Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 14. F :JAR 1993
33
RIKISSPITALAR
Reyklaus vinnustaður
LYTALÆKNINGADEILD
Yfirlæknisstaða
Staða yfirlæknis við lýtalækningadeild Land-
spítalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá og með 1. júlí 1993.
Umsækjendur þurfa að hafa sérfræðiviður-
kenningu í lýtalækningum á íslandi. Umsókn-
um skal fylgja greinargerð um nám og fyrri
störf (curriculum vitae). Einnig upplýsingar
um vísindalegar rannsóknir og ritskrár.
Umsóknir sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík, fyrir 1. maí
1993.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Magnússon,
prófessor, í síma 601330 og Árni Björnsson,
yfirlæknir, í síma 601339.
BARNASPITALI HRINGSINS
Aðstoðarlæknar
Eftirfarandi aðstoðarlæknisstöður á Barnaspít-
ala Hringsins eru lausar á næstu mánuðum:
1. 2 stöður 1. maí.
Önnur til 6 mánaða (2. aðstoðarlæknir)
og hin til 1 árs (1. aðstoðarlæknir).
Umsóknarfrestur til 15. mars.
2. 2 stöður 1. aðstoðarlæknis (til 1 árs) frá
og með 1. júní.
3. 2 stöður 1. ágúst.
Önnur til 6 mánaða (2. aðstoðarlæknir)
og hin til 1 árs (1. aðstoðarlæknir).
4. 1 staða til 6 mánaða eða 1 árs frá og
með 1. september.
Aðstoðarlæknar sinna venjubundnum störf-
um og ætlast er til virkri þátttöku í rann-
sóknastarfsemi deildarinnar. Þeir taka til
skiptis bundnar vaktir samkvæmt fyrirfram
gerðri áætlun.
Æskilegt er að umsækjendur um stöðu
1. aðstoðarlæknis hafi reynslu af starfi á
barnadeild.
Þeim eru falin ábyrgðarmeiri störf, eftirlit
með yngri aðstoðarlæknum, kennsla lækna-
nema og annarra heilbrigðisstétta.
Um getur verið að ræða námsstöðu í barna-
lækningum eða starfsþjálfun til stuðnings
öðrum sérgreinum.
Nánari upplýsingar gefur prófessor Víkingur
H. Arnórsson í síma 601050.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum lækna
og senda forstöðulækni. Ljósrit af prófskír-
teini og lækningaleyfi fylgi. Ennfremur upp-
lýsingar um starfsferil ásamt staðfestingu
yfirmanna.
Umsóknarfrestur um stöðurnar 1. júní,
1. ágúst og 1. sept. er til 20. apríl.
SKÓLADAGHEIMILIÐ
MÁNAHVOLL
Fóstra óskast sem fyrst til afleysinga í 50%
stöðu á skóladagheimilið Mánahvol
v/Vífilsstaði.
Nánari upplýsingar veitir Sigfríður L. Marin-
ósdóttir, forstöðumaður, í síma 602877.
RÍKISSPIT AL AR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Framleiðslustjóri
sjófrystingar
Við leitum að dugmiklum og drífandi starfs-
manni er hefurtil að bera frumkvæði, reynslu
af fiskvinnslu úti á sjó, stjórnun og sjálfstæð-
um vinnubrögðum. Góð tungumálakunnátta
og þekking á sjávarútvegi nauðsynleg.
Æskileg menntun á sviði sjávarútvegs en
haldgóð reynsla mikils metin.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, gott
starfsumhverfi, sanngjörn laun og fjölbreytt
verkefni.
Starfssvið:
• Framleiðslu- og gæðastjórn.
• Dagleg samskipti við framleiðendur og
söluskrifstofur.
• Umsjón með framleiðslusamningum.
• Útgáfa vinnsluleiðbeininga.
• Áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel
Árnason, ráðningastjóri Ábendis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um fyrir 19. febrúar
1993 á eyðublöðum sem liggja frammi á
skrifstofu okkar.
I
abendi
RAÐGJOF 0G RAÐNINGAR
I
LAUGAVEGI 178 • 105 REYKJAVIK • SÍMI. 689099 • FAX: 689096
General Systems &
Software á íslandi hf.
Vegna þess að við teljum viðskiptavini eiga
eingöngu það besta skilið, þá viljum við ráða
mjög reynda sérfræðinga í eftirfarandi störf:
Sérfræðing á
vélbúnaðarsviði
með langa reynslu af uppsetningum og við-
gerðum á DEC PDP og VAX tölvum. Þekking
á stýrikerfinu VMS er nauðsynleg og hann
hafi til að bera mikla þjónustulund.
