikið happ unglingi á 6. áratugnum að kynnast heimilis- fólkinu á Hrefnugötu 2. Þar ríkti ró og friður, glaðværð á góðri stund og bjartsýni á að takast mætti að búa þjóðinni bjarta framtíð. Skáld og rithöfundar, innlendir sem erlendir, voru þar í miklum metum. Nægir að nefna Stein Stein- arr, Stephan G., Þorstein Erlings- son og Martin Andersen Nexö. Oft var vitnað til þessara manna í ræðu og riti. Ljóðlínur Þorsteins Erlings- sonar eiga hér vel við úr Brautinni: Og þó að jeg komist ei hálfa leið heim, og hvað sem á veginum bíður, þá held jeg nú samt á inn hijóstruga geim og heilsa með fógnuði vagninum þeim, sem eitthvað í áttina líður. Og þó að þú hlæir þeim heimskingjum að, sem hjer muni í ógönpm lenda, þá skaltu ekki að eilífu efast um það, að aftur mun þar verða haldið af stað, uns brautin er brotin til enda. Jeg trúi því, sannleiki, að siprinn þinn að síðustu vegina jafni; ogþjervinnjeg, konunpr, það semjegvinn, og því stíg ég hiklaus og vonglaður inn í frelsandi framtíðar nafni. Og kvíðið þið aunp, og komið þið þá, sem kyrrir og tvíráðir standið; því djarfmannlegt áræði er eldstólpi sá, sem eyðimörk harðstjómar leiddi okkur frá, og guð, sem mun gefa ökkur landið. Með breytni sinni og framkomu við annað fólk, vini og vandalausa, var Einar lifandi boðskapur sósíal- ískra jafnréttishugsjóna. Hann var sannur í verkum sínum og háði oft harða baráttu fyrir framgangi brýnna þjóðfélagsbreytinga. Einar var víðsýnn stjórnmála- maður, sem átti auðvelt með að vinna með mönnum úr öðrum stjómmálaflokkum. Þetta kom sennilega best í ljós á dögum Ný- sköpunarstjómarinnar 1944-1946, en oft síðar. Honum tókst að byggja upp víðtækt samstarf við fulltrúa íslensks atvinnulífs. Það var eins og honum tækist að snerta strengi innra með mönnum. Hann hafði gott lag á að hrífa menn með sér þegar hann lýsti fyrir þeim bjartri framtíðarsýn sinni. Það er athyglisvert, að fyrrum ungir íhaldsmenn skuli lýsa því í dag, við andlát Einars, að þeir hafi gert sér ferð á þingpalla Alþingis til þess eins að hlýða á ræðusnilld hans — þó að þeir væru ósammála hveiju einasta orði sem hann sagði. Hver voru þessi orð? Var það þegar Einar var að lýsa þörfinni á eflingu Háskóla íslands og upp- byggingu trausts menntakerfis í landinu, andstöðu sinni við tilraunir ýmissa afla til að gera ísland að erlendri herstöð eða þegar Einar var að lýsa baráttu sinni og þeirra sem með honum stóðu fyrir auknu félagslegu öryggi þeirra efnaminni í samfélaginu og auknum þjóðfé- lagsréttindum vinnandi fólks? Einar upplifði einhveija mestu sigra íslenskrar alþýðu á árunum 1930-1970. Og hann var í hita þess leiks og einn af mikilhæfustu forustumönnum hennar. Einar var um leið tilfinningaríkur maður og einstakt ljúfmenni í allri umgengni. Eitt lítið atvik í byrjun 7. áratug- arins líður mér aldrei úr minni. Við áttum samleið með strætisvagni og biðum brottfarar á Lækjartorgi. Einar var ósáttur við orðaval ræðu- manns nokkurs við þá athöfn sem við vorum að koma frá og því heitt í skapi. Inn í strætisvagninn kom ung telpa, snöktandi, en hún hafði týnt peningabuddunni sinni. Hún hafði á orði upphæðina sem í budd- unni var, en þá peninga hafði hún sjálf unnið sér inn með því að selja Morgunblaðið. Við stóðum upp í sæti okkar og hjálpuðum litlu telp- unni að leita. Ekki fannst buddan og stúlkan fór aftar í vagninn. Ekki fannst buddan og stúlkan fór aftar í vagninn. Þegar hún gekk framhjá sæti okkar í leið út úr vagn- inum, laumaði Einar peningaseðli í lófa hennar svo ekkert bar á. Telp- an hélt áfram út úr vagninum þerr- aði tárin á Lækjartorgi og hélt leið- ar sinnar. Reiði Einars var fokin út í veður og vind, stúlkunni var bættur skað- inn, án þess að nokkur maður hefði eftir því tekið sem í vagninum var. Þannig var Einar. Hann varð- veitti alla ævi þennan sanna streng mannúðar og virðingar fyrir ein- staklingum. Viljann til að standa með þeim sem minna máttu sín í lífsbaráttunni. Hann var ávallt þeirra maður. Með Einari Olgeirssyni er geng- inn á braut einn af bestu mönnum íslands á þessari öld. Sigríði, Sólveigu og öðrum að-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.