Morgunblaðið - 14.02.1993, Page 24

Morgunblaðið - 14.02.1993, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 Einar Olgeirsson, fyrr- verandi alþingismaður Innan Sósíalistaflokksins tók Einar Olgeirsson upp tillögur Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokksins um breytta kjördæmaskipan, en reyndi að forðast harðar deilur um þær í þingflokki Alþýðubandalags- ins. Meðan mál stóðu svo, i janúar 1959, afréð miðstjóm Sósíalista- flokksins að setja stefnumið flokks- ins fram á ný, en hann bjó við stefnuskrá frá 1938, sem að ráði Héðins Valdimarssonar hafði verið sniðin eftir stefnuskrá norska Verkamannaflokksins. Var þess vænst, að um leið yrði komist fyrir ágreining eða hann jafnaður. í því skyni var kosin níu manna nefnd, sem hélt allmarga fundi, flesta 1959 og 1960, að mig minnir, og sámdi Leið íslands til sósíalisma, er lögð var fyrir þing Sósíalistaflokksins 1962. Lítill munur var á skoðunum nefndarmanna, og hélt ég þess vegna, að vart kæmi til væringa innan Sósíalistaflokksins og Al- þýðubandalagsins á næstu árum. VI Þjóðmál áttu umfram allt hug Einars Olgeirssonar, en sátu ekki ein að honum. Nám í bókmenntum hóf hann í Þýskalandi að loknu stúdentsprófí, (er hann varð efstur á), varð góður tungumálamaður og víðlesinn. Tilvitnanir í íslensk skáld voru honum ákaflega tamar, ekki síst í vin sinn, Jóhannes úr Kötlum. Alþýðlegur og hjálpsamur var hann við hvem þann, sem á fund hans leitaði. Háttprýði brást honum aldr- ei, þótt í skap rynni. Þegar ég heyri á persónutöfra minnst, kemur mér Einar Olgeirs- son í hug, meðan hann var enn upp á sitt besta. Hann var þá ævintýra- leg persóna. Haraldur Jóhannsson. Ég var 17 ára í skóla norður á Akureyri þegar ég hitti fyrst Einar Olgeirsson. Það var um haustið 1928. Allar götur síðan var náin vinátta á milli okkar og samvinna okkar var mikil um áratuga skeið. Ég þekkti því vel til mannsins og að mínu viti var hann að mörgu leyti einstakur í sinni röð. Einn af þeim sem markaði djúp spor í sögu íslensku þjóðarinnar. Mér er ljóst að það er gjörsam- lega ómögulegt að lýsa æviferli Einars í einni minningargrein. Hann k^rn svo víða við og hann afkastaði sVo miklu verki. Ég vel því þann kostinn að stikla á þeim tveim meginþáttum sem mér fannst öðru fremur einkenna allan stjórnmálaferil hans. Þessir tveir þættir voru annarsvegar bar- átta hans fyrir sósíalismanum, fyrir þjóðfélagslegu réttlæti og mann- legri reisn, og hinsvegar barátta hans fyrir þjóðfrelsi okkar íslend- inga. Einar var hvorttveggja í senn: ákaflega mikill hugsjónamaður og óvenju raunsær stjómmálamaður. Hann var þaullærður í sögu mann- kynsins en einkum var honum kær saga íslensku þjóðarinnar. Hann var fljótur að meta atburði samtímans og hafði þá hliðsjón bæði af fortíð og framtíð. I orðasennum var hann oftar en hitt harður í hom að taka. Annars var hann einstakt ljúfmenni og per- sónutöfrar hans vora óvenju miklir. Enginn vafí er á því að mannúð var ríkasti eðlisþáttur Einars, sam- hygðin með mannfólkinu nær og fjær, einkum þó með þeim sem minna mega sín í lífsbaráttunni. Hann var húmanisti í orðsins fyllstu merkingu. Hann taldi að sérhver mannvera hefði rétt til að vera frjáls og að jafnrétti og bræðralag ætti að ríkja meðal jarðarbúa. Þetta var kjarninn í lifsskoðun Einars. Þess vegna varð hann sós- íalisti ungur að áram og í samræmi við það barðist hann af eldmóði alla starfsævina. „Hann stóð í brim- róti samtíðarinnar," sagði Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur eitt sinn um Einar. Það brimrót var oft æði mikið því um langt skeið stóð meiri styr um hann en aðra menn. Ýmsir telja að sósíalísk lífsskoð- un sé dauð og ómerk eftir að Sovét- ríkin liðuðust í sundur. Þetta er hin mesta fjarstæða. Á fyrstu áranum eftir byltinguna í Rússlandi töldu sósíalistar í öllum löndum heims að í hinu nýja stór- veldi, Sovétríkjunum, yrði stjórnað í anda sósíalismans, nýtt hagkerfí kæmi til sögunnar í stað hagkerfís kapítalismans. Annað kom á daginn. Eftir því sem árin liðu kom betur og betur í ljós að stjórnunin í hinu mikla stórveldi átti ekkert skylt við sósíal- isma. Þvert á móti. Valdamenn þar eystra beittu bæði kúgun og harð- ræði og afleiðingamar urðu skelfí- legar eins og kunnugt er. Moskvu-kommúnisminn varð í raun fullkomin andstæða við sósíal- isman. Því er það að þótt Sovétrík- in hafí hrunið þá lifir enn — og mun lifa áfram — hugsjónin um betra mannlíf til handa jarðarbúum. Ég gat þess hér að ofan að jafn- framt því að vera mikill hugsjóna- maður þá var Einar óvenju raunsær stjómmálamaður. Á mikilvægum tímamótum tókst honum að gnæfa yfír pólitískt dægurþras líðandi stundar. Gott dæmi um það var þáttur hans í nýsköpum atvinnu- veganna rétt fyrir miðbik aldarinn- ar. Allt frá haustinu 1929 og allan fjórða áratuginn var mikil kreppa í efnahagslífí allra landa, m.a. hér á íslandi. Hér varð gífurlegt at- vinnuleysi og því fylgdu miklar hörmungar, margur maðurinn lifði bókstaflega við sult og seyra. Á áranum 1940-1942 stóðu yfír deilur um launakjör. í þeim átökum beitti Einar sér mjög bæði í ræðu og riti. Deilan í ársbyijun 1942 var sérlega hörð. Þáverandi ríkisstjóm gaf út bráðabirgðalög um gerðar- dóm sem fékk vald til að ákveða allt kaupgjald í landinu og jafn- framt vora verkföll bönnuð. Verkamenn svöraðu með skæru- hemaði, þeir hættu að mæta til vinnu og svo fór að þeir sigruðu í átökunum. Ríkisstjómin varð að segja af sér og sigurinn í skæra- hernaðinum gerbreytti smám sam- an lífskjöram alls almennings. Islenskir sjómenn höfðu allt frá upphafí styijaldarinnar siglt skipum sínum hlöðnum fískifangi til Bret- lands. Að því kom að Islendingar eignuðust verulegar innstæður í erlendum bönkum. Hinsvegar höfðu framleiðslutæki landsmanna, eink- um fískiflotinn, gengið mjög úr sér og mörg skipanna höfðu týnst í hafi. Þá var það að Einar flutti hina sögufrægu nýsköpunarræðu á Al- þingi. í ræðunni hvatti hann til þess að framfaraöflin úr öllum höf- uðstéttum landsins — verkalýð, bændum og atvinnurekendum — tækju höndum saman til að mynda sterka ríkisstjóm. Einar sagði m.a. í ræðunni: „Það verða þijú höfuðsvið, þar sem reynir á oss, hvort vér eram því hlutverki vaxnir, sem saga og þróun þjóðarinnar krefst að vér leysum af hendi á þessum tímamót- um mannkynssögunnar. í fyrsta lagi: verndun sjálfstsæð- is þjóðarinnar ... I öðru lagi. vér þurfum að tryggja atvinnulega afstöðu íslensku þjóð- arinnar í heiminum ... Þriðja höfuðsviðið: ... Það er al- ger nýsköpun atvinnuveganna á Islandi með öflun fullkomnustu tækja, er við eiga, til atvinnurekstr- arins." Það var gæfa þjóðarinnar að þegar Einar flutti ræðu sína þá var Ólafur Thors forsætisráðherra landsins. Ólafur var mikill skörang- ur eða eins og Einar sagði síðar í minningargrein: „ ... rís Ólafur Thors hæst sem stjórnmálaleiðtogi að snilli og dirfsku ... ég held að Ólafur hafi alltaf álitið myndun nýsköpunarstjórnarinnar sitt mesta stjórnmálaafrek, sem það og var ..." Nýsköpunarstjómin var mynduð um haustið 1944 og var við völd í rúm tvö ár. Þrátt fyrir það að valda- tími hennar varð skammur kom hún ótrúlega miklu ?*^erk, vann stór- virki á ýmsum sviðum. Hún gerði mestu atvinnu- og tæknibyltingu sem orðið hefur hér á landi. Fyrir tilstilli hennar varð lífskjarabylting á íslandi. Allar áætlanir og framkvæmdir ríkisstjómarinnar hvíldu á Nýbygg- ingarráði en í því sat Einar og sem fyrr lét hann mikið til sín taka. Einar Olgeirsson var mjög þjóð- rækinn maður. Síðari hluta starfs- ævinnar vann hann einkum að þjóð- frelsismálum. Hann sá fyrir sér hættuna á að erlend ríki næðu tang- arhaldi á íslandi — í einni eða ann- arri mynd. Annarsvegar væri smá- þjóð, 250 þúsundir Islendinga, en hinsvegar erlend ríki með hundrað milljóna íbúa. Einar gerði sér ljóst að hinir erlendu aðilar myndu ásæl- ast náttúraauðlindir landsins, ork- una í vatnsföllunum, heita vatnið í iðram jarðar og síðast en ekki síst hin gjöfulu fískimið í hafínu kring um landið. í dag upplifa íslendingar örlaga- stund í sögu þjóðarinnar. Væri Ein- ar Olgeirsson lifandi þá myndi hann hvetja alla íslendinga til að huga að sögu sinni og vara við þeirri þróun mála sem hugsanlega getur orðið og sem Jón Helgason, skáld og prófessor, lýsir í einu kvæða sinna: Sú þjóð sem löngum átti ekki í sig brauð, en einatt bar þó reisn í fátækt sinni, skal efnum búin orðið þvílíkt gauð, er öðrum bjóði sig að fótaskinni. Þegar lýðveldið var stofnað árið 1944 fluttu forystumenn stjórn- málaflokkanna ræður. í ræðu sinni sagði Einar m.a.: „Gamla lýðveldið okkar var skap- að af höfðingjum, — og voldugustu höfðingjarnir tortímdu því. Það eruð þið, fólkið sjálft, sem hafið skapað nýja lýðveldið okkar. Frá fólkinu er það komið, — fólk- inu á það að þjóna — og fólkið verður að stjórna því, vakandi og virkt, ef hvorttveggja, lýðveldinu og fólkinu, á að vegna vel. Það er ósk mín í dag, að fólkið sjálft, fjöldinn, sem skapaði íslenska lýðveldið — svo samtaka og sterkur — megi aldrei sleppa af því hend- inni, heldur taka með hveijum deg- inum sem líður fastar og ákveðnar um stjórnvöl þess. Þá er langlífi lýðveldisins og farsæld fólksins tryggð.“ Einar var kvæntur Sigríði Þor- varðardóttur, hinni mætu konu sem ávallt stóð við hlið hans í blíðu og stríðu. Þau eignuðust tvö börn, Sólveigu og Ólaf Rafn, sagnfræð- ing, sem dó langt um aldur fram. Við Guðrún sendum Sigríði, Sól- veigu, barnabörnunum og öðram aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Haukur Helgason. Einar Olgeirsson, fyrrverandi al- þingismaður, er látinn, níræður að aldri. Ég heyrði hans fyrst getið þegar ég var strákur austur á Norð- fírði. Nokkuð var liðið á kjörtíma- bil bæjarstjórnarinnar sem kosin við 27. janúar 1946, en þá höfðu flokksfélagar Einars í Sósíalista- flokknum fengið hreinan meirihluta í bæjarstjóm Neskaupstaðar í fyrsta sinn. Heimsstyijöldinni var nýlokið, kreppan að baki. Kynslóðin sem nú var tekin til við að umskapa bæjarfélagið komst til þroska á kreppuárunum, þegar fátækt og öryggisleysi umlukti líf verkafólks. Það fór oft ekki mikið fyrir mannúð- inni á kreppuáranum og mildi at- vinnurekenda var af skomum skammti. Ég man vel þá sérstöku bjartsýni sem ríkti meðal fullorðna fólksins á Norðfírði á þessum áram. Við fengum tvo nýsköpunartogara, bátaflotinn stækkaði, fjölþætt fisk- vinnslustöð var að rísa, dráttar- braut og skipasmíðastöð tekin til starfa, bygging sjúkrahúss að kom- ast á rekspöl, við voram að komast í vegasamband við umheiminn. Hvert sem litið var vora félagar og samflokksmenn Einars Olgeirsson- ar að störfum, meira að segja um- boðsmaður almættisins í plássinu, presturinn sem flutti bæjarbúum fagnaðarerindi kristindómsins úr prédikunarstólum, var í Sósíalista- flokknum. Þetta var tími vissuniiar um að manniífið yrði fegurra en það var. Á heimili okkar komu þijú blöð, Árblik, sem Bjarni Þórðarson, fræg- ur bæjarstjóri úr röðum sósíalista, sá um að koma út í hverri viku, Morgunblaðið og Þjóðviljinn. Fljót- lega rann upp fyrir mér að Morgun- blaðið var á móti því sem stóð í hinum báðum, en nánast allir sem ég þekkti voru með. Fólkið og flokk- urinn sem var með því sem stóð í Þjóðviljanum og Árbliki var ekki margra fiska virði að mati Morgun- blaðsins. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég tók eftir því að Morgun- blaðinu var sérlega uppsigað við mann sem hét Einar Olgeirsson. í því efni var fjöldi fólks sem ég þekkti algerlega ósammála blaðinu. Það hafði þvert á móti dálæti á manninum og beið einatt með eftir- væntingu eftir að heyra í honum í eldhúsdagsumræðum í útvarpinu. Á þessu skeiði ævinnar er heimurinn ekki flókinn, skilgreiningar einfald- ar; ef Morgunblaðið var á móti þeim manni sem allt það góða fólk sem ég þekkti var með, þá hlaut eitt- hvað að vera athugavert við Morg- unblaðið. Um það bil áratug síðar, þá kom- inn til Reykjavíkur, kynntist ég svo þessum merkilega manni og hafði þá fyrir nokkru komist að því að Morgunblaðið átti miklu fleiri fylgj- endur en mig hafði granað í æsku minni heima á Norðfirði. Ég gekk í Æskulýðsfylkinguna og tók að sækja leshringi og fræðslufundi þar sem Einar Olgeirsson ræddi við okkur, fjöldann allan af ungu fólki, um þjóðfélagsmál. Hann hafði undravert lag á því að gera umræð- ur um pólitík að hreinni skemmtun og engan mann hef ég hitt sem gat í samræðum ofið saman sögu, bók- menntir, alþjóðahyggju og nútíma- stjórnmál