Sérfræðing á
hugbúnaðarsviði
sem hefur góða þekkingu á DEC VMS stýri-
kerfi ásamt Pathworks nethugbúnaði frá
DEC. Einungis kemur til greina maður með
langa reynslu í þjónustu á viðkomandi bún-
aði.
Við bjóðum góðum mönnum gott tækifæri
til að takast á við mörg og krefjandi verkefni
hjá ungu og framsæknu fyrirtæki sem hefur
það að markmiði að þjóna viðskiptavinum á
tölvumarkaði umfram væntingar þeirra.
Laun og aðrar greiðslur eru samkvæmt
reynslu og samkomulagi.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Vinsamlegast hafið samband við Guðmund
Hólmsteinsson eða Hrafn Haraldsson hjá
GSS á íslandi, Mörkinni 6, sími 91-681900.
Markmið GSS er að bjóða hátækniþjónustu á tölvumarkaði. General
System & Software á íslandi er hluti af keðju sem stofnuð var
í Bandaríkjunum fyrir 12 árum og starfar í 10 löndum Evrópu. GSS á ís-
landi er í eigu starfsmanna þess og GSS (USA) Ltd. Fyrirtækið þjónustar
og selur vél- og hugbúnað frá Digital Equipment Corporation, CorPRO frá
Corstar, GSStaion UNIX vinnustöðvar ásamt net- og jaðarbúnaði frá virt-
um framleiðendum.
DEC, PDP, VAX, VMS og Pathworks eru skrásett vörumerki Digital Equip-
ment Corporation. CorPRO er skrásett vörumerki Corstar Busiqess
Computing Co. Inc.
Sölustarf
Við leitum að fólki, sem hefur hæfileika til
þess að starfa sjálfstætt og getur skipulagt
sinn vinnutíma; fólki, sem vill starfa í hressum
hópi og ráða sínum tekjum.
Til stendur að bætavið 8 aðilum.
Starfið byggist á kynningum til heimila, fyrir-
tækja og í mörkuðum.
Björk Þorleifsdóttir, sölustjóri, mun veita
upplýsingar um starfið mánudag og þriðju-
dag í síma 676869.
Alþjóða verslunarfélagið hf.,
Fákafeni 11, Reykjavík.
Tölvunarfræðingar
Vegna mikilla verkefna óskar Strengur hf.
að ráða tölvunarfræðinga/verkfræðinga eða
aðila með sambærilega menntun í tvö störf.
1. Forritun og hugbúnaðarvinna tengd við-
skiptakerfinu FJÖLNI. Leitað er að aðila,
sem hefur unnið við viðskiptakerfi.
2. Forritun í INFORMIX og SQL. Reynsla
af UNIX nauðsynleg.
í boði eru sjálfstæð störf og góð laun.
Hægt er að bíða eftir réttum aðilum.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Márkússon
hjá Ráðgarði í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Strengur", fyrir 20.
febrúar.
Strengur hf. er 10 ára hugbúnaöarfyrirtæki þar sem starfa nú 30
manns, við hönnun, uppsetningu og þjónustu á hugpúnaði. Helstu
verkefni Strengs hf. eru m.a. vinna við viðskiptakerfið FJÖLIMi (sem
áður hét Bústjóri), sala og þjónusta á INFORMIX gagnagrunnskerf-
inu, rekstur á upplýsingabankanum HAFSJÓ ásamt öðrum sérhæfð-
um tölvuverkefnum.
RÁÐGAKÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Sölufulltrúi
Framsækið og öflugt innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík óskar eftir að ráða sölufulltrúa.
Fyrirtækið er deildaskipt, hefur góð við-
skiptasambönd og markaðsstaða þess er
sterk. Sölufulltrúinn starfar í nánum tengsl-
um við markaðsstjóra.
Við leitum að ungum og metnaðargjörnum
manni til að annast sjálfstæða sölu á vörum
fyrirtækisins til arkitekta, verktaka, fyrirtækja
o.fl. Viðkomandi þarf að hafa til að bera eftir-
talda eiginleika og þekkingu:
★ Rekstrar- og tæknimenntun.
★ Reynslu og þekkingu af sölustörfum.
★ Þekkingu á byggingavörum.
★ Tungumálakunnáttu.
★ Aldur 25-35 ára.
★ Stjórnunarhæfileika.
★ Frumkvæði og þor.
★ Samstarfshæfileika.
í boði er krefjandi og ögrandi starf, sem
gefur kost á auknum starfsframa og ábyrgð
í starfi. Byrjunartími samkomulag.
Upplýsingar veitir Katrín S. Ólafsdóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um, sem liggja frammi á skrifstofu okkar,
merktar: „Sölufulltrúi 007“, fyrir 23. febrúar nk.
Hagva ngurM
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 8136óó Ráöningarþjónusta Rekstrarráögjöf Skoöanakannanir