Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRUAR 1993
t
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir og bróðir,
VALDIMAR VALDIMARSSON
fyrrverandi brunavörður,
sem lést af slysförum 9. febrúar, verður jarðsunginn frá Lang-
holtskirkju þriðjudaginn 16. febrúar kl. 15.00.
Guðrún Svanhvít Sigurðardóttir,
Fanney Dögg Valdimarsdóttir,
Kristján Valdimarsson.
t
Ástkaer eiginkona mín,
ANNA BJÖRNSDÓTTIR,
Sléttuvegi 11,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. febrúar
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag
fslands.
Árni Gestsson.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐJÓNS MAGNÚSSONAR
frá Kjörvogi.
Guðmunda Þ. Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkarkveðjurfærum við öllum þeim, er heiðruðu minn-
ingu
HARALDAR S. NORÐDAHLS
fyrrverandi tolivarðar
við útför hans og með blóma- og minningagjöfum.
Sérstaklega þökkum við Stórstúku íslands og Tollvarðafélagi ís-
lands fyrir þá virðingu er honum var sýnd við útförina.
Aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, stjúpföður, afa og langafa,
SIGURÐAR JÓNS
GUÐMUNDSSONAR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
áður Urðarstíg 6.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Reykjavfk.
Gyðriður Jónsdóttir,
Sigurþór Sigurðsson,
Kristján Sigurösson,
Sigurður G. Sigurðsson,
Einar Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
t
Elskulegur sonur okkar,
FRIÐRIK ÁRNI PÉTURSSON
frá Norðurgröf,
lést hér í bænum þann 11. febrúar sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir okkar hönd, systkina hins látna og annarra vandamanna,
Elin Þ. Bjarnadóttir, Pétur Pálmason.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík, og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Minning
Anna Bjömsdóttir
Fædd 6. apríl 1922
Dáin 7. febrúar 1993
Gleðin og sorgin með tárum sig tjá
í tindrandi perlum á mannanna brá
sem morgundögg liðinnar nætur.
Sá veit einn hvað veldur er grætur.
(G.SK.)
Vissulega er það svo að markmið
okkar í lífinu eru mörg og mismun-
andi, þau breytast í tímans rás, eitt
tekur við af öðru eftir því sem lífið
líður hjá.
Við fæðumst inn í þennan heim
hjálparvana og öðrum háð. Smám-
saman öðlumst við aukinn þroska,
þekkingu og reynslu. Ósjálfbjarga
bam breytist í ungling, síðar í full-
þroska manneskju með ábyrgð og
skyldur og að lokum færist aldurinn
yfir, aðrir taka við og þess er notið
að fá að vera þátttakandi án
ábyrgðar um stund.
Allt okkar lífshlaup erum við að
bjástra við að koma okkur svolítið
áfram, ná settum markmiðum. Þá
er pft horft langt yfir skammt.
Á stundu sem þessari er spurt:
Hvað er það sem skiptir mestu
máli í lífinu? Eftir skamma umhugs-
un er þessu auðsvarað. Það er
umhyggja, umönnun, vinátta og
elska. Þessi elska sem ein mann-
eskja veitir annarri með því að taka
eftir, hlusta, skilja, hafa áhuga á
og aðstoða, vinátta sem endist langt
líf.
Ungt fólk sem flyst frá átthögum
sínum til Reykjavíkur er fjarri fjöl-
skyldum sínum. Það leitar hvort til
Blómastofa
Friðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öll kvöld
tilkl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
annars. Það deilir gleði og sorgum.
Hlær og grætur, hlær þó meira en
það grætur og styður hvort annað
gegnum lífíð. Það fæðast börn og
hveiju og einu er tekið eins og það
sé sérstakt, hvert barn elskað.
Börnin eldast, það koma barnabörn
og bamabarnabörn og enn er hlúð
að, alltaf spurt, sinnt eins og kostur
er.
Slík var Anna gagnvart okkur,
slík var vinátta þessara tveggja fjöl-
skyldna Önnu og Árna og okkar
sem talin erum í tugum. Það er
mikil gæfa í lífinu að eiga vini sem
þessa og njóta ástúðar þeirra.
Hún Anna var með stórt hjarta,
hún átti stóran hóp ættingja og
vina sem hún hugsaði um á sama
hátt og okkur.
Elsku Árni, við vottum þér okkar
dýpstu samúð og biðjum góðan Guð
að blessa þig og varðveita.
Anna kom eins og sólargeisli inn
í líf okkar með gleði og yl og þann-
ig mun minning hennar geymast
með okkur.
Rósa, Gunnar og fjölskyldur.
Fyrir aðeins fáeinum vikum voru
Anna frænka og Árni frændi í veislu
hjá mér og dóttur minni. í augum
okkar mæðgna var tilefni til veislu-
halda ærið og við vildum gleðjast
með öllum þeim sem okkur þykir
vænst um. í þeirn hópi voru að sjálf-
sögðu Anna og Árni. Ekki grunaði
okkur að aðeins fáeinum vikum síð-
ar lægi sú þraut fyrir okkur að
reyna að skilja og sætta okkur við
að Anna frænka væri ekki lengur
á meðal okkar. Hún Anna með sitt
stóra hjarta og hlýja faðm sem var
alltaf opinn. Á stundu sem þessari
sækja minningarnar að og ótal
myndir skjótast upp í hugann. Þær
eiga það flestar sameiginlegt að á
þeim sé ég Önnu og í kringum hana
eitt eða fleiri böm. Ég þekki enga
konu sem átti jafn mörg börn þó
svo að hún og Ámi væm það sem
kallað er bamlaus. Við — sem emm
böm ættingja og vina erum þeirra
f3lóm, kransar
00 skreytingar.
Opiðtilkl.22.'
BLáaTÁLPgRJRR
Vesturgötu 4, sími 622707
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS VIKTORS GUÐMUNDSSONAR,
Norðurbrún 1.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar 14-G á Landspítal-
anum fyrir langa og góða aðhlynningu.
Helga Stefánsdóttir,
Stella Stefánsdóttir,
Guðmundur Stefánsson,
Erlingur Stefánsson,
Albert Stefánsson,
Jóna Erlingsdóttir,
Friðgeir Gunnarsson,
Aðalsteinn Þorbergsson,
Erla Ottósdóttir,
Vigdís Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
frú GUÐNÝJAR STEFÁNSDÓTTUR,
síðast Hrafnistu, Reykjavík,
áður Steinaborg, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Reykjavík, fyrir góða
aðhlynningu og hjúkrun.
Jóhanna Ivarsdóttir, Þorvaldur Magnússon,
Stefania ívarsdóttir, Sæmundur Magnússon,
Guðmundur ívarsson, Guðfinna Óskarsdóttir,
Arnleif ívarsdóttir, Sigurður Danielsson
barnabörn og barnabarnabörn.
börn og börnin okkar þeirra barna-
börn.
Anna var gift föðurbróður mín-
um, Árna Gestssyni. Þau bjuggu í
Reykjavík, en fjölskylda mín fýrir
norðan. Sem barn fékk ég að fara <
til Reylqavíkur á hveiju ári og vera *
hjá Önnu og Árna í nokkrar vikur.
Þetta þóttu mér mikil forréttindi
og ég hlakkaði alltaf jafn mikið til.
Það var svo gaman og gott að vera
hjá þeim, mér fannst ég alltaf eins <
og prinsessa í ævintýri. Eftir að ég "
fluttist til Reykjavíkur, átti ég ör-
uggt athvarf hjá þeim og þegar
dóttir mín fæddist tóku þau að sér
afa- og ömmuhlutverkið. í sam-
skiptum Önnu og ungrar dóttur
minnar sá ég hvers vegna böm elsk-
uðu hana svona mikið. Hún bar
ótakmarkaða virðingu fyrir okkur
— hún hafði alltaf tíma til að hlusta
— hún mundi alltaf eftir að spyija
hvað við værum að fást við og
hvernig gengi með það sem var
efst á baugi síðast þegar við töluð-
um við hana. Anna frænka var
dugleg við að minna okkur á atvik
sem áttu sér stað þegar við vorum
börn, bæði spaugileg og alvarleg. <s
Hvað hún gat hlegið. Fyrir örfáum
vikum minnti hún mig á nokkur
slík sem vörðuðu dóttur mína unga.
Ég var búin að gleyma þeim enda
hafði hún af því áhyggjur undir
lokin hver mundi nú muna atburði (
sem þessa og hún bað móður mína
að minna mig á að skrifa þá niður.
Kannski geri ég það en eitt er víst
að ég þarf ekki að skrifa hjá mér
minningar um Önnu frænku. Elsku
Árni frændi — ég á engin orð sem
duga en vil að þú vitir að hún elsku
Anna þín mun lifa í minningum
okkar Ásdísar.
Þú sagðir mér
að leita til þín
þegar sortinn settist að
þegar einsemdin stryki
löngum, grönnum fingrum
um dagana
Ég stend við bakkann
(Vigdís Grímsdóttir) *
Stefanía Traustadóttir.
Vegna vangár láðist að birta
mynd af Guðnýju Jennýju Marteins-
dóttur með minningargrein um
hana í Morgunblaðinu í gær. Hlut-
aðeigandi eru innilega beðnir afsök-
unar á mistökunum.