af jafn mikill list og hann. Hér er ekki rúm eða ástæða til að rekja stjórnmálaferil Einars 01- geirssonar. En þó ég viti að margir aðrir muni gera það þá get ég ekki látið hjá líða að nefna nýsköpunar- stjórnina sem tók við völdum 21. otkóber 1944. Að henni stóðu Sjálf- stæðisflokkur, Sósíalistaflokkur og Alþýðuflokkur. í nálega tvo áratugi hafði Einar Olgeirsson verið hvass- asti gagnrýnandi þeirra stjórnmála- viðhorfa sem Ólafur Thors boðaði. Ólafur var af einni auðugustu fjöl- skyldu landsins, nánast persónu- gervingur þess auðvalds sem Einar Olgeirsson beitti öllu afli sínu gegn. En það má hafa til marks um rism- ikla afstöðu beggja þessara manna, að þeir urðu ekki einasta nánir sam- starfsmenn heldur persónulegir vin- ir enda þótt hvoragur vandaði hin- um kveðjurnar í pólitískum slag. Fyrir þeim lá að svara þessari einföldu en kannski um leið flóknu spurningu: Hvað á að gera við stríðsgróðann? (Líklega einhveijir tugir milljarða á núvirði.) Niður- staðan varð sú að nota verulegan hluta af þessu fé til að byggja upp nútímaatvinnulíf, með stórfelldum skipakaupum og fjárfestingum í sjávarútvegi, iðnaði og landbúnaði. Margt hefur breyst síðan þá en á þessum grunni hefur atvinnulíf ís- lendinga staðið síðan. Og það var ekki síst fyrir tilverknað þessarar stjómar sem svo mikillar bjartsýni gætti í heimabyggð minni. Einar Olgeirsson var fyrsti rit- stjóri Þjóðviljans sem hóf göngu sína haustið 1936. Um gildi blaðs- ins fyrir vinstri hreyfínguna er ástæðulaust að fjölyrða, en erfiður fjárhagur varð því að fjörtjóni meira en hálfri öld síðar. Atvikin höguðu því svo til að það varð mitt hlut- skipti, sem ritstjóri blaðsins og for- maður Útgáfufélagsins, að ganga á fund Einars Olgeirssonar og segja honum hvað til stæði. Ég kveið því samtali. Mér fannst við hefðum átt að geta gert betur. Heilsu hans hafði vissulega hrakað, en hann reyndist eins og fyrri daginn, hvort tveggja í senn, raunsær og uppörv- andi. Umræðuefnið varð eins og oft áður af sagnfræðilegum toga, flétt- að saman við vangaveltur um fram- tíðina. Hún verður vissulega önnur en hann sá hana fyrir sér á árum áður. En hugsjónin um efnahags- legan, félagslegan og menningar- legan jöfnuð mun lifa og dafna löngu eftir að þjóðirnar era orðnar slituppgefnar á þeirri siðlausu auð- hyggju sem nú tröllríður heiminum. Félagi er kvaddur. Ég sendi þeim mæðgum Sigríði og Sólveigu, ást- vinum og afkomendum Einars min- ar dýpstu samúðarkveðjur. Helgi Guðmundsson, fyrrv. ritstjóri Þjóðvi(jans. Hann kann að hafa átt marga andstæðinga, en naumast nokkurn persónulegan óvin. (Engels um Marx.) Eldhuginn og ljúfmennið Einar Olgeirsson hefur kvatt okkur. Þar sem ég sit hér og hripa þessi fátæk- legu kveðjuorð sé ég hann í minn- ingunni í vinahóp og miðri frásögn grípa bók úr hillu og lesa ljómandi augum fleyg orð eftir Laxness, Þórberg, Stephan G., Þorstein Erl- ings. Eða þegar hann segir: „Það er nú aldeilis margt sem við þurfum að ræða,“ og leiðir mig, höfðingleg- ur og hlýr í senn, inn í vinnuhornið